Morgunblaðið - 04.07.1997, Síða 26
26 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDGET Woods sýnir vatnslitamyndir í Ráðhúsinu.
Vatnslitamyndir
í Ráðhúsinu
BIRDGET Woods, ensk myndlista-
kona og kennari, opnar myndlista-
sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur á
morgun, laugardaginn 5. júlí, kl.
11. Sýningin verður opin daglega
á opnunartíma Ráðhússins til 15.
júlí og er í Tjarnarsal og veitinga-
sal. A sýningunni eru ríflega 40
vatnslitamyndir og meðal verk-
anna eru íslenskar landslagsmynd-
ir frá dvöl listakonunnar hérlendis
sl. sumar.
Bridget Woods lagði stund á
myndlistarnám í Bournemouth and
Poole College of Art. Árið 1980
varði hún heilu ári í Aix-en Pro-
vence í Frakklandi við að fullmóta
landslags- og portrettstíl sinn, bæði
í olíu og vatnslit. Hún hélt að því
loknu sína fyrstu einkasýningu. Síð-
an hefur hún sérhæft sig í vatnlista-
málun sem mikil hefð er fyrir í
Englandi og haldið 26 einkasýning-
ar þar og í Frakklandi.
Hún er myndlistarkennari í Eng-
landi þar sem hún kennir einkum
teikningu og vatnslitamálun, aðal-
lega módel og portrett, við Chic-
hester College í Suður-Englandi og
stendur fyrir námskeiðum í Frakk-
landi. í fyrrasumar kom hún fyrst
til Islands eftir kynni af íslenskum
nemendum sínum í Englandi og
hélt þá vatnslitanámskeið í tengsl-
um við Myndlistaskólann í Kópa-
vogi. Nú í vikunni lauk síðan öðru
námskeiði hennar hér á landi.
I list sinni reynir Bridget að end-
urspegla tilfinningar, andrúsmloft
og þau áhrif sem hún verður fyrir
af veðri, landslagi og fólki. List
hennar felst ekki síst í því að nýta
hina einstöku, gagnsæju eiginleika
vatnslitanna segir m.a. í kynningu.
„Stórbrotin
byggingarlist“
ÞÝSKI myndlistarmaðurinn Oliver
Kochta opnar sýninguna „I Like
the Suburb" í Gallerí 20 m2 á morg-
un, laugardaginn 5. júlí, klukkan
16.
Á sýningunni verða ljósmyndir,
skyggnur og teikningar, „sex dæmi
um stórbrotna byggingarlist í
Reykjavík“, svo sem segir í kynn-
ingu, en auk þess safn teikninga
eftir börn, „Börn teikna borgina
sína“, og meira efni sem lýtur að
byggingarlist og skipulagsmálum.
Sýningin mun standa til 10. júlí.
Kvöldopnun
í Nýlistasafninu
OPNAÐAR verða fimm sýningar í
Nýlistasafninu við Vatnsstíg 3b í
Reykjavík laugardaginn 5. júlí kl.
20.
Magnús Pálsson hefur komið sér
fyrir í GryQunni. Raddskúlptúrinn
„Ævintýr" eftir Magnús verður
frumfluttur á opnun kl. 20 og end-
urfluttur á sama tíma laugardaginn
12. júlí. Fiytjendur eru: Elfar Logi
Hannesson, Eyvindur Erlendsson,
Lilja Þórisdóttir og Marta Nordal.
I Forsal safnsins kynna sýningar-
stjórar Gallerís Gúlp og Undir Pari,
Særún Stefánsdóttir, Jóní Jónsdótt-
ir, Hlín Gylfadóttir og Dóra ísleifs-
dóttir, „Yngstu kynslóðina".
Áslaug Thorlacius sýnir ljósmynd-
ir og þrívíð verk í Bjarta og Svarta
sal. Þetta er fyrsta einkasýning Ás-
laugar en hún útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands 1991
og lauk BA-prófi við Háskóla Islands
í rússnesku 1993.
Á efstu hæð hússins eða í SUM-
sal verður haldið upp á 20 ára af-
mæli sýningarhússins Suðurgötu 7.
í Suðurgötu 7 hófu ungir myndlist-
armenn sýningarstarfsemi 1977, á
þeim tíma sem endurmat á gildi
gamalla húsa var að vakna hjá þjóð-
inni. Listamennirnir lögðu sitt lóð á
vogarskálina með því að sýna fram-
úrstefnulist og standa fyrir marg-
þættri menningarstarfsemi, t.a.m.
útgáfu tímaritsins Svart á hvítu, í
þessu látlausa timburhúsi. 1981 var
starfsemin lögð niður, hústö flutt og
er nú orðið safngripur í Árbæjar-
safni. Verkin sem sýnd verða á af-
mælissýningunni eru eftir 30 mynd-
listarmenn. Umsjónarmenn sýning-
arinnar eru Halldór Ásgeirsson og
Steingrímur Eyjförð.
