Morgunblaðið - 07.03.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 07.03.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 25 Hófleg sykurneysla er ekki hættuleg heilsunni Fíkn í sætt bragð byrj- ar á fósturstigi og er talin mest á unglings- árum. Olafur Sigurðs- son matvælafræðingur segir að sykur hafi ým- is önnur hlutverk en að gefa sætubragð. SYKUR rotver sultur, sælgæti og ýmsa drykki. Pegar gosdrykkur er til dæmis auglýstur án rotvarnar- efna er rétt að hafa í huga að sykur- inn, koltvísýringurinn og sýran í drykknum hafa rotverjandi óhrif. Sykur gerir líka kökur mjúkar og rakar og gefur gullbrúna litinn á baksturinn. Við viljum því mörg hver ekki vera án sykurs. Hvítur sykur talinn hollari en púðursykur Sykrur eru einfóld kolvetni. Flók- in kolvetni eru hins vegar sterkja eða mjöl, sem eru langar keðjur ein- faldra kolvetna. Kolvetnin eru aðal- orkugjafí mannkynsins (hrísgrjón, hveiti). Pað eru til margar tegundir sykra sem er ýmist bætt í matvæli eða fínnast í náttúrunni. Flest okk- ar þekkja þó borðsykur eða súkrósu, sem eru tvær einsykrur; þrúgusykur+ávaxtasy kur (glúkósa+frúktósa). Aðrar sykru- tegundir eru t.d. sýróp og hunang. Engin aukahollusta fylgir hunangi, ef eitthvað er þá er meiri sykur í teskeið af hunangi og sýrópi en þurrsykri. Hvitur sykur er talinn hollari en púðursykur, því hann er hreinni! Til gamans má geta þess að í kók eru um 11% sykur en í góðum vínberjum, appelsínum og ferskjum getur verið um 15%-17% sykur (Brixmælt). Við fáum hins vegar fullt af vítamínum og trefjum úr ávöxtum en ekki gosdrykkjum. Ávaxtasykurinn í þessum ávöxtum er þó lítið hollari en borðsykurinn (súkrósan) í gosinu, nema hvað borðsykur skemmir frekar tennurn- ar. Sykur flokkast sem hráefni til matvælagerðar. Ef eitthvað væri hugsanlega athugavert við matvæli eða önnur efni sem notuð eru í þau, þá yrðu þau bönnuð eða takmörkuð notkun. Það er ofneyslan sem er óholl og það er mikil ofneysla á sykri hérlendis. Manneldisráð hefur Fljótleg kökugerð Fyrirtækið Nathan & Olsen hf. hef- ur um skeið séð um innflutning á kökudufti í pökkum frá Betty Crocker. I fréttatilkynningu frá Nathan & Olsen segh- að nú hafi bæst við níu tegundir af kökum. Það eina sem þarf að gera er setja egg og matarolíu í skál, hræra innihaldi pakkans saman við og baka í 20-30 mín. Þá er kakan tilbú- in. Þá er fáanlegt tilbúið krem á kök- urnar. Nýju tegundirnai’ af kökum eru m.a. hvít kaka, gulrótarterta, súkkulaðibitamúffur, bláberjamúff- ur, epla og kanilmúffur og súkkulaðibitasmákökur. Þá er hægt að fá tilbúið súkkulaði- og vanillu- krem. sagt að við eigum að fá 15% hámark af orku úr sykri, en við fáum 22%. Neyslan er talin mjög há hjá ung- lingum. Margir hafa áhyggjur af þessu, ekki síst foreldrar og tann- læknar. Að slepptri ofneyslu barna og unglinga og tannskemmdum er almennt talið að hófleg neysla á sykri hafí ekki skaðleg áhrif á heils- una. Gervisykur ekki hættulegur í hófi Fyrir þá sem vilja fækka hitaein- ingum úr mat er kjörið að velja syk- urskert matvæii eða jafnvel sykur- laus. Sætuefnin sem notuð eru í staðinn eru viðurkennd efni sem eru talin hættulaus undir leyfilegum mörkum samkvæmt reglugerð um aukefni. Á tungunni eru nemar fyrir sætt bragð, í sykursameind eru efnahópar sem snerta þessa nema. Gervisæta er með efnahópa sem snerta þessa nema á sama hátt og sykurinn. Þannig er verið að plata tunguna, til að skynja sætt bragð, án sykurs. 