Morgunblaðið - 13.07.1997, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 13. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
BREF
TIL BLAÐSINS
Krínglan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: Iauga@mbl.is
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
7-II
Bændur eiga
Island
Frá Ingvari Þórissyni:
ÞAÐ þarf mikið hugrekki til þess
að setjast niður og skrifa Bréf til
blaðsins. Það er allavega búið að
taka mig mörg ár, en nú get ég
ekki orða bundist lengur, ástæðan;
ást mín á landinu. Mér verður flök-
urt þegar ég heyri bændaleiðtoga
lýsa því yfir að ástæða þess að
þeir vilji reisa 600 fermetra þjón-
ustumiðstöð á Hveravöllum sé ekki
sú að þeir vilji græða peninga held-
ur fyrst og fremst til að vernda
umhverfið og koma í veg fyrir frek-
ari spjöll. „Jakk.“ Það eru þessir
sömu bændur sem beita sauðfé sínu
á þetta viðkvæma land. Þegar mað-
ur ferðast um Kjöl má víða sjá
gamlar skógarleifar og fallegan
gróður sem í þessari hæð á í vök
að veijast. Ef bændur fyrir norðan
bera einhveija umhyggju fyrir land-
inu ætti það að vera þeirra fyrsta
verk að hætta að keyra kindurnar
sínar þangað.
En hveijir eiga Island? Hver á
fiskinn i Seyðisá sem rennur á miðju
íslandi þar sem hvergi sér til
byggða og enginn bóndabær er í
nágrenninu? Hvernig stendur á því
að einhveijir bændur, sem búa í
mörg hundruð kílómetra fjarlægð,
geta rukkað vegfarendur um veiði-
leyfi? Ekki hafa þeir lagt vegina
eða ræktað fiskinn í ánni. Lands-
virkjun er fyrirtæki sem er í eigu
„þjóðarinnar", þegar miðlunarlón
var gert í Þórisvatni fengu bændur
bætur fyrir beitilönd sem fóru und-
ir vatn. Svo settu þeir fisk í vatnið
og fóru að selja veiðileyfi! Sú saga
hefur endurtekið sig aftur og_ aftur.
Bændur eiga nefnilega ísland.
Kannski þeir fari næst að inn-
heimta vegatolla. Og enn líklegra
að þeir fari að selja ofan í heita
pottinn á Hveravöllum. Það er kom-
inn tími til að segja stopp: Nei, takk,
við viljum ekki nýja Bændahöll á
Kili. Hvers vegna eru þessi mál í
svona miklum ólestri? Af hveiju
hefur enginn af þessum yndislegu
stjómmálaflokkum, sem eru til bara
fyrir okkur, ekki tekið þetta mál
upp á sína arma? Alþýðuflokkurinn
hefur stundum skreytt sig með
slagorðunum „ísland fyrir Islend-
inga“ fyrir kosningar, en lengra
nær það nú ekki. Og er nú mál að
linni. Bændur hafa ávallt ráðið ís-
landi og nú er víst að ég verð ekki
settur á í haust.
INGVAR ÞÓRISSON,
Ránargötu 33, Rvík.
MorgunDiaoio/Arnaiaur
Það rignir
VÆTUTÍÐ hefur sett svip sinn
á landið seinustu daga og ekki
að efa að margir eru teknir að
þrá sólargeisla og sumar eins og
þau gerast best. En þeir sem
gera sér grein fyrir aðstæðum
láta úrhelli ekki á sig fá og búa
sig í samræmi við veður.