Morgunblaðið - 04.10.1997, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
+ Sigurlaug Jóns-
dóttir fæddist í
Hafnarfirði 28. jan-
úar 1911. Hún lést á
Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja aðfara-
nótt mánudagsins
22. september síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin,
Jón, f. 23. mai 1881
á Ósum í Vatnsnesi
í Húnavatnssýslu, d.
15. ágúst 1929 í
Vestmannaeyjum,
Hinrikssonar Guð-
mundar, f. 31. októ-
ber 1857, d. 14. nóv-
ember 1885, og Ingibjörg Rann-
veig, f. 2. ágúst 1880 í Hafnar-
firði, d. 25. september 1963 í
Vestmannaeyjum, Theódórs-
dóttir Árna Mathiesen, f. 25.
desember 1853 i Árnahúsi í
Hafnarfirði, d. 4. desember
1905, sjómanns og kaupmanns á
Vatnsstígnum í Reykjavík, Árna-
sonar. Systkini Sigurlaugar voru
þau Theódóra Þuríður, f. 26.
desember 1906 í Hafnarfirði, d.
16. mai 1928 á Vífilsstaðaspítala,
Hinrik Guðmundur, f. 2. janúar
1908 í Hafnarfirði, d. 19. mars
1965 í Reykjavík, síðast sýslu-
maður í Snæfells- og Hnappa-
dalssýslu, Árni, f. 9. október
1909 í Hafnarfirði, d. 25. desem-
ber 1990 í Reykjavík, lögfræð-
Elsku amma! Mig langar að þakka
þér fyrir allar samverustundimar og
minnast þess um leið hversu vænt
mér þykir um þig. Þú skilur eftir þig
margar, kærar minningar sem ég
mun varðveita að eilífu. Þú varst
alltaf svo góð við mig og vildir allt
fyrir mig gera. Þú varst alltaf til
staðar og gast alltaf gefið góð ráð.
„Elsku amma. Ég vildi að ég hefði
ingur hjá Reykja-
víkurborg, Lára, f.
1. mars 1915 í Vest-
mannaeyjum, d. 13.
júní 1981 í Vest-
mannaeyjum. Sigur-
laug var ein eftir á
lífi af þeim syskinum
þegar hún lést.
Sigurlaug giftist
hinn 25. nóvember
1933 Guðlaugi, f. 1.
ágúst 1908 á Staf-
nesi á Reykjanesi,
d. 6. mars 1992 í
Reykjavik, fyrrv.
bæjarstjóra í Vest-
mannaeyjum og al-
þingismaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Suðurlandskjördæmi.
Guðlaugur var sonur Gísla, f. 9.
janúar 1874 á Kalmanstjörn í
Höfnum, d. 9. júlí 1919 í Vest-
manneyjum, smiður og skipsljóri
í Eyjum, Geirmundssonar og
konu hans Þórunnar Jakobinu,
f. 30. janúar 1875 á Pjósum í
Mýrdalnum, d. 27. maí 1965 í
Reykjavík Hafliðadóttur. Sigur-
laug og Guðlaugur eignuðust sex
börn, þau eru: 1) Dóra, f. 29.
desember 1934 í Vestmannaeyj-
um, gift Bjarna Sighvatssyni og
eiga þau fimm börn og tólf
barnabörn. 2) Jakobína, f. 30.
mars 1936 í Vestmannaeyjum,
gift Sigurgeiri Jónassyni og eiga
þau þrjú börn og átta barna-
blíða brosið þitt og notalegu hend-
urnar. Ég vildi að ég ætti styrk þinn.“
(Úr bókinni Alveg einstök amma.)
Það var alltaf svo gaman að heim-
sækja þig. Þú gafst mér alitaf koss
hvort sem ég var að koma eða fara
og alltaf hafðir þú frá einhverju
skemmtilegu að segja, hvort sem það
voru sögur eða fræði úr dönsku blöð-
unum. Þú varst alltaf svo fín og flott
börn. 3) Ingibjörg Rannveig, 3.
júlí 1939 í Vestmannaeyjum, gift
Valgarði Stefánssyni og eiga þau
eiga þijú börn og tvö barnaböm.
