Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Glæsileg ný einbýlishús
í Garðabæ og Kópavogi
220-240 fm meö tvöföldum bílskúr, á einni hæö.
Skilast frágengin að utan, fokheld að innan.
Valhöll, fasteignasala, sími 588 4477.
deildarstjóra innanlandsdeildar. Árið
1995 flutti Hrönn til London þar sem
hún vann að ýmsum sérverkefnum á
sviði markaðsmála fyrir Úrval-Útsýn,
þar til hún hóf meistaranám sitt
haustið 1996.
Eiginmaður Hrannar er Sigurður
Skagfjörð Sigurðsson svæðisstjóri
Flugleiða í London og eiga þau 2
dætur. Hrönn mun hefja störf 1.
mars nk.
• Elín Jónsdóttir hefur verið ráðin
fjármálastjóri fyrir Hótel Sögu og
Hótel ísland. Elín lauk stúdentsprófi
frá Verslunar-
skóla íslands
1976, prófi í við-
skiptafræðum
frá Háskóla ís-
lands 1989 og
fékk löggildingu
til endurskoð-
unarstarfa 1994.
Elín starfaði hjá
Endurskoðunarmiðstöðinni Coopers
& Lybrand hf. frá 1988 til 1994 og
frá þeim tíma sem innri endurskoð-
andi hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hf.
Eiginmaður Elínar er Júlíus Sig-
urðsson og eiga þau 2 syni.
• Konráð Guðmundsson sem
verið hefur hótelstjóri Hótel Sögu
frá 1963 og framkvæmdastjóri
Hótel Sögu og Hótel íslands undan-
farin ár, lætur af því starfi en mun
áfram eins og hingað til hafa umsjón
með viðhaldi og breytingum á hótel-
unum.
Nýirsijórn-
endurhjá
Hóteli Sögu
• Hrönn Greipsdóttir hefur verið
ráðin sem framkvæmdastjóri fyrir
Hótel Sögu og Hótel ísland. Hrönn
varð stúdent frá
Menntaskólan-
um við Hamra-
hlíð árið 1986 og
viðskiptafræð-
ingur (Cand.Oec-
on) af markaðs
og stjórnunar-
sviði frá Háskóla
íslands árið
1992. Lokaritgerð hennar fjallaði
um ráðstefnu og hvataferðamarkað-
inn. Síðastliðið ár hefur Hrönn
stundað framhaldsnám í City Uni-
versity Business School í London og
lauk nú í haust meistaragráðu í við-
skiptafræðum (MBA) með íjármál
sem sérsvið.
Eftir stúdentspróf hóf Hrönn störf
hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn og vann
þar samhliða háskólanámi. í ársbyij-
un 1992 tók hún við nýrri stöðu sölu-
stjóra ráðstefna og hvataferða í inn-
anlandsdeild Úrvals-Útsýnar og var
jafnframt staðgengill deildarstjóra.
Árið 1993 tók Hrönn svo við stöðu
Naten 1-2-3
VIÐSKiPTI
' wsfötmti
1. Fullkomin fæða
2. Til styrktar ónæmiskerfi
líkamans
3. Andlegur og líkamlegur
orkugjafi
WtW*
An efa eitt áhrifamesta lífræna
fæðubótarefnið á markaðnum.
Útsölustaðir: Apótekin, verslanir KÁ, kaupfélögin,
Hagkaup, Blómaval Reykjavík og Akureyri og fleiri.
Dreifing: NIKO ehf., sími 568 0945
Fíkni í upplýsingar
vaxandi vandamál
London. Reuters.
KYNSLÓÐ „upplýsingafíkla" er
komin til skjalanna samkvæmt nýrri
álitskönnun Reuters, sem sýnir að
meira en helmingur aðspurðra telur
sig sólginn í upplýsingar, einkum í
tölvum og á ainetinu.
Af 1.000 kaupsýslumönnum í
nokkrum löndum viðurkenndu 53%
að þeir væru sólgnir í upplýsingar
og 54 sögðust komast í sæluástand
þegar þeir fyndu það sem þeir leit-
uðu að á netinu.
