Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 52
52 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Urslit norrænu bikar-
keppninnar að hefjast
SKAK
Grand Ilótel Rcykja-
vík, 8.-22. októbcr:
VISA NORDIC GRAND
PRIX, úrslit:
Úrslitakeppni norrænu bikarkeppn-
innar hefst hér í Reykjavík á mið-
vikudaginn. Sigurvegarinn verður
jafnframt Norðurlandameistari.
ÞESSI keppni er markverðasta nýj-
ungin í skáksamstarfi Norðurlanda
á undanförnum árum. Hún hófst með
fyrsta formótinu, en það var Reykja-
víkurskákmótið 1996. í kjölfarið
fylgdu fjögur hliðstæð mót í Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og Færeyj-
um.
Keppnisreglur eru þannig, að efstu
sætin á hvetju þessara fímm formóta
gáfu stig. Skákmenn þurftu að taka
þátt í a.m.k. þremur mótum til að
eiga möguleika á að komast í loka-
mótið. Endanlegt val keppenda réðst
síðan af samanlögðum stigafjölda
hvers skákmanns í þeim þremur
mótum, þar sem hann náði bestum
árangri. Þannig tryggðu þrettán nor-
rænir skákmeistarar sér þátttökurétt
í lokamótinu. Fjórtánda sætið í mót-
inu er boðssæti sem að þessu sinni
gekk til Finnlands. Þar með eiga öll
Norðurlöndin keppanda á mótinu
sem er jafnframt Skákþing Norður-
landa 1997. Sigurvegari mótsins
verður því tvöfaldur meistari. í fyrsta
lagi vinnur hann hinn eftirsótta titil
NGP-bikarmeistari og í öðru lagi
hlýtur hann sæmdarheitið „Skák-
meistari Norðurlanda". Daninn Curt
Hansen á síðamefnda titilinn að
veija, en hann sigraði á Norðurlanda-
mótinu í Reykjavík 1995.
Skáksamband Islands er skipu-
leggjandi mótsins. Telft verður á
Grand hótel Reykjavík 8.-22. októ-
ber. Aðalstyrktaraðili mótsins sem
og keppninnar í heild er VISA Inter-
national. Aðrir stuðningsaðilar eru
VISA Ísland og aðildarbankar/spari-
sjóðir þess. Verðlaunasjóðurinn nem-
ur kr. 1.562.000 ($22.000), þar af
eru fyrstu verðlaun kr. 460.000
($6.500).
Keppendur á mótinu er eftirtaldir:
Frá íslandi:
Jóhann Hjartarson, SM 2605
Hannes Hlífar Stefánsson, SM 2545
Þröstur Þórhallsson, SM 2510
Helgi Áss Grétarsson, SM 2475
Frá Noregi:
Rune Djurhuus, SM 2525
Einar Gausel, SM 2540
Jonatan Tisdall, SM 2480
Frá Svíþjóð:
Ralf Akeson, SM 2520
Jonny Hector, SM 2470
Tiger Hillarp-Persson, AM 2445
Frá Danmörku:
Curt Hansen, SM 2600
Lars Schandorff, SM 2505
Að lokum eiga svo Finnar einn
keppanda á mótinu, Heikki Wester-
inen (SM 2410) og frá Færeyjum
kemur John Arni Nilssen (2310).
íslendingar eiga því flesta fulltrúa
á mótinu, en hlutur okkar manna í
forkeppninni var þó enn glæsilegri,
því Margeir Pétursson, stórmeistari,
vann sér einnig rétt til þátttöku í
lokamótinu. Hann sá sér þó ekki
fært að taka þátt í því vegna anna
á öðrum vettvangi, en Margeir er
hættur atvinnumennsku í skák.
Mótið telst í 10. styrkleikaflokki.
Undirbúningsnefnd mótsins skipa:
Ágúst Sindri Karlsson, forseti SÍ,
Andri V. Hrólfsson, Áskell Örn Kára-
son og Ásdís Bragadóttir, sem jafn-
framt er framkvæmdastjóri. Áðal-
skákdómari verður Þráinn Guð-
mundsson og aðstoðardómari verður
Gunnar Bjömsson. Yfirumsjónar-
maður keppninnar er Einar S.
Einarsson; svæðisforseti FIDE
á Norðurlöndum.
Hellir með í
Evrópukeppninni
Taflfélagið Hellir er fulltrúi
íslands í Evrópukeppni taflfé-
laga, sem nú stendur yfir. Alls
taka 56 lið þátt í keppninni.
Liðunum er skipt í 7 riðla. Eitt
lið kemst áfram í lokakeppnina
úr hveijum riðli. Keppni í fyrsta
riðlinum hófst 15. september.
Hellir er í 5. riðli og keppir í
borginni Mulhouse í Frakklandi.
Mulhouse er 230.000 manna
borg, sem er vel í sveit sett
nálægt landamærum Frakk-
lands, Þýskalands og Sviss.
