Morgunblaðið - 04.10.1997, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
—----\ 066/VE/JCOZ FY&fi
/ii T/tSEt. r/S LOf/U/i
Grettir
Kringlan 1103 Reykjavík # Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
FYRSTA tölublað Æskunnar.
Hin síunga
Æska 100 ára
As she 5aíd,“6oodbye"
and ran upthe steps,
he knew he would
never see her aqain.
He wa.5
heartbroken.
Um leið og hún kvaddi og
hljóp upp tröppurnar vissi
hann að hann myndi aldrei
sjá hana framar.
Hann var i ást-
arsorg.
“Oh.well/'he
thouqht. “ I
still have
my doq.”
Little did he know,
his doq had been
planninq to leave him.
„O, jæja,“ hugs-
aði hann. „Eg á
ennþá hundinn
minn."
Hann vissi ekkert um það að
hundurinn hans hafði verið
að áforma að fara frá honum.
Frá Sveini Sæmundssyni:
ÞAÐ vakti ávallt eftirvæntingu okk-
ar systkinanna þegar pósturinn
kom með Æskuna. Þar fundum við
krakkamir efni við okkar hæfi og
enda þótt flest væri lesið sem til
féll, allt frá dagblöðum til tyrfmna
ættfræðibóka, þá var Æskan ann-
ars eðlis og efni og myndir glöddu
barnslundina. Meira að segja á
kreppuárunum hélt þetta uppá-
haldsrit okkar áfram að berast inn
á heimilið og síðar frétti ég að ágæt
föðursystir okkar barnanna, sem
var barnakennari, hefði átt þar hlut
að máli. Fyrir það er ég henni ævin-
lega þakklátur.
Svo liðu árin og örlögin höguðu
því svo að stuttu eftir að ég hafði
tekið við starfi blaðafulltrúa Flugfé-
lags Íslands/Flugleiða tókst sam-
vinna við Æskuna og það samstarf
er við lýði enn í dag.
Nýr ritstjóri Grímur Engilberts,
hafði komið að blaðinu og enda
þótt hann sinnti ritstjóminni í hjá-
verkum fyrstu mánuðina varð strax
ljóst að þar fór ritstjóri með ferskar
hugmyndir. Grímur var þá verk-
stjóri í setjarasal Ríkisprentsmiðj-
unnar Gutenberg og vissi allt sem
vitað varð á þeim tímum um blaða-
útgáfu og prentverk. Eitt það fyrsta
sem Grímur gerði var að efna til
verðlaunasamkeppni í Æskunni þar
sem fyrstu verðlaun vom ferðir til
útlanda. Þetta vakti mikla athygli
því að á því herrans ári 1957 voru
utanlandsferðir ekki jafn sjálfsagð-
ar og nú. Það kom í hlut undirrit-
aðs að skipuleggja þessar verð-
launaferðir ásamt Grími ritstjóra
og síðan að skrifa ferðasögurnar
sem birtust í blaðinu ásamt mynd-
um. Þátttaka í þessum verðlauna-
keppum var með ólíkindum og mik-
il spenna þegar dregið var úr réttum
lausnum að viðstöddum fulltrúa
borgarfógetans í Reykjavík.
Starfslið Æskunnar var á þess-
um tíma fámennt, Grímur ritstjóri
og Kristján Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri, sem sá um fjárhags-
hlið útgáfunnar og annaðist rekstur
bókaútgáfu og bókabúðar. Vinnu-
dagurinn þeirra var því langur og
ég minnist þess er við hjónin ásamt
sonum okkar tveim, litum inn hjá
þeim Grími og Laufeyju Engilberts
á Njálsgötu 42 á sunnudögum, þá
var húsbóndinn önnum kafinn við
að bijóta blaðið, líma upp texta og
búa það til prentunar. Þannig var
hver stund nýtt til hins ýtrasta.
Nú þann 5. október eru 100 ár
liðin frá því fyrsta tölublað Æsk-
unnar kom út. Þrátt fyrir háan ald-
ur eru þó síður en svo nokkur elli-
mörk á þessu sívinsæla blaði barna
og unglinga. Eins og forðum daga
flytur það fræðandi og uppbyggj-
andi efni við hæfi ungra sem ald-
inna og nútíma tækni í prentun og
myndvinnslu hefir heldur ekki farið
hjá garði. í stað svarthvítra mynda
eru litmyndir komnar á síðurnar og
umbrot í tölvum auðveldar fjöl-
breytni.
Sá sem hér rifjar upp örfáar
minningar um ánægjulega sam-
vinnu við Æskuna og þá Grím Eng-
ilberts og Kristján Guðmundsson,
svo og síðar við Eðvarð Ingólfsson
og Karl Helgason, sendir ritstjórum
Æskunnar og starfsfólki hugheilar
afmæliskveðjur. Ennfremur óska
ég Stórstúku Islands allra heilla á
þessum merku tímamótum. Með
útgáfu Bama- og unglingablaðsins
Æskunnar í 100 ár hefir IOGT lagt
verðmætan skerf til góðs uppeldis
íslenskrar æsku.
Sveinn Sæmundsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.