Morgunblaðið - 07.03.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 41
AÐSENDAR GREINAR
I
Subaru 4WD hefur reynst með afbrigðum vel við íslenskar aðstæður
(+, v)
í=:l i«/\l tl J
skilgreinir þjóðina,
sögu hennar, vitund og
veru, segir Már
Jónsson og spyr: Mikið
rétt, en hvað svo?
um, útvarpi og sjón-
varpi, innanlands sem
utan. Sama gildir um
ljósmyndir af honum,
fjölskyldu hans og vin-
um.
Öll þessi atriði hafa
sjálfstætt gildi og
standa fyrir sínu, en
markmiðið með þessu
öllu saman ætti samt að
vera ítarleg og vönduð
ævisaga Halldórs Lax-
ness. Hann afkastaði
óhemju miklu og sam-
tíð hans var stórbrotin.
Varla duga færri en tíu
eða tólf mannár til
verksins og borin von
að hægt sé að ljúka við það fyrir ald-
arafmælið, en sjá má til þess að
einmitt þá megi hefjast handa við
ævisöguna. Það verður
ekki hægt nema fyrir
liggi sá grundvöllur
skráningar og saman-
tekta sem þegar er
getið. Samantektin
verður af þeim sökum
að bíða, en auðvitað má
nota þessi fjögur ár til
að skrifa hæfilega
langar bækur um af-
markaða þætti úr ævi
hans og mætti jafnvel
efna til samkeppni um
slík rit í líkingu við
bókmenntaverðlaun
sem veitt eru árlega í
hans nafni.
Hverjir eiga svo að
koma þessu í kring? Þar hlýtur
handhafi útgáfuréttar allra ritsmíða
Halldórs Laxness fyrir hönd fjöl-
Már Jónsson
skyldunnar að eiga drjúgan hlut að
máli og hugsar sér óefað til hreyf-
ings nú þegar. En hér er á ferðinni
meira verk en svo að ein bókaútgáfa
fái við ráðið, og þó þær væru tvær,
heldur þarf ríkisvaldið að koma til
sögunnar. Mér dettur í hug að
kostnaður við þá úttekt á æviverki
Halldórs sem ég hef gert að umtals-
efni, að viðbættum þáttum sem mér
kann að hafa sést yfír, geti numið
svo sem tíu milljónum króna á ári í
fjögur ár. Það er lítið fé fyrir mikinn
mann. Annað eins myndi ævisagan
kosta til viðbótar, en samanlagt er
þetta ódýrari framkvæmd en breyt-
ing á línubáti í túnfiskveiðiskip. Eg
legg því til að menn hefjist umsvifa-
laust handa og geri Halldóri Lax-
ness verðug skil á aldarafmælinu.
Höfundur er sagnfræðingur.
Nýr jeppi frá Suliaru
F=ORŒSTŒfl
Hvers virði er
Halldór Laxness?
Halldór hvorki meira né minna en
maður tuttugustu aldarinnar á Is-
landi. Hann skilgreinir þjóðina, sögu
hennar, vitund og veru. Mikið rétt,
en hvað svo? Nægja slíkum manni
eftirmæli í fjölmiðlum? Dugir það
landslýð að eignast fleiri eintök af
bókum hans? Vissulega hefur margt
verið skrifað um Halldór á undan-
fómum árum, en meira þarf til og
nú er lag, því eftir fjögur ár verða
liðin hundrað ár frá því hann fædd-
ist. Ýmsu má koma í verk fyrir þann
dag og hér fylgja fáeinar ábending-
ar.
í fyrsta lagi verður að ljúka við
að skrá bréfasafn hans, en það starf
mun vera komið vel áleiðis í hand-
ritadeild Landsbókasafns og væri
sjálfsagt lokið hefði ekki fjárskortur
hamlað því. Meirihluti bréfanna þar
er til Halldórs og jafnframt skrán-
ingu þeirra ætti að gera gangskör
að því að hafa uppi á bréfum sem
hann sendi frá sér. Þau liggja víða
og má hugsa sér að fólk sem ekki
vill láta þvílíka dýrgripi af hendi
leyfi ljósmyndun svo hægt verði að
gera nothæfa skrá og síðan ganga
að þessum efnivið á einum stað.
I öðru lagi þarf að gera vandaða
úttekt á handritum Halldórs og
minnisbókum, sem nú hafa verið af-
hent til varðveislu í handritadeild,
besta geymslustað sem hugsast get-
ur. Slík úttekt gerir fræðimönnum
kleift, þegar þar að kemur, að útbúa
krítískar eða fræðilegar útgáfur af
helstu skáldsögum Halldórs, þar
sem tillit er tekið til breytinga sem
hann gerði sjálfur þegar þær voru
gefnar út að nýju og grein gerð fyrir
því hvernig textinn breyttist í með-
förum frá handriti og vélriti til
prentaðs verks. Slík rannsókn er
mikilvæg leið til að skilgreina stflist-
Vor
1998
HALLDÓR Laxness andaðist 8.
febrúar og var jarðsunginn frá
Kristskirkju í Reykjavík sex dögum
síðar. Níu dögum eftir það var
hringt heim til mín á tíunda tíman-
um að kvöldi til og spurt hvort ég
vildi kaupa ritsafn Nóbelskáldsins á
95 þúsund krónur. Reyndar voru
ekki allar bækur hans til, en þó 41 af
51. Ekki spurði ég hvað bækurnar
höfðu kostað áður en höfundurinn
lést og veit þar af leiðandi ekki hvort
verið er að bjóða þjóðinni verkin á
tilboðsverði í tilefni dagsins eða
hvort útgefandinn ákvað að sæta
lagi og athuga hvað hann kæmist
langt með upplagið á sama verði og
síðustu árin. Víst er að mikið var í
lagt, því ekki færri en fimm sölu-
menn sátu við símann að sögn þess
sem ég talaði við.
Hægt væri að hneykslast á sölu-
herferð sem þessari svo skömmu
eftir andlát höftmdar, en það ætla ég
ekki að gera, heldur huga að nokkru
sem skiptir meira máli og varðar
framtíð Halldórs Laxness. Miðað við
þau orð sem ráðamenn landsins,
bókaútgefendur, bókmenntamenn
og ýmsir aðrir hafa látið falla er
Halldór Laxness
ann Halldór Laxness, hvernig hann
vann og hvernig textar hans urðu til
frá því að vera hikandi uppkast í að
vera þau mögnuðu ritverk sem við
þekkjum öll.
I þriðja lagi er brýnt að tekin sé
saman nákvæm ritaskrá Halldórs og
sætir furðu að það skuli ekki hafa
verið gert nú þegar. Hann birti til
dæmis óteljandi greinar í tímaritum
og blöðum, en gaf þær svo seinna út
í bókum, vafalítið eitthvað breyttar.
Einnig ætti að gera skrá yfir öll við-
töl sem tekin voru við hann í blöð-
Einstaklega gott útsýni boetir öryggi
í umferðinni.
Þú sest inn í Subaru Forester
(ekki upp í eða niður í) Veghceð 20 cm.
Ingvar
Helgason hf.
Sævamöfða 2
Sími 525 8000
Eins og öllum jeppum sœmir er Forester með
háu og lágu drifi,
^^jarræsibúnaði,
„Hill holder", þjófavörn,
fjarstýrðri samlæsingu,
þakbogum, ofl.
/ frosti og snjó er gott að geta
setið inni í stofu og sett Forester
í gang með fjarrœsibúnaðinum,
leggja síðan af stað í
upphituðum bílnum.
Verð frá krónum 2.225.000.-