Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 50

Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 50
.50 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ l|p ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sóiðið kt. 20.00: ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof 12. sýn. fim. 23/10 - fös. 24/10 - lau. 1/11. FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick Lau. 25/10 - sun. 26/10 - fös. 31/10 - lau. 8/11. GRANDAVEGUR 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir Frumsýning mið. 29/10—2. sýn. fim. 30/10 — 3. sýn. sun. 2/11 — 4. sýn. fös. 7/11 — 5. sýn. fim. 13/11. Litla sóiðið kt. 20.30: LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza Aukasýning á morgun, mið. 22/10 laus sasti — lau. 25/10 uppselt — sun. 26/10 uppselt Ath. ósóttar pantanir seldar daglega. Smiðaóerkstœðið kt. 20.30: KRABBASVALIRNAR eftir Marianne Goldman Frumsýning lau. 25/10 — sun. 26/10 — sun. 2/11 — fim. 6/11 — fös. 7/11. Miðasalan eropin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Fös. 24.10 kl. 20 uppselt og kl. 23.15 örfá sæti laus. Lau. 25.10 kl. 23.15 örfá sæti laus Fös. 31.10 kl. 23.15 „Snilldarlegir kómískir taktar leikaranna. Þau voru satt að segja morðfyndin."(SA.DV) V „Þama er loksins kominn i I sumarsmellurinn í ár“. (GS.DT.) ________J KRINGLUKRÁIN - á góðrí stund ALLTAF FYRIR OG EFT1R LEIKHUS í MAT EÐA DRYKK LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD UTSE1\IDI1\I0 „Lelkur Jón Loga og gerir það fantavel." H F Rýv „Glæsileg frammistaða". F.L. „Einstaklega vel leikið". S.H. Morgunblaðið USTAVERKIÐ fös. 31. okt. kl. 20 sun. 2. nóv. kl. 20 BEIN ÚTSENDING fös. 24. okt. kl. 20 örfá sæti laus lau. 1. nóv. kl. 20 VEÐMÁLIÐ fös. 24.10 kl. 23.30 örfá sæti laus fös. 31. okt. kl. 23.30 laus sæti ÁFRAM LATIBÆR sun. 26. 10 kl. 14 örfá sæti iaus og kl. 16.00 sun. 2. nóv. kl. 14 Ath. lokasýningar Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI lau. 25.10 kl. 23.30 örfá sæti laus fim. 30.10 kl. 20 lau. 8. nóv. kl. 15.30 Ath. aðeins örfáar sýningar. Loftkastalinn, Seljavegi 2. Miðasala s. 552 3000. fax 562 6775 Miðasala opin frá 10—18, lau. 13—18 Lau. 25.10. kl. 20. Aukasýning. Miðasala í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar, Skólavörðustíg 15, sími 552 4600. SÍMSVARI í SKEMMTIHÚSINU Dansleikhús frá Danmörku * SALLV'S VALLE\1 verður í Loftkastalanum fimmtudaginn 23. október kl. 21. Miðaverð kr. 500. KaífiIíiiíMsfó] I HLAÐVARPANUM Vesturgötu 3 ,0leman/ / c/en“ - jfu//Aom rio■aöm/u' revúuuini JIk. 241/0/r/. 2/.00 /au 2ölfO A/ 2/.00 /fióöú/uerdur /if/.i/ A/. (</. ,/(>. (fleoúunatserfi//: 'POnnusteiklur keufi með humorsósu íiláberjaskyrfmuð með ástrídusósu .. ffitfn/xinltuiir af/tm só/arArii/t/inn í .st'/na cStS/^OtStS iii I—rniii ISUÍXSKA OIM-IÍAM III mii EEEH sími 551 1475 COSl FAN TU7TE ,,Svona eru þær allar“ eftir W.A. Mozart 5. sýn. fös. 24. okt. 6. sýn. lau. 25. okt. 7. sýn. fös. 31. okt. 8. sýn. lau. 1. nóv. Sýningar hefjast kl. 20.00. Miðasalan er opin alla daga nema mánudag frá kl. 15—19 og sýningardaga kl. 15—20. Sími 551 1475, bréfsími 552 7382. Takmarkaður sýningarfjöldi. Nýjung: Hóptilboö íslensku óperunnar og Sólon islandus í Sölvasal. - kjarni málsins! ______FÓLK í FRÉTTUM_ Epísk stórmynd um nasista? ÞEGAR framleiðendur „Seven Years in Tibet“, yf- irmenn Mandalay