Morgunblaðið - 15.10.1997, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 35v
samherjar og andstæðingar í
ágreiningsmálum þar sem sér-
þekking okkar kom að gagni er
við vorum kallaðir til að leysa úr
ágreiningi í dómsmálum eða ann-
arskonar sáttargerðum hliðstæð-
um. Aldrei varð þetta til þess að
skapa þyngsli milli okkar heldur
má segja að það styrkti vinaböndin
enn frekar.
Sverrir hélt áfram að vinna að
hafnarmálum og fékk aukinn
frama við þau störf og við verklok
var hann starfandi sem yfirverk-
stjóri hjá Hafnarmálastofnun enda
naut hann mikils trausts þar bæði
af yfirstjórn sem annarra starfs-
manna. Tii marks um færni hans
og mannkosti var hann iðulega
kallaður til sem meðdómari og
matsmaður í ágreiningsmálum er
lutu að starfssviði hans. Alltaf lauk
hann slíkum málum af slíkri sann-
gimi og svo faglega rétt að ég
veit ekki til annars en að allir sem
um þau mál fjölluðu hafi staðið
upp sáttir að lokum og skilið sem
vinir.
Það var mér því mjög kært, er
ég fór að vinna að hagsmunamál-
um aldraðra, ásamt öðru góði fólki,
í Samtökum aldraða að þar lágu
leiðir okkar Sverris saman í starfi
að nýju. Það er skemmst frá því
að segja að hér sem áður kom starf
hans, góð ráð og hugkvæmni sér
vel og ekkert mál þótti fullrætt
hjá Samtökunum nema Sverrir
hefði um það fjallað eða hefði stað-
ið að undirbúningi þess. Við sam-
starfsmenn hans undruðumst oft
getu hans og vilja til starfa með
okkur enda þótt hér væri um sjálf-
boðaliðastarf að ræða. Alltaf var
Sverrir reiðubúinn.
Við hjá Samtökunum viljum með
þessum fátæklegu orðum þakka
Sverri fyrir gott og fómfúst starf
fyrir aldraða um leið og við þökk-
um honum langa vináttu og við-
kynningu á lífsleiðinni.
Við færum Laufeyju konu hans
og öðrum ættingjum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Sverrir, ég
þakka þér góð og gömul kynni og
vináttu.
Guðmundur Gunnarsson.
Ég þakka þér þá vináttu sem
þú sýndir mér þegar ég leitaði til
þín. Þú áttir alltaf svör við spurn-
ingum mínum. Mér fínnst gott að
hafa fengið að kynnast þér.
Kæri vinur, guð blessi þig.
Björg.
börn og barnabarnabörn vaxa og
dafna í blíðu og stríðu. Hvað getur
maður farið fram á meira? Fjöl-
skyldan er stór og bamabörnin þín
komin vel á þriðja tug. Þú varst
stolt af fölskyldunni þinni og þreytt-
ist aldrei á að hrósa okkur. Þú hafð-
ir þann einstaka eiginleika að láta
hvern og einn fínna að hann væri
einstakur.
Þær eru ótal margar minning-
arnar sem ég á frá Hólmgarðinum
enda voru þau ófá skiptin sem ég
var sendur í pössun á Hólmgarðinn
vegna veikinda mömmu heitinnar.
Ekki má gleyma veiðiferðunum á
Álftárbakka og góðum stundum í
sælureitnum ykkar afa í Laugar-
dalnum. Mér eru ljóslifandi minn-
ingarnar þegar ég var alltaf að
mæla hæð mína við þig enda
varstu óspör á hrósyrðin. Mikið
var ég glaður og stoltur að þú og
afi gátuð upplifað brúðkaupsdag-
inn minn fyrir rúmum sex árum
og við dönsuðum saman vals. Það
var ekki löngu seinna sem þú
fékkst áfall sem leiddi til þess að
þú varst bundin við hjólastól meira
og minna. Elsku amma, nú er
komið að leiðarlokum og þakka
ég fyrir samverustundirnar sem
við áttum saman og munu góðar
minningar lifa. Guð geymi þig og
varðveiti, amma mín.
Að lokum vil ég þakka starfs-
fólki á lungnadeildinni á Vífílsstöð-
um og hjúkrunarheimilinu Eir fyrir
vel unnin störf síðustu árin.
Sigurjón Vilbergsson.
HELGIS.
