Morgunblaðið - 07.03.1998, Page 6

Morgunblaðið - 07.03.1998, Page 6
6 LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 I _________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tryggingaráð hefur samþykkt gerða samninga við faghópa sérfræðilækna Almennur vilji til sam- flots á fundi lækna TRYGGINGARÁÐ samþykkti á fundi í gær- morgun gerða samninga við ellefu hópa sérfræði- lækna. Á fundi, sem haldinn var hjá Læknafélagi Reykjavíkur um samningamálin, kom fram al- mennur vilji til að standa þannig að staðfestingu gerðra samninga, að sögn Sigurðar Björnssonar, formanns Sérfræðifélags íslenskra lækna. Samn- ingafundur í deilu skurðlækna verður haldinn í dag. ÞÁ samþykkti Tryggingaráð í gær samning- inn við gigtlækna, sem gerður var í fyrradag, og samninga við augnlækna og kvensjúkdóma- lækna, sem tókust á fúndi í fyrrakvöld. Tæknileg mál óleyst Sigurður telur að fyrst og fremst sé ósamið um tæknileg mál. Talsverð vinna sé eftir. Hann sagði tímafrekt að sinna málum þessara hópa. Hann kvaðst þó bjartsýnn á að samningar takist innan tveggja vikna. Sigurður sagði að nú ætti eftir að koma í Ijóst hvort sérfræðingar staðfesta samningana á eigin félagsfundi næstu daga eða hvort þeir bíða eftir því að samningar takist við alla hópa þannig að um heildarsamaflot verði að ræða. Sigurður sagði að mjög almennur vilji til heildarsamflots hefði komið fram á fundi lækna í fyrrakvöld. Allt á viðræðugrundvelli Samninganefndir Tryggingastofnunar ríkisins og skurðlækna hittast aftur á fundi fyrir hádegi í dag. Að sögn Kristjáns Guðjónssonar, deildar- stjóra sjúkratryggingadeildar Tryggingastofn- unar, nálguðust sjónarmið aðilanna heldur á fundi, sem haldinn var í fyrradag, þar sem samn- inganefndum var skipt í hópa og farið yfir út- reikninga. Kristján sagði að málið væri „allt á viðræðugrundvelli". I Morgunblaðinu í gær var haft eftir Kristjáni Guðjónssyni, að handsalaður samningur við skurðlækna frá því fyrir tveimur vikum hefði ekki náð fram að ganga vegna óútkljáðra mála skurðlækna og svæfingarlækna um skiptingu rekstrarkostnaðar vegna skurðstofa. Kristján sagði í gær að nú hefðu þau mál skýrst og lagt væri upp með að skurðlæknar og svæfingar- læknar skipti með sér rekstrarkostnaði eins og verið hefur. Gengið verði út frá því í nýjum út- reikningum. Stóð ekki til að skurðlæknar semdu við svæfingarlækna Um þessi ummæli Kristjáns sagði Stefán Matthíasson, samningamaður skurðlækna, í samtali við Morgunblaðið f gær: „Þegar þetta samkomulag var handsalað var alveg ljóst að meiningin var sú að flytja meginhluta rekstrar- kostnaðar skurðstofa yfir á skurðlækna. Eftir sat rekstrarkostnaður varðandi svæfingarhlut- ann. Það stóð aldrei til og var með fullri vitund samninganefndar Tryggingastofnunar að þannig yrði gengið frá hlutunum. Það stóð aldrei til að ég semdi fyrir Tryggingastofnun við kollega mína, svæfingarlæknana, enda ekki í mínum verkahring. Það gætir furðu að hann lýsi yfir, að það hafi verið inni í samkomulaginu að ég mundi semja fyrir þá við svæfingarlæknana." Ársskýrsla Stfgamóta kynnt Viðvarandi ástand kynferðisofbeldis FÉLAGIÐ Stígamót kynnti í gær ársskýrslu samtakanna í tilefni þess að átta ár eru liðin frá stofnun at- hvarfsins. Frá upphafi hafa 2.420 einstaklingar leitað aðstoðar hjá Stígamótum og í fyrra leitaði 431 einstaklingur til samtakanna, þar af 215 í fyrsta sldpti. Fjöldi þeirra sem leita til Stígamóta er svipaður frá ári til árs, en milli 91% og 96% eru konur. Þolendur kynferðisafbrota eru í sérstökum áhættuhópi hvað varðar sjálfsvíg og höfðu 13% þeirra 215 sem leituðu aðstoðar Stígamóta í fyrra reynt að fremja sjálfsvíg. I skýrslunni kemur fram að á undan- fómum tveimur árum hafi vaxandi fjöldi þeirra kvenna sem leitað hafa til Stígamóta sagt frá að þær hafi stundað vændi tímabundið á ung- lings- og fullorðinsaldri og að vænd- ið hafi verið tengt mikilli áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Svipað á einnig við um örfáa karla sem leitað hafa til samtakanna. Tæpur þriðjungur segir frá 80% þolenda kynferðisofbeldis eru 16 ára og yngri en rúm 53% hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi á milli fimm og tíu ára aldurs. Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, segir að þolendur kynferðisöfbeldis séu lengi að leita sér aðstoðar. Hún benti á að einungis rúm 31% segðu frá þegar ofbeldið ætti sér stað en algengast væri að sifjaspell stæðu yfir í eitt til fimm ár. Hún segir enn- fremur að hlutfall þeirra sem væri trúað þegar þeir segðu frá færi hækkandi með ári hverju í kjölfar aukinnar umræðu um þessi mál. 99% ofbeldismanna karlmenn Ársskýrslan sýnir að 3.848 of- beldismenn hafa beitt þá 2.420 þolendur sem leitað hafa til samtak- anna kynferðisofbeldi. Rúm 99% of- beldismanna eru karlmenn, þeir eru á öllum aldri og úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Tæp 44% þeirra eru giftir og rúmlega helmingur þeirra á börn. 17% ofbeldismannanna hafa einnig beitt aðra ofbeldi að því að þolandinn vissi til. Einungis 10% of- beldismanna eru ókunnugir menn en algengast er að þeir séu vinir, fjölskylduvinir eða feður þolandans. Stígamót halda, í tilefni átta ára afmælis síns, fjöldagöngu mánudag- inn 9. mars þar sem gengið verður frá Hlemmi að Austurvelli þar sem dómsmálaráðherra verða afhentar kröfur til úrbóta. NYIA MD Ástæöur þess að leitaö er til Stígamóta árið 1997 Sifjaspell og afleiöingar þeirra Nauðganir og afleiðingar þeirra Kynferðisleg áreitni tutnno 5,4% Grunur um sifjaspell jj 1,0% Grunur um nauðgun 0,3% Annað 0,7% 59,9% Andlát GUÐRUN JÓNS- DÓTTIR BJÖRNS- SON GUÐRÚN Jónsdóttir Björnsson, ekkja Valdimars Björnssonar, fyirverandi fjámálaráðheiTa í Minnesota-fylki í Bandaríkjunum, lést á heimili sínu í Minneapolis í gær. Guðrún var fædd á ísafirði 18. október 1915 og var því 82 ára. Guðrún lærði sjúkraþjálfun í Danmörku og starfaði við hana bæði hérlendis og eftir að hún fluttist til Bandaríkjanna. Hún giftist árið 1946 Valdimar Björns- syni, fjármálaráðherra í Minnesota-fylki, sem starfaði hér á stríðsárunum. Þau bjuggu alla sína hjúskapartíð í Minnesota. Valdi- mar starfaði þar fyrst sem blaða- maður og fréttaskýrandi og varð síðar um langt árabil fjármálaráð- herra Minnesotafylkis. Hann lést árið 1987. Guðrún og Valdimar eignuðust fimm böm sem öll eru uppkomin og búsett í Bandaríkjunum. Söngurinn í fyrirrúmi I»rídja prcntiui komin [Guðjón] hefur dregið sanian mikinn fróðleik... og segir söguna á einföldu og skýru máli ... Ijósmyndir eru skipulega nofaðar íil að auka við efni textans... uppsetning öll og umbrot er til fyrirmyndar. Pað cr óhælt að mæla cindregið með þessari bók.“ Gudnumdur HeiðarFrímanntson, Morgunblaðið fyS P UH LEIKLIST Leikfélag Akureyrar f samvinnu við Sinfónfu- hljómsveit Nurðurlands SÖNGVASEIÐUR Höfundar Icikhandrits: Howard Lindsay og Russel Crouse. Höfundur söngtexta: Oscar Hammerstein. Höfundur tónlistar: Richard Rodgers. Þýðing: Flosi Ólafsson. Útsetningar: Hákon Leifsson. Leikstjórn: Auður Bjamadóttir. Tónlistar- og hljóm- sveitarstjórn: Guðmundur Öli Gunn- arsson. Leikmyndir og búningar: Messíana Tómasdóttir. Lýsing: Ingvar Björnsson. Leikarar og söngv- arar: Aðalsteinn Bergdal, Audrey Freyja Clarke, Guðbjörg Thorodd- sen, Helga Margrót Clarke, Hildur Þóra Franklín, Hildur Tryggvadóttir, Hinrik Ólafsson, Hjalti Valþórsson, Hrönn Hafiiðadóttir, Ingimar Davfðs- son, Jóna Fanney Svavarsdóttir, Jón Júlíusson, Jónsteinn Aðalsteinsson, Manfred Lemke, Marinó Þorsteins- son, Rósa Kristín Baldursdóttir, Sigrún Arngrímsdóttir, Unnur Helga Möller, Villijálmur Bergmann Braga- son, Þóra Einarsdóttir, Þráinn Karls- son og Þuríður Vilhjálmsdóttir. Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands: Anna Podhajska, Anton Fournier, Björn Leifsson, Gréta Baldursdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Jacqueline F. FitzGibbon, Jón Halldór Finnsson, Jón Rafnsson, Karl Petersen, Laszló Czenek, Michael Jón Clarke, Pál Barna Szabó, Richard Simm, Sveinn Sigurbjörnsson og Stefán Örn Arnarson. Föstudagur 6. mars. Mól og mennlng Laugavegi 18 • Sfmt S15 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500 LEIKFÉLAG Akureyrar í sam- vinnu við Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur er valinn er söngleikurinn Söngvaseiður til flutnings. Uppsetningin einkennist af miklum metnaði og söngurinn er í fyrirrúmi, þ.e. frekar veljast í hlut- verkin lærðir söngvarar en leikarar. Söngvaseiður, á frummálinu „Sound of Music“, er sennilega þekktasta verk Rodgers og Hammersteins. Kvikmynd sem gerð var eftir honum, nefnd Tónaflóð í ís- lenskri þýðingu, þótti stórkostleg upplifun á sínum tíma. Verkið er bam síns tíma og er skemmtilega væmið og yndislega hallærislegt. Þýðing Flosa Ólafssonar eykur á þessi hughrif frekar en hitt. Leikurinn er sýndur á nýupp- gerðu sviði Samkomuhússins. Svið- ið hefur verið dýpkað, hljómsveitar- gryfja útbúin og salurinn gerður upp og honum breytt. Þetta mynd- ar glæsilega umgjörð um einstak- lega skemmtilegt útlit sýningarinn- ar, sem hannað er af Messíönu Tómasdóttur. Messíana sækir í æv- intýraminnið í verkinu, söguna um fátæku stúlkuna sem hlýtur prins- inn vegna hreinleika hjarta síns. Búningamir em því afar litríkir og stflhreinir. Sviðsmyndin einkennist af hugvitsamlegri notkun á örfáum leikmunum (t.d. löngum, mjóum flekum sem er snúið og skeytt sam- an á ýmsa vegu) og ljósum sem varpa einföldum skuggamyndum á baktjald og veggi. Ljósin era bein- skeytt og úthugsuð og þetta allt veldur því að hinar fjölmörgu skipt- ingar taka aðeins örskotsstund. Auður Bjamadóttir stýrir hópat- riðum fagmannlega og augljóst er að dansþjálfun hennar kemur að góðum notum. Enginn sýnir stór- leik enda gefur viðfangsefnið kannski ekki tilefni til þess. En eins og fyrr segir er tónlistin og söngurinn aðalatriðið og greini- legt er að Guðmundur Óli Gunnars- son hefur lagt sig allan fram til að ná sem bestum árangri. Tónlistin er skemmtilega útsett af Hákoni Leifssyni fyrir litla hljómsveit. Söngurinn kemur sífellt á óvart. Söngur nunnanna er sérstaklega vandaður með volduga rödd Hrannar Hafliðadóttur sem undir- stöðu. Þóra Einarsdóttir er stór- kostleg sem María og hefur ein- staka fyllingu í röddinni. Hún túlk- ar Maríu sem stelpuskvettu sem er bros, tvö stór augu og hárvöndull og töfrar alla uppúr skónum. Hin- rik Ólafsson syngur mjög vel hlut- verk kapteinsins. Jóna Fanney Svavarsdóttir er sindrandi Lísa og Hjalti Valþórsson er bangsalegur í hlutverki kærastans. Rósa Kristín Baldursdóttir og Aðalsteinn Berg- dal skapa bæði mjög eftirminnileg- ar persónur og skila vel söngnum. Börnin koma þó mest á óvart. Ingi- mar Davíðsson leikur Friðrik af miklu öryggi og skilar vönduðum söng. Hildur Þóra Franklín er hin sannsögla Birgitta og skýr fram- sögn einkennir leik hennar. Syst- urnar Helga Margrét Clarke og Audrey Freyja Clarke eru ótrúlega öraggar í leik og söng og sama má segja um Vilhjálm Bergmann Bragason. Börnin era punkturinn yfir i-ið í sérstaklega líflegri og vandaðri sýningu sem mun án efa verða lengi í minnum höfð. Verður útlit sýningarinnar, samspil lita, ljóss og skugga minnisstætt og auð- vitað söngurinn sem yljar um hjartarætur þegar gengið er út í fímbulkuldann að lokinni sýningu. Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.