Pict- ures, fóru af stað með gerð myndarinnar grunaði þá örugglega ekki að hún ætti eftir að valda þeim töluverðum höfuðverk. Þeir litu á efnið sem þeir voru með í höndun- um, epíska stórmynd með bráð- myndarlegum karlleikara í hlut- verki frægs fjallgöngumanns, og veltu fyrir sér hvað þeir gætu nælt sér í mörg Oskarsverðlaun. Þeir reiknuðu ekki með austumska fréttamanninum Gerald Lehner sem fletti í gegnum gömul gögn um fjallahetjuna Heinrich Harrer í Þjóðskjalasafninu í Washington og sá í skrám þýska hersins, sem þar eru geymdar, að Harrer hafði skráð sig í SS-sveitirnar árið 1938. Harrer, sem er 85 ára og býr í Liechtenstein, hefur aldrei minnst á tengsl sín við nasista og alla tíð verið hátt skrifað- ur fjallamaður. Árið 1938 tókst honum og þremur öðrurn að klífa norður- hlið Eiger tindsins Sviss, og ári síðar fór hann í frægan leið- angur til Nanga Par- bat í Himalajafjöll- unum. Þegar seinni heimsstyrjöldin skal á var Harrer tekinn höndum af breska hernum í Indlandi. Harrer flúði fangabúðir Breta ásamt landa sínum Peter Aufshnaiter árið 1944. An allra birgða og korta end- uðu félagamir Lhasa í Tíbet eftir að hafa verið á göngu í 21 mánuð. Harrer bjó þar næstu fímm árin og gerðist einkakennari hins unga Dalai Lama. Hann skrifaði síðan um lífsreynslu sína og kallaði bókina Sjö ár í Tíbet. Kvikmyndamenn Hollywood litu á þessa sögu og sáu efni í fyrir- myndar ævintýramynd. Brad Pitt var ráðinn til að leika Harrer, og tók víst litlar 14 milljónir dala fyr- ir. Stjarnan lagði það meira að segja á sig að fara til Austurríkis og snæða hádegismat með hetjunni sjálfri í Huttenberg. Fundur þeirra gekk víst stór- vel og allir héldu heim glaðir í bragði. Harrer og kona hans bjuggust við því að hitta Pitt næst við frumsýningu myndar- innar í Bandaríkjunum. Harrer og frú fengu aldrei boðsmiða. Þau geta þakkað rannsóknarblaðamennsku Ger- ald Lehners fyrir það. Þegar frétt hans um tengsl Harrer við nasista birtist í Stern urðu fram- leiðendur myndarinnar hræddir og veltu fyrir sér hvort 70 milljóna dala mynd, sem hefur Harrer til skýjanna, ætti eftir að ganga í bíó. Brosandi með Hitler í Stern var birt mynd af Harrer þar sem hann stendur brosandi við hlið Hitlers. Einnig kom fram í grein Lehners að Heinrich Himm- ler, yfírmaður SS, hefði lagt bless- un sína yfir hjónaband Harrers og boðið honum persónulega að taka þátt í leiðangrinum til Nanga Par- bat í Tíbet. Nasistar voru nefnilega mjög hrifnir af Tíbetum. Þeir töldu að vegna einangrunar Tíbets væri þjóðin „hrein“ og nasískir „þjóð- ernisvísindamenn“ töldu Tíbeta skylda aríum. Leiðangurinn var á vegum nas- ista og var bæði farinn til þess að Sannsöguleg kvikmynd um frækileg afrek fjallagarps lenti í fjölmiðlafári þegar í ljós kom að fyrirmynd aðalsöguhetjurnar reyndist gamall nasisti. Anna Sveinbjarnar- dóttir gluggaði í fréttir um málið. BRAD Pitt í hlutverki Heinrichs Harrers í „Seven Years in Tibet". Harrer, sem er 85 ára, hefur aldrei minnst á tengsl sín við nasista og alla tíð verið hátt skrifaður fjallamaður. meta svæðið í hemaðarlegum til- gangi og sem áróðursferð sem sýndi styrk og getu þýsku þjóðar- innar. í „Seven Years in Tibet“ er Pitt látinn segja þegar hann tekur boðinu „Eg er fjallgöngumaður. Þetta heimskulega stríð kemur mér ekki við.