Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 60

Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 60
Atvinnutryggingar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBItÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ný gerð vindaflstöðvar þrduð á íslandi Miklir möguleikar á hraðvaxandi markaði NÝ GERÐ vindaflstöðvar, sem Nils Gíslason uppfínningamaður á Akur- eyri hefur þróað, gæti reynzt 10-14% ódýrari í framleiðslu en hefðbundar vindaflstöðvar, samkvæmt mati brezks ráðgjafarfyrirtækis. Auk þess er hún auðveldari í uppsetningu og hljóðlátari. Vindorka hf., fyrir- tæki sem stofnað var árið 1994 um þróun á vindaflstöðinni, er komið í samband við bandaríska risafyrir- tækið General Electric, sem hefur tU skoðunar hvort fyrirtækið muni taka ^Jrítt í hönnun eða framleiðslu á afl- stöðinni. Karl L. Jóhannsson, stjórnarfor- maður Vindorku, segir að ákveðið hafi verið að fá álit óháðs þriðja aðila á því hvort aflstöðin ætti markaðs- möguleika. Brezka fyrirtækið Garrad-Hassan & Partners, sem sé í fararbroddi ráðgjafar og hönnunar á sviði vindraforku, hafi fyrir stuttu gefið það álit að hönnun Nils væri mjög vænleg tU árangurs og ætti að vera hægt að smíða vindaflstöðvar af hinni nýju gerð með 10-14% lægri tilkostnaði en hefðbundnar gerðir. Jafnframt væri hægt að smíða hana í miklu stærri einingum en hingað tii hefði verið gerlegt. „Hingað til hafa menn verið að smíða vindaflstöðvar upp í eitt og hálft megavatt en þessir sérfræðingar telja að með þessari hönnun megi smíða stöðvar, sem eru allt að 20 megavöttum," segir Karl. Markaðurinn stækkar um 50% á ári Ólíkt hefðbundnum vindaflstöðv- um, þar sem stór skrúfa með tveim- ur eða þremur spöðum knýr raf- hverfil með aðstoð þungs, flókins og hávaðasams gírbúnaðar, er skrúfan í vindaflstöð NUs einna líkust reið- hjólsgjörð. Margir spaðar sitja í hringlaga gjörð og hægt er að stýra snúningshraða stöðvarinnar með skurði spaðanna. Sjálfur vindhverf- illinn virkar sem snúður í raflinum, sem framleiðir rafmagnið og þarf því hvorki gfrbúnað né hefðbundinn rafal. Karl segir að ódýrari efni þurfi í nýju aflstöðina og hún sé miklu léttari og meðfærilegri en hefð- bundnar stöðvar. Þá snúist hún hæg- ar og sé miklu hljóðlátari. Fyrir vikið þurfi hvorki að takmarka fjölda afl- stöðva né koma þeim fyrir á svæðum fjarri byggð. Karl segir að aukin eftirspurn sé eftir vindaflstöðvum á heimsvísu, meðal annars vegna aukinnar áherzlu á notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Þar spili fyrirhugaður al- þjóðasamningur um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda inn í. „Markaður fyrir vindrafstöðvar vex um 50% á ári. Það vinnur því allt með því að koma með nýja hönnun inn á þennan markað. Ef vel tekst til verð- ur þetta algjör sprengja," segir Karl. Afsal kvóta í lögsögunni vegna úthafsveiða Verðmætið 350 milljónir MIKLU munar á verðmæti þeirra aflaheimilda sem úthlutað var á úthafinu fyrr á þessu ári og þeim aflaheimildum sem þeim skipum sem fengu úthlutað var gert að skila innan íslensku lög- sögunnar í staðinn. Samkvæmt athugun Morgun- blaðsins má gera ráð fyrir að verðmæti afsalaðra aflaheimilda vegna úthlutunar varanlegs kvóta á úthafskarfa á Reykjanes- hrygg og rækju á Flæmingja- grunni nemi innan við 350 millj- ónum kr. eða tæplega 4% af þeim aflaheimildum sem úthlutað var á úthafinu á þessar tvær tegundir. Engin vísindi á bak við Samkvæmt lögum um út- hafsveiðar sem sett voru á Al- þingi í vetur getur sjávarútvegs- ráðherra sett það skilyrði fyrir úthlutun aflahlutdeildar á einstök skip að þau afsali sér aflaheimild- um innan lögsögu Islands á móti. Akvað ráðherra að þau skip sem fengju úthlutað karfaheimildum j)yrftu að skila inn sem næmi 8% af úthlutuðum aflaheimildum og 4% vegna rækjunnar. Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir að það hafí verið mat á aðstæðum og hvernig þessar veiðar hefðu komið til og þróast sem réðu því að þetta varð niðurstaðan. „Það var auðvitað alveg ijóst að það voru engin ná- kvæm vísindi þar á bak við,“ sagði hann. ■ Verðmæti/11 Hægt miðar í kennaradeilunni þrátt fyrir stíf fundahöld undanfarna daga , Nýtt tilboð sveitar- félaga lagt fram í (lag SAMNINGANEFND launanefnd- ar sveitarfélaga ætlar að leggja nýtt tilboð fyrir samninganefnd kennarafélaganna á sáttafundi síð- degis í dag. „Menn hafa verið að ræða málin mjög breitt og skoða ýmsa fleti. Við erum að draga það -*saman og látum það kristallast í okkar tilboði á morgun," sagði Jón G. Kristjánsson, formaður samn- inganefndar sveitarfélaganna, í gærkvöldi. Lítill árangur hefur náðst í við- ræðum deiluaðila í síðustu viku þrátt fyrir fundi hvern einasta dag ^ikunnar. Formenn samninga- nefndanna og ríkissáttasemjari sátu á löngum fundum um helgina. Við- ræðurnar hafa m.a. snúist um launalið samninga og um breytingar á vinnufyrirkomulagi og vinnutíma. Þá hefur sérstaklega verið rætt um kjaramál skólastjóra. Kennari í verkfalli fær 60 þús. á mánuði Kennarasamband Islands hefur ákveðið að greiða grunnskólakenn- urum í fullu starfi 60 þúsund krónur á mánuði komi til verkfalls 27. októ- ber nk. Þetta þýðir að KÍ kemur til með að greiða u.þ.b. 45 milljónir á viku til félagsmanna eða um 180 milljónir á mánuði. Yfir 250 milljónir eru í kjaradeilu- sjóði Kennarasambandsins. í verk- falli kennara 1995 kom upp ágrein- ingur milli kennarasamtakanna og skattyfirvalda um hvort greiða þyrfti skatt af verkfallsbótum. Nið- urstaðan varð sú að kennurum var gert að greiða skatt af bótunum. Svo er að heyra að ágreiningur um skattameðferð greiðslna til kennara í verkfalli sé ekki úr sög- unni því að Kennarasambandið leggur áherslu á það nú, að það sé félagssjóður Kennarasambandsins, sem greiði til kennara í yerkfalli, en ekki kjaradeilusjóður KÍ. Verkfallsstjóm KÍ sendir í dag bréf til allra skólastjórnenda um framkvæmd verkfallsins. Þar kem- ur m.a. fram að verkfallsstjórn líti svo á að komi tii verkfalls leggist starfsemi heilsdagsskólans niður. Heilsdagsskólinn lamast Sigrún Agústsdóttir, formaður verkfallsstjórnar, sagði að i flestum heilsdagsskólum væru starfandi kennarar og því hlyti verkfallið að hafa áhrif á starfsemi þeirra. Hún sagði að heilsdagsskólinn starfaði eftir reglum um hvað mörg börn mættu vera á bak við hvern starfs- mann. Ekki mætti brjóta þessar reglur kæmi til verkfalls. Eins mætti ekki raska skipulagi eða tímaáætlunum frá því sem var fyrir verkfall. Morgunblaðið/RAX Gæsir kveðja sumarlandið GÆSIR eru sem óðast að kveðja Island og halda til vetrardvalar í Bretlandi. Gæsaveiðitímanum er nú lokið og eru veiðimenn sam- mála um að veiði hafi verið með dræmara móti og er vondu tíðar- fari kennt um. ------------- Rólegt í rjúpnaveiði RJÚPNAVEIÐI hefur fai-ið fremur rólega af stað, m.a. vegna slæms veð- urs en rjúpan er einnig mjög dreifð. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags íslands, segir erfitt að koma auga á rjúpuna vegna þess hve snjólétt er og hún fellur vel inn í landið. Segist hann ekki hafa frétt af stórveiði en þó fengið staðfest að ein rjúpnaskytta hafi skotið 36 rjúpur. „Menn hafa yfirleitt náð sér í jólamatinn og veiðin virðist vera nokkuð jöfn um allt land,“ segir Sig- mai-. Hann telur að nálægt 12 þús- und manns leggi stund á rjúpnaveiði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.