Morgunblaðið - 04.10.1997, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ(á)MBL.lS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Lág tilboð í varnarliðsframkvæmdir
Lægsta tilboð
56% af áætlun
Morgunblaðið. Vogum.
Keflavíkurverktakar áttu lægsta
tilboð í framkvæmdir í Helguvík á
vegum varnarliðsins og reyndist
tilboð þeirra aðeins nema 56% af
kostnaðaráætlun. Tilboði Kefla-
víkurverktaka var tekið. Sam-
keppni hefur aukist um verklegar
framkvæmdir fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli í kjölfar út-
boða.
I nýlegu útboði um fram-
kvæmdir í Helguvík við byggingu
viðgerðaverkstæðis, geymslu og
vatnsveitu buðu þrjú fyrirtæki.
Lægsta tilboð kom frá Keflavíkur-
verktökum, sem buðu 563 þúsund
dali, eða um 40 milljónir króna, Is-
lenskir aðalverktakar buðu rúm-
lega 600 þúsund dali, eða um 43
milljónir króna, og Aðalverk í
Keflavík bauð um 980 þúsund dali,
eða tæpar 70 milljónir króna.
Kostnaðaráætlun vegna verksins
var ein milljón dala, eða um 71
milljón króna.
Að sögn Friðþórs Eydal, blaða-
fulltrúa varnarliðsins, eru ekki öll
útboð svona langt undir kostnað-
aráætlun. Hann segir útkomuna
mismunandi eftir verkefnum.
Ljóst er að samkeppni hefur
aukist um verklegar framkvæmdir
fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli í kjölfar útboða.
Hlutabréfavísitala
VÞÍ lækkar um 2%
HLUTABRÉFAVÍSITALA Verð-
bréfaþings íslands lækkaði um 2% í
gær. Voru lækkanir á gengi hluta-
bréfa í sjávarútvegsfyrirtækjum
áberandi og lækkaði gengi hluta-
bréfavísitölu sjávarútvegs um 3,6%.
Mest varð lækkunin á gengi hluta-
bréfa í Haraldi Böðvarssyni, rúm
8%, en gengi hlutabréfa í Samherja
lækkaði um 3,8% og í Granda lækk-
uðu hlutabréf um 3%.
Að sögn þeirra verðbréfamiðlara
sem Morgunblaðið ræddi við í gær
virðist sem frétt í Morgunblaðinu í
gær, þar sem allt að 15% lækkun á
gengi hlutabréfavísitölu sjávarút-
vegs var spáð, hafi hreyft mikið við
markaðnum.
Skiptar skoðanir eru þó um þessa
greiningu og er m.a. bent á að
margt jákvætt hafi verið að gerast í
sjávarútvegi að undanfömu, svo
sem aukning þorskkvóta auk sam-
einingar fyrirtækja.
■ Hlutabréfavísitala /18
285 dagar í opnun Hvalfjarðarganga
MorgunblaðiÆ/Árni Sæberg
HALLDOR Blöndal ók fyrstur í gegnum Hvalflarðargöng. Við hlið hans sat Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðisráðherra og fyrsti þingmaður Vesturlands.
Leiðin undir Hvalfjörð er greið
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra ók í gær í gegnum Hvalfjarð-
argöng fyrstur manna eftir að hafa
sprengt síðasta haftið í göngunum.
Upphaflega var áætlað að sprengja
haftið í júlí á næsta ári, en nú eru
horfur á að hægt verði að opna
göngin fyrir umferð í þeim mánuði.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, sagði í gær að gerð Hval-
Qarðarganga hefði gengið betur en
bjartsýnustu menn hefðu þorað að
vona. Hann sagði að nú væri útlit
fyrir að hægt yrði að opna göngin
eftir 285 daga.
Páll Siguijónsson, framkvæmda-
stjóri Istaks, sagði að það hefði
þurft þor til að leggja út í þessa
miklu framkvæmd, sem vissulega
hefði ekki verið áhættulaus. Marg-
ir hefðu haft vantrú á jarðgöngun-
um og spáð illa fyrir framkvæmd-
inni. Sem betur fer hefðu menn
haft kjark til að halda ótrauðir
áfram.
Framkvæmdum við gerð syðri
gangamunnans lýkur í þessum
mánuði og verður þá hafist handa
við gerð munna norðan við fjörð-
inn. Gerð vega að göngunum miðar
vel áfram og er gert ráð fyrir að
vegagerðinni ljúki fyrir 1. júh'.
I vetur verður unnið við að
styrkja bergið og bæta steypuhúð-
un. Settur verður upp öryggisbún-
aður, Ijós og viftur. Þá á eftir að
malbika veg í gegnum göngin.
■ Síðasta haftið/32
Yfir 100 g
fíkniefna
innvortis
TÆPLEGA þrítugur breskur
maður er í haldi lögreglunnar.
Hann reyndi að flytja inn í
landið á annað hundrað grömm
af fíkniefnum, þ.á m. 89 grömm
af kókaíni. Fíkniefnin hafði
hann gleypt í rúmlega 20 smá-
bögglum.