G UNNLA UGSSON
+ Helgi Sigurgeir
Gunnlaugsson
fæddist á Gilsá í
Breiðdal 6. maí
1912. Hann lézt á
heimili sínu hér í
Reykjavík laugar-
daginn 4. október
síðastliðinn, á 86.
aldursári. Foreldr-
ar hans voru Gunn-
laugur Helgason
bóndi á Gilsá og
kona hans Guðlaug
Árnadóttir. Systk-
ini Helga voru
Steinunn, f. 1895,
og Árni
Björn, f. 1903.
Árið 1930 fór Helgi til
Reykjavíkur og lærði þar húsa-
smíði og starfaði síðan við
smíðar alla tíð, lengst af að
ýmissi byggingavinnu en síðari
starfsárin hjá Áhaldahúsi
Reykjavíkur þar til hann hætti
störfum fyrir aldurs sakir.
Helgi var ókvæntur og barn-
laus.
Útför Helga fer fram frá
Fossvogskapellu í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Þótt kynni okkar Helga Gunn-
laugssonar væru ekki löng né mik-
il vil ég minnast hans í fáum orðum
nú þegar hann hefur kvatt. Hann
var vinur Þjóðminjasafnsins og
sýndi því óvenjulegan hug.
Helgi fór ungur að aldri úr
heimasveit sinni hingað suður,
lærði hér húsasmíði sem hann
fékkst við lengi síðan. Betur féll
honum þó ýmiss konar fínsmíði en
gróft byggingahandverkið, því
leiddi af sjálfu sér að hann fékkst
lengst af við ýmsa vandaðri smíði
til húsa, svo sem stigahandrið og
innréttingar, þoldi enda illa úti-
vinnu eftir sjúkdómslegu á yngri
árum.
Það var fyrir allnokkrum árum
að Helgi tók sér fyrir hendur að
áeggjan að smíða líkan af hinni
gömlu sóknarkirkju þeirra Breið-
dælinga, Heydalakirkju þeirri er
reist var 1865 og brann 1982.
Þetta var vanda- og nákvæmnis-
verk og oft kom Helgi þá í Þjóð-
minjasafnið til að skoða teikning-
ar, sem þar voru til af kirkjunni,
og bera undir aðra atriði sem hon-
um voru ekki fullljós. Þessi smíði
tókst Helga frábærlega vel og er
líkanið nú í Heydalakirkju og vek-
ur eftirtekt og aðdáun þeirra sem
skoða. Það vakti athygli hve mikla
natni og alúð Helgi lagði í þetta
verk, en þannig mun það hafa
verið með það sem hann tók sér á
annað borð fyrir hendur, hann
sökkti sér niður í það og vann svo
vel sem kostur var.
Ég kynntist einnig nokkuð frí-
merkjasafnaranum Helga Gunn-
laugssyni, fyrst í sambandi við frí-
merkjasýningar í Bogasalnum er
hann tók þátt í með Félagi frí-
merkjasafnara. Hann einbeitti sér
síðari árin að söfnun íslenzkra
merkja með mynd Kristjáns kon-
ungs 9., ekki aðeins frímerkjanna
heldur hvers kyns póstsendinga
með þeim merkjum á, öllum verð-
gildum og ýmsum samsetningum
merkja eftir sendingum og flutn-
ingsmáta. Helgi var sjófróður í
frímerkjafræðum og þar var hugur
hans oftast.
Það var fyrir nokkrum árum að
Helgi kom að máli við mig og
kvaðst vilja gefa Þjóðminjasafninu
frímerkjasafn sitt allt, sérsafnið
með Kristjáni konungi 9. eins og
það legði sig, frágengið og upp-
sett. Eg nefndi hvort slíkt safn
ætti kannske ekki eins vel heima
í annarri opinberri stofnun, þar
sem Þjóðminjasafnið safnaði ekki
frímerkjum eða póst-
minjum sérstaklega,
þótt vissulega væru
merkilegir hlutir af því
tagi varðveittir þar.
En Helgi hafði ákveðið
að í Þjóðminjasafninu
skyldi safn hans
geymast, ef hið opin-
bera vildi á annað borð
þiggja það og það ætti
að varðveitast sem
heild. Hann kvaðst
treysta því að þar
kynni fólk að fara með
og meta slíka gripi
sem safn hans væri.
