Morgunblaðið - 13.07.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 156. TBL. 85. ÁRG. SUNNUDAGUR13. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vonbrigði vegna árása þrátt fyrir eftirgjöf mótmælenda á N-írlandi Morgunblaðið/Arnaldur S I sunnlenskum sudda VÆTUSAMT hefur verið á Suður- og Vest- misvel þótt gróðrinum hafi ekki veitt af eftir komuna ekkert á sig fá þar sem þeir voru að urlandi síðustu daga og kann mannfólkið því þurrkinn í allt vor. Þessir strákar létu þó úr- spóka sig með regnhlffina sína á Austurvelli. Bill Clinton í Kaupmannahöfn „Erum réttum megin þegar Danir standa með okkur Morgunblaðið. Kaupmannahöfn. SKIPULAGIÐ í kringum heimsókn Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna, til Dan- merkur var svo fullkomið, að jafnvel veðrið hefur verið eftir pöntun. Upp úr kl. 11 í gær fóru fyrstu hátíðargestirnir að tínast að Friðriksborgarhöll þar sen forsetinn býr hjá Margréti Þórhildi Dana- drottningu. Að Ioknum hádegisverði keyrði forset- inn í bfl sínum að minningarlundinum og áður en hann fór til fúndar við Poul Nyr- up Rasmussen forsætisráðherra ávarpaði hann almenning á Nýja torgi. Að því búnu flaug hann vestur um haf þar sem hann þarf að sannfæra þingið um ágæti nýju NATO-ákvarðananna. Víða um borgina hafði verið efnt til mótmæia en þeim var haldið ijarri þeim stöðum, sem Clinton nálgaðist og í fyrri- nótt voru óeirðir á Norðurbrú. Til hádegisverðarins í Friðriksborgar- höll var boðið 130 gestum og voru borðin skreytt með dönskum villiblómum og vormatur á borðum. Með honum voru drukkin vín frá vínekrum Henriks prins í Frakklandi. I ræðu sinni undirstrikaði Clinton sam- band landanna og sagði, að stundum stæðu þau tvö ein saman. Átti hann þá við samstöðu þeirra í afstöðunni til Kína. „Við vitum, að við erum réttum megin þegar Danir standa með okkur,“ bætti hann við í léttum tón. Það var koma Clintons á Nýja torg, sem gerði heimsóknina að almenningshá- tíð en þá sýndi hann á sér þá hlið, sem heillað hefur bandaríska kjósendur. Clinton var ekki einn í för því auk margra öryggisvarða fylgja honum eftir 1.100 blaðamenn frá 26 löndum. Spurt um hugsanir EVAN Brown fékk snjalla hugmynd en hún er bara í höfðinu á honum og verður þar enn um sinn þótt fyrrverandi yfir- maður hans hafi höfðað mál á hendur honum og krefjist þess, að hann leysi frá skjóðunni. Brown segist hafa fundið að- ferð til að breyta gömlu tölvumáli í nýtt og fullkomnara en hann neitaði hins veg- ar að segja fyrrverandi vinnuveitanda sínum frá aðferðinni. Fyrir þær sakir var hann rekinn frá fyrirtækinu í aprfl sl. og nú vill það neyða hann með dómi til að upplýsa hvað honum hefði flogið í hug meðan hann starfaði hjá því. Segja IRA þakka fyrir sig með banatilræðum Belfast. Reuter. ÁRASIR á her- og lögreglumenn á Norður- írlandi í fyrrinótt hafa valdið miklum von- brigðum en vonast var til, að sú ákvörðun Oraníu-reglu mótmælenda að hætta göngum um kaþólsk hverfi yrði til að draga úr ofbeld- inu í landinu. Auk þess voru tveir unglingar særðir skotsárum í gærmorgun. Eru liðs- menn IRA, írska lýðveldishersins, grunaðir um árásirnar, sem eru enn eitt áfallið fyrir friðarhorfur á Norður-írlandi. Sinn Fein, pólitískur armur IRA, hefur barist fyrir því, að mótmælendur hætti göng- um sínum um hverfi kaþólskra manna og - David Trimble, leiðtogi Sambandsflokksins, sagði í gær, að mótmælendur hefðu ákveðið að verða við því til að ögra ekki kaþólikkum að óþörfu. Sinn Fein og IRA hefðu hins vegar þakkað fyrir eftirgjöfina með banatilræðum. Mikil vonbrigði Setið var fyrir bifreið lögreglu- og her- mannanna í Norður-Belfast. Var skotið á hana og kastað að henni heimtilbúinni sprengju. Auk þess var skotið á tvo unglinga mótmælendatrúar í gærmorgun. Cecil Wal- ker, einn af leiðtogum sambandssinna, sagði, að þessar árásir yllu miklum vonbrigðum. „Við vorum að vona, að ákvörðunin um að hætta göngum um kaþólsk hverfi yrði metin að verðleikum en það eru augljóslega öfl inn- an IRA, sem vilja halda ofbeldisverkunum áfram,“ sagði Walker. Talsmenn IRA og Sinn Fein höfðu ekki tjáð sig um árásirnar í gær en Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein, hafði áður fagnað ákvörð- un mótmælenda en sumir aðrir félaga hans gerðu lítið úr henni. ■ Óranfumenn/6 BIÓT1SK AFÞREYING í HRÖflUM VÐ01 10 Eitt skref í einu B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.