Morgunblaðið - 07.03.1998, Side 50

Morgunblaðið - 07.03.1998, Side 50
50 LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Dóttir okkar, móðir, fyrrum eiginkona og systir, ÞÓRA MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR, er bráðkvödd varð á heimili sínu fimmtu- daginn 26. febrúar sl., verður jarðsett frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, laug- ardaginn 7. mars, kl. 16.00. Anna Jóhanna Oddgeirs, Friðrik Hjörleifsson, Borgþór Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir, Sigfús Ágústsson, Aurora Ágústsdóttir, Ágúst Borgþórsson, Aurora G. Friðriksdóttir, Bjarni Sighvatsson, Hjörleifur Friðriksson, Auðbjörg Sigurþórsdóttir, Jón Rúnar Friðriksson, Friðrik Þór Friðriksson og fjölskyldur. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður okkar, dóttur, systur og tengdamóður, BJARKAR AÐALHEIÐAR BIRKISDÓTTUR, Búhamri 13, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem hjúkruðu henni á Landspítalanum, Borgarspítalanum og Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, sem og öðrum fyrir margháttaðan og ómetanlegan styrk og hlýhug. Guð blessi ykkur. Bernódus Alfreðsson, Þórður Ólafur Rúnarsson, Ragnar Birkir Bjarkarson, Guðný Bernódusdóttir, Birkir Jónsson, Guðmundur Birkisson, Hrefna Birkisdóttir, Helga Birkisdóttir, Sólrún Bragadóttir, Erla Helgadóttir, Erla Guðjónsdóttir, Gísli Garðarsson, Ólafur Sólmundsson. Katrín Briem, Hugi Ármannsson, Ólöf Briem, Kári Leivsson Petersen, Brynhildur Briem, Hugi Baldvin Hugason. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BALDVINS PÁLMASONAR, Álfabyggð 1, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á B-deild dvalarheimilsins Hlíðar. Valgarður Baldvinsson, Sigrún Björgvinsdóttir, Gunnar Ingvi Baldvinsson, Jónína Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför móður minnar og tengdamóður, HÓLMFRÍÐAR ÁSBJARNARDÓTTUR, Hringbraut 69, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fyrir hlýhug og velvild fyrr og síðar. Dóra Snorradóttir og Hans Christiansen. ÞÓRA MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR + Þóra Margrét Friðriksdóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 14. febrúar 1955. Hún lést á heimili sínu í Blika- hólum 6 í Reykjavík 26. febrúar síðastlið- inn. Þóra var önnur í röðinni af sex systk- inum, en áður höfðu foreldrar hennar misst dreng á fyrsta ári, hann hét Hjör- leifur Arnar. For- eldrar Þóru eru Friðrik Ágúst Hjör- leifsson, bflstjóri, f. 16.11. 1930, og kona hans Anna Jóhanna Odd- geirs, sjúkraliði, f. 30.10. 1932. Systkini Þóru eru: Aurora Guð- rún, Ujörleifur Arnar, Jón Rúnar og Friðrik Þór. Þóra Margrét giftist eftirlif- andi barnsföður sínum, Ágústi Kæra vinkona. Mig rak í rogastans þegar hún Helga hringdi í mig seinnipart fimmtudagsins 26. febrúar, 12 dögum eftir að við Villý vorum í afmæli hjá þér, heima hjá pabba þínum og mömmu í Keilu- felli. Hún sagði: „Kiara, ég færi þér ekki góðar fréttir." „Nú,“ sagði ég. „Hvað?“ „Hún Þóra Margrét er dá- in.“ „Nei, það getur ekki verið.“ „Jú, ég var að heyra það.“ Eg bara fraus, ég vissi ekki hvað ég átti að gera: Ég fór að gráta en síðan titr- aði ég bara. Eins og þú veist, Þóra mín, þá er ég svona, byrgi bara inni í mér sárindi og sorg, ætli við höf- um ekki svipað hjarta. Hún svil- kona mín var hjá mér og ég sagði henni tíðindin, og sagði: „Þetta get- ur ekki verið satt.“ Ég hringdi í Auðbjörgu. „Jú, Klara, það er satt,“ sagði hún. Seinna kom Aurora syst- ir þín, og mér finnst hún hetja. Mikið fannst mér vænt um að hún skyldi koma, ég held að hún hafi súperkraft. Ég veit að hún er dug- leg og góð eins og þú sagðir. Þóra, ég er að spila uppáhalds diskinn okkar, Hærra til þín og lag númer 10 Hærra minn Guð til þín, sem við hlustuðum svo mikið á og ég tala nú ekki um spóluna sem þú áttir með söngnum hennar Gunnu þinnar eða okkar. Mikið vildi ég að þú hefðir arfleitt mig að henni, en við vorum ekki að fara að deyja, þó að við töl- uðum mikið um dauðann og vor- kenndum fólki mikið sem lenti í því sem þín fjölskylda á við að glíma, þó að þessi dauðdagi hafi verið þín ósk, en ekki svona snemma. Hann Hjörleifur afi var eilífur og við hestaheilsu eins og þú sagðir. Þóra, þú veist að ég er enginn penni, en við töluðum mikið um dauðann, sorgina og dulræn mál- efni, það átti hug þinn allan. Ég held að ég hafi lært af þér. Ég var ekki gömul þegar þú heillaðir mig. Jú, við vorum frænkur en við áttum heima í sömu götu fyrir gos. Þóra mín, við hvern á ég að tala, þú ert farin, eina trúnaðarvinkona mín sem ég hef átt og getað sagt allt við og þú varst svo úrræðagóð og trygg. Það var alveg sama hvað var að hjá mér í daglega lífinu eða hjónabandinu, þú gast hjálpað okkur, enda talaðir þú af reynslu þinni. Þóra mín, þú varst, eða ert, sú þrifalegasta manneskja sem ég hef þekkt, enda hlógum við oft að því þegar þú „stereliseraðir" með eyrnapinnum eða tannbursta heimilið þitt eða annarra. Þá á ég við heimili mitt þegar þú hjálpaðir mér við flutninga mína, sem eru ekki fáir, eða eins og þú sagðir við mig í mínum síðustu, Klara mín, ekki klára ég er að koma heim til Eyja og ég skal hjálpa þér, slapp- aðu bara af yfir jólin, ég kem og hjálpa þér, ekki tapa alveg heilsu á því. Og Þóra mín, þú sagðir alltaf, Klara mín, vinir manns eru þeir sem hjálpa manni í raun, en ekki Heiðari Borgþórs- syni, f. 3. aprfl 1952, hinn 27. september 1975. Þau slitu sam- vistir. Börn þeirra eru: Borgþór Frið- rik, f. 3. janúar 1974, Guðrún Ágústa, f. 17. febrúar 1976, Sigfús Gunnar, f. 9. ágúst 1981, og Aurora Anna, f. 18. október 1984. Þóra var alltaf útivinnandi við fisk- vinnslu nema síðast- liðin ár var hún heima vegna veik- inda og sinnti að hluta heimilis- hjálp eftir að hún fiuttist frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í ágúst sl