Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997 31 AÐSENDAR GREINAR Áratuga uppbygging færð á byijunarreit Þorsteinn Rakel Olga Björg Jóhannsson Garðarsdóttir Jónsdóttir Á ÞESSU ári er umsjónarfélag einhverfra tuttugu ára. Á slíkum tímamótum er vel við hæfi að líta um öxl og skoða hvað hefur áunn- ist. Hér verður athyglinni beint að þjónustu við yngstu börnin. í stuttu máli má segja að þar hafi áratuga uppbyggingarstarf verið fært aftur á byrjunarreit af yfirvöldum. Fyrir tuttugu árum voru böm með ein- hverfu lögð inn á barna- og ungl- ingageðdeild Landspítalans (BUGL). Börnin voru ýmist á dag- eða sólarhringsdeild og algengur dvalartími var tvö til þrjú ár en dæmi voru um allt að sjö ára dvalar- tíma. Börnum með einhverfu þarf að kenna það sem önnur böm læra að hjálparlaust, s.s. að tala, horfa í augun á viðmælanda og almennt þarf að þjálfa þau í félagslegum samskiptum. Börnin eru eins mis- jöfn og þau eru mörg og þurfa mismikla þjálfun. Mikilvægt er að þjálfun hefjist strax við greiningu. Þessi þjálfun fór fyrst fram á BUGL en seinna gerðu foreldrar og fagfóik sér grein fyrir að heppilegra væri að þjálfa börnin í þeirra eðli- lega umhverfí, þ.e. inni á heimilum og í leikskólum, auk þess sem það var mun ódýrara. Þjálfunin færðist því af BUGL út í þjóðféiagið. For- senda þess var öflugur stuðningur starfsfólks BUGL sem hafði sér- þekkingu á einhverfu og fræddi og kenndi foreldrum og starfsfólki leik- skóla að ala upp og þjálfa barn með einhverfu og gat gripið inn í og ráðlagt fólki um þau vandamál sem upp komu. Stjórnkerfið sofandi Með betri greiningaraðferðum fjölgaði þeim börnum sem greindust með einhverfu. Áður fyrr greindust um tvö börn á ári að meðaltali en þeim fór hægt fjölgandi og árið 1995 voru þau komin í fjögur á ári. Þessi fjölgun í fjögur börn á ári varð til þess að þjónustukerfi við einhverfa á BUGL sprakk. í byijum árs 1996 lýsti yfirlæknir deiidarinn- ar því yfir að deildin gæti ekki þjón- að fleiri börnum nema með fjölgun stöðugilda. Þau fengust ekki og þar við sat. Yfirlæknir BUGL benti jafn- framt á að samkvæmt lögum um málefni fatlaðra bæri Greiningar- Mörg af þessum börn- um, segja Þorsteinn Jóhannsson, Rakel Garðarsdóttir og Olga Björg Jónsdóttir, eru að missa af tækifærinu til að lifa eðlilegu lífí á fullorðinsárum þar sem þau fá ekki þá þjálfun sem þau þurfa á bestu mótunarárunum. og ráðgjafastöð ríkisins (GRR) að þjóna einhverfum þar sem einhverfa er þroskatruflun en ekki geðsjúk- dómur. En stjórnkerfið virtist vera alveg sofandi. í níu mánuði var engin ákvörðun tekin um hver ætti að þjóna einhverfum. í des. 1996 ákvað loks félagsmálaráðuneyti að GRR skyldi þjóna einhverfum en hugur virðist ekki fylgja máli því GRR fékk mjög lítið fé til þess og í raun mun minna en BUGL hafði verið með og nægði engan veginn þar. Þrátt fyrir að fyrir tveimur árum hefðu að meðaltali greinst fjögur börn með einhverfu þá segir það ekki til_ um það sem er að gerast núna. Á síðasta ári og það sem af er þessu hafa um 30 börn greinst með einhverfu. Þessi sprenging í greiningum kemur á sama