Fyrr átti Ingibjörg bam með
Siguijóni Jónassyni, Ásdísi, og á
hún tvö börn. 4) Gísli Geir, f. 3.
júlí 1940 í Vestmannaeyjum,
kvæntur Guðlaugu Amþrúði
Gunnólfsdóttur og eiga þau fjög-
ur börn og átta barnabörn. 5)
Anna Þuríður, f. 18. janúar 1946
í Vestmannaeyjum, gift Einari
Sveinbjömssyni og eiga þau tvö
böra og eitt barnabarn. 6) Jón
Haukur, f. 2. október 1950 í
Vestmannaeyjum, kvæntur Mar-
íu Sigurðardóttur og eiga þau
tvö böm og eitt barnabarn.
Á fyrsta ári flytur Sigurlaug
með foreldram sínum frá Hafn-
arfirði til Reykjavíkur og bjuggu
þau á Grettisgötu 44. Árið 1913
flytur Sigurlaug svo með for-
eldrum sínum til Vestmanneyja,
í Garðinn þar. Sigurlaug hóf
skrifstofustörf hjá Kaupfélaginu
Fram hjá föður sínum árið 1928
og vann þar til ársins 1931 en
þá fer hún til Danmerkur til
náms í „Sora Husholdninsskole"
og lauk þaðan prófi í hússtjórn
og matargerð árið 1931. Þegar
hún kom frá Danmörku hóf hún
störf hjá. Póstinum í Eyjum og
vann þar uns hún giftist Guð-
laugi. Eftir það vann hún við
húsmóðurstörf allt sitt líf.
Útför Sigurlaugar fer fram
frá Landakirkju í Vestmannaeyj-
um í dag og hefst athöfnin
klukkan 14. Jarðsett verður í
kirkjugarðinum í Vestmannaeyj-
um.
til fara, glæsileg amma. Það verður
tómlegt næstu jól án þín. Ég man
hvað þú naust þin vel á jólunum við
að opna allar gjafirnar sem þér bár-
ust og skildir ekkert í því að fólk
skyldi vera að þessu. Ég man líka
hvað þér þótti gaman í jólaboðunum.
Þar hittir þú alla þá úr fjölskyld-
unni, sem komist gátu, í einu.
Elsku amma, takk fyrir að vera-
amma mín. Ég veit að nú ert þú
komin á góðan stað þar sem þú hef-
ur fengið hlýjar móttökur frá afa,
foreldrum þínum og systkinum.
Minning þín lifír að eilífu. Hvíl í friði.
Láfið þyngir sorg og synd,
samt má nokkur hugga,
alltaf á ég af þér mynd,
sem aldrei ber á skugga. _
(Ásgeir Pálsson.)
Þín
Sigurlaug Jónsdóttir.
Harmið mig ekki með tárum þótt ég sé látin.
Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snert-
ir mig og kvelur.
En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug,
lyftist sál mín upp í mót til ljóssins.
í dag kveðjum við elskulega ömmu
okkar, Sigurlaugu Jónsdóttur, eða
ömmu í Geysi eins og við kölluðum
hana alltaf. Amma var mikil glæsi-
kona og hafði unun af því að vera
vel til höfð, og fór ekki út án þess
að setja upp hatt. Minnisstæðast er
okkur systrunum stóra fataherbergið
í Geysi, fullt af höttum og skóm og
þar var refaskinn sem oft var slegist
um. Amma var alla tíð mikil áhuga-
kona um íþróttir, þó aðallega um fót-
bolta, handbolta og golf, og var oft
mikið fjör í Geysi er íþróttaleikir stóðu
yfír. Amma var gestrisin og naut
þess að fá ömmuböm og langömmu-
böm í heimsókn til sín, aldrei fóru
þau frá henni án þess að vera með
gott í nesti með sér.
Elsku amma, við þökkum þér sam-
fylgdina og hugulsemi í okkar garð.
Við efumst ekki um að við hittumst
aftur. Guð blessi minninguna um
yndislega ömmu okkar sem við sökn-
um sárt.
Þómnn, Harpa, Dröfn,
Guðlaug og fjölskyldur.
Amma okkar, hún Sigurlaug Jóns-
dóttir, er látin. Amma Silla var 86
ára þegar hún lést eftir skamma legu
á sjúkrahúsi.
Okkur systkinin langar til að minn-
ast ömmu með nokkrum orðum og
þakka henni fyrir þann tíma og þá
gleði sem hún gaf okkur.
