Morgunblaðið - 13.07.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ1997 31
KARL KR.
JÓNSSON
+ Karl Kr. Jónsson
húsgagnasmiður
og kaupmaður var
fæddur á Stóra Bóli
í Mýrahreppi í Aust-
ur-Skaftafellssýslu
hinn 8. september
1905. Hann lést á
Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund
hinn 26. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin Jón
Þórðarson bóndi og
eiginkona hans Pál-
ína Erlendsdóttir.
Systkini Karls voru
Þórður, Elías, Ing-
var og Ólafía. Eru nú öll systkin-
in látin nema Ingvar sem búsett-
ur er á Hrafnistu í Reykjavík.
Karl stundaði ýmis störf til
sjós og lands á Austfjörðum þeg-
ar hann var ungur. Hann var
alinn upp með foreldrum og
systkinum í Holtaseli í Mýra-
hreppi. Árið 1929 hóf hann nám
i Eiðaskóla og lauk síðan námi
í trésmíðum frá Laugaskóla
1934. Næstu ár starfaði hann við
smíðar, aðallega húsgagnasmíði
og vann hann t.d. frá árinu 1935
til ársins 1938 við smíðar á inn-
réttingum og hús-
gögnum í Hallorms-
staðarskóla og eru
sum þessara húsgagna
enn í notkun þar. Á
Hallormsstað kynntist
Karl Ingibjörgu Sig-
urbjörnsdóttur frá
Búðum, seinna eigin-
kona Karls, en hún
stundaði nám við hús-
mæðraskólann á Hall-
ormsstað.
Haustið 1938 flutt-
ist Karl til Fáskrúðs-
fjarðar og hinn 14.
júní 1940 giftist hann
Ingibjörgu. Ingibjörg
var fædd 18. október 1912. Hún
var dóttir hjónanna Maríu Ey-
vindsdóttur sem ættuð var af
Skeiðum og Sigurbjörns Stefáns-
sonar frá Geststöðum í Fáskrúðs-
firði. Ingibjörg átti tvo bræður,
þá Stefán og Geir. Eru þau öll
látin.
Karl og Ingibjörg hófu búskap
á Fáskrúðsfirði en árið 1949
fluttu þau til Keflavíkur og
bjuggu þar, lengst af á Tjamar-
götu 20, allt þar til Ingibjörg lést
árið 1983, en þá flutti Karl í þjón-
ustuíbúð aldraðra í Bólstaðarhlíð
45 i Reykjavík. Síðustu tvö ár
ævi sinnar dvaldi Karl á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund í
Reykjavík.
Fyrstu búskaparár sín í Kefla-
vík vann Karl við smíðar, bæði
í Keflavík og á Keflavíkurflug-
velli, en árið 1962 gerist hann
kaupmaður og stundaði hann
kaupmannsstörf í 20 ár, eða þar
til hann lét af störfum 1982.
Þau Karl og Ingibjörg eign-
uðust fimm börn og eru tvö
þeirra látin. 1) María Sigur-
björg, f. 20. október 1940, gift-
ist Michael Porter og eiga þau
þijú börn, Inga Karl, Roy og
Láru. Michael lést 1985. 2) Jón
Pétur, f. 7. október 1941, giftist
Sigurbjörgu Sigurðardóttur og
eiga þau eina dóttur, Ingu Lilju.
Jón Pétur, lést 1963. 3) Stefán
Geir, f. 15. janúar 1945, giftur
Magneu Reynaldsdóttur og eiga
þau tvær dætur, Helenu Guð-
rúnu og Ilmi Maríu. 4) Erlingur
Þór, f. 15. júlí 1946. Hann lést
15. janúar 1947, aðeins sex mán-
aða gamall, 5) Kristinn, f. 10.
október 1947, kvæntur Sólveigu
Guðmundsdóttur og eiga þau
þrjú börn, Lísu, Amöndu Ingi-
björgu og Jón Pétur. Auk þeirra
á Kristinn einn son, Helga Þór.
Barnabarnabörn Karls em átta
talsins.
Útför Karls fer fram frá
Innri-Njarðvíkurkirkju í dag,
sunnudag 13. júlí, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Ör jarðneskum líkamanum
ferðast lífið, fullkomið
og breiðir vængi sína til himins
Um sali og hallir alheimsins
skimar það
leitar nýrra leiða
leitar nýrra staða
leitar nýs upphafs
Það finnur ást
það finnur hatur
það finnur öfund
það finnur gleði, sorg og einsemd
það finnur vinskap, fegurð og frið
Það finnur ungdóm og elli
það finnur heiður og vegsemd
það finnur auð og völd
það bíður átekta
Lífið
þetta undur
sem ekkert upphaf hefur
og engan endi
finnur loks farveg sinn
og hefst handa á ný
(M.R.)
