Morgunblaðið - 24.10.1997, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERMMU
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
Hlutdeild krókabáta í
heildarafla ekki aukin
Morgunblaðið/Ásdís
13. aðalfundur Landssambands smábátaeigenda hófst á Hótel
Sögu í gær og verður fram haldið í dag. Við upphaf fundarins
voru fulltrúum afhent fundargögn og bolir til að minna á at-
vinnuskapandi strandveiðar smábáta.
ERLEIMT
Reuters
Hvergi bangin
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði á aðalfundi LS í gær
að 13,9% hlutdeild krókabáta í heild-
araflanum yrði ekki hækkuð. Það
væri ófrávíkjanleg meginforsenda,
sem gengið hefði verið út frá í ráðu-
neytinu. Ráðuneytið teldi sem fyrr
ótækt að afnema algerlega þau tæki,
sem stjórnvöld hafa til að halda
veiddum afla innan ákveðinna
marka. Fyrir þá sök hefði ráðuneyt-
ið ekki fallist á lágmarksfjölda sókn-
ardaga í sóknardagakerfunum
tveimur sem gæfi, samkvæmt
reynslu, meiri þorskafla en nemur
hlutdeild þessara krókabáta í þorsk-
aflanum í fyrirsjáanlegri framtíð.
í máli Þorsteins kom fram að tek-
ið hefði verið á Qölmörgum veiga-
miklum atriðum, sem vörðuðu
starfsumhverfi krókabáta í þeim
lagabreytingum, sem samþykktar
hafa verið, en mestu skipti sú
ákvörðun, sem tekin var vorið 1996,
að hlutfallstengja fastar heimildir
krókabáta og miða við þágildandi
heildarafla, 155 þúsund lestir. „Þetta
var helsta áhersluatriði Landssam-
bands smábátaeigenda í viðræðun-
um við ráðuneytið og er full ástæða
til að óska forystumönnum lands-
sambandsins og útgerðum króka-
báta enn á ný til hamingju með að
það hafi náð að fullu fram að
ganga.“
Þorskveiðiheimildir
hafa aukist um 40%
„Með hækkandi heildarafla hefur
þessi svokallaða hlutfallstenging
þegar aukið þorskveiðiheimiidir
krókabáta um meira en 40 af hund-
raði frá fiskveiðiárinu 1995/1996
þegar samkomulagið var gert. Heild-
arþorskveiðiheimildir hafa farið úr
21.500 lestum í 30.302 lestir. Þann-
ig að það þarf út af fyrir sig ekki
að koma á óvart að hlutfallstenging-
in með þeirri aflaviðmiðun, sem
byggt var á, vekti hörð viðbrögð hjá
öðrum útgerðarhópum. Þeir misstu
spón úr aski sínum miðað við þá
aukningu veiðiheimilda sem þeir
hefðu annars fengið með hækkandi
heildarafla. Það eru allir útgerðar-
hópar að veiða úr sama stofninum
og úr sama heildarafla. Það sem
bætist við einn, er frá öðrum tekið.
ARTHUR Bogason, formaður
Landssambands smábátaeigenda,
segir að samtakamáttur trillukarla
hafi komið smábátaútgerðinni á
landakort atvinnulífs landsmanna
svo um muni. Landssambandið
væri hinsvegar í senn að glíma við
stór og öflug hagsmunasamtök,
sem ítök hefðu um allan valdapýr-
amída þjóðfélagsins ásamt stjórn-
mála- og ijárhagsöflum, sem sann-
arlega aðhylltust samruna margra
minni fyrirtækja í stórfýrirtæki.
Ennþá væri til staðar óleystur og
aðsteðjandi vandi, sem fælist m.a.
í því að tryggja sóknardagabátum
rekstrargrundvöll og aflamarksbát-
um viðunandi leiðréttingu þar sem
þeir hafí mátt þola þyngri búsifjar
en aðrir í útveginum á undanförnum
árum.
Arthur sagði að allt frá stofnun
LS 1985 hafi það sjaldan náð að
sigla sléttan sjó. Nær væri að tala
um linnulausa ágjöf og brotsjó allt
í kring. Aftur á móti væri mönnum
bæði hollt og skylt að líta yfír far-
inn veg með það í huga hvort til
einhvers hafi verið barist.
