Morgunblaðið - 07.03.1998, Side 23

Morgunblaðið - 07.03.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 23 Vilja þátt- töku Tyrkja FULLTRÚAR Evrópusam- bandsins hvöttu Tyrki á Kýpur í gær til þess að taka þátt í að- ildarviðræðum eyjarinnar að sambandinu. Þær hefjast síðar í þessum mánuði og segja full- trúar ESB að boðið standi áfram, hafni Tyrkir boðinu. Stjórn gríska meirihlutans á Kýpur lagði inn aðildarum- sóknina. Breski fáninn á höllina BRESKA konungsfjölskyldan hefur ákveðið að taka breska fánann í notkun á Bucking- hamhöll, og blakti hann við hún á höllinni í íyrsta sinn í gær. Hann hefur einu sinni verið dreginn í hálfa stöng, vegna andláts Díönu prinsessu á síðasta ári. Konungsfjöl- skyldan hefur hingað til notað konungsfána en með því að flagga þjóðfánanum vonast hún til þess að styrkja tengslin við bresku þjóðina. Leitað að fé gyðinga FRANSKIR embættismenn hófust í gær handa við að hafa upp á bankareikningum sem talið er að geymi fé sem tekið var af gyðingum í heimsstyrj- öldinni síðari. Hefur verið skipuð nefnd til að leita að reikningunum og hafa henni ekki verið sett nein tímamörk til að ljúka starfí sínu. Hryðjuverka- manna leitað BELGÍSKA lögreglan hélt í gær áfram leit að mönnum sem grunaðir eru um aðild að GIA, alsírskum hryðjuverka- samtökum. Tveir voru hand- teknir en í fyrradag réðst lög- reglan inn í hús í Brussel og handtók átta menn sem taldir eru félagar í samtökunum. 300 myrtir í Kongó MANNRÉTTINDASAMTÖK í Lýðveldinu Kongó, sem áður hét Zaire, sögðu í gær að hersveitir Laurent Ka- bila forseta hefðu myrt um 300 manns í síð- asta mánuði. Sögðu sam- tökin að framin hefðu verið fjöldamorð í bæ í austurhluta landsins og að fómarlömbin hefðu verið óbreyttir borgarar. Lífvörður vitnar TREVOR Rees-Jones lífvörð- ur, sem lifði af bílslysið er varð Díönu prinsessu að bana, bar vitni fyrir frönskum dómara í gær vegna slyssins. Er það í annað sinn sem dómarinn yfir- heyrir lífvörðinn, sem segist nú muna eitthvað frá slysinu. Er dómarinn sagður öskureið- ur vegna viðtala sem lífvörður- inn veitti eftir að hann fékk minnið. Hvelfing yfir þing í Berlín Helmut Kohl reiður vegna „liðhlaups“ FDP-þingmanna Sambandsráðið innsigl- UNDIR hvelfingu fyrrverandi og verðandi þinghúss Þýzkalands í Berlín, Reichstag, er göngubraut og í gær voru margir að virða fyrir sér útsýnið. Endurbyggingu hússins á að ljúka næsta vor þegar áætlað er að stjómarsetrið verði flutt frá Bonn til Berlínar. Flutningur þingsins og ráðuneyta þýzku stjómarinnar til Berlínar var ákveðinn haustið 1990 og hefur frá þeim tíma verið ráðizt í að byggja heilt hverfi stjórnarbygginga í kring um þinghúsið gamla rétt hjá Brandenborgarhliðinu í miðri höf- uðborginni. Innri skipan þinghúss- ins var gerbreytt og þessari miklu glerhvelfingu bætt ofan á það. ar ósigur stjórnarinnar onn. Reuters. EFRI deild þýzka þingsins, Sam- bandsráðið, samþykkti í gær breyt- ingar á nýjum lögum sem veita lög- reglu auknar heimildir til að beita hlerunum við rannsókn sakamála, en í fyrradag beið samsteypustjóm Helmuts Kohls kanzlara ósigur í at- kvæðagreiðslu um breytingai-frum- varpið í neðri deildinni, Sambands- þinginu. Með samþykkt efri deildarinnar, sem fulltrúar þýzku sambandsland- anna 16 eiga sæti í, eru hin nýju lög Reuters formlega afgreidd og ganga í gildi um leið og Roman Herzog forseti undirritar þau. Kohl og aðrir frammámenn í