Kæri tengdapabbi. Um leið og ég
kveð þig með þessum línum um lífið
vil ég þakka þér samveruna þessu
sinni. Eg á þér margt og mikið að
þakka og sérstaklega þakka ég þér
og Ingibjörgu fyrir að hafa gefið
mér son ykkar, Stefán Geir. Hann
er besta og dýrmætasta gjöf sem
ég hef fengið á lífsleiðinni, ásamt
því sem honum fylgir, dætrum okkar
tveim og þeirra fjölskyldum. Lífið
er eilíft og trúi ég því að engar til-
viljanir séu til, heldur ekki hvaða
tengdafólk maður velur sér. Ég hef
nú verið þrjátíu ár í þessari fjöl-
skyldu og tel mig tilheyra henni,
ekki síður en minni eigin. Þess vegna
er ég viss um að við munum hittast
aftur, og bið ég þess að þú megir
hafa frið og öryggi þar sem þú ert
nú og fæðast aftur við góðar kring-
umstæður næst.
Með þökk fyrir allt,
Magnea Reynaldsdóttir.
Yms eru áranna kynni
sem einum mér kveða brag
og vekur í mínu minni,
svo margt um liðinn dag.
Minningar margar hlýjar
og myndir af ýmsri gerð,
sem eru mér ávallt nýjar
á ellinnar gönguferð.
(Friðbert Pétursson)
Þetta ljóð kom mér í hug er mig
langaði með hlýhug og virðingu að
minnast tengdaforeldra minna. Karls
I Kr. Jónssonar sem lést 26. júní sl.
| og Ingibjargar Sigurbjörnsdóttur sem
lést 5. janúar 1983. Mér eru ætíð
ofarlega í huga allar þær góðu stund-
ir, umhyggjan og notalegheitin sem
þau sýndu mér og dætrum mínum í
gegnum tíðina. Þau spiluðu í raun
stórt hlutverk í lífi minu og uppeldi
dætranna. Þær voru ófáar ferðimar
sem Inga Lilja fór á Tjarnargötuna
og ísbarinn til afa og ömmu og hafði
þá oft hálfsystur sína með. Þá var
gjarnan vikið að þeim einhveiju smá-
ræði. Þau gerðu ekki upp á milli
þeirra, hvorki í viðmóti né til dæmis
jólagjöfum og fleiru. Oft vék Ingi-
björg að okkur sokkum og vettlingum
sem hún hafði pijónað handa þeim
systrum. Einnig er mér í fersku minni
að fyrir stórhátíðar kom Karl iðulega
með stóran kassa fullan af ýmsum
nauðsynjavörum til hátíðahalds. Með
þeim hjónum er horfíð fólk sem hið
fornkveðna máltæki á vel við um:
„Sælla er að gefa en þiggja.“
Einnig vil ég þakka Karli hversu
annt honum hefur verið um velferð
Ingu Lilju.
Blessuð sé minning þeirra.
Sigurbjörg Sigurðardóttir.
Elsku besti afí.
Okkur þykir leitt að hafa ekki
getað verið hjá þér þegar þú lagðir
af stað í ferðina sem þú hefur verið
að búa þig undir í dálítinn tíma. En
við vorum, erum og munum alltaf
vera með þér í hjartanu okkar, hvert
sem þú kýst að fara.
í okkar huga er dauðinn ekki nein
endastöð, heldur kaflaskil sem allir
menn þurfa að takast á við, nýtt
upphaf sem vafalaust leiðir að ein-
hveiju óvæntu og spennandi. Kannski
ertu bara hjá henni ömmu núna?!
Allavega hefurðu tíma til að hvíla
þig og safna kröftum fyrir næsta
áfangastað.
Við kveðjum þig, sáttar við tímann
sem þú valdir til að fara, en þó með
skrýtinni tilfínningu, vitandi að við
munum ekki sjá þig aftur í bráð.
Vitandi að núna eigum við bara minn-
ingamar um þig og ömmu, minning-
amar af Tjarnargötunni, ísbamum
og úr sumarbústaðnum; tvær litlar
stelpur með pylsu í annarri hendinni,
ís í hinni og sælubros á vör í sjopp-
unni hjá ömmu og afa. Þessar minn-
ingar er gott að eiga, núna þegar
allt er breytt, stelpurnar orðnar
mömmur, langafinn og langamman
farin og nýtt hús risið þar sem ísbar-
inn var.
