Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
T
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 21
ERLENT
Sátt um
sljórn
í Póllandi
BANDALAG Samstöðu og
Frelsisflokkurinn komust í
gær að samkomulagi um
myndun ríkisstjórnar í Pól-
landi, er þing landsins kom
saman eftir kosningar sem
haldnar voru 21. september.
Að því er heimildamenn, sem
tóku þátt í viðræðum flokk-
anna sögðu, fær Samstaða í
sinn hlut m.a. ráðuneyti fjár-
mála og félagsmótunar og get-
ur því unnið áfram að hug-
myndum sínum um endurbæt-
ur á lífeyrissjóðakerfinu á
grundvelli víðtækrar einka-
væðingar. Frelsisbandalagið
tekur að sér m.a. ráðuneyti ut-
anríkismála, samgöngumála og
menningarmála.
Fergie biðst
forláts
SARA Ferguson, hertogaynj-
an af York, hefur skrifað
Elísabetu Bretadrottningu,
fyi’rum tengdamóður sinni,
bréf og beðist fyrirgefningar á
gömlum misgjörðum, að því er
breska blaðið The Sun greindi
frá í gær. Að sögn blaðsins
skrifaði Fergie „langt og sund-
urlaust og tilfinningaþrungið"
bréf til drottningar í vikunni
eftir að Díana prinsessa var
borin til grafar. Fulltrúar
Buckinghamhallar vildu ekki
tjá sig um fregn blaðsins af
bréfi Fergie.
Vænta lausn-
ar í Kína
BANDARÍKJAMENN sögðu
í gær að þeir væru bjartsýnir á
að þeim tækist að telja kín-
versk stjórnvöld á að láta lausa
pólitíska andófsmenn áður en
fundur Bills Clintons, Banda-
ríkjaforseta, og Jiangs Zem-
ins, forseta Kína, verður hald-
inn í næstu viku. Háttsettur,
kínverskur embættismaður
mun hafa látið í veðri vaka að
andófsmenn yrðu látnir lausir
af heilsufarsástæðum. Meðal
þeirra sem til greina kemur að
verði látnir lausir eru Wei
Jingsheng og Wang Dan, sem
báðir voru nefndir sem líklegir
handhafar friðarverðlauna Nó-
bels í ár.
Soros aðstoð-
ar Rússa
FREGNIR herma að ung-
versk- bandaríski auðjöfurinn
George Soros hyggist fjárfesta
fyrir um 500 milljónir Banda-
ríkjadala á næstu þrem árum í
Rússlandi. Blaðið The New
York Times greindi frá þessu í
gær. Er ætlun Soros að pen-
ingunum verði varið til þess ða
bæta heilsugæslu, auka
menntunarmöguleika og þjálfa
hermenn til starfa á almennum
vinnumarkaði. Soros var ný-
lega á hálfsmánaðar ferðalagi
um Rússland og segir hann að
fjárframlagið sé í samræmi við
það sem sér hafi sýnst hest
skorta á í landinu.
Rithöfundurinn Gunter Grass sakaður um að hafa móðgað þýsku þjóðina
Sagði Þjóðverja
„felurasista“
Bonn. Reuters.
ÞÝSK stjórnvöld sökuðu í gær
Gúnter Grass, einn kunnasta rit-
höfund landsins, um að hafa móðg-
að þýsku þjóðina með því að segja
að Þjóðverjar séu „felurasistar".
Eduard Lintner, fulltrúi innan-
ríkisráðuneytisins, sagði að Þýska-
land tæki við mun fleira fólki, er
leitaði hælis, en nokkurt annað
Evrópuríki. „Að saka íbúa Þýska-
lands um rasisma er fáránlegt og
móðgandi,“ sagði Lintner í út-
varpsviðtali.
Grass, sem er m.a. kunnur fyrir
skáldsöguna Blikktromman, lét
hin umdeildu orð falla á sunnudag
á bókmenntahátíðinni í Frankfurt,
þar sem hann hélt ræðu er tyrk-
neska rithöfundinum Yasar Kemal
voru afhent friðarverðlaun þýskra
bókaútgefenda.
Kvaðst Grass skammast sín fyr-
ir það að Þjóðverjar væru orðnir
að „þjóð sem leitast einungis við að
gæta efnahagslegra hagsmuna" og
sæju tyrkneskum stjórnvöldum
fyrir vopnum sem notuð væru
gegn kúrdíska minnihlutanum.
„Nú er líklega svo komið að við er-
um enn og aftur aðgerðarlaus vitni
að skelfílegum glæpum - að þessu
sinni glæpum á forsendum lýðræð-
isins,“ sagði Grass og skírskotaði
til átaka tyrkneskra stjórnvalda og
skæruliða Kúrda.
Sagði Grass að þýsk stjómvöld
hefðu kyrrsett
um 4.000 sak-
lausa flóttamenn
frá Tyrklandi,
Alsíi- og Nígeríu í
útlagabúðum til
þess að þóknast
„felurasisma"
Þjóðverja. Tals-
menn stjórn-
valda, Peter
Hausmann og Peter Hintze, for-
dæmdu orð Grass á sunnudag.
Sagði Hintze að með orðum sínum
hefði Grass lagst lægra en nokkru
sinni og ekki væri lengur hægt að
taka hann alvarlega sem rithöf-
und.
Giinter Grass