Morgunblaðið - 11.04.1997, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Comfort“ boxdýna
105x200 sm áður 26.890,- nú: 22.900,
120x200 sm áður 30.890,- nú: 24.900,
140x200 sm áður 37.890,- nú: 34.900,
160x200 sm áður 41.890,- nú: 39.900,
90x200 áður:
24.890
Verð með fótum
Gestarúm J
Kommóða
Hvítt:
Barnastóll
Plastkarfa
á hjólum
PATRICA matarstell
Verð áður:
Skeifunni 13 Noröurtanga 3
108 Reykjavfk 600 Akureyri
568 7499 462 6662
Reykjavfkurvegi 72
220 Hafnarfjöröur
565 5560
Holtagöröum
v/Holtaveg
104 Reykjavfk
588 7499
AFMÆUSmJBOB!
Nú aðeins:
Einnig fáanleg í beyki
fyrir aðeins 500 kr. aukalega
Nú aðeins:
I DAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Dos Hermanas á
Spáni sem nú stendur yfir.
Spánverjinn Miguel Illesc-
as Cordoba (2.635) var
með hvítt, en Englending-
urinn Nigel Short (2.690)
hafði svart og átti leik.
34. - Rxe4! (Sterkast, en
annar laglegur leikur var
34. - Hg4! sem dugði líka
til vinnings) 35. fxe4 -
Hgl+! og Illescas gaf, því
hann er óveijandi mát í
öðrum leik. Staðan að lokn-
um sjö umferðum af níu
er þessi: 1. Kramnik 5 v.,
2. Anand 4V2 v.,
3. -5. Júdit Polgar,
Topalov og Gelfand
4 v., 6. Karpov 3 7z
v., 7.-9. Salov,
Short og Shirov 3
v., 10. Illescas 1 v.
Nethraðmót á
sunnudaginn kl.
20. Hellir og Taflfé-
lag Kópavogs
standa sameigin-
lega fyrir mótinu
sem fer fram á Int-
ernetinu, sem sumir
kalla alnet. Hlíðar
Þór Hreinsson er
skákstjóri, en hann er ein-
mitt einn stjórnenda í
danska skáknetskák-
klúbbnum EICS og því
þaulvanur að sjá um slíka
atburði. Þátttökutilkynn-
ingar og fyrirspurnir
sendist til Hlíðars Þórs á
netfangið teltreknet.is.
Upplýsingar einnig á
íslenskri skáksíðu
Daða Arnar Jónssonar:
http://www.vks.is/skak.
Pennavinir
ÞRÍTUG ítölsk kona, sem
starfar sem ritari og getur
skrifað á þýsku, ensku,
spænsku og dönsku auk
ítölsku. Með áhuga á
ferðalögum, tónlist, bók-
menntum, skíðum, sundi
o.fl.:
Ines De Giuseppe,
Via Cavour 34/C,
20098 S. Giuliano Mi,
Italy.
BANDARÍSKUR 45 ára
karlmaður með mikinn
íslandsáhuga:
Rick Jarecki,
3875 Cambridge 1011,
Las Vegas,
NV 89119,
U.S.A.
TÓLF ára bandarísk
stúlka með margvísleg
áhugamál:
Jodi Doyle,
8 River street,
Medway,
Massachusettes,
USA 02053.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bók-
menntum, tónlist og tenn-
is:
Kanae Mima,
3-25-20 Shodo Sakae-ku,
Yokohama-shi,
Kanagawa,
247 Japan.
TUTTUGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga
á íþróttum o.fl.:
Hannah Acquay,
P.O. box 1152,
Cape Coast,
Ghana.
TÓLF ára bandarískur
piltur með margvísleg
áhugamál:
Joshua Miller,
10185 W.Statehgw.TT,
Republic,
MO 65738,
U.S.A.
VELVAKANDI
Svcirar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þáttur Spaug--
stofumanna
á spólu?
MATTA hafði samband
við Velvakanda og hefur
hún áhuga á að komast
í samband við einhvern
sem tók upp á spólu
þáttinn með
Spaugstofumönnum,
sem sýndur var
laugardag fyrir páska,
en hún missti af
þættinum vegna dvalar
erlendis. Ef einhver
getur liðsinnt henni er
hún í síma 557-2889.
Þjóðarsálin á
lágu plani?
HÓLMFRÍÐUR hafði
samband við Velvakanda
og segist hún vera
sammála Víkveija í
blaðinu 9. apríl þar sem
fjallað er um útvarps-
þáttinn Þjóðarsálina.
Hún telur að hætta eigi
útsendingu þáttarins,
þáttastjórnendur hafi
ekki myndugleika til að
hafa nógu góða stjórn á
þættinum. Hún telur
þáttinn vera orðinn á
lágu plani, oft sé mikið
illgirnistal og ómerkilegt
slúður sem eigi ekki
heima í útvarpi.
Á að rífa
ráðhúsið?
KONA hringdi og var
hún með hugleiðingar
um viðbyggingu Iðnó-
hússins. Hún telur að ef
rífa eigi viðbygginguna
megi alveg eins rífa
ráðhúsið, því ekki hafi
allir verið sáttir við þá
byggingu. Hún vill
ámálga það að farið sé
gætilega með peninga
skattborgaranna.
Tapað/fundið
Gullarmband
tapaðist
GULLARMBAND tapað-
ist sunnudaginn 6. apríl
annaðhvort við Drápuhlíð,
Lönguhlíð eða Miklubraut.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
551-6380.
Gleraugn töpuðust
GLERAUGU töpuðust
fyrir 2 vikum. Þau voru í
brúnu hulstri. Líklega töp-
uðust þau á Laugavegi
eða Tryggvagötu. Skilvís
finnandi hringi í síma
557-3577 eftir kl. 17.
