Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
Kvik-
mynd-
in er
ekki eilíf
FÓLK í FRÉTTUM
TEKST að varðveita Chaplin fyrir komandi kynslóðir?
MÖRGUM þætti örugglega miður ef myndir Humphreys Bogarts
týndu allar tölunni.
►HLUTI af kvikmyndarfí heims-
ins hefur grotnað niður í gegnum
tíðina vegna þess að filmur eru
viðkvæmar og þurfa sérstakar
geymsluaðstæður. Áætlað hefur
verið að 90% af öllum þöglum
kvikmyndum heimsins séu horfin
veg allrar veraldar. Ef reiknað
er með öllum myndum sem gerð-
ar hafa verið frá upphaíl til
dagsins í dag er talið að helming-
urinn sé ónýtur. Ekki er reiknað
með því að þær kvikmyndir sem
eru til í dag endist næstu 100 ár-
in.
Nú gerir tölvutækni kleift að
endurgera illa skemmdar filmur
þannig að þær komast í sitt upp-
runaleg form, eða sem næst því.
Þetta eru góðu fréttirnar. Slæmu
fréttirnar eru þær að þessi tölvu-
tækni er enn íþróun og alveg
hrikalega dýr svo líklega verður
hún ekki notuð til þess að bjarga
mörgum filmum í bráð.
Það eru ekki eingöngu kvik-
myndasagnfræðingar og áhuga-
menn sem hafa áhyggjur af kvik-
myndaarfinum. Stóru kvik-
myndaverin í Hollywood eiga
orðið risavaxin kvikmyndasöfn
sem þau hafa fjárfest mikla pen-
inga í þannig að þeim er annt um
að filmumar molni ekki í hönd-
unum á þeim.
Það verður ekkert um gróðann
af endurútgáfúm á myndbönd-
um, og því að leigja sjónvarps-
stöðvum myndirnar ef eintökin
af þeim em í rusli. Einnig geta
kvikmyndaverin gleymt því að
koma kvikmyndum á mynddiska
og í HDTV („high-defínition tel-
evision") -sjónvörp framtíðarinn-
ar.
Filmurnar eru eign sem ekki
er hægt að skipta út. Ef geymslu-
eintökin af „Gone with the Wind“
skemmast er ekki hægt að
hlaupa út og fá Vivienne Leigh
til þess að endurtaka leikinn.
Kvikmyndir em eins og listaverk
- ef upprunalega eintakið
skemmist þá er það í flestum til-
fellum glatað að eilífu.
Nýjar filmur einnig í hættu
Það em ekki eingöngu elstu
kvikmyndimar sem liggja undir
skemmdum. Nýjar og ódýrari
filmur sem hafa verið notaðar
fyrir kvikmyndir síðustu árin
geymast verr en t.d. gamla
Technicolor-filman. Að sögn Tad
Marburg, tæknistjóra Warner-
kvikmyndasafnsins, em eldri
filmumar sem Warner á í betra
ásigkomulagi en þær nýrri.
Þær kvikmyndir sem em enn
til og í sæmilegu ástandi fara
líka illa á þeim aðferðum sem eru
notaðar í dag við að búa til ný
eintök. Myndir tapa t.d. skerpu
og litum við hverja kóperingu og
útkoman verður eins og að taka
ljósrit af ljósriti. Gæðin minnka
stöðugt. Nýja tölvutæknin mun
koma í veg fyrir þetta vandamál.
Þegar filma er komin á stafrænt
form er hægt að gera ótakmörk-
uð eintök og gæðin verða ávallt
þau sömu.
Nýja tæknin var nýlega notuð
til þess að endurgera gamla
Frank Capra-mynd, „The
Matinee IdoI“ frá árinu 1928,
sem fannst fyrir tilviljun í Frakk-
landi fyrir sjö ámm. Filman var
rifin og tætt og í sérlega slæmu
ástandi. Með því að liggja yfir
filmunni og koma henni í staf-
rænt form tókst að endurgera
hana og útkoman var sýnd fyrr á
þessu ári í Hollywood.
Enginn getur samt í raun svar-
að því hvort endurgerðin er trú
upprunalegri mynd Capra. Við
endurgerðina varð Michael Fri-
end, stjórnandi kvikmyndasafns
bandarfsku kvikmyndaakademí-
unnar, að þreifa sig áfram og
láta tilfínninguna ráða þegar
ákvarðanir vom teknar um end-
anlegt útlit. Þannig verður hægt
að deila endalaust um endur-
gerðirnar og hversu ti-úar þær
em frumeintökunum en kvik-
myndirnar verða þó að minnsta
kosti til staðar svo hægt sé að
ræða um þær.
ScSÍÍ Óskum eftir
19 stuðningi joínum
í prófkjöri Sjálfstœðisflokksins
24. og 25. októher n.k.
/
Unnur verður með lraöifunJ á Kaffi Reykjavík
fimmtuclaginn 23. okt. kl. 16.00 -18.00
«5-
SIÐASTA
HRAÐLESTRAJRNÁMSKEIÐIÐ!
Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í starfi?
Viltu margfalda lestrarhraðann og afköst í námi?
Ef svar þitt er jákvætt við annarri ofangreindra spum-
inga skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestramámskeið
ársins sem hefet fimmtudaginn 23. október n.k.
Skráning er í síma 564-2100.
CQ
m
HR/Vt>LJ~^IT^J^KÓIJISrrNl
Jafnvel
tímum síðar
nýtur þú enn áhrifanna af
CELLULAR TIME RELEASE — INTENSIVE
hinum fullkomna rakagjafa.
Lagfærir það sem aflaga fór í gær.
Vörn á nýjum degi.
Húð þín geislar af heilbrigði
við hverja notkun.
Ef þú ættir kost á aðeins
einu kremi veldir þú þetta.
•3 prane
I swrrzERtANO
Vertu velkomin
Hygea
• Austurstræti 16
• Laugavegi 23
• Kringlunni
Libia í Mjódd
Agnes snyrtistofa
• Listhúsinu Laugardal
Snyrtist. Mandý
• Laugavegi 15
Snyrtist. Jónu
• Hamraborg 10, Kóp.
1 '
Hættu að raka á þérfótleggina
Notaðu One Touch 4-6 vikna vaxmeðferð -One Touch á íslandi í 12 ár.
Svo einfalt er það
Hitið vaxið í tækinu og rúllið því
yfir hársvæðið. Leggið strimil yfir
og kippið honum næst af.
Húðin verður mjúk,
ekki hrjúf!
One Touch
er ofttæmisprófað
Utsölustaðir:
Fæst í apótekum, flestum snyrtiuvöruverslunum og snyrtivörudeUdum Hagkaups.
r