Gestur safnsins í Setustofu
Jón Reykdal er gestur safnsins
úr röðum Félags íslenskra myndlist-
armanna í setustofu. Áður auglýstur
gestur, Veturliði Gunnarsson, situr
hjá að sinni. Jón Reykdal sýnir nokk-
ur ný málverk en hann á að baki
margar einkasýningar og hefur tek-
ið þátt í samsýningum hér og erlend-
is. Jón hefur um árabil kennt í Mynd-
lista- og handíðaskólanum og á síð-
ustu misserum við Kennaraháskóla
íslands.
Sýningarnar eru opnar daglega
nema á mánudögum frá kl. 14-18
og þeim lýkur 20. júlí. Opnað verður
á óhefðbundnum tíma laugardaginn
5. júlí kl. 20.
EDWIN Kaaber við
eitt verka sinna.
Málverkasýning
í Þrastarlundi
EDWIN Kaaber sýnir olíumálverk
og vatnlistamyndir í Þrastalundi,
veitingahúsinu við Sog.
Þetta er 13. einkasýning Edwins
og stendur hún til 20. júlí.
Djasstónleikar
DJASSTRÍÓ Sunnu Gunnlaugsdótt-
ur er um þessar mundir á tónleika-
ferð um ísland. Tríóið leikur á Hótel
Selinu á Hvammstanga föstudaginn
4. júlí kl. 21, Kaffi Krók á Sauðár-
króki laujgardaginn 5. júlí kl. 21 og
á Hótel Isafirði sunnudaginn 6. júlí
kl. 21.
Afmælishátíð
áHöfn
GUÐRÚN Benedikta Elíasdóttir
opnar málverkasýningu föstudaginn
4. júlí sem ber yfirskriftina „Nátt-
úrulega" í Kaupmannshúsinu, Hafn-
arbraut 2, Hornafjarðarbæ. Guðrún,
sem er fædd og uppalin á Höfn,
heldur þessa sýningu í tilefni af
hundrað ára afmælishátíð byggðar
á Höfn.
Myndirnar eru allar unnar á ár-
unum 1996 og 1997 og tengjast
allar manninum, náttúrunni og
áhrifum mannsins á umhverfi sitt.
Flestar myndanna eru málaðar með
vatnslitum en nokkrar með acryl á
dúk.
Þetta er önnur einkasýning Guð-
LJLJA Björk Egilsdóttir opnar á
morgun, laugardag, sýningu í gallerí
Sýniboxi við Vatnsstíg. í gallerí
Barmi sýnir Hulda Ágústsdóttir
speglastál.
Berendur gallerísins eru að þessu
sinni Bruce Concle og Hildur Bjama-
dóttir myndlistarmenn í New York.
GUÐRÚN Benedikta .
rúnar Benediktu en hún útskrifaðist
úr Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands árið 1987. Guðrún hefur tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum.
Verk eftir hana eru í eigu opinberra
stofnana og fyrirtækja. Á síðasta
ári var hún kjörin bæjarlistamaður
Kópavogs.
Sýningin mun standa yfir í viku.
í símsvaragalleríinu Hlust (s. 551
4348) sýnir málarinn Kristbergur Ó.
Pétursson nýtt hljóðverk, Peningur.
í gallerí 20m2 opnar Oliver Kochta
sýningu á laugardaginn kl. 16 og ber
yfirskriftina „I Like Suburbs". Gall-
erí 202 er opið kl. 15-18 miðviku-
daga til sunnudaga.
Galleríkeðjan Sýnirými
VORGYÐJAN
KEMUR
TONLIST
Seltjarnarncs-
ki r k j a
LJÓÐATÓNLEIKAR
Lög eftir íslenzka og erlenda höf-
unda. Sigrún Valgerður Gestsdótt-
ir sópran, Jónína Gísladóttir, orgel
og píanó. Seltjamameskirkju, mið-
vikudaginn 2. júlí kl. 20:30.
TRÚRÆKNTJ fólki kann
sumu að þykja orðið jaðra við
afhelgun hvað guðshús eru mik-
ið notuð til tónlistariðkunar, og
að hljómleikahald sé jafnvel far-
ið að skyggja á helgihald. Um
það eru sjálfsagt skiptar skoð-
anir, þó að undirr. sé meðal
þeirra er telja góða tónlist ekki
síður mannbætandi en meðal-
predikun. Engu að síður varð
manni hugsað til þess hversu
sjaldan orgel heyrist notað til
undirleiks á ljóðasöngstónleik-
um í kirkjum, þegar við kvað
blíður ómur litla pósitífsins í
Seltjarnarneskirkju í upphafi
tónleika Sigrúnar V. Gestdóttur
og Jónínu Gísladóttur á mið-
vikudaginn var í lagi Hjálmars
Ragnarssonar, Þú Guð sem
skapar líf og ljós. Seinni helm-
ingur tónleikanna hófst einnig
á trúarsönglagi eftir Hjálmar
við orgelundirleik, Kristur er
ljósið heimsins (báðir textar eft-
ir Kristján Val Ingólfsson), og
gerðu lögin mikið til að setja
svip innileika og hlýju á heildina.