1970 komu fram um- deildar kenningar um að sykur ylli ofvh’kni í börnum. Itrekaðar rann- sóknir hafa ekki staðfest þetta. Of- virkni varð ekki vart í börnum jafn- vel eftir stöðuga og mikla sykur- neyslu. I einni rannsókn voru valin 6-10 ára börn foreldra sem voru þess fullviss að sykur hefði slæm áhrif á þau. Enginn munur fannst á hegðun þeirra hvort sem þau borð- uðu mikinn eða mjög lítinn sykur. Hins vegar kom í ljós að sykur róaði bömin, sem og fullorðna. Þessi áhrif verða þó lítt áberandi í bamaafmæl- um eða á öðrum hátíðum. Fitna ég af sykri? Ekki af sykrinum eingöngu. Ef við borðum of mikið, safnast fíta á okkur, sama hvort við borðum of mikið af sykri, próteinríkum mat eða feitmeti. Hreyfingarleysi veldur því að við brennum ekki nóg og þannig safnast á okkur enn meiri fíta. Bakteríur í munni nýta sykur- inn og framleiða sýra sem skemmir tennurnar. Verst er sifellt nart í sælgæti. Þá eru tennurnar alltaf baðaðar í sykri og tannsýklan þrífst vel. Rannsóknir hérlendis hafa bent til þess að þau börn sem era sífellt að drekka gosdrykki hafí verstu tannheilsuna. Ohófleg gosdrykkja veldur glerangstæringu (sýran), og tannskemmdum (sykurinn). Þetta er því slæm blanda. Talið er að 20% af nemendum í 10 bekk hérlendis séu með vott af glerungstæringu, þar af 3% þeirra alvarlega tæringu. I Reykjavík eru rúmlega 2.000 börn í 10. bekk. Svo virðist sem ung börn geti drukkið dísætan vökva þegar okkur mundi hrylla við bragðinu. Það á aldrei að setja sykur eða hun- ang á snuð, þá er verið að venja börnin á sætubragð og munnurinn verður löðrandi í sætu sem bakterí- ui-nar nýta. Börn sem era að fara að sofa eiga að fá vatn í pelann, ekki mjólk (mjólkursykur) eða djús (súkrósa). Hafíð það hugfast. Sykrinum hefur ranglega verið kennt um ýmislegt. Vonandi er þó eitthvert gagn af þessari samantekt frá samtökum bandarískra heimilis- lækna. Höfundur er matvælafræðingur. V/SA 5% greiða með veitir öllum sem _ VISA kreditkorti 3 70 rafraenan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt © FRIÐINDAKLUBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is PowerShot 350 stafræna ljósmyndavélin frá Canon gefur sannarlega tilefni til að gleðjast þvf ljósmyndun hefur aldrei verið eins einföld og þægileg sem nú. Þú ert með myndavél í höndunum, þar sem filman klárast j aldrei og þú getur skoðað myndirnar um leið og þú ert búinn að taka þær. llpplauin: 640x480 plxels, 24 blta. Minni: 2MÐ; allt að 47 myndir, stækkan legt i 15MB með allt að 352 myndir. Linia: 6mm, F2,8. Skjár Litaskjár LCD á baki myndavélar 1,8". Hægt að skaða teknar myndir. Hugbúnaður: Ulead Photbtmpact í. Win 95, TWAIN Driver og Adobe Plug In Module í. Wln 95 og Mac. Skaftahlíð 24 • Sími 5f9 7700 Slóð: http://www.nyherji:is Netfang: nyherji@nyherji.is \ Canon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.