Keppnin í riðli Hellis verður haldin
3.-5. október, en keppni í síðustu
riðlunum lýkur upp úr miðjum mán-
uðinum. Sveit Hellis er þannig skip-
uð:
1. Hannes H. Stefánsson, SM 2545
2. Jón L. Ámason, SM 2535
3. Helgi Ólafsson, SM 2505
4. Karl Þorsteins, AM 2495
5. Helgi Áss Grétarsson, SM 2475
6. Ingvar Ásmundsson, FM 2365
Varamaður verður Andri Áss Grét-
arsson, FIDE meistari, og fararstjóri
verður Hrannar B. Amarsson.
Eins og sjá má er sveit Hellis
geysisterk og allir liðsmenn hennar
em alþjóðlegir titilhafar, þar af fjór-
ir stórmeistarar og einn alþjóðlegur
meistari. Því má þó ekki gleyma, að
í keppninni eigast við sterkustu tafl-
félög Evrópu og róðurinn verður því
þungur þótt Hellir hafi á að skipa
einu sterkasta liðinu í riðlinum. Þess
er skemmst að minnast að 1995,
þegar Taflfélag Reykjavíkur var full-
trúi íslands í keppninni, tapaðist
fyrsta viðureignin og þar með átti
TR einungis möguleika á fimmta
sæti í sínum riðli, sem reyndar náð-
ist. Keppnin fer nefnilega þannig
fram að í hveijum riðli em tefldar
þijár umferðir. I annarri umferð tefla
saman sigurvegarar 1. umferðar og
í þeirri síðustu tefla tvö efstu liðin
um réttinn til þátttöku í lokakeppn-
inni.
Andstæðingur Hellis í fyrstu um-
ferð verður DP Mladi frá Prag í
Tékklandi. Sveit þeirra er skipuð
eftirtöldum skákmönnum:
1 Jan Smejkal, SM 2525
2 Nana Ioseliani, SM 2520
3 Josef Pribyl, AM 2430
4 Petr Spacek, AM 2395
5 Pavel Freisler, AM 2340
6 Otto Borik, AM 2405
Úrslitin í Evrópukeppninni fara
fram í Kazan í Rússlandi 26.-30.
nóvember næstkomandi.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
Guðmundur G. Þórarinsson afhend-
ir Curt Hans Norðurlanda-
meistarabikarnum 1995.
sencting
Stuttir og síðir kjólar,
Is, sundbotir og inniskór.
Dag- og kóötdtöskur.
Hverfisgötu 50, sími 551 5222
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Áskorun til
dómsmálaráð-
herra
ÉG skora á dómsmálaráð-
herra að gera eitthvað í
þessu vandamáli sem mið-
bærinn er orðinn á kvöldin
og um helgar. Ég bý í húsi
þar sem eldri konur búa
og við þorum ekki orðið
út á kvöldin. Hinn almenni
borgari veigrar sér orðið
við að fara í út á kvöldin
eftir kl. 8, ekki einu sinni
á bíl, því að krakkarnir
leggjast upp á húdd bíl-
anna. Fyrir almenning er
þetta orðin hræðileg borg.
Ég t.d. þori ekki ein í vinn-
una á kvöldin eftir kl. 8,
þori ekki að ganga úti á
götu á kvöldin, glæpirnir
eru orðnir svo miklir. Ég
man ekki betur en Ingi-
björg Sólrún hafi ætlað að
gera eitthvað í eiturlyfja-
málum, það hefur ekki
gengið eftir. Ég kýs hana
ekki aftur. Ég tei að það
sé ekki við lögregluna að
sakast, þeir gera það sem
þeir geta. Það eru yfírvöld
sem eiga að taka alvarlega
á þessum málum, eitthvað
þarf að breytast. Dóms-
málaráðherra verður að
taka í taumana nú þegar
og gera eitthvað í þessum
málum.
Heiðarlegur borgari.
Er fullorðna
fólkið fyrirmynd
í forvörnum?
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún
taka undir það sem sagt
er í Morgunblaðinu í „Bréfí
til blaðsins" í grein sem
nefnist „Fjör í forvörnum".
Hún segist vinna á fjöl-
mennum vinnustað þar
sem vinni 300 konur. Þar
taka konur sig saman í
hópum og fara út að
skemmta sér og þá er talað
um að fara að „detta í
það“. Og í marga daga er
aðalumræðuefnið hvað það
hafí verið gaman. Þetta er
fullorðna fólkið sem er fyr-
irmynd barna og unglinga.
Hvert annað eiga bömin
að sækja fýrirmyndirnar?
Kona á besta aldri.
Schubert 200
ára - góður
þáttur
ÉG VIL koma á framfæri
ánægju minni með þátt hjá
RÚV á þriðjudögum
„Schubert 200 ára“, þáttur
sem Sigurður Þór Guðjóns-
son er með. Þetta er mjög
góður þáttur, Sigurður
áheyrilegur og góður. Ég
vil hafa hann sem lengst í
útvarpinu.
Hilmar.
Sigling á Rín
RÍNARHÉRUÐ eru rómuð
fyrir fegurð. Það er ný-
lunda hjá Samvinnuferð-
um-Landsýn að bjóða uppá
siglingu á stórfljótinu Rín
á hollensku, fallegu skipi,
þar sem hreinlæti og þjón-
usta var í hávegum höfð.
