Morgunblaðið - 21.02.1998, Page 50

Morgunblaðið - 21.02.1998, Page 50
50 LAUGAKDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tf&gé&ÚltiNAÐ&Gfi NÝJtí> 1 'BLÖP/ZOMA 0MA iM>DA6A.. j úSNi/m )MNSf&HJ6llO I dLÖÐfZOe ZMJ E&d ) \_Þe&TAe p/e/e j-ang- líp' o o Tommi og Jenni Ljóska Smáfólk THAT'5 THE N L0NELIE5T 50UNP IN THE IÚ0RLP.. y LIKE A TRAIN WHI5TLE AT MIDNI5HT.. J OR A " LONE CAN OPENER.., I HEARP THE C0V0TE5 H0WLIN5 AéAlN LA5T NléHT, CHARLIE BROWN.. Ég heyrði sléttuúlfana góla aftur í gærkvöldi, Kalli Bjarna. Það er einmanalegasta hljóð í heimi. Eins og lestarflaut á miðnætti. Eða einmana dósahnifur. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fáum við Akraborgina? Frá Guðmiindi Gunnarssyni: VIÐ Grafarvogsbúar höfum á und- anfórnum árum ítrekað bent á að þörf sé á, að auka afköst umferðar- mannvirkja sem liggja að Grafar- vogi. Þessar ábendingar hafa borgaryfirvöld látið sem vind um eyru þjóta. Við höfum merki þess að borgaryfírvöld hafí í raun verið á öndverðri skoð- un. Sett var upp hringtorg á helstu umferðaræðina úr Grafarvog- inum, sem hefur tafíð umferð um- talsvert. Til er undirbyggð tvöfoldun á akbrautum frá Suðurlandsvegi að Víkurvegi sem einungis þarf að mal- bika, ekkert hefur verið gert til þess að ljúka þeim vegi. Ekkert hefur verið gert til þess að auka afköst Víkurvegs og endurbyggja gatna- mót við hann og Vesturlandsveg og þannig mætti lengi telja. Við Grafarvogsbúar fengum síð- astliðið sumar enn eina sönnun þess að borgaryfirvöld vilji ekki átta sig á í hversu mikið óefni er komið, þá beindu þau allri umferð af Vestur- landsvegi í gegnum Grafarvog. Það myndaðist fullkomið öngþveiti á öll- um götum í Grafarvogi og fólk sat innilokað í bflum sínum í allt að 3 klst. Þegar fréttamenn leituðu til borgaryfirvalda með spurningar um hverjum dytti svona lagað í hug, var því svarað með útúrsnúningi og skætingi. Það var svo á öðrum degi öngþveitisins sem lögreglan tók af skarið og lét opna Vesturlandsveg aftur. Neyðarástand í Grafarvogi Fyrir nokkru snjóaði í Reykjavík, sem virtist koma borgarstjóra í opna skjöldu. Þá skapaðist neyðar- ástand í Grafarvogi, öll umferð sat föst og nokkur þúsund Grafarvogs- búa mættu 20-40 mín. of seint til vinnu sinnar og nemendur í fram- haldsskólum misstu af fyrstu kennslustund. Þá loks rumskar gatnamálstjóri og kemur fram í fjöl- miðlum og segir, að það sé nú lík- lega þörf á að taka í burtu hringtorg af Gullinbrú og setja upp afkasta- meiri gatnamót og tvöfalda aðreinar að gatnamótunum. En það er nú svo með embættismenn, það virðist ekki skipta neinu máli hvort þeir stunda sína vinna og þaðan af síður hvemig þeir gera það. Afsökun borgarstjóra er sú, að hún sé svo aum, að hún þori ekki að gera neitt í þessu vegna þess að Aiþingi leyfi henni það ekki. Kattarþvottur af þessu tagi er nú- verandi borgaryfirvöldum til minnk- unar. Borgaryfírvöld virðast nú loks ætla að laga gatnamótin á Gullinbrú, en greinilega er það gert með hang- andi hendi og í mikilli fylu, eins og komið hefur fram hjá þeim. Eg spyr, hvað ætla þau að gera við umferðina á meðan? Það má benda borgar- stjóra á að nú í vor losnar Akraborg- in, þá getur hún tekið upp áætlunar- siglingar frá Gufunesi í Sundahöfn. I sumar þegar búið verður að opna jarðgöng undir Hvalfjörð verða Ak- umesingar fljótari að skjótast í mið- borg Reykjavíkur en við Grafar- vogsbúar. A meðan aðrir landsmenn fá sífellt betra vegakerfi þá siglir borgarstjóri samgöngumálum 15 þús. Grafarvogsbúa, ekki inn í næstu öld, heldur aftur til síðustu aldar. Með þessu háttarlagi hefur borg- arstjóri valdið því að verðlag á hús- næði í Grafarvogi hefur lækkað samanborið við önnur nýbyggingar- svæði á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur valdið okkur og byggingarfyr- irtækjum umtalsverðu fjárhagslegu tjóni. Með leyfi; Er einhver undr- andi á því að ungt fólk sæki frekar um byggingarleyfi í öðmm bæjarfé- lögum? GUÐMUNDUR GUNNARSSON, Fannafold 69, Reykjavík. Menningarslys Frá Ástríði Andersen: TILEFNI þessa stutta pistils er það, að þakka ágæta grein Olivers Kentish í Morgunblaðinu 18. þ.m. vegna útvarpsstöðvarinnar Klassík FM 106,8. Ég hafði lengi hugleitt að rita sjálf eitthvað í svipuðum dúr, ekld síst er ég las í blöðum hér ekki alls fyrir löngu, að hætta væri á því að starf- semi þessarar stórkostlegu stöðvar væri hætta búin. Það yrði rneiri hátt- ar mennningarslys ef slíkt myndi gerast. Ég persónulega hlusta mikið á stöðina og hefi fræðst mikið af þeiri hlustun. Er það þó ekki síst að þakka frábæru starfi Halldórs Haraldsson- ar. Skemmtilegt er líka samstarf stöðvanna við bresku stöðina BBC, fréttir þaðan, þættir um „tónskáld mánaðarins", o.s.frv. í öðrum löndum eru stöðvar sem þessi reknar og hafa verið um langan tíma til ómældrar ánægju og mikillar þátttöku hlustenda. Mér er sérstak- lega minnisstæð bandaríska stöðin í New York, WQXR, sem að mínu mati hafði algjöra sérstöðu og reynd- ar líka ámóta stöðvar víða um heim. Það orkar ekki tvímælis hve mikið menningarstarf rekstur stöðvar eins og Klassík FM 106,8 vinnur beint og óbeint. Þetta er eina stöð okkar á landinu, sem flytur klassíska tónlist - og allan sólarhringinn meira að segja. Ef dæma má af virku tónlistar- starfi og þátttöku í öllum greinum tónlistar hér á landi nú, mætti ætla að hlustendahópur stöðvanna væri stór og fari stækkandi. Nægilegt framboð er af léttvægari tónlist á hinum mismunandi stöðvum, stund- um að manni finnst einum of, en sitt sýnist hverjum. Að endingu þá er það einlæg ósk mín og von, að framhald verði á rekstri Klassíkur FM 106,8 og þakka frábært starf þessarar menningar- stöðvar. Megi stöðin þróast og blómstra í allri sinni framtíð. ÁSTRÍÐUR H. ANDERSEN, Reynimel 51, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.