tíma og algert hrun hefur orðið í þjónustu við börn með einhverfu. Það hófst á því að engin þjónusta var í níu mánuði. Síðan er ákveðið að GRR skuli annast þjónustuna en er í raun ekki gert það kieift þar sem fjárveiting félagsmálaráðu- neytisins til verkefnisins samsvaraði einungis hálfu stöðugildi. Er það mjög undarlegt því samkvæmt til- lögum sem komu fram í skýrslu nefndar á vegum ráðuneytisins, sem kom út í byijun árs 1996, um fram- tíðarskipulag á þjónustu við ein- hverfa var gert ráð fyrir fímm manna fagteymi til að annast þjón- ustuna. Tillögurnar komu fram áður en þessi 30 börn greindust á árunum 1996 og 1997. Eðlilegt má því telja að ekki færri en fimm til sjö stöðu- gildi þurfí til að anna verkefninu því fyrirsjáanleg er mjög mikil þörf á þjónustu við einhverfa á næstu árum. Fagteymi þarf að fullmanna til að það skili hlutverki sínu. Sem dæmi má nefna fagteymi á skurð- stofu. Það þættu furðuleg vinnu- brögð ef verið væri að opna skurð- deild á sjúkrahúsi og svæfinga- hjúkrunarfræðingur væri ráðinn í hálft starf fyrsta árið. Ári seinna yrði síðan ráðinn svæfingarlæknir, tveim árum síðar aðstoðarlæknir og loks skurðlæknir eftir þijú ár. Glötuð tækifæri Ef félagsmálaráðherra ætlar að byggja upp þjónustuna á Greining- arstöðinni með sama hraða og hing- að til mun taka mörg ár að koma henni á laggirnar. Því er ljóst að þau börn sem eru nýgreind og koma til með að greinast á næstu misser- um fá ekki nauðsynlega þjónustu. Eins og áður hefur komið fram þurfa börn með einhverfu nauðsyn- lega að fá markvissa þjálfun strax við greiningu. Hver vika sem líður án viðeigandi meðferðar og þjálfun- ar er vika glataðra tækifæra. Mörg af þessum börnum eru að missa af tækifærinu til að lifa eðlilegu lífi á fullorðinsárum þar sem þau fá ekki þá þjálfun sem þau þurfa á bestu mótunarárunum. Þetta er hrikaleg staðreynd fyrir börnin og foreldra þeirra en einnig er þetta ávísun á mikil útgjöld í framtíðinni til uppbyggingar á sambýlum og vinnustofum fyrir einstaklinga sem hefðu getað orðið nýtir þjóðfélags- þegnar. Til að bæta úr þessu ástandi þarf að veita stóraukið fé til grunn- þjónustu við einhverfa STRAX en ekki á næstu eða þarnæstu fjárlög- um. Sum þessara barna gætu þá verið búin að missa af lestinni. Þarf að bregðast skjótt við í júní sl. skrifaði 31 foreldri barna með einhverfu félagsmála- og heilbrigðisráðherra opið bréf sem birtist í Morgunblaðinu og ósk- aði eftir að sett yrði fram tímasett áætlun um uppbyggingu á þjónustu við einhverfra. Nú, fjórum mánuð- um síðar, hefur ekkert svar borist og þjónustan við börnin hefur ekk- ert breyst. Börnin og foreldrar þeirra geta ekki beðið endalaust eftir svari, það verður eitthvað að fara að gerast. Sum þessara barna greindust fyrir 18 mánuðum og hafa ekki fengið þjónustu við sitt hæfi. Þegar verkefni eru flutt milli BUGL og GRR, sem heyra hvort undir sitt ráðuneytið, þarf að vera góð samvinna milli ráðuneyta um hvernig skuli standa að því. Gæta þarf vel að því að sú áratuga þekk- ing og reynsla í vinnu með börn með einhverfu sem er til staðar á BUGL nýtist. Einng