Jæja, afí, við óskum þér bara alls
hins besta á nýja staðnum og þökkum
þér fyrir að vera afi okkar í þessu lífi.
Knús og milljón kossar.
Þínar,
Helena og Ilmur
Stefánsdætur.
Elsku besti afí minn. Nú er komið
að kveðjustundinni sem við höfum
svo oft rætt saman um. Ég vona svo
innilega að þér líði vel núna og að
þú sért hjá ömmu og pabba. Mig
tekur mjög sárt að hafa ekki verið
hjá þér á kveðjustundinni eins og þú
hafðir óskað eftir, það vildi svo
óheppilega til að ég skrapp aðeins
frá í stutta stund til að koma stelpun-
um mínum í pössun til að geta verið
hjá þér þar til yfír lyki.
Sökum þess að pabbi minn dó
þegar ég var ungbarn missti ég af
mörgum dýrmætum stundum með
föðurfólkinu mínu, sem ég er í dag
tengd mjög sterkum böndum. Ég er
innilega þakklát fyrir þær ómet-
anlegu stundir sem ég átti með ömmu
og þér á Tjarnargötu 20, og ekki
síst á Isbamum. Ég á þér og ömmu
svo óumræðilega margt að þakka,
þú og amma vomð alitaf alveg sér-
staklega góð við mig. Ég mun geyma
þessar ómetanlegu minningar í hjarta
mínu og hugsa oft til ykkar.
Elsku afí, ég kveð þig með þakk-
læti og söknuði. Ég þakka þér fyrir
allt sem þú varst mér, allt sem þú
gafst mér og ekki síst fyrir að hafa
alltaf haft velferð mína og dætra
minna sérstaklega í huga þínum. Ég
sendi þér og ömmu ástarkveðjur og
vonast til að hitta ykkur síðar meir.
Yljar mér oft á tíðum
endurskin liðins dags.
Gjafimar þínar geymi
glaður til sólarlags.
(Friðbert Pétursson)
Þín,
Inga Lilja.
SuðurlandsbrautlO
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HELGA HELGADÓTTIR,
Mánagerði 7,
Grindavík,
lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja miðvikudaginn
9. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
þriðjudaginn 15. júlí kl. 14.00.
Bogi G. Hallgrímsson,
Alda Bogadóttir, Guðmundur Jónsson,
Hallgrímur Bogason, Þórhildur Einarsdóttir,
Guðfinna Bogadóttir, Einar Bjarnason,
Helgi Bogason, Ella Björk Einarsdóttir,
Kristrún Bogadóttir
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN GUNNLAUGSSON
fyrrv. flugstjóri,
Geitlandi 6,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 15. júlí kl. 13.30.
Bryndís Ólafsdóttir,
Gunnlaugur F. Kristjánsson, Katrín Björnsdóttir,
Einar Kristjánsson, Katrín Ásgrímsdóttir,
Kristján Gunnlaugsson, Kristín Guðmundsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓAKIM HJARTARSON
skipstjóri
frá Hnífsdal,
Hæðargarði 29,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 14. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Ólafía G. Alfonsdóttir,
Gréta Jóakimsdóttir,
Helga S. Jóakimsdóttir,
J. Gunnar Jóakimsson,
Kristján G. Jóakimsson,
Aðalbjörg Jóakimsdóttir
Odd T. Marvel,
Sigurður B. Þórðarson,
Sólveig Þórhallsdóttir,
Sigrún Sigvaldadóttir,
og barnabörn.
+
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
HREFNA ÁSGEIRSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 44,
er lést á heimili sínu að morgni laugardagsins
5. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 15. júlí kl. 13.30.
Svanborg Daníelsdóttir, Ingvar Herbertsson,
Páll Björgvin Hilmarsson, Signý Eggertsdóttir,
Hrefna Sveinsdóttir, Júlíus Ó. Einarsson,
Hildur Ingvarsdóttir, Hulda ingvarsdóttir,
Páll Arnar Árnason
og barnabarnbörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
ÞORKELL JÓN GÍSLASON
lögfræðingur,
Melabraut 26,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 15. júlí kl. 13.30,
Margrét Davíðsdóttir,
Svava Þorkelsdóttir, Tryggvi Guðmundsson,
Rannveig Þorkelsdóttir,
Gfsli Þór Þorkelsson, Sif Traustadóttir
og barnabörn.