Morgunblaðið - 21.10.1997, Page 25

Morgunblaðið - 21.10.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 25 LISTIR Hressileg útitónlist TONLIST Listasafn íslands KAMMERTÓNLEIKAR Kammersveit Reykjavikur flutti blás- aratónlist eftir Beethoven, Mozart og Dvorák. Sunnudagnrinn 19. október, 1997. KAMMERTÓNLIST fyrir blás- ara eingöngu var upphaflega hugs- uð til leiks utanhúss og rekur sú venja sögu sína nokkuð langt aft- ur, samanber svo kallaða turnmús- ík og jafnvel aftur til trúðleika miðalda. í safni kammertónlistar frá klassiska tímabilinu er að finna frábær tónverk eftir meistara eins og Haydn, Mozart og Beethoven, innan um mikið safn alls konar umritana og útsetninga eftir minni spámenn. Tónleikar Kammersveit- ar Reykjavíkur voru að þessu sinni helgaðir blásaratónlist og hófust á Rondino í Es-dúr WoO 25, eftir Beethoven. WoO merkir Werk ohne Opuszahl, þ.e. Verk án ópusnúmers og mun þessi þáttur upphaflega hafa verið ætlaður sem lokaþáttur fyrir oktettinn fræga op. 103, sem, þrátt fyrir hátt opusnúmer, mun upphaflega hafa verið saminn áður en meistarinn fluttist til Vínar. Þetta er falleg tónlist sem var mjög vel flutt af Daða Kolbeinssyni, Pet- er Tompkins, Einari Jóhannessyni, Sigurði I. Snorrasyni, Rúnari H. Vilbergssyni, Hafsteini Guðmunds- syni, Josef Ognibene og Emil Frið- fínnssyni. Annað verkið á efnisskránni var Serenaðan í c-moll K.388, sem Mozart mun hafa samið í hasti og greinir hann frá því í sendibréfi „að spilamennskan hafi ekki verið sem best hjá þeim er frumfluttu verkið. Þetta er eitt af fáum skemmtiverk- um eftir Mozart, sem er í moll, og hafa sagnfræðingar hafa velt vöng- um yfir, hvort blæbrigði tónteg- LIMABURDUR AUSTIN POWERS ER EINSTAKUR í sambandi við neytendur frá morgni til kvölds! - kjarni málsins! unda hafi skipt Mozart miklu máli og telja sig sjá merki um að val tóntegunda tengist túlkun ýmissa stemmninga, svo sem sjá má merki um í óperunum sérstaklega. Seren- aðan er fallegt verk en þar leikur á ýmsu lausu hvað snertir form- skipan og úrvinnslu hugmyndanna en það bregst aldrei, að leikur tón- hugmyndanna er Mozart léttur í hendi, eins t.d. í hinu snjalla stefi lokakaflans. Verkið var ekki síður vel flutt en það fyrra en til sam- starfs við fyrri hópinn kom Þorkell Jóelsson. Lokaverk tónleikanna var Seren- aða eftir Dvorák op 44 og þá bæt- ast í hópinn Bijánn Ingason, Inga Rós Ingólfsdóttir og Richard Kom. Þessi serenaða er nokkuð „brassí“ og var leikin samkvæmt því, undir stjóm Berharðar Wilkinssonar. Brahms spurði Dvorák eitt sinn hvar hann fengi hin einkennilegu stef sín, en Dvorák var skemmtilega fundvís á sérkennilegt tónferli, er mun eiga sér rætur í danstónlist Tékka en Dvorák vakti fyrst sem sveitastrákur athygli fyrir fjörugan leik í danshljómsveit. Það má ávallt deila um flutningsmáta og á hvað skuli leggja áherslu varðandi túlkun og mótun. Fyrir undirritaðan vom báðar serenöðumar nokkuð hvasst mótaðar og leiknar á stundum nokk- uð sterkt og mátti þá t.d. vart merkja lagferlið í óbóröddunum. Þetta á auðvitað ekki við um heild- arflutninginn, því oft gat að heyra sérlega fallega mótaðan samleik enda valinn maður í hveiju rúmi Þrátt fyrir að í þessu tilfelli megi deila um flutningsmáta, hvort leika eigi slíka útitónlist, sem hér um ræðir, hressilega eða dekra við fín- legri útfærslu, sérstaklega er varðar tónmótun og styrk, verður ekki annað sagt en að flutningurinn í heild hafí verið skemmtilega hressi- legur og framfærður af öryggi. Jón Ásgeirsson Dansarar finna Björk í Hollywood DANSSÝNING danska hóps- ins „Corona Dansteater" sem nefnist „Sally’s Valley" verður á tímabilinu 27.