þarf að tryggja að sú stofnun sem tekur við nýju verkefni fái fjármagn í samræmi við umfang þess en það hefur Greiningarstöðin ekki fengið. Ekki er að sjá að heilbrigðis- og félags- málaráðuneyti hafi haft neina sam- vinnu eða samráð um flutninginn. Verst er þó að ráðuneytin virðast heldur ekki skilja um hvað þetta mál snýst. Heilbrigðisráðherra ein- faldlega henti frá sér boltanum eitt- hvað út í loftið. Félagsmálaráð- herra greip hann níu mánuðum síð- ar, en veit greinilega ekki hvað á að gera við hann. Þetta mál er allt hið vandræðalegasta og svartur blettur á íslenska-velferðarkerfinu. Krafa okkar er að brugðist verði við nú þegar. Höfundar eru foreldrar einhverfra barna. Hvað á að gera vegna jaðarskatta aldraðra? í ÞVÍ umróti, sem hefur orðið í umræðum og fram- kvæmd kjaramála lands- manna á þessu ári, hefur orðið útundan að taka af- stöðu til þeirra mikilvægu skipan skattlagningar beinna og óbeinna á tekjur lífeyrisþega. Eins og sjá má á þessu yfirliti, sem hér hefur áður birst (eftir Margréti H. Sigurðardótt- ur, varaformann FEB), sést að hækki ellilífeyri um 10 þúsund krónur á hækkun tekna frá Tryggingastofnun ríksins eða lífeyris- sjóði sínum, hvað þá að leita eftir vinnu til að bæta fjárhaginn. Það gæti orðið til auka- gjalda. Þetta er í raun- inni ekki hægt fyrir þá sem er með lægstu tekjurnar, því að jaðarskattar hirða allt sem um- fram er. með þeim 520 krónur. Páll Gíslason Það er því aug- Einstaklingur Fyrir Eftir Mismunur sem býr einn hækkun hækkun kr. Lífeyrissjóðstekjur 76.208 86.208 10.000 Ellilífeyrir 14.541 14.541 0 Tekjutrygging 4.500 0 -4.500 Heimilisuppbót 2.152 0 -2.152 Uppbót á lífeyri 0 0 0 Samtals 97.401 100.749 3.348 Skattur 40,88% -15.017 -17.285 -1.368 81.484 83.464 1.980 Afsl. af sjónvarpsgj. 400 400 0 Tannviðg. 5000 kr. Endurgr. Tryggast. 50% 2.500 0 -2.500 Alls 84.384 83.864 -520 Allir hljóta að sjá að þetta er óviðunandi óréttlæti. Jaðarskattar, sem víða koma við í þjóðfélaginu, gera það ófært og tilgangslaust fyrir ellilífeyrisþega að beijast fyrir ljóst að ijúfa þarf þessa sjálfvirku gildru sem launamál aldraðra eru komin í! Ljóst er að ýmsir aðgerðir koma til greina. Skattleggja má lífeyris- tekjur með lægra þrepi, segir Páll Gíslason, til dæmis 10% eins og fjár- magnstekjur. Hvað er hægt að gera? Ymsar leiðir hafa verið ræddar og athugaðar, þó að Jaðarskatta- nefndin tæki málið ekki fyrir sér- staklega. Helstu aðgerðir, sem mér finnast myndu virka, eru: 1. Hækkun skattleysismarka. 2. Sérstakt skattþrep á lægstu laun. 3. Skattleggja lífeyristekjur með lægra þrepi, t.d. 10% eins og fjármagnstekjur. 4. Hafa tvö skattþrep fyrir lægri laun en 120 þúsund krónur. 5. Viðurkenna að tvöföld eða þre- föld skattlagning lífeyrisgjalds og tekna hafi átt sér stað og taka upp 15% skattfrádrátt aft- ur. Sjálfsagt eru fleiri leiðir til að draga úr áhrifum jaðarskatta en athugum þetta nánar. Framkvæmdir, ekki bara umræður! Hvað af þessu er helst fram- kvæmanlegt í ljósi þess sem hefur verið að gerast á síðustu árum? 1. Hækkun skattleysismarka í 80 þúsund krónur hefur ekki fengið mikinn stuðning hjá stjórnvöldum og talin of dýr fyrir ríkissjóð, þó að þetta væri sennilega einfaldast í framkvæmd. Þetta úrræði hefur ekki meðbyr. 