Einkenni ömmu voru einkum þau
hversu skapgóð, lífsglöð, skemmtileg
og hjartagóð kona hún var. Hún og
afí Guðlaugur voru mjög lífsgjöð hjón.
Það var ávallt líf og fjör í kringum
þau hjón og gaman fyrir okkur að
heimsækja þau í Geysi eða á Birkimel-
inn.
Minningamar um ömmu eru marg-
ar og allar eiga þær sammerkt að
vekja upp gleði í hjarta okkar þegar
hugurinn reikar til baka. Hún reynd-
ist okkur systkinunum ávallt vel, og
var alltaf reiðubúin til þess að að-
stoða ef með þurfti. Silla og Guð-
munda fengu að búa hjá afa og ömmu
á skólaárunum í Verslunarskólanum
og var þá oft kátt á hjalla. Amma
átti það til að taka charleston-dans-
spor fyrir þær systur á góðum dögum
á Birkimelnum. Það var alltaf mögu-
legt að fá að gista hjá ömmu í Reykja-
vík og það var eftirsótt af okkur vegna
þess hve skemmtilegt það var. Afí fór
í bakaríið og keypti með kaffínu og
amma sló upp veislu.
íþróttaáhugi ömmu var einstakur,
og sérlega á fótbolta. Það var nánast
vonlaust að fara í heimsókn ef leikur
var í sjónvarpinu á sama tíma. Þá
fékk maður ekki óskerta athygli. Við
upphaf sjónvarpsins hélt amma með
Úlfunum í Bretlandi, en í seinni tíð
teljum við að hún hafí verið komin á
band Liverpool-liðsins. Miklar umræð-
ur áttu sér stað eftir leiki um frammi-
stöðu liðsins eða einstakra leikmanna.
Þegar afí og amma fóru á völlinn í
Eyjum sátu þau gjaman í bílnum og
síðan spörkuðu þau með allan tímann
og töluðu látlaust, þannig að nánast
óbærilegt var að hafast við í bflnum.
Mörg af bömum hennar og bama-
bömum voru í íþróttum og fylgdist
hún með þeim ajf miklum áhuga og
vissi nánast alltaf um úrslit í viðkom-
andi grein og frammistöðu ættingj-
anna.
Minnisstæð eru einnig öll gamlárs-
kvöldin á Geysi þegar við vorum
yngri, er fjölskyldan kom saman til
þess að fagna nýju ári. Þar ríkti mik-
il gleði og vom amma og afí mið-
punkturinn í öllu saman. Afí sá um
flugeldana og amma um að allir
fengju nóg að borða og drekka. Mik-
ið var hlegið og sungið á góðum
stundum.
Á okkar yngri árum þótti okkur
amma oft vera framúrstefnuleg af
ömmu að vera, þar sem hún bauð
ávallt upp á Spur og Sinalco og Prince
Polo, en ekki kakó og pönnukökur
eins og við vorum vön. Alltaf var sleg-
ið upp veislu af minnsta tilefni og
léttleikinn var alltaf í fyrirrúmi.
Þegar bamabamabömin fóru að
koma í heiminn sýndi hún þeim mik-
inn áhuga og voru þau ávallt velkom-
in til hennar og fengu þau höfðingleg-
ar móttökur. Þau sakna hennar því
sárt.
Að lokum langar okkur til þess að
kveðja ömmu með eftirfarandi línum
úr Spámanninum sem eru fyrir okkur
eins og af henni sagðar:
„Þó ég sé látinn, harmið mig ekki
með támm, hugsið ekki um dauðann
með harmi og ótta; ég er svo nærri
að hvert ykkar tár snertir mig og
kvelur, þótt látinn mig haldið ... En
þegar þið hlæið og syngið með glöðum
hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóss-
ins; verið glöð og þakklát fyrir allt
sem Iífíð gefur. Og ég, þótt látinn sé,
tek þátt í gleði ykkar yfír lífínu."
(Neistar frá sömu sólu).
Við biðjum góðan Guð um að
styrkja ættingja og vini Sillu ömmu
í sorg þeirra.
Kveðja,
Sigurlaug, Guðmunda,
Sighvatur, Ingibjörg og Hinrik.
