Morgunblaðið - 11.01.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998 49
I
1
9
I
:
J
I
I
1
<
€
4
4
i
i
i
i
i
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4
FÓLK í FRÉTTUM
„Leikhúsið fjölbreyttur og
skemmtilegur vinnustaður“
Ólafur Haukur Símon-
arson er einn afkasta-
mesti núlifandi leikhöf-
undur landsins og hef-
ur samið 17 leiksviðs-
verk. Rakel Þorbergs-
dóttir spurði hann um
nýjasta leikritið, Meiri
gauragang.
Meiri gaura-
gangur í
Þjóðleikhúsinu
►LEIKRITIÐ Meiri gauragangfur
verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í
febrúar næstkomandi. Um er að
ræða sjálfstætt framhald leikritsins
Gauragangur sem var tekið til sýn-
inga árið 1994 og íjallar um félag-
ana Orm og Ranúr sem lenda í hin-
um ýmsu ævintýrum. Gauragangur
er eitt vinsælasta leikrit sem sett
hefur verið upp í Þjóð-
leikhúsinu og sáu um
40 þúsund áhorfendur
þá félaga fara á kostum. Að þessu
sinni halda Ormur og Ranúr á vit
nýrra ævintýra og leggja leið sína
til Danmerkur, nánar tUtekið til
Kaupmannahafnar. Þar lenda þeir í
margvíslegum háska og á vegi ^
þeirra verður skrautlegt lið og
óteljandi pylsur.
Með hlutverk Orms og Ranúrs
fara þeir Bergur Þór Ingólfsson og
Baldur Trausti Hreinsson en þeir
taka við af Ingvari E. Sigurðssyni
og Sigurði Sigmjónssyni sem
skemmtu áhorfendum eftirminni-
lega í Gauragangi.
„UPPHAFLEGA voru þetta tvær
bækur sem komu út fyrir nokkrum
árum. Söguhetjurnar eru tveir
strákagalgopar og við unnum leik-
rit upp úr fyrri bókinni fyrir fjór-
um árum. Nú eru þeir aftur komnir
á kreik félagarnir og leiðin liggur
til Kaupmannahafnar þar sem þeir
verða sér úti um öll þau vandræði
sem hægt er að rata í.“
- Hafa þeir félagar eitthvað elst
eða breyst?
„Sagan gerist svona ári eftir að
sú fyrri gerðist þannig að þeir eru
enn um 17-18 ára.“
- Er leikritið alfarið byggt á
seinni bókinni?
„Það er stuðst við bókina en leik-
ritið lýtur öðrum lögmálum en bók-
in. Leikritið er allt annað og
knappara form og í skáldsögunni
getur þú lýst í löngu máli því sem
þú vilt. Þetta leikrit er líka fullt af
söngvum sem Jón Ólafsson hefur
samið lögin við og er því í raun
söngleikur.“
- Eru Ormur og Ranúr dæmi-
gerðir ungir menn?
„Nei, ég held að dæmigerðir
ungir menn séu ekki til. Þetta eru
algjörir einstaklingar en það er
alltaf gaman að vera ungur og
maður verður að fara í gegnum
ýmislegt á þeim árum til að full-
orðnast.“
- Þú varst á æfingu leikritsins í
Morgunblaðið/Kristinn
ÓLAFUR Haukur Símonarson er höfundur leikritsins Meiri gaura-
gangur sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í febrúar.
morgun. Hvert er þitt hlutverk
núna í uppfærslunni?
„Ég verð að fylgja þessu eftir al-
vegfram á síðasta dag. “
- Eru einhverjar breytingar
gerðar á handritinu?
„Jájá, ég breyti alltaf heilmiklu
þegar ég sé hvernig þetta leggst.
Ég vinn líka talsvert mikið út frá
leikurunum sjálfum.“
- Koma leikararnir með hug-
myndir að breytingum?
„Já, það koma allir með góðar
hugmyndir og ég tíni úr það sem
mérfínnst bitastætt."
- Ferill þinn er mjög fjölbreytt-
ur. Er leikhúsið eitthvað sem heill-
ar þig sérstaklega?
„Það er mjög gaman að vinna í
BALDUR Trausti Hreinsson (Ormur) og Bergur Þór Ingólfsson
(Ranúr) leika aðalhlutverkin í ieikritinu Meiri gauragangur.
Jagger raddlítill
Los Angeles.
ROKKHLJÓMSVEITIN Rolling
Stones hefur aflýst tveimur tón-
leikum í tónleikaferð sinni um
Bandaríkin og Kanada vegna
veikinda Micks Jaggers, söngv-
ara sveitarinnar, en hann er með
raddbandabólgu.
Hljómsveitin átti að leika í
Syracuse í New York-ríki og
Toronto í Kanada en tónleikun-
um hefur nú verið frestað fram á
vor. Vonast er til þess að Jagger
jafni sig á næstu dögum og hægt
verði að halda tónleika í Montr-
eal eins og til stóð. Tónleikaferð-
in hófst í Quebec 5. janúar en
þeir voru óvenju stuttir vegna
veikinda Jaggers.
Gleðilegt nýtt ár!
Um leið og við óskum landsmönnum A
öllum farsældar og friðar á nýju ári
þökkum við gestum okkar
hollustuna á liðnum ánim.
Hollt og gott mataræði og
hamingja fara vel saman. Lifið heil!
Opið hjá okkur:
Virkadaga frákl. 11:30-14:00og 18:00-22:00.
Laugardaga frá kl. 11:30-21:00.
Matstofan
A ncestu grösum 4
Laugaveg 20b • Sífni 552 8410
leikhúsinu annað slagið, fá að vera
innan um fólk, og leikhúsið er fjöl-
breytilegur og skemmtilegur
vinnustaður. Það getur gengið á
ýmsu.“
- Er þessi uppfærsla ólík
Gauragangi?
„Nei, þetta er ósköp svipað. Við
erum með sama leikstjórann og
tónlistarstjórann en það eru nýir
leikarar. Ég er með tvær af yngstu
stjömunum í leikhúsinu í aðalhlut-
verkum.“
- Er nýtt leikrit á borðinu hjá
þér?
„Já, það er alltaf eitthvað í tölv-
unni en svo er bara að sjá hvað rat-
ar upp á svið.“
- Er möguleiki á framhaldsbók
um þá félaga?
„Það er aldrei að vita nema þeir
félagarnir skjóti upp kollinum aft-
ur.
m e ð O r v i I I e
fyrir krakka,
og alla hina!
v. Bergstaðastræti
2ja mánaða námskeið hefjast 15. janúar
Aðahld, fræðsla, stuðningur, vigtun, fitumæling
Lokað fitubrennslunámskeið fyrir fólk sem vill losna við 15 kg. eða meira
Hjólaþjálfun + styrkjandi æfingar • Mikið aðhald og stuðningur
Innifalið á öllum fitbrennslunámskeiðum
Mappa með fróðleik og uppskriftum, T-bolur, fæðubótarefni frá Davina
og máltíð á Hollustu og heilsu - Listhúsinu Laugardal
Verðlaun fyrir besta árangurinn er frítt á framhaldsnámskeið
Frjáls aðgangur að tækjasal og opnum tímum hjá GYM 80
GYM - BO
Suðurlandsbraut 6 (bakhús) Sfmi s 588 8383