Að sjálfsögðu var boðið þakk-
samlega þegið, þótt enginn sé þar
meðal okkar sá frímerkjafræðing-
ur að nægileg skil kunni á þessu
merkilega safni. Helgi setti nokkra
sjálfsagða skilmála um meðferð
safnsins, það skyldi sérlega vel
varðveitt og þeir einir ættu að
meðhöndla það sem örugglega
væri treystandi til. Sjálfur kom
hann í nokkur skipti til að skoða
safnið eða hann kom með vini úr
frímerkjaheiminum til að sýna
þeim. Minnist ég þá útlendings sem
Helgi kom með fyrir rúmu ári til
að sýna safnið, manns sem var á
svipuðu söfnunarróli og hann hafði
verið. Sá hafði við orð að þetta
væri frábærlega merkilegt safn á
því sérsviði og fékk myndir af hlut-
um úr því. - Helgi kvaðst hafa
hug á að bæta enn um safnið því
að eitthvað fannst honum vanta í
svo að nægilega gott væri, en lík-
legast átti hann aldrei kost á að
ná því, þar var nánast um ófáan-
lega hluti að ræða sem ekki komu
á markað. Svo er það ævinlega.
Aldrei kollheimtist allt, enda er það
líka partur af ánægju safnarans
að vera sífellt að leita uppi hluti í
átt til fullkomnunar.
Síðar átti Þjóðminjasafnið þó
eftir að taka við enn meiri gjafa-
feng frá Helga Gunnlaugssyni.
Helgi var hægur maður í fram-
göngu, virtist dulur nokkuð og mun
víst ekki hafa blandað geði við afar
marga. Hann átti þó góða kunn-
ingja í hópi safnaranna, en sjálfur
fór hann mest einn. Hann ferðaðist
nokkuð á efri árum og naut þess
vel. Hann var ókvæntur og bam-
laus og bjó lengst af einn í húsi
sínu í Smáíbúðahverfi, sem hann
hafði sjálfur byggt og innréttað og
smíðað húsgögnin, skorið sum
þeirra út af miklu listfengi, enda
mun hann hafa unnið fyrr á árum
ýmsa forvinnu verka bæði fyrir
Einar Jónsson myndhöggvara og
Ríkarð Jónsson myndskera. Á
heimilinu var allt af smekkvísi
umgengið. Síðari árin var þó heilsa
Helga ekki sterk, en hann hafði
jafnan ferlivist og var sjálfbjarga
til hins síðasta.
Hafi hann nú þökk fyrir kynni
okkar og þá góðvild og traust sem
hann sýndi Þjóðminjasafninu og
starfsemi þess.
Þór Magnússon.
Sérfræðingar
í blóinaskrevtinjtum
\ ió öll tækifæri
I blómaverkstæði 1
| ISlNNAÁ |
Skóhnorðustíg 12.
á horni Bergstaðastrætis.
sími 551 9090
/i Kammerkór Langholtskirkju - Jón Stefánsson j)
Með listrænan metnað - Sími 894 1600 (m
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓN HÁLFDÁN ÞORBERGSSON,
Garðsenda 7,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn
11. október síðastliðinn.
Útförin auglýst síðar.
Sigríður Ebenesersdóttir,
Randver Jónsson,
Valgeir Ómar Jónsson, Guðlaug Traustadóttir,
Ebeneser Jónsson, Lára Viðarsdóttir,
Guðmundur Páll Jónsson, Berglind Benediktsdóttir,
Elísabet María Jónsdóttir, Jens Nielsson
og barnabörn.
W
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐFINNUR SIGFÚSSON
bakarameistari,
Ánalandi 4,
Reykjavík
lést aðfaranótt þriðjudagsins 14. október sl.
Hann verður jarðsunginn frá Grensáskirkju miðvikudaginn 22. október
kl. 13.30.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Sveinn Rúnar Hauksson, Sigfús Guðfinnsson
Óttar Felix Hauksson, Guðmundur Guðfinnsson,
Sigríður Hauksdóttir, María Guðfinnsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
TRYGGVI BJARNASON,
Lindargötu 66,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Landakoti,
mánudaginn 13. október,
Arnfríður Benediktsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
LYDÍA KRISTÓFERSDÓTTIR,
Hjarðartúni 2,
Ólafsvfk,
lést á St. Fransiskuspítalanum Stykkishólmi
13. október.
Jarðaförin auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, ömmu og langömmubörn.
+
Móðir mín elskuleg,
KRISTÍN M.J. BJÖRNSON,
sem andaðist á dvalarheimilinu Grund 9. októ-
ber, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 16. október kl. 13.30.
Hákon H. Kristjónsson.
+
Útför okkar ástkæru,
ÁSDÍSAR AÐALSTEINSDÓTTUR,
Efstasundi 96,
verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn
17. október kl. 15.00,
Aðalsteinn Hallgrímsson. Kristín Gísladóttir,
Ásdís Aðalsteinsdóttir, Gísli ísleifur Aðalsteinsson,
Bergþór Jóhannsson
Kristín Björg Bergþórsdóttir,
Jóhanna Guðrún Bergþórsdóttir.