Dagskráin var fjölbreytt og
bauð upp á bæði þekkt og minna
þekkt sönglög. Fyrir hlé voru
rótgrónir máttarstólpar söngva-
arfsins eins og Draumalandið
e. Sigfús Einarsson, Vorgyðjan
kemur e. Árna Thorsteinsson,
Viltu fá minn vin að sjá? og I
fjarlægð e. Karl O. Runólfsson
ásamt Svanasöngur á heiði og
Ég lít í anda liðna tíð e. Kaldal-
óns - við hliðina á sjaldséðari
en ekki síðri söngperlum eins
og þululögum Jórunnar Viðar,
Stúlkurnar ganga og Hún rær
og hún slær og tveim lögum
Sigursveins D. Kristinssonar,
Kveðið á Grænlandi (við þjóð-
legar braghendur eftir Sigurð
Breiðfjörð) og hið glitrandi litla
impressjóníska meistarastykki
Það sem enginn veit (t. Þórberg-
ur Þórðafson).
Eftir hlé voru Gruss og Auf
dem Flúgeln des Gesanges e.
Mendelssohn, Apres un Reve
og hið undurfagra Clair de
Lune e. Fauré og tveir negra-
sálmar (úts. Burleighs),
Nobody knows og Deep River.
Sem aukalag var sungið Fylgd
Sigursveins við almennan undir-
söng í viðlagi.
Lög á borð við Draumalandið
Sigfúsar leiða enn sem oftar
hugann að því hvort virkilega
sé ógerningur að þýða textann
sómasamlega og koma þeim á
framfæri erlendis, því • löngu
virðist kominn tími á það að
kynna a.m.k. nágrannaþjóðun-
um ijómann úr gullöld íslenzkr-
ar söngvaarfleifðar, og mætti
einnig vel fara að hugsa til
hljómplötuútgerðar í þeim efn-
um. Söngur Sigrúnar reis hér
hvað hæst í fyrri hluta dag-
skrár, og naut hann góðs af
hnitmiðaðri raddbeitingu, jafnt
á veikum nótum sem sterkum,
auk þess sem textaframburður
var, hér sem oftast nær, skýr
pg mótaður af sterkri innlifun.
I þululögum Jórunnar kom fram
epísk frásagnargáfa og næm-
leiki fyrir kímni, og hlýjar til-
finningar streymdu um vöggu-
lag Karls Runólfssonar, Lullu,
lullu bía, í andstæðu við lag
hans Viltu fá minn vin að sjá,
þar sem dramatísku hliðar söng-
konunnar fengu að njóta sín,
líkt og í Vorgyðju Árna næst á
undan.
í lögunum eftir hlé voru
manni einna minnisstæðust Ég
lít í anda, Auf dem Flúgeln,
Clair de Lune og Nobody knows.
í heild einkenndist flutningur
af yfirvegaðri ró og skemmti-
lega breiðri beitingu á rúbató,
sem stundum var meiri en vana-
legt er, einkum í íslenzku lögun-
um, en vel útfærð og sannfær-
andi. Sigrún syngur af tilfinn-
ingu en fágun og hefur afar
hlýja og unglega ljóðasöng-
rödd, sem án efa myndi njóta
sín enn betur með aukinni iðk-
un, væri atvinnugrundvöllur
fyrir þeirri mjög svo vanmetnu
tóngrein hér á landi, en sem
kunnugt er mun ljóðasöngur
jafnkröfuharður og hann gefur
lítið í aðra hönd.
Þó að einstöku sinni hafi vott-
að fyrir skorti á atvinnu-
mennskulegri síþjálfun, t.d. með
smá yfirskoti i tónhæð í Svana-
söngnum og Deep river, ásamt
nokkrum fölleitum nótum á
neðra sviði í Apres un reve,
benti samt margt til þess að
Sigrún eigi drjúga möguleika á
að hasla sér stærri völl en verið
hefur, ef vilji er fyrir hendi og
tækifæri gefast. Meðleikur Jón-
ínu Gísladóttur var án áberandi
sviptinga, en mjúkur, tillitssam-
ur og fylginn fram í fingurgóma.
Ríkarður Ö. Pálsson
EINVÍGISBYSSUR er heitið
á þessu verki Helga sem sýnt
er í Sjónarhóli.
Helgi Hjalta-
lín sýnir á
Sjónarhóli
SÝNING Helga Hjaltalíns Eyjólfs-
sonar, Kjöraðstæður, verður opnuð
á Sjónarhóli að Hverfsigötu 12
laugardaginn 5. júlí kl. 14.
I kynningu segir m.a.: „Und-
anfarin ár hefur hann fengist við
að búa til banvæn listaverk m.a.
snotrar ferðaöskjur í módernískum
anda fyrir lífshættulegar sýrur. Á
Sjónarhóli er hins vega að finna
„leikföng" eins og einvígisbyssur,
lásboga fyrir rétthenta og teygju-
byssu fyrir örvhenta. Þessi verk eru
unnin með hliðsjón af bandarískri
leiðbeiningabók frá síðari heims-
styijöld um smíði barnaglingurs en
þar er til dæmis stungið upp á „vél-
byssu" í jólapakka drengjanna.
Sýningin virðist þó ekki bera með
sér neinn siðferðilegan boðskap.
Eða réttara væri ef til vill að segja