“ í Stern kom einnig fram að þó að Harrer hafí eingöngu gengið til liðs við SS sem líkamsræktarþjálfari 1938 þá hafi hann gengið í SA- stormsveitirnar árið 1933. Þessi samtök slógu m.a. um sig með slag- orðinu „Þegar Ólympíuleikamir em yfirstaðnir berjum við gyðing- ana í klessu“ árið 1935. Þegar þessi atriði og fleiii urðu þekkt í Los Angeles fengu fram- leiðendur „Seven Years in Tibet“ strax að heyra frá samtökum gyð- inga sem kallast Jewish Rage og stjórnendum Simon Wiesenthal- miðstöðvarinnar í borginni. Gyð- ingar hótuðu að sniðganga mynd- ina og sögðu að sú ákvörðun að láta vinsæla stjörnu eins og Brad Pitt túlka nasista gerði hann að hetju og fegraði sögu Þriðja ríkisins. Samkvæmt frásögn í The Spect- ator var komið á fundi milli Simon Wiesenthals og Harrers þar sem fjallakappinn reyndi að útskýra hvers vegna hann hefði aldrei sagt frá þessum „æskumistökum" sín- um. Wiesenthal var víst lítt hrifinn af tilraunum Harrers til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Gyðing- um finnst yfirlýsingar hans ótrú- verðugar. í ljósi nýrrar greinar frá Lehner er það kannski skiljanlegt. í grein í austurríska blaðin- uProfil segir Lehner frá því að Harrer hafi haldið sambandi við nasíska vini sína í öll þessi ár. Þeirra á meðal er stríðsglæpa- maður sem tók þátt í „læknis- fræðilegum“ tilraunum á föngum í Auschwitz. í ný- legri gi-ein eftir fjallgöngu- manninn Reinold Messner í öðm austur- rísku blaði, Alpin, kem- ui' einnig fram að Har- rer hafi aldrei gefið hugsjónir nasista upp á bátinn. Nýr og betri mað- ur? Þessar upplýs- ingar koma fram- leiðendum „Seven Years in Tibet“ mjög illa þar sem þeir hafa, í ljósi fréttanna um nasíska fortíð Har- rers, reynt að aug- lýsa myndina á þeim forsendum að hún sýni hvemig eigin- gjarn maður verður fyrir trúarlegri reynslu Tíbet og verður fyrir vikið nýr og betri maður. Nýr endir var gerður fyrir myndina til þess að styrkja þessa sögutúlkun. I lok hennar þegar Kínverjar ráðast inn í Tí- bet er Pitt látinn tauta eitthvað á þessa leið: „Eg skammast mín þeg- ar ég minnist þess að áður fyrr var ég ekkert frábmgðinn þessum harðneskjulegu Kínverjum." William Cash, greinahöfundur hjá The Spectator, veltir því fyrir sér hvaða máli þetta allt saman skipti. Hvar drögum við línum- ar á milli kvikmynda, sögu, og raunveruleika? Cash telur að í Bandaríkjunum séu menn gjarnir á að rugla saman kvik- myndum og sögu, þetta tvennt sé ekki aðskilið, þess vegna skipti frásögnin í „Seven Years in Tibet“ máli þar í landi. Er hún samkvæmt pólitísk- um réttrúnaðarkröfum? Cash vitnar í John Jacobs, kynningar- fulltrúa myndarinnar, sem segir að allt sé annaðhvort svart eða hvítt í Bandaríkjunum og þvi geti hann aldrei varið gerðir Harrers, það kæmi niður á miðasölunni. Cash telur málið snúa öðm vísi í Evrópu. Þar sé fólk almennt ekki eins uppvægt yfir fortíð Harrers. Cash hefur eftir Lehner að frásögn hans um nasíska fortíð fjalla- kappans hafi haft lítil áhrif á vin- sældir hans í Austurríki. Að sögn Lehners hefur hann fengið bréf þar sem hann er beðinn um að hætta að hundelta gamlan mann. Þegar allt kemur til alls virðist frétt Lehners um fortíð Harrers ekki hafa skaðað kvikmyndina heldur virkað sem velútfærð aug- lýsingabrella. Samkvæmt síðustu fréttum af miðasölu í Bandaríkjun- um er „Seven Yers in Tibet“ í öðru sæti og gengur vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.