Framhjá þeirri staðreynd verður
ekki litið og þau miklu og neikvæðu
viðbrögð, sem þessi niðurstaða
mætti, verður að skoða í því ljósi.“
Árleg þorskveiði yrði
300 þúsund lestir
Ráðherra sagði ánægjulegast vera
að þessi aukning veiðiheimilda
byggði á árangri í uppbyggingu
þorskstofnsins. Veiðistofn þorsks,
sem var skv. mati Hafrannsóknar-
stofnunarinnar, kominn niður fyrir
600 þúsund lestir, hefði vaxið um
nálægt 50% á örfáum árum og nálg-
aðist nú 900 þúsund lestir. „Við
höfum sett okkur markmið um að
byggja veiðistofn þorsks upp í um
eina og hálfa milljón tonna þannig
að árleg þorskveiði geti verið meiri
en 300 þúsund lestir. Reglan um að
veiða árlega 25% af veiðistofni er í
samræmi við þessi markmið. Við
höfum hinsvegar gert okkur grein
fyrir því að ef þessi markmið ættu
að ganga eftir, þyrfti nýliðun að
takast betur en undanfarin ár. Það
eru því stórkostlegar fréttir að seiða-
talningin í sumar hafi gefið mjög
góða niðurstöðu, þá bestu raunar frá
1984 og þá íjórðu bestu síðan mæl-
ingar hófust árið 1970. Þótt enn sé
of snemmt að spá um þann þorskár-
gang sem upp af þessum seiðum
muni vaxa, þá gefur þetta von um
að stofninn geti náð þeirri stærð sem
Úr 8.300 tonnum í
rúm 50 þúsund tonn
„í ársbyijun 1984 var, skv. reglu-
gerð sjávarútvegsráðherra, smá-
bátaflotanum heimilt að veiða af
hátt í 300 þúsund tonna heildarafla
þorsks, heil 8.300 tonn og sáralítið
af öðrum tegundum. Á síðasta fisk-
veiðiári veiddi hinsvegar smábáta-
flotinn rúm 50 þúsund tonn af 182
þúsund tonna heildarafla þorsks og
umtalsvert magn af öðrum tegund-
um, t.d. u.þ.b. fjórðung af steinbíts-
afla landsmanna.
Það er óneitanlega fróðlegt að
velta því upp hver staðan væri ef
smábátaflotinn hefði verið höndlað-
ur á sama hátt og aðrir útgerðar-
hópar allt frá árinu 1984. Sé gert
ráð fyrir að ekki einn einasti smá-
bátur hefði verið seldur út úr flotan-
um, má gera ráð fyrir því að hann
hefði fengið úthlutað í byrjun ný-
hafins fískveiðiárs rúmum sex þús-
und tonnum af þorski og nánast
engu af öðrum tegundum. Sé á hinn
bóginn gert ráð fyrir því að smá-
bátaflotinn hefði horfið af sjónar-
að er stefnt. Útlitið væri þá almennt
í þá veru að útgerðarmenn króka-
báta, eins og annarra báta á þorsk-
veiðum, gætu búist við áframhald-
andi stíganda í veiðiheimildum. Við
350 þúsund lesta heildarafla væri
veiðiheimild krókabáta t.d. orðin
nálega 50 þúsund lestir auk þess sem
þeir njóta frelsis í veiðum á öðrum
tegundum."
Ekki hægt að gera
allt fyrir alla
Þrátt fyrir verulega hlutdeild
krókabáta í heildarafla, mátti öllum
þeim, sem til þekktu, vera ljóst að
ekki væri hægt að gera allt fyrir
alla, eins og ráðherrann komst að
orði, og endurspeglaðist það nú í
mismunandi stöðu hjá krókabátum.
Undanfarna mánuði hafa átt sér
stað viðræður milli ráðuneytis og
LS um þá stöðu mála sem upp er
komin hjá útgerðarhópum innan fé-
lagsins. Þorsteinn sagði að ekki
væri tímabært að skýra frá því í
smáatriðum hvaða breytingar ráðu-
neytið teldi koma til greina, en m.a.
hefur verið rætt um hvernig auð-
velda megi krókabátum á sóknar-
dögum aðlögun að veiðiheimildum
sínum, óskir LS um rýmkaðar fram-
salsreglur veiðiheimilda innan þor-
skaflahámarksins og óskir um að-
gerðir til að styrkja stöðu aflamarks-
smábáta.
sviðinu í sama hlutfalli og sá hluti
smábátaflotans sem settur var inn
í aflamarkskerfið í ársbyijun 1991,
sem hlýtur að teljast harla varlega
áætlað, hefðu um 200 trillur fengið
úthlutað 1. sept. sl. um tvö þúsund
tonnum af þorski."
Barátta stórfyrirtækja
og einstaklingsútgerðar
Arthur velti þeirri spurningu upp
hvers vegna löggjafinn hafi ekki í
eitt skipti fyrir öll getað gengið frá
málefnum smábáta fyrir löngu þar
sem að hann hafí þurft að koma
að þessum málaflokki æ ofan í æ
og án efa mætti flokka málefni
smábátaflotans sem eitt erfiðasta
viðfangsefni stjórnvalda frá því að
kvótalögin voru staðfest á Alþingi
1984.
Megin ástæðurnar, að mati Arth-
urs, eru þær að málið er í senn
hápólitískt og þverpólitískt. Fisk-
veiðarnar og nýting móðurauðlind-
arinnar tvinnaðist djúpum tilfinn-
ingalegum böndum veiðimanna-
samfélagsins við umhverfi sitt.
