Morgunblaðið - 07.03.1998, Side 20
20 LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
UTGERÐARFÉLAG
Vestmannaeyja hefur
þegar hafið starfsemi sína
með kaupum á togaran-
um Breka VE með aflaheimildum
og er útgerð hans undir merkjum
félagsins hafin. I gær var svo geng-
ið frá kaupum félagsins á útgerðar-
fyrirtækinu Perú efh. á Hornafirði.
Perú gerir út bátinn Garðar II og
fylgja honum aflaheimildir sem
svara til 420 tonna af þorski. Guð-
jón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, einn hvatamannanna
að stofnun félagsins, segir í samtali
við Morgunblaðið, að öflug útgerð
og fiskvinnsla sé undirstaða lífsins í
Vestmannaeyjum. Þannig hafi ver-
ið gengið frá málum að rekstur fé-
lagsins sé tryggður. Það muni skila
auknum tekjum til til Eyja. „Með
stofnun þessa útgerðarfélags er
þriðja stóra heftið vonandi að verða
til hér í Eyjum,“ segir Guðjón.
Mjög misjafnt er hvernig ein-
stökum sveitarfélögum hefur hald-
izt á aflaheimildum, sem hafa verið
skráðar á skip í þeim. Sum hafa
misst frá sér verulegar heimildir og
þar með atvinnu, önnur hafa haldið
í horfinu og sum aukið sinn hlut.
Vestmannaeyjar hafa haldið í horf-
inu, en það er Eyjamönnum ekki
nóg. Það er sóknarhugur í þeim í
sj ávarútveginum.
Timi til að blása til sóknar
„Við höfum getað haldið í horf-
inu,“ segir Guðjón. „Varnarleikur-
inn hefur gengið mjög vel, en við
misstum reyndar eitt skip héðan
fyrir nokkrum árum. Utgerðar-
menn hér hafa lifað með þessu fisk-
veiðistjómunarkerfi og hafa verið
að auka við aflaheimildir sínar. Við
stöndum þess vegna mjög vel og nú
er kominn tími til að blása til sókn-
ar. Tilgangurinn með stofnun þessa
félags er auðvitað að halda núver-
andi aflaheimildum í Vestmanneyj-
um og auka við þær síðar meir.
Mikill áhugi
Við fréttum fyrst að tveir bátar
væru til sölu, Gullborg og Hrauney
og síðan fréttum við að togarinn
Breki væri að fara á sölu líka. Okk-
ur stóð ekki á sama um að missa svo
miklar aflheimildir burt svo við
ákváðum að kanna hvort ekki væri
vilji til stofnunar hlutafélags um út-
gerð hér í Eyjum. Viðbrögðin urðu
svo góð að þetta var klárað á 10
dögum. 230 milljóna hlutafé safnað
á örfáum dögum, gengið frá kaup-
um á togara með aflaheimildum fyr-
ir 820 milljónir og skipið farið á sjó
undir okkar merkjum áður en form-
lega hefur verið gengið frá stofnun
félagsins. Síðan þá hafa svo kaupin
á Perú ehf. verið gerð svo segja má
að gangurinn sé alveg ótrúlegur.
Við höfum þegar sent út dreifi-
bréf til fyrirtækja og inn á heimilin,
þar sem boðin er þátttaka í stofnun
hlutafélagsins og þess eru mörg
dæmi að fólk hafi komið og spurt,
talað um að í Eyjum væru tvö stór
hefti, en ég sé ekkert því til fyrir-
stöðu að þriðja stóra heftið sé að
verða til líka.
Vinnslustöðin verður stærsti
hluthafinn með 20% en síðan koma
tryggingafélög, olíufélög, flutninga-
fyrirtæki, ísfélagið og ýmis fleiri
fyrirtæki í Eyjum. Bærinn mun
koma að þessu með öðru leyti. Hér
er verið að vinna að stofnun nýs
fjárfestingarfélags og við munum
koma að stofnun þess, en ég reikna
með að það muni síðan fjárfesta í
Utgerðarfélagi Vestmannaeyja.
Bærinn hefur ekki farið út í það
beint að fjárfesta í atvinnufyrir-
tækjum eða veita þeim fjárhagsleg-
ar ábyrgðir og svo verður heldur
ekki að þessu sinni.
Skoðun okkar er sú að einka-
framtakið og hlutafélögin séu bezt
til þess fallin að halda hér uppi
blómlegu atvinnulífi. Við höfum á
hinn bóginn stutt sjávarútveginn
hér á annan hátt. Við eru með
lægstu vöru- og aflagjöldin á land-
inu og gefum þar í raun nokkrar
milljónir í afslátt á ári.