Lítilræði af kókaíni fannst á
manninum í úrtaksleit hjá fíkni-
efnaeftirliti Tollgæslunnar á
1 Keflavíkurflugvelli. Maðurinn
var að koma frá Amsterdam. I
framhaldi af leitinni vöknuðu
grunsemdir um að hann væri
með fíkniefni innvortis. Við yf-
irheyrslu hjá fíkinefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík viður-
kenndi hann að svo væri og
fékkst það síðan staðfest með
röntgenmyndatöku. Það var
mat lækna að maðurinn væri í
bráðri lífshættu og ástæða til
að leggja hann inn á sjúkrahús
uns efnið skilaði sér.
Samtals hafði maðurinn inn-
vortis 88,9 grömm af kókaíni,
4,2 grömm af hassi, 10,6 grömm
af marijuana og sex e-töflur.
Hann hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 10. október
næstkomandi. Efnið hafði hann
ætlað til eigin neyslu og sölu
hér á landi. Rannsókn málsins
hefur miðað vel og er á loka-
stigi.
Rannsókn lögreglunnar á láti manns sem fannst f Heiðmörk
Tvíburabræður í gæslu-
varðhald til 14. nóvember
TVEIR menn, 25 ára tvíburabræð-
ur, voru í gær í Héraðsdómi
Reykjaness úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 14. nóvember, vegna
meintrar aðildar sinnar að láti 36
ára fjölskyldufóður úr Vesturbæ
Reykjavíkur. Annar bræðranna gaf
sig fram við lögreglu um kvöldmat-
arleyti á fimmtudag. Hann sagði að
bróðir sinn hefði keyrt stein
nokkrum sinnum af afli í andlit
mannsins í Heiðmörk og þeir bræð-
ur ekið í miklu óðagoti á brott. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa bræðumir sagt að tilgangurinn
með förinni í Heiðmörk hafi verið að
ræna manninn.
Þegar lögregla kom á vettvang í
Heiðmörk upp úr kl. 16 á fimmtu-
dag, eftir ábendingu vegfaranda
sem gekk fram á lík mannsins, þá
bentu ummerki til þess að honum
hefði verið ráðinn bani með hrotta-
fengnum hætti. Talið var að honum
hefði verið veittur höfuðáverki, ekið
yfir hann, hann rændur fjármunum
og skilinn eftir í blóði sínu. Engin
skilríki fundust og vissi lögregla
ekki í fyrstu hver maðurinn var.
Um þremur stundum síðar kom
25 ára maður á lögreglustöðina við
Hverfisgötu í Reykjavík. Sam-
Morgunblaðið/Júlíus
MAÐURINN fannst látinn á veginum, sem liggur til hægri á myndinni.
I fjarska sjást Vffilsstaðir.
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
sagðist honum svo frá, að hann
hefði ekið á BMW-bíl sínum á
skemmtistað í Reykjavík á miðviku-
dagskvöld og bróðir hans verið með
í för. A skemmtistaðnum hittu þeir
ókunnugan mann og buðu honum
með sér. Síðan óku þeir í Heiðmörk.
Hóf steininn á loft
báðum höndum
Maðurinn sagði að í Heiðmörk
hefðu þeir ekið út á stuttan veg-
spotta og þar hefði bróðir hans stig-
ið úr bílnum ásamt ókunnuga mann-
inum. Næst hefði hann séð bróður
sinn hefja stóran stein á loft með
báðum höndum og keyra í andlit
mannsins nokkrum sinnum. Mikið
fát hefði komið á þá bræður eftir
þetta og hefðu þeir ekið hratt af
stað.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var ekki ljóst af fyrstu frá-
sögn mannsins hvor þeirra bræðra
sat undir stýri þegar ekið var af
stað. För þeirra endaði þó skömmu
síðar, rétt eftir að þeir komu inn á
aðalveginn, því þar misstu þeir bíl-
inn út af og náðu ekki að losa hann.
Maðurinn sagði að þeir hefðu
gengið út á Reykjanesbraut, þaðan
til Hafnarfjarðar og tekið leigubíl.
Tvíburabróðir hans hefði í íyrstu
viljað kæra að BMW-bilnum hefði
verið stolið og fá stúlku til að vitna
um að þeir hefðu verið með henni
um kvöldið, en fallið frá því. Þeir
hefðu farið og náð í Ford Taunus-bíl
í eigu bróðurins, farið í Heiðmörk
og náð að draga BMW-inn Iausan.
Maðurinn sagði að hann hefði
ákveðið að fara til lögreglu og segja
frá atburðinum þrátt fyrir að tví-
burabróðir hans hefði lagt mjög
hart að honum að þegja. Hann hefði
hins vegar orðið svo miður sín
vegna aðfara bróður síns, að hann
hefði ekki getað leynt atburðinum.
Tvíburabræðumir hafa komið við
sögu lögreglu áður, m.a. vegna lík-
amsárásar, auðgunarbrota, ítrekaðs
ölvunaraksturs og kynferðisbrota.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.