rík- isstjóm hans vom í gær bálreiðir yfir þessum ósigri, sem er sá fyrsti sem stjórnin hefur orðið fyrir við af- greiðslu lagafmmvarps frá því hún tók við völdum 1982. Kohl beindi hvössum aðvöranarorðum til FDP í gær og hét því að þeir kæmust ekki upp með að skorast aftur undan merkjum. Nokkrir þingmenn Frjálsa demókrataflokksins, FDP, sem er í stjórnarsamstarfi með flokki Kohls kanzlara, Kristilegum demókrötum (CDU), greiddu atkvæði með stjómarandstöðunni og tryggðu þar með breytingartillögum hennar við „hleranarfrumvarp“ stjómarinnar brautargengi. Meðal „liðhlaupa" FDP vora heiðursformennirnir Hans-Dietrich Genscher og Otto Lambsdorff greifi og nokkrir aðrir fyrrverandi ráðherrar flokksins. Breytingartillögurnar fólust fyrst og fremst í að fjölga þeim starfs- stéttum sem bannað verði að beita hlerunum nema í sérstökum undan- tekningatilvikum. Þannig verða ekki aðeins prestar, þingmenn og verjendur sakamanna undanþegnir hleranarheimildinni, eins og gert KOHL leyndi ekki vonbrigðum sinum þegar stjómarþingmenn svikust undan merkjum. hafði vérið ráð fyrir í framvarpinu, heldur alls um 20 starfsstéttir, þar á meðal blaðamenn, læknar, endur- skoðendur og almennir lögmenn. Meðlimir þessara starfsstétta eiga allar sameiginlegt að vera bundnir trúnaðarskyldu. Austurríkismenn áhyggjufullir vegna austurstækkunar Evrópusambandsins Yilja tímabundn- ar takmarkanir á „fjórfrelsinu“ Búdapest. Reuters. AUSTURRÍSK stjómvöld era þeirrar skoðunar að Evrópusam- bandið muni sennilega þurfa að fresta um hríð gildistöku frjáls flæðis fólks frá hinum væntanlegu nýju aðildarríkjum í Mið- og Aust- ur-Evrópu um sambandið eftir að þessi ríld fá aðild að því en slíkt ferðafrelsi er ein stoð „fjórfrelsis- ins“ svokallaða á innri markaði ESB. „Nauðsynlegt kann að reynast að setja vissar tímabundnar takmark- anir, svo sem á sviði frjáls flæðis einstaklinga og þjónustu,“ sagði Peter Wittmann, ráðuneytisstjóri austurríska kanzlaraembættisins á ráðstefnu í Búdapest á fimmtudag. ESB hyggst hefja aðildarviðræð- ur við Ungverjaland, Tékkland, Pól- land, Slóveníu og Eistland, auk Kýpur, í lok þessa mánaðar. Reikn- að er með að þessi sex væntanlegu ESB-ríki fái inngöngu upp úr árinu 2002. Wittmann benti í erindi sínu á ráðstefnunni á að Austurríki, sem hefur 1.200 km löng landamæri sem liggja að þremur hinna umræddu væntanlegu ESB-aðildarríkja, ætti hvað mestra hagsmuna að gæta varðandi stækkun sambandsins til austurs, þar sem landið væri ber- skjaldaðra en önnur núverandi að- ildarríki fyrir þeim áhættum sem fælust í stækkunarferlinu. Hann sagði að þá áhættu sem tengdist inngöngu þessara ríkja í sambandið yrði að ræða umbúða- laust til þess að lágmarka hugsan- lega spennu í samskiptum núver- andi og verðandi aðildarríkja. Sem dæmi um slíka áhættu nefndi Wittmann hættu á auknu atvinnu- leysi vegna innstreymis nýs vinnu- afls á innri markaðinn. Annað dæmi væri að fyrirsjáanlegt væri að aðlög- un nýju aðildarríkjanna að sam- keppnisreglum ESB gæti reynzt þeim þrautin þyngri. Ennfremur sagði hann landbúnaðinn í núverandi ESB-löndum áhyggjufullan með til- liti til aukinnar samkeppni vegna ódýrrar landbúnaðarframleiðslu frá nýju aðildarlöndunum. . Ekkí bara blómabúð - Skeifunni 11d • 108 Reykjavik - við hlídina á Grittli Simi: 581 1185 • Fax; 581 1175 Opid mán. - lau. tra 13.00 - 18.30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.