2. Sérstakt skattþrep á lægstu laun er talið alltof erfitt í fram- kvæmd reikningslega. Þetta held ég sé ekki rétt ályktað, ef maður lítur til annarra landa, sem mörg hafa fleiri skattþrep t.d. Bretland 3, Frakkland 6, Danmörk 4, Finn- land 6 og allt upp í 10 í Sviss. Við erum aðeins að tala um eitt skatt- þrep í viðbót við þau tvö sem við höfum. 3. Skattleggja lífeyristekjur með lægra skatti, t.d. 10% eins og fjár- magnstekjur. Mikill hluti útborgaðs ellilífeyris lífeyrissjóða er kominn frá vöxtum og arði af peningum, sem lífeyrisþegi og atvinnurekandi hans greiddu mánaðarlega á löng- um tíma, 30-40 árum. Það er þessi ávöxtun, sem að verulegu leyti ger- ir kleift að greiða lífeyrinn. Þetta eru þvi tekjur sem eru að miklu leyti sambærilegar við fjármagns- tekjur, sem þeir sem lögðu þetta fé í skuldabréf eða hlutabréf greiða nú 10% skatt af. Skattlagning þess- ara sambærilegu tekna er svona gjörólík, þegar aðrir greiða 40% skatt. 4. Hafa tvö skattþrep og sé lægra þrep á laun undir 120 þúsund krónur. Þetta var krafa stéttarfé- laganna í vetur en náðist ekki fram í samningum. Það er því ekki senni- legt að við náum slíku fram frekar en þau. 5. Hætta tvöfaldri skattlagningu vissra launaliða. Á árunum 1987- 1995, þegar staðgreiðslan tók við, voru lífeyrisgreiðslur ekki lengur skattfijálsar og því greiddur fullur skattur af þeim. Síðan þegar lífeyr- ir er greiddur út, er tekinn fullur skattur af þessu aftur - tvígreiðsla á sömu tekjur. í eitt ár var þetta viðurkennt og veittur 15% afsáttur, en tekið aftur í einu lagi eftir 1 ár. Þetta fannst okkur óréttlátt og munum halda áfram baráttu fyrir því að afnema tvöfalda skatttöku af sömu launum. Hvað er líklegast til að bera árangur? Allar þessar tillögur myndu skila lífeyrisþegum óg láglaunafólki verulegum árangri, en hver er lík- legust svo að hægt sé að koma henni fram? Eins og nú er háttað tel ég að allir þessir þættir kæmu vel til greina, en ef til vill væri vænlegast að leggja fyrst áherslu á 3. liðinn og sanngjarnari skattlagningu líf- eyristekna, sem er að mörgu leyti sambærilegt við fjármagnstekjur og ætti þá að skattleggjast eins og þær. Ég held persónulega að ekki sé óskynsamlegt að leggja áherslu á einn þátt, sem gæti náðst fram, án þess að tapa sjónum af öðrum atrið- um. Nú eru allir skyldir að greiða í lífeyrissjóði, en erfiðlega hefur gengið að fylgja því eftir sem leiðir til þess að verulegur hluti fólks er alls ekki í neinum sjóði, en treystir að ríkið sé til framfærslu, þegar þar að kemur. Hér er mikið ósam- ræmi milli manna. Ef skattar á líf- eyristekjur væru lækkaðir í 10%, myndi freistingin að komast hjá greiðslum á réttum tíma minnka. Þetta er til stöðugrar umræðu hjá nefndum Félags eldri borgara í Reykjavík og mun svo áfram, því hagsmunabarátta aldraðra tekur aldrei enda. Höfundur er fyrrv. yfirlæknir og fornmður Félags cldri borgara í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.