-31. október á Húsavík, Akureyri, Sauðár- króki og í Reykjavík. Fimmtu- daginn 23. október kl. 21 frumsýnir hópurinn í Loftk- astalanum. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur í Danmörku. Hún er talin við hæfí þrettán ára og eldri. Sally, sem Carina Raffel dansar, er einkaspæjari í leit að horfnum rafmagnsgítar Elvis Presleys. í draumaferð sinni til Bandaríkjanna hittir hún söngkonuna Björk í Holly- wood. Dansararnir ungu eru sagðir mjög fjörlegir á sviðinu þegar þeir bregða á leik við rokkmúsík og skopstæla m.a. glæpaþætti. JÓN Stefánsson: Fólk við sjóinn. EfO •« BáiWOO Úrvals ryksugur á veröi sem enginn stenst! EIO ryksugurnar eru frá einum stærsta og virtasta fram- leiðanda Þýskalands. Þær eru tæknilega fullkomnar, lág- værar með stillanlegum sogkrafti og 6-földu míkrófilter- kerfi sem hreinsar burt smæstu rykagnir. EIO ryksugurnar hlutu nýlega 4 stig af 5 möguiegum í gæðaprófun neytendasamtaka erlendis. DAÍW00 1100 V/ ryksugur með 5-földu míkrófilterkerfi á aðeins krj.405 stqr. Glæsilegar ryksugur j í glæsilegum litum! / ///'' ' Einar Farestveit&Cohf Borgartúni 28 u 562 2901 og 562 2900 Málverk eftir Jón Stefánsson slegið á 800 þúsund krónur FÓLK við sjóinn, málverk eftir Jón Stefánsson, var slegið á 800 þúsund krónur á uppboði Galleris Borgar á Hótel Sögu á sunnudags- kvöld. Að sögn Péturs Þórs Gunn- arssonar hjá galleríinu er sú nið- urstaða viðunandi en myndin er fremur lítil, auk þess sem hún er ómerkt. Að dómi Péturs bar þetta hæst á „þokkalega góðu“ uppboði, þar sem hátt í hundrað verk voru boðin upp og á bilinu sextíu til sjötiu seldust. „Sennilega hefur þó verið of mikið af stórum og dýrum verkum á uppboðinu fyrir þennan litla markað en mönnum bar saman um að annað eins úr- Guðlaugur Þór hefur tekið til hendinni! Opinberar skuldir - kynslóðareikningar Undir forystu Guðlaugs vakti Samband ungra sjálfstæðismanna athygli á afleiðingum áratuga skuldsetningu opinberra aðila. í kjölfarið var þess krafist að Iagðir yrðu fram kynslóðareikningar. EJhahagslegt Jrelsi Útfærðar tillögur sem miða að því að draga hins opinbera og auka frelsi þegnanna. Jajhréttismál Guðlaugur Þór hefur verið áberandi í jafnréttisumræðum ■ innan Sjálfstæðisflokksins og stuðlað að því að konur jafnt og karlar taki þátt í flokkstarfinu. L val verka hafi ekki verið á upp- boði á Islandi í langan tíma — fjöl- margar myndir voru metnar á um eða yfir milljón.“ Að sögn Péturs Þórs var setinn Svarfaðardalur á Hótel Sögu sem bendir til þess að áhugi á mál- verkauppboðum sé að glæðast á ný eftir nokkra lægð undanfarið. „Þetta lofar góðu um framhaldið. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá fólk sem verslaði mikið við okkur undir lok síðasta áratugar en hef- ' ur lítið sótt uppboð síðan, jafnvel verið að losa sig við málverk. Þetta bendir til þess að fólk hafi nú almennt meira fé á milli hand- anna.“ umsv naBStu öld Guðlaugur Þór - skeleggur talsmabur sjálfstœðisstefnunnar Stuðningsmenn Kosnineamiðstöðin Austurstræti ing: Símar: 561 9599 / 561 9526 / 561 9527

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.