Enginn er svikinn af mált-
íðum sem voru miklar og
góðar. Undir traustri og
skemmtilegri stjórn Lilju
Hilmarsdóttur átti 40
manna hópur átta ánægju-
lega daga á fljótinu mikla
og fögm umhverfí þess,
nú í lok septembermánað-
ar. _
Ég vil þakka fararstjóra
og samferðarfólkinu
skemmtilega daga undir
hlýrri haustsól. Þetta eru
ferðir fyrir fróðleiksfúsa
sælkera.
Margrét.
Kettlingur
í óskilum
ÞESSI kettlingur fannst á
flækingi vestur á Seltjam-
amesi í byijun september-
mánaðar. Uppl. era veittar
í síma 551 3110.
SKÁK
llmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í undan-
rásum á Evrópumeistara-
móti skákfélaga um síðustu
helgi. V. Slovineanu
(2420), Rúmeníu, hafði
hvítt og átti leik, en Stefan
Djuric (2545), Júgóslavíu,
var með svart.
23. Rxg6!! - fxg6 (Verra
var 23. - Hxg6? 24. Dh5
og vinnur strax) 24. Dh5 -
Kf7 25. Hxg6! - Hxg6 26.
Dh7+ - Ke8 (Eftir 26. -
Bg7 kemur 27. Rh6+! sem
er afar faliegur vinnings-
leikur) 27. Hxg6 - Db5
28. Hg8 og svartur gafst
upp, því hann á ekki viðun-
andi vörn við hótuninni 29.
De7 mát.
Taflfélagið
Hellir keppir
nú um helg-
ina í undan-
rásariðli Evr-
ópukeppn-
innar í Mul-
house í
Frakklandi.
Nafn Jóns L.
Ámasonar
féll niður í
upptalningu
liðsmanna
Hellis hér í
skákhominu
á fimmtu-
daginn. Liðið
er þannig
skipað:
Hannes Hlífar Stefánsson,
Jón L. Ámason, Helgi Ólafs-
son, Karl Þorsteins, Helgi
Áss Grétarsson og Ingvar
Ásmundsson. Varamaður er
Andri Áss Grétarsson, en
Hrannar Amarson er farar-
stjóri.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur, unglinga-
flokkur. Keppni hefst í dag
kl. 14. Mótinu lýkur síðan
næsta laugardag. Vegleg
verðlaun.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI getur mælt með
nýju kaffihúsi, Vegamótum
við Vegamótastíg, fyrir þá sem aka
barnavögnum um miðbæinn og
finnst gott að geta tyllt sér og
fengið sér gott kaffi eða bjórglas.
Vegamót standa við aflokaðan
garð, þar sem kjörið er að leggja
barnavagninum, og í gegnum gler-
veggi veitingahússins er auðvelt
að fylgjast með honum. Svo er
kaffið á Vegamótum alveg ágætt.
xxx
ÍKVERJI varð fyrir því óláni
um daginn að verða viðskila
við ferðatöskuna sína á ferðalagi
erlendis. Það er auðvitað
óskemmtilegt að vera lengi án
þess, sem venjulega er í ferðatösk-
um, til dæmis tannburstans og
snyrtivaranna, að ekki sé talað um
gjafirnar handa fjölskyldunni.
Þjónusta Flugleiða í þessu máli var
hins vegar til fyrirmyndar og Vík-
veija er til efs að hraðpóstþjónusta
hefði getað komið ferðatöskunni
hraðar til hans, eftir að hún fannst
á flugvelli erlendis.
xxx
EITT smáatriði vill Víkveiji hins
vegar gagnrýna varðandi
veitingaþjónustu Flugleiða í flug-
vélum. Áf hveiju eru drykkir, sem
eiga að vera við stofuhita, þegar
þeir eru bornir fram, ævinlega
ískaldir? Þetta á til dæmis við um
bæði rauðvín og koníak, sem týna
nokkru af bragðgæðunum þegar
hitastigið er svona lágt. Nú leggja
Flugleiðir sig til dæmis fram um
að finna góð og spennandi rauðvín
til að bjóða í vélum sínum og menn
gætu haldið að það væri metnaðar-
mál að vínið væri við rétt hitastig.
xxx
EITINGASTAÐURINN Mira-
beile við Smiðjustíg er vax-
andi að mati Víkveija. Skrifari hef-
ur snætt þar þrisvar sinnum og
maturinn fer batnandi í hvert skipti.
Síðast snæddi Víkveiji lax annars
vegar og lambakjöt hins vegar -
algeng hráefni, sem eru oft í matinn
á flestum íslenzkum heimilum, að
ekki sé minnzt á matseðla veitinga-
staða. Það er þess vegna sérstaklega
ánægjulegt þegar lax og lambakjöt
er eldað og borið fram með þeim
hætti að það kemur skemmtilega á
óvart og kitlar bragðlaukana úr
nýrri og óvæntri átt. Kokkurinn á
Mirabelle getur bara verið nokkuð
ánægður með sig.