Morgunblaðið - 11.01.1998, Side 1
104 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
8. TBL. 86. ARG.
SUNNUDAGUR 11. JANUAR 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ÞÚSUNDIR óttasleginna Indónesa börðust um hrísgrjón, matarolíu og aðra matvöru á mörkuðunum í höfuðborginni, Jakarta, í gær. Ótt-
ast fólk yfirvofandi matarskort þótt stjórnvöld fullyrði, að á honum sé engin hætta.
Ottast ókvrrð í Indón-
esíu vegna kreppunnar
Yokohama, Tókýó, Seattle. Reuter.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sagði í Japan í gær, að Asíuríkin yrðu að grípa
strax til umfangsmikilla umbóta í efnahags-
og fjármálalífinu en kreppan í Suðaustur-As-
íu, einkum í Indónesíu, versnar með degi
hverjum. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
ræddi á fimmtudag í síma við Goh Chok, for-
sætisráðherra Singapore, og Suharto, for-
seta Indónesíu, um ástandið og Lawrence
Summers, fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
er á ferð um Suðaustur-Asíu í sömu erinda-
gjörðum. Henry Kissinger, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, segist óttast
vaxandi andúð á Bandaríkjamönnum í Asíu
vegna strangrar kröfu IMF, Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, um umbætur í efnahagslífi ríkj-
anna.
„Vilji Asíuríkin komast hjá enn meiri
kreppu í efnahagslífinu verða þau að beita sér
fyrir miklum umbótum í efnahagslífinu og
einkum í því skyni að gera fjármálalífið gagn-
særra,“ sagði Blair, sem er í fjögurra daga
heimsókn í Japan. Hefur hún verið mikil sig-
urför fyrir hann og segja sumir Japanir, að
byði hann sig fram í kosningum þar í landi
Afsagnar Suhartos
krafíst og almenningur
hamstrar matvæli
myndi hann gjörsigra japönsku leiðtogana.
„Við eigum í raun enga leiðtoga, við erum í
herfjötri gamals hugsunarháttar og þurfum
mann eins og Blair til að hrista upp í þjóð-
inni,“ sagði maður nokkur.
Tillögnr IMF hunsaðar
Indónesíustjórn lagði fram fjárlög sl.
þriðjudag og þar virðist ekkert tillit tekið til
tillagna IMF. Afleiðingin var sú, að á fimmtu-
dag féll gengi gjaldmiðilsins, rúpía, enn um
20%. Er almenningur skelfingu lostinn og
hamstrar matvæli af ótta við enn meiri
hremmingar og efnahagshrun. Telja margir
hættu á verulegri ókyrrð í landinu og sérstak-
lega fari að gæta matarskorts í landinu.
I Indónesíu hafa margir krafist þess, þar á
meðal Megawati Sukarnoputi, kunnasti leið-
togi stjórnarandstöðunnar, að Suharto, sem
er 76 ára að aldri, segi af sér og axli þannig
ábyrgð á efnahagsóreiðunni en háifbróðir
hans sagði í gær, að forsetinn ætlaði að vera
við stjórnvölinn þar til fram kæmi maður, sem
gæti tekist á við vandann.
Summers, fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, er nú á ferð um Suðaustur-Asíu til að
kynna sér ástandið og fullvissa stjórnvöld um
stuðning Bandaríkjastjórnar. Fer hann til
fundar við indónesísk yfirvöld á mánudag.
Varað við andúð
á Bandaríkjamönnum
Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra,
sagði í Seattle í fyrrakvöld, að mikil hætta
væri á auknum andamerískum áróðri í Suð-
austur-Asíu vegna efnahagsþrenginganna þar
og krafna IMF um umbætur. Sagði hann, að
þær hefðu betur komið fram fyrr, að minnsta
kosti fyrir þremur árum. Jeffrey Sachs, hag-
fræðingur við Harvard, hefur einnig áfellst
IMF og segir hann, að sjóðurinn hafi aukið á
óttann og þar með kreppuna með skyndileg-
um kröfum um, að ýmsum bönkum verði lok-
að. Hann kvaðst þó viss um, að kreppan í Suð-
austur-Asíu væri aðeins tímabundið áfall.
Mannskæður
jarðskjálfti
í Kína
Peking. Reuters.
TALIÐ er minnst 47 manns hafí látið líf-
ið í öflugum jarðskjálfta í norðurhluta
Kína í gær. Að sögn starfsmanns jarð-
skjálftamælinga í Kína slösuðust 2000
manns í skjálftanum, sem mældist 6,2 á
Richter-kvarða. 250 manns eru sagðir í
lífshættu.
Skjálftinn reið yfir rétt fyrir hádegi í
gær að staðartíma og hrundu mörg
hundruð hús í sýslunum Zhangbei og
Shangyi. Að sögn Xinhua-fréttastofunn-
ar misstu 10 þúsund manns heimili sín í
Shangyi. Þar er nú 20 gráðu frost. Tekist
hefúr að fínna skjól handa öllu þessu
fólki. Sagt var að 20 þúsund manns hefðu
misst heimili sín í Zhangbei og hefðu
komið fram sprungur í 90% húsa þar.
Skjálftinn fannst í Peking og þustu
óttaslegnir íbúar á götur út.
Sama varg-
öldin í Alsír
Algeirsborg. Reuter.
FIMMTÍU og fimm óbreyttir borgarar
hafa fallið í þremur nýjum árásum
hryðjuverkamanna í Alsír og talið er, að
um 1.000 manns hafi verið myrt á 10
dögum.
Alsírsk dagblöð sögðu, að múslimskir
hryðjuverkamenn hefðu myrt fólkið, 20
manns, í bænum Tablat á föstudag og 26
manns í bænum Sour E1 Ghozlan, þar á
meðal 11 börn. í Saida, 330 km suður af
Algeirsborg, var níu manna fjölskylda
drepin.
Sendinefnd frá ESB kemur til Alsírs á
næstu tveimur vikum og Evrópuþingið
ætlar einnig að senda sérstaka nefnd til
að kynna sér ástandið í landinu.
Blair vill stokka
upp á N-frlandi
London. Reuter.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, kvaðst í gær tilbúinn til að taka
mikla áhættu í von um frið á N-írlandi en
vildi ekki tjá sig um fréttir um, að hann
vildi róttækar breytingar á stjóm hér-
aðsins.
Blair lét þessi orð falla í heimsókn
sinni í Japan en vildi hins vegar ekkert
segja um frétt í dagblaðinu The Daily
Telegraph, að hann ætlaði að leggja
fram tillögur um að N-írlandi yrði ekki
lengur sljómað frá London, heldur af
nýju þingi kaþólikka og mótmælenda
ásamt fúlltrúum írskra og breskra
stjórnvalda. Sagði blaðið, að fulltrúar
mótmælenda hefðu tekið vel í
hugmyndina en óvíst væri með undir-
tektir kaþólikka.
DÝRARA
TÓBAK
DREGUR ÚR
REYKINGUM
B
íSÁRIN
LANDINU