Morgunblaðið - 21.02.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.02.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Skátar halda upp á afmæli SKÁTAR í Skátafélaginu Klakki á Akureyri ætla að halda upp á af- mæli stofnanda skátahreyfmgarinn- ar, Baden Powell, sunnudaginn 22. febrúar nk. Dagskráin hefst kl. 10.00 með gönguferð á Vaðlaheiði frá nýbyggðum skála félagsins, Val- höll, sem er í landi Veigastaða. Fyrir þá sem ekki ætla í þá gönguferð, er önnur og léttari gönguferð frá tjaldsvæðinu Húsa- brekku kl. 13.00. Setning verður svo við Valhöll kl. 14.00 og á eftir henni hefst fjölbreytt útidagskrá. Má þar nefna snjóþotukeppni og snjókarla- gerð. Hjálparsveit skáta verður á staðnum og ýmislegt annað. Boðið verður upp á útikakó en hver þarf að koma með sitt drykkj- armál. Kl. 16.30 verða skátasöngvar uppi á svefnloftinu í Valhöll og standa til kl. 17.30 en þá lýkur dag- skránni. Dagskráin er öllum opin og án kostnaðar. Sveitapiltsins draumur SVEITAPILTSINS draumur er heiti á fyrirlestri sem Haraldur Ing- ólfsson heimspekingur flytur í Deiglunni næstkomandi þriðjudags- kvöld, 24. febrúar kl. 20.30, en und- irtitill fyrirlestursins er „hvernig og hvers vegna verður mikill heim- spekingur úr íslenskum alþýðupilti á nítjándu öld?“ Fyrirlesturinn er hugleiðing um heimspeki Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi, aðstæður hans, ástæð- ur, aðferðir og fleira. Halaldur Ingólfsson lauk BA- prófi í heimspeki frá Háskóla ís- lands 1996 og skrifaði lokaritgerð sína um Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi. Allt áhugafólk um heimspeki er velkomið og er aðgangur ókeypis. Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi. Byggðavegur/Hrafnabjörg Einholt/Langholt Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur. Góður göngutúr borgar sig. ptargtittMiifeib Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 RÆSTIVAGNAR Urvalið er hjá okkur Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 IBESTAI Morgunblaðið/Kristján JÓHANN Pétur Andersen framkvæmdastjóri Krossaness kynnir nýjan mengunarvarnarbúnað í verksmiðjunni fyrir gestum. Krossanes og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri Samstarfssamningur um umhverfísstjórnun SAMNINGUR um faglega ráðgjöf og rannsóknir er lúta að stefnumót- un í umhverfísstjómun var undirrit- aður í gær milli Krossaness hf. og Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri. Samningurinn gildir til júnfloka árið 2000. í fyrstu verður lögð áhersla á val á búnaði til hreinsunar á útblæstri frá Krossanesverksmiðjunni. Markmiðið með þessum samstarfssamningi er „að ná enn betri tökum á umhverfis- málum Krossanesverksmiðjunnar svo hún megi verða í fararbroddi sambærilegra fyrirtækja þegar árið 2000,“ eins og segir í samningnum. í því augnamiði verður aðgerðunum einkum beint að fjórum sviðum; ímynd, tækni, mælingum og gæða- tryggingu. Við undirritun samningsins í gær var mengunarvamarbúnaður sem tekinn var í notkun síðastliðið haust kynntur sem og aðrar framkvæmdir, en nefna má að þá var tekinn í notk- un svartolíuketill, klæðning verk- smiðjunnar var endumýjuð og loftafsog frá ýmsum tækjum verk- smiðjunnar var aukið veralega, en allar þessar aðgerðir miða að því að draga úr lyktarmengun frá verk- smiðjunni. Fitugildra sett upp Til að draga úr mengun sjávar hefur frárennslinu frá verksmiðju- svæðinu verið tvískipt þannig að rigningar- og leysingavatn fer í sér- lögn til sjávar en allt skol- og þvotta- vatn ásamt yfirfalli af tönkum og blóðvatni úr beinaþró fer í sérstakan safnbmnn. Keypt hefur verið fitu- gildra af fullkominni gerð og á hana verður dælt úr safnbrunninum og mun hreinsun í gildmnni uppfylla alla staðla til þess efnis sem fer frá henni til sjávar. Uppsetningu fitu- gildmnnar lýkur í næsta mánuði. Forsvarmenn Krossaness leggja ríka áherslu á að fullnýta hráefni sem gengur af við vinnslu hjá öðmm sjávarútvegsfyrirtækjum og væri að öðram kosti hent. Verksmiðjan hafði frumkvæði að því að vinnsla á rækju- skel var hafin þar árið 1991 og hefur Krossanes lagt rækjuvinnslum á svæðinu til búnað til að skilja skelina frá pillunarvatninu áður en það fer í sjóinn. Pá framleiðir verksmiðjan lýsi úr um 120 tonnum af lifur árlega og tekur við 7-8 þúsund tonnum af annars konar fiskúrgangi til bræðslu frá fiskvinnslustöðvum á Eyjafjarð- arsvæðinu. Ennfremur er í Krossa- nesi búnaður til vinnslu loðnuhrogna og verksmiðjan er stærsti hráefnis- birgir fóðurvömfyrirtækja á Eyja- fjarðarsvæðinu. Stendur hugur for- svarsmanna verksmiðjunnar til þess að auka enn frekar samstarf við fyr- irtæki á svæðinu um fullnýtingu sjávarfangs. www.mbl.is/fasteignir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.