Morgunblaðið - 24.10.1997, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997 29
LISTIR
Gjár og
gjótulíf í
Galleríi
Fold
ELÍN G. Jóhannsdóttir opnar mál-
verkasýningu í baksal Gallerís Fold-
ar við Rauðarárstíg á morgun, laug-
ardag kl. 15. Sýninguna nefnir •
listakonan Gjár og gjótulíf.
í kynningarhorninu verða sýndar •
pastelmyndir Söru Vilbergsdóttur.
Þetta eru myndskreytingar við
barnabókina Músa-Mús sem ný-
komin er út.
Elín G. Jóhannsdóttir útskrifaðist
úr málaradeild Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1996. Hún stund-
aði áður nám við Kennaraháskóla
íslands og við myndmenntadeild
sama skóla. Ennfremur stundaði
Elín nám við Statens lærerhögskole
i forming í Ósló, Noregi. Þetta er
þriðja einkasýning Elínar en hún
hefur ennfremur tekið þátt í nokkr-
um samsýningum.
Sara Vilbergsdóttir stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og framhaldsnám við Statens
Kunstakademi í Ósló, Noregi.
Sýningin stendur til 9. nóvember
og er opin daglega frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-17 og sunnu-
daga frá kl. 14-17.
Hörður Torfa
heldur tónleika í
Skemmtihúsinu
SÖNGVASKÁLDIÐ Hörður Torfa
hefur gefið út textabók sem hann
nefnir YRK. Bókin inniheldur 30
texta Harðar og er viðfangsefnið
margvíslegt. Hörður hefur flutt
marga þessara texta á tónleikum
undanfarin ár en ætlar nú, vegna
útkomu bókarinnar, að einbeita sér
eingöngu að innihaldi hennar á tón-
leikum sem hann mun halda í kvöld,
föstudag kl. 21, í Skemmtihúsinu,
Laufásvegi 22.
Leikarahjónin Erlingur Gíslason
og Brynja Benediktsdóttir hafa boð-
ið Herði að halda þrenna tónleika
fyrir jól í æfingasal þeirra á Laufás-
vegi 22, og eru tónleikarnir í kvöld
þeirra fyrstu.
Schubert
o g Tsjaikovski í
salMH
FYRSTU tónleikar Hljómsveitar
Tónlistarskólans í Reykjavík á
þessu skólaári, verða haldnir í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð,
sunnudaginn 26. október og hefjast
þeir kl. 17.
Á efnisskrá eru Sinfónía nr. 3 í
D-dúr D. 200 eftir Franz Schubert
og Sinfónía nr. 2 í c-moll op. 17,
„Litla rússneska" eftir P.I. Tsjai-
kovski. Stjórnandi hljómsveitarinn-
ar er Kjartan Öskarsson. Aðgangs-
eyrir að tónleikunum er kr. 500.
„Farðu og
sjáðu“ í bíósal
MÍR
VERÐLAUNAMYND rússneska
leikstjórans Elíms Klimovs verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
nk. sunnudag kl. 15. Myndin heitir
„Farðu og sjáðu“ (Idí í smotrí), oft
nefnd „Komdu og sjáðu“ (Come and
see). Myndin var gerð árið 1985
og segir frá ógnarverkum þýska
innrásarhersins í Hvíta-Rússlandi á
árinu 1942 og örlögum íbúa eins
ijölmargra bændaþorpa sem nas-
istar brenndu til grunna á stríðsár-
unum. Myndin er með enskum
texta.
Tryggjum okkar fuftt
Kosningaskrifstofa í Templarahöllinni, Eiriksgötu 5, símaröól 4848 - Opin virka daga kl. 17-21 og um helgar kl. 14-19
VÍð þimFuM MANN MEÖ REyNslll í boRqARSTjÓRN
Prófkjör sjólfstæðismanna í Reykjavík er dagana 24.-25. október
Snorri Hjaltason
Formaður Fjölnis
Sceti
íþróttafólk í Reykjavík
Snorri Hjaltason
Maður með
reynslu
..úr íþróttastarfi
..úr atvinnulífinu
..úr stiórnmálum
..af félagsmálum
..af verkalýðsmálum
Við undirritað forystufólk í íþróttahreyfinguni skorum á alla þátttakendur íprófkjöri
sjálfstœðisflokksins í Reykjavík að Ijá Snorra Hjaltasyni atkvœði sitt í 5. sœti listans.
Forystufólk í íþróttahreyfingunni fagnar framboði Snorra
Hjaltasonar í 5. sceti við prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna komandi
borgarstjórnarkosninga. Snorri hefur unnið mikið og ötult starf við
uppbyggingu íþrótta- og ungmennnastarfs í höfuðborginni sem hefur
skilað glœsilegum árangri. Þáttur íþrótta í uppeldi barna og
ungmenna er ómetanlegur og öflug íþróttafélög vinna mikilvœgt starf
í þágu œskulýðsmála sem kemur jafnt einstaklingum sem öllu
Það er mjög mikilvœgt að íþróttahreyfingin í höfuðborginni eigi
öflugan málsvara innan borgarstjórnar svo tiyggja megi áframhald á
uppbyggingu og kraftmiklu starfi hreyfingarinnar. Með því að velja
Snorra Hjaltason í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins er um leið verið
að tryggja að íþróttirfái verðugan sess í stefnumótun borgarinnar.
í baráttunni við vímuefni ogýmsar aðrar hættur sem steðja að
unglingum nútímans er þátttaka í íþróttastarfi ómetanleg.
Æskulýðurinn er dýrmætasta eign okkar allra og með því að stuðla
að heilbrigðu lífi barna og unglinga erum við að byggja upp betra og
Ellert B. Scram
"Ég treysti honum til að
starfa í þágu œskulýðs-
og íþróttamála og hvet
aðra til að styðja Snorra"
Eggert Magnússon
"Snorri er maður
sem við þurfum í
sóknarleikinn í
Reykjavík"
Einar Þorvarðarson
"Flann er maður
sem hittir í mark"
Þorbjörn Jensson
"Við þurfum
harðduglegan
þaráttujaxl
í borgarstjórn"
- X '/
djtiM
Blað allra landsmanna!
-kjarni malsins!