Þetta fyrirtæki verður skráð á
markaði, þannig að lífeyrissjóðimir
eiga að geta komið að því og bank-
arnir hér í Eyjum munu veita fólki
fyrirgreiðslu til kaupa á hlutabréf-
um. Nú þegar hafa safnazt um 230
milljónir og hinn 15. mars, þegar fé-
lagið verður formlega stofnað, verð-
ur örugglega komið nóg í pottinn."
Góður rekstrargrundvöllur
Hvernig er rekstrargundvöllur
Utgerðarfélags, sem aðeins hefur
um 1.520 tonn heimildir í
þorskígildum talið? Er það nóg?
TÖLVUMIÐSTÖÐ HEIMILISINS
Tölvumiðstöðin er á hjólum með útdraganlegri plötu fyrir
lyklaborð og mús. Hún er rúmgóð hirsia þar sem vel fer
um öll helstu tæki og fylgihluti tölvuheimsins.
Tölvumiðstöðin erfáanleg
í Beyki og Kirsuberjavið
Stærð
lengd 80 sm
dýpt 50 sm
hæð 80,5 sm
Utgerðarfélag Vestmannaeyja hefur keypt tvö skip
„Það er alveg ljóst að við svona
mikla fjárfestingu verður að selja
fiskinn á hæsta mögulegu verði. Við
munum því leggja áherzlu á sölu
aflans á mörkuðum, bæði hér í Eyj-
um og erlendis.
Þá þarf að skoða samsetningu á
lánum og ná sem beztum lánakjör-
um. Við sjáum fram á að Breki eigi
að geta skilað 27 tO 30% framleiðni
og það á alveg að duga til að greiða
lánin niður. Síðan hefur verið ákveð-
ið að Breki muni veiða töluvert
magn af fiski fyrir Vinnslustöðina og
það tryggir rekstargrundvöllinn enn
frekar. Við erum að kaupa skipið í
lok febrúar og þá er aðeins rúmur
helmingur kvótaársins eftir. Afla-
heimildir okkar nú auk veiðanna
fyrir Vinnslustöðina munu sjá okkur
fyrir fyllilega nægum verkefnum til
loka kvótaársins. Kaupin á Perú ehf.
og bátnum Garðari II auka verkefni
okkar líka. Rekstrargrundvöllurinn
er því góður.
Markmiðið er svo að auka enn-
frekar aflaheimildir okkar og við
erum að skoða ýmis dæmi, bæði
hér innan bæjar og utan.“
Eru bátarnir Hrauney og Gull-
borgin komnir á innkaupalistann?
Mikil breidd og
fjölbreytt starfsreynsla
„Við ætlum að skoða það líka.
Fyrst skrefið er að klára kaupin á
Perú ehf. og Brekanum og ganga
frá lánum á honum og öðrum þátt-
um. Við erum þó byijaðir að tala
saman, en framvindan er alveg óljós.
Markmiðið er að halda í horfinu
fyrst í stað og auka síðan aflaheim-
ildir Útgerðarfélags Vestmanna-
eyja. Hvort það tekst kemur smám
saman í ljós, en ég tel að í stjórn-
inni sé mikil breidd manna með
mikla og fjölbreytta starfsreynslu,
sem eigi eftir að nýtast félaginu
mjög vel. Ég sé enga ástæðu til að
ætla annað en framtíð þessa nýja
félags geti verið björt. Það er mikill
hugur í mönnum og ljóst að eignar-
aðild að félaginu verður mjög
dreifð. Þar koma saman fjölbreyttir
kraftar, sem sameinaðir munu
mynda þann eina mikla kraft sem
þarf til að reka öflugt útgerðarfé-
lag,“ segir Guðjón Hjörleifsson.
Morgunblaðið/Halldór
KAUPSAMNINGURINN um Perú ehf. undirritaður. Garðar Garðarsson, lögfræðingur, Axel Jónsson, aðaleig-
andi Perú, Aðalsteinn Siguijónsson, stjórnarformaður UV og stjórnarmenniniir Guðjón Hjörleifsson, bæjar-
stjóri og Guðjón Rögnvaldsson, útgerðarmaður.
Aflaheimildir orðnar
1.520 þorskígildistonn
hvort það væri nokkuð of seint að
kaupa hlutabréf og ganga í félagið.
Ahuginn er mikill og öllum hér
verður gefið taekifæri til að gerast
stofnfélagar í Útgerðarfélagi Vest-
mannaeyja."
Tryggari og betur launuð störf
Hvernig hefur útgerðin í Eyjum
þróast með kvótakerfinu?