Elsku amma langa. í dag verður
þú lögð til hinstu hvflu í Landakirkju
og er því komið að kveðjustund. Sam-
verastundir okkar hafa verið fjöl-
margar og skemmtilegar, ýmist í
Geysi, á Birkimelnum og nú í seinni
tíð heima hjá ömmu Dóra og afa
Bjama. Gestrisni ykkar afa var mjög
mikil, hvort sem ég kom með mömmu
eða með heilan barnahóp með mér,
alltaf áttuð þið til nammi og 7up.
Ég svaf hjá þér nokkrar nætur
eftir að afí Guðlaugur veiktist og
sagðir þú mér þá margar sögur af
ykkur afa sem ég geymi í hjarta
mínu. Alltaf þótti mér jafn gaman
að heyra uppáhaldssöguna mína en
það er sagan af því þegar þú tókst
á móti mér fyrir rétt rúmum 23 árum,
sagðir þú mér hana í síðasta sinn
núna í lok ágúst þegar við Viðar heim-
sóttum þig. í þeirri heimsókn var
mikið hlegið og þegar við fóram sagð-
ir þú „næst þegar þið komið segið
mér þá fleiri brandara" og mun ég
standa við það þegar leiðir okkar
liggja saman aftur.
Systkini mín, þau Sara, Ama Sif
og Sighvatur, eru í Englandi og geta
því ekki verið með okkur í dag en
ég veit að þau sakna þín sárt. Þau
eiga góða minningu um þig sem við
öll munum hjálpa þeim að varðveita.
Mig langar að þakka þér fyrir allar
samverastundimar og ég veit að afi
langi mun taka á móti þér opnum
örmum. Hvfl í friði.
Dóra
Björk.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, bróður og afa,
EINARS ÓLAFSSONAR,
Ægissíðu,
Rangárvallasýslu,
sem lést miðvikudaginn 3. september.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Eyja Þóra Einarsdóttir, Jóhann Geir Frímannsson,
Guðmundur Einarsson, Aðalheiður Högnadóttir,
Guðný Einarsdóttir,
Anna Sigurlín Einarsdóttir, Smári Baldursson,
Ólafur Einarsson, Steinunn Birna Svavarsdóttir,
Sesselja Ólafsdóttir, Gunnar Ólafsson
og barnabörn.
SIGURLA UG
JÓNSDÓTTIR
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Leiguhúsnæði óskast
Delta hf. óskar eftir að taka á leigu 3ja her-
bergja íbúð í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi
eða Bessastaðahreppi, til afnota fyrir erlenda
ráðgjafa okkará tímabilinu l.desember 1997
til 31. júlí 1998. íbúðin má gjarnan vera búin
húgögnum.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín í síma
555 3044.
Delta hf.
Reykjavíkurvegi 78
Pósthólf 420
222 Hafnarfirði
Einbýlishús til leigu
Einn af viðskiptavinum mínum hefurfalið mér
að leigja einbýlishús á Álftanesi.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
565 6688 á skrifstofutíma.
Klemenz Eggertsson, hdl.,
Garðatorgi 5, Garðabæ.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
á bifreiðum verður haldið í dag, laugardaginn
4. október, á Eldshöfða 4, athafnasvæði Vöku
hf., og hefst það kl. 13.30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarbraut
36, 780 Höfn, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Bjarnarhóll 6, þingl. eig. Sigurborg Jóhanna Svavarsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingasjóður verkamanna, fimmtudaginn 9. október
1997 kl. 14.20.
Hæðargarður 10, þingl. eig. Margrét Herdís Einarsdóttir, gerðarbeið-
endur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, (slandsbanki hf., útibú
527, og sýslumaðurinn á Höfn, Hornafirði, fimmtudaginn 9. október
1997 kl. 13.50.
Sauðanes, þingl. eig. Kristinn Pétursson, Rósa Benónýsdóttir og
Jarðasjóður ríkisins, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands
og Stofnlánadeild landbúnarins, fimmtudaginn 9. október 1997 kl.
15.00.
Skálafell 1, þingl. eig. Þorsteinn Sigfússon og Þóra Vilborg Jónsdóttir,
gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins, fimmtudaginn 9.
október 1997 kl. 15.10.
Tjarnarbrú 20, þingl. eig. Guðjón Benediktsson, gerðarbeiðandi Bygg-
ingasjóður ríkisins, fimmtudaginn 9. október 1997 kl. 14.10.
Sýslumaðurinn á Höfn,
3. október 1997.