Gleraugu fundust
GLERAUGU fundust
fyrir utan Laugardals-
sundlaug 8. apríl. Upp-
lýsingar í afgreiðslu
sundlaugarinnar.
GSM-sími tapaðist
GSM-sími tapaðist í Bíó-
höllinni sunnudaginn 6.
apríl. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 557-6866.
Dýrahald
Alhvítur högni
er í óskilum
UNGUR högni, alhvítur,
einstaklega blíður og
manneiskur er í óskilum
í Drápuhlíð. Uppl. í síma
551-6380.
Norskur
skógarköttur
hvarf að heiman
NORSKUR skógarköttur,
læða með stífan afturfót,
hvít, bröndótt og eyma-
merkt hvarf að heiman frá
Sólvallagötu fimmtudag-
inn 3. apríl. Þeir sem hafa
orðið kisu varir hafi sam-
band í síma 562-0133 eða
553-4418.
Víkverji skrifar...
SKÝRSLA Samkeppnisráðs um
samruna innanlandsflugs
Flugleiða hf. og Flugfélags Norður-
lands hf. er hið merkasta plagg,
hvaða skoðun sem menn kunna
annars að hafa á niðurstöðunum.
Skrifari grípur niður í skýrsluna á
tveimur stöðum. í kafla skýrslunnar
um þjónustumarkaðinn, þar sem
fjallað er um aukna bifreiðaeign
landsmanna og bættar vegasam-
göngur og áhrif þessara þátta á
rekstur innanlandsflugs hér á landi,
segir m.a:
„Telja verður að hin óbeina sam-
keppni milli innanlandsfiugs og
notkunar einkabifreiða sé virkust á
styttri leiðum. í því sambandi má
nefna að bætt vegakerfi hefur leitt
til þess að áætlunarflug hefur t.d.
lagst af til Blönduóss og Stykkis-
hólms. Hafa verður hins vegar í
huga að slík óbein samkeppni frá
neytendum er ekki einsdæmi í flugi
heldur verður hennar vart á ýmsum
mörkuðum. Má t.d. benda á þá
óbeinu samkeppni sem er á milli
starfsemi þvottahúsa og þvotta í
heimahúsum."
Skömmu síðar segir svo í skýrsl-
unni: „Bætt vegakerfi hefur það í
för með sér að eftirspurn eftir þjón-
ustu flugfélaga verður veikari. Á
sínum tíma veiktu t.d. rakvélar og
bætt rakvélablöð eftirspurn eftir
þjónustu rakara. í atvinnugreininni
voru það samt rakararnir sem voru
í samkeppni sín á milli á dvínandi
markaði þar sem einstaklingarnir
áttu auðveldara með að fyllnægja
rakstursþörf sinni upp á eigin spýt-
ur. Þótt bætt vegakerfi dragi úr
eftirspurn eftir þjónustu flugfélaga
þarf að hafa í huga að það á fyrst
og fremst við á styttri flugleiðum
og á ákveðnum árstímum. Þannig
munu Vestfirðir og Austfírðir verða
um ófyrirsjáanlega framtíð mjög
háðir flugsamgöngum á öllum árs-
tímum, og að vetrarlagi bætist
Norðurland við.“
XXX
A
ASTÆÐA er til að hrósa sjón-
varpsstöðvunum fyrir efni frá
íþróttaviðburðum síðustu vikur.
Handboltinn hefur verið allsráðandi
á dagskrá ríkissjónvarpsins og úr-
slitaleikurinn í kvennahandboltan-
um í fyrrakvöld er leikur sem
áhugamenn um íþróttir eiga lengi
eftir að minnast. Barátta stúlkn-
anna úr Haukum og Stjörnunni var
sannkölluð háspenna og mikil og
góð auglýsing fyrir kvennaíþróttir
0g handknattleiksíþróttina.
Körfuknattleikurinn var á Stöð 2
og það er ekki við sjónvarpsstöðina
að sakast þótt úrslitaleikirnir þar
næðu ekki hæstum hæðum vegna
yfirburða Keflvíkinga. Erlenda
knattspyrnan hefur svo verið á Sýn
og á miðvikudag voru þar tveir stór-
leikir til viðbótar við annað íþrótta-
efni á þeim bæ.
Sjálfsagt gagnrýna þeir sem ekki
fylgjast mikið með íþróttum þennan
risaskammt af sporti og sprikli, en
það er eins og gengur, sitt sýnist
hveijum. Skrifari getur þó ekki
annað en kvartað yfir því hversu
seint tilkynningar um breytingar á
dagskrá vegna beinna íþróttaút-
sendinga berast til dagblaða.
Stundum svo seint að ekki er hægt
að koma upplýsingum til neytenda
og í öðrum tilvikum jafnvel sama
dag og umræddur kappleikur fer
fram. Slíkt hringl á síðustu stundu
er illþolandi fyrir neytendur og yfir-
leitt með öllu ástæðulaust.
xxx
A
IGÆR fjallar Helgarpósturínn
meðal annars um enska knatt-
spyrnuliðið Derby County undir fyr-
irsögninni Reynsluboltarnir í Derby.
í töflu er greint frá markaskorurum
liðsins í vetur og þar kemur fram
að leikmaður að nafni Owngoal
hefur gert tvö mörk, bæði með
hægri fæti af stuttu færi. Ekki
kemur skrifari þessum leikmanni
fyrir sig í fljótu bragði, dettur helst
í hug að hann sé frændi Replays
nokkurs sem stöðugt verður betri
leikmaður og meira áberandi.