Um leið telja þeir upplýsingar þær
sem úr sé að moða yfírþyrmandi og
hafa áhyggjur af því að börn þeirra
verði líka upplýsingafíklar. Alls
sögðu 46% að börn þeirra hefðu
meira gaman af tölvum en jafnöldr-
unum.
Sjúkdómur áratugarins?
Könnunin kaliaðist „Límd við
skjáinn: rannsókn á upplýsingasýki
um allan heim“ og er byggð á við-
tölum við fólk í Bretlandi, Bandaríkj-
unum, írlandi, Þýzkalandi, Singa-
pore og Hong Kong.
„Eru upplýsingar eiturlyf níunda
áratugarins?" spurði Mark Griffiths,
sálfræðingur og fyrirlesari við Nott-
ingham Tent háskóla, um könnun-
„Erum við staðreyndasjúklingar
og upplýsingafíklar? ðljós mörk eru
milli nægra upplýsinga og of mik-
illa,“ sagði Griffiths.
„Skýrslan sýnir að greinileg
tengsl eru á milli misnotkunar á
netinu, upplýsingasöfnunar og upp-
lýsingafíkni,“ sagði hann.
Áhrif á störf og heimili
Waddington, talsmaður Reuters,
sagði að upplýsingasöfnun væri í
sjálfu sér ekki vandamál. „Hún verð-
ur vandamál þegar hún fer að hafa
áhrif á starf fólks og heimi!islíf,“
sagði hann.
Þegar fólk er í þijá eða fjóra tíma
á netinu hefur það auðvitað ekki góð
áhrif á framleiðni þess í starfi og
sama gildir um heimilislífið," sagði
hann.
Samkvæmt könnuninni telja 80%
sig knúna til að safna eins miklum
upplýsingum og hægt er til að
standa viðskiptavinum eða keppi-
nautum á sporði, en rúmlega 50%
telja sig ekki ráða við allar þær
upplýsingar sem þeir sanka að sér.
Alls töldu 97% að námskeið í upp-
lýsingastjórnun væru fyrirtækjum
þeirra í hag. Áttatíu og sex af hundr-
aði töldu að skólar og æðri mennta-
stofnanir ættu að gera meira af því
að kenna börnum að nota upplýs-
ingar á árangursríkan hátt.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
að netið er mjög skipulagslaust,
sagði Waddington.
Áhrif á börn
Þijú hundruð aðspurðra voru for-
eldrar. Af þeim sögðust 36% hafa
áhyggjur af því að börn þeirra stæðu
berskjölduð gegn upplýsingum.
„Ef börnin væru niðursokkin í
alfræðiorðabók mundi enginn hafa
áhyggjur," sagði Waddington. „Það
sem veldur áhyggjum er að flakk á
netinu sé til lítils gagns og ekki
þroskandi.“
Samkvæmt skoðanakönnun Reut-
ers 1996 á vaxandi fjöldi fólks við
vanheilsu að stríða vegna álags af
völdum of mikilla upplýsinga.
Miðasala Sony í yfir
milljarð dollara
Hollywood. Reuters.
ANDVIRÐI seldra aðgöngumiða
að kvikmyndum Sony Pictures
Entertainment utan Bandaríkj-
anna í ár hefur komizt í yfir einn
milljarð dollara — eða rúmlega sjö-
tíu milljarða króna — í fyrsta skipti
í sögu kvikmyndaversins.
Söluhæsta kvikmyndin er Men
in Black. Andvirði seldra miða að
þeirri kvikmynd nam 5,2 milljón-
um dollara í Japan þegar sýningar
á henni hófust þar um síðustu
helgi — sem er met í sögu kvik-
myndaversins.
Mikil aðsókn að kvikmyndum
SPE stafar fyrst og fremst af vin-
sældum fjögurra kvikmynda —
Men In Black, Jerry Maguire, My
Best Friend’s Wedding og The
Devil’s Own — og nemur andvirði
seldra miða að hverri þeirra um
sig meira en 100 milljónum doll-
ara.
Miðasölutekjur af Men In Black
í heiminum eru komnar nálægt
300 milljónum dollara.
I
■
I
s
i
I
E
í;
I
1
I
I
t
I
I
l,
I