„Þróunin hefur verið sú, að menn
hafa verið að sameina takmarkaðar
aflaheimildir á færri skip. Því fylgir
auðvitað að einhver störf á sjónum
tapast, en skipin eru orðin stærri og
betri og störfin, sem eftir eru trygg-
ari og betur launuð. Margfeldis-
áhrifin af góðu gengi í útgerðinni eru
gífúrleg. Þegar vel gengur njóta allir
góðs af því og það kemur greinilega
fram í ársreikningum bæjarins,
hvernig vertíðin hefiu- gengið.
Útgerðarmenn hér í Eyjum hafa
nýtt sér kosti kvótakerfisins vel og
náð að auka aflaheimildir sína, en
framtíð margra byggist á því að
framsal aflaheimilda verði sem
frjálsast. Hér eru heiðarlegir út-
gerðarmenn og ekki má láta
nokkra „skúrka" kasta þvflíkri rýrð
á kvótakerfið að framsalið verði
lamað. Það verður að koma í veg
fyrir þátttöku sjómanna í kvóta-
kaupum með öðrum hætti.
Vinnslustöðin stærsti hluthafinn
I þessu nýja útgerðarféagi erum
við að ná saman hagsmunaaðilum í
bænum, einstaklingum og stóru
fyrirtækjunum, til að búa til mjög
sterkt félag. Menn hafa gjaman
Vandaðir
skrifstofustólar
af ýmsum
gerðum
FJARSKIPTABÚNAÐUR í sjálf-
virka tilkynningaskyldukerfinu,
sem hleypt verður af stokkun-
um í haust, er þróaður af breska
fyrirtækinu Racal Survey sem
hefur um áratuga skeið sérhæft
sig í hönnun siglinga- og fjar-
skiptabúnaðar. Brian Wood, for-
stjóri Racal Survey, segir þró-
unarsamvinnu Racal Survey,
Stefju og DNG um heildarlausn
fyrir sjálfvirka tilkynninga-
skyldu vera brautryðjendastarf
í eftirlits- og öryggismálum í
heiminum.
Brian Wood segir Racal Sur-
vey hafa frá árinu 1985 einkum
byggst á GPS tækninni og ára-
tugareynslu og þekkingu á fjar-
skiptatækninni almennt. „Okkar
framlag og hugbúnaðurinn sem
Stefja hefur þróað gerir okkur
kleift að sefja upp mjög öflugt
upplýsinga- og eftirlitskerfi fyrir
íslensk fiskiskip.“
Miklir möguleikar
í markaðssetningu
Wood segist líta svo á að hér
sé verið að vinna brautryðjenda-
starf og möguleikar á markaðs-
setningu kerfisins erlendis séu
mjög miklir. „Hér er um að
ræða tækni sem á enga sína líka
í heiminum. Við höfum unnið að
áþekkum verkefnum víðs vegar
um heiminn en þau hafa verið
mun smærri í sniðum. Til dæmis
hönnuðum við staðsetningarbún-
að fyrir um 30 skip við olíuborp-
alla ( Brúnei. Þar að auki settum
við upp staðsetningarbúnað sem
EG Skrífstofubúnaður
Morgunblaðið/Halldór
BRIAN Wood, forstjóri Racal Survey.
hafði eftirlit með 30 farartækj-
um í eigu olíufyrirtækis með er
með vinnslu í eyðimörk. En það
kerfi sem hér um ræðir opnar
möguleika á eftirliti með fiski-
skipum en eykur öryggi sjófar-
enda um leið. Það er mun um-
fangsmeira, við höfum þróað
okkar búnað lengra og náum
þannig til miklu fleiri skipa á
mun stærra svæði.“
Wood segir ljölda aðila út í
heimi hafa fylgst vel með þróun
verkefnisins á Islandi. „Við mun-
um fyrst í stað beina sjónum
okkar að möguleikum í fiskveið-
um og reyna þannig að öðlast
traust viðskiptavina ef kerfið
reynist vel. En vissulega er
hugsanlegt að nýta þetta kerfi
við annars konar aðstæður þar
sem öryggi skiptir máli. Hér á
landi ætti að vera auðvelt að
auka notagiidi kerfísins þar sem
móttökustöðvar verða settar upp
á allri strandlengjunni. Kerfið
ætti því að geta nýst hvort sem
er í lofti, láði og legi.“
Búnaðurinn hefur verið til
reynslu í nokkrum skipum hér
við land í rúmt ár. Wood segir
það hafa reynst ótrúlega vel og
nánast engin vandamál komið
upp á ennþá.
Ármák 20, 1011 Keýkjitvlk. Híml 538 5000, Vu% 833 5901
„Brautryðj endastarf
í öryggismáluma