„Þetta er baráttan um fiskinn. Þetta
er barátta pólitískra stefnumark-
miða. Þetta er baráttan milli hag-
fræðikenninga. Þetta er barátta
milli stofnanavísinda og almanna-
þekkingar og ekki síst er þetta
baráttan milli stórfyrirtækjanna og
einstaklingsútgerðarinnar. Mitt í
þessum hrunadansi stiklar löggjaf-
arsamkoman."
ÞESSI suður-kóreska hnáta var
hvergi bangin við bolabítana tvo,
enda voru þeir vinalegir. Það
færist nú í vöxt í Suður-Kóreu
MAKAH-indjánar í Bandaríkjunum
Tsjukotka-inúítar í Rússlandi hlutu
í gær samþykki Alþjóða hvalveiði-
ráðsins fyrir því að hefja aftur hval-
veiðar sér til viðurværis samkvæmt
æfafomri hefð, að því er bandarísk-
ir embættismenn sögðu.
Aðildarríki ráðsins samþykktu
sameiginlega beiðni Bandaríkja-
manna og Rússa um 620 hvala
kvóta til fimm ára, bæði á sand-
lægju og Grænlandssléttbak . Er
þetta samkvæmt skilgreiningu ráðs-
ins á nauðsynjaveiðum frumbyggja.
Makah-indjánar búa í Washing-
tonríki á vesturströnd Bandaríkj-
anna, og samkvæmt samþykki ráðs-
ins fá þeir að veiða 20 hvali, eða
fjóra á ári. Fulltrúar náttúruvernd-
arsamtaka og margir stuðnings-
manna Bandaríkjanna í ráðinu segja
að Makah-indjánamir, sem ekki
hafa veitt sandlægju í rúm 70 ár,
fullnægi ekki skilyrðum ráðsins um
nauðsynjaveiðar frumbyggja sem
lifi á hvalkjöti.
Aðrir gagnrýndu Bandaríkja-
menn fyrir að tengja beiðni sína
beiðni hinnar fátæku Tsjukotka-inú-
ítaþjóðar í Síberíu, og vildu að texta
samþykktarinnar yrði breytt og tek-
ið fram að kvótinn væri til handa
frumbyggjum sem samþykkt hafi
verið að þurfi hvalkjöt til fram-
færslu.
Bandaríkjamenn reyndu að fá
þennan kvóta samþykktan af ráðinu
í fyrra, en tókst ekki. Samkvæmt
sáttmála frá 1855 ber bandarískum
stjómvöldum að tryggja Makah-indj-
ánunum rétt til að veiða hval, líkt
og forfeður þeirra hafa gert í 1500
ár. Sandlægja var í útrýmingarhættu
fyrr á öldinni, en stofninn er talinn
hafa náð sér á strik og telji nú um
21 þúsund við vesturströnd Banda-
ríkjanna. Sandlægja var tekin af lista
Bandaríkjamanna yfír tegundir í út-
rýmingarhættu 1994.
Tsjukotka-inúítar hafa átt veru-
Iega undir högg að sækja eftir að
að fólk taki sér hunda fyrir gælu-
dýr, en margt fólk þar í landi
ku hingað til fyrst og fremst
hafa litið á hunda sem mat.
Sovétríkin liðu undir lok og hafa
farið fram á leyfí til veiða á Græn-
landssléttbak. Ætla þeir að leita
eftir tækniaðstoð frá Alaska-inútít-
um. Hvalveiðiráðið samþykkti veið-
ar á 280 hvölum á fímm árum, og
er þess vænst að af þeim fái Tsju-
kotka leyfi til að veiða tuttugu.
Bermúdaskálin
Norðmenn
með forustu
NORÐMENN tóku í gær for-
ustu í undankeppni heims-
meistaramótsins í brids, þar
sem keppt er um Bermúda-
skálina. Mótið er haldið í
Hammamet í Túnis.
Að loknum 10 umferðum
af 17 í undankeppninni höfðu
Norðmenn 192 stig en A- og
B-sveit Bandaríkjanna komu
næstar með 189 og 185 stig.
í næstu sætum voru Pólverjar,
Ástralar, ítalir, Frakkar og
Kínveijar en átta þjóðir kom-
ast áfram í úrslitakeppnina
sem hefst á laugardag.
Norðmenn unnu í gærmorg-
un stórsigur á Aströlum,
24-6. í ástralska liðinu er eina
konan í keppninni um
Bermúdaskálina, Carole Roth-
field. Hún spilar við eiginmann
sinn, Jessel, sem jafnframt er
elsti þátttakandinn í mótinu,
79 ára gamall.
í Túnis er einnig keppt um
heimsmeistaratitil kvenna í
brids og að loknum 10 umferð-
um í undankeppni voru A- og
B-sveit Bandaríkjanna, Frakk-
ar og Þjóðveijar í efstu sætum
ásamt Bretum, Kanadamönn-
um, Hollendingum og ítölum.
Arthur Bogason, formaður LS
Erum að glíma við
öflug hagsmunasamtök
Frumbyggjar fá
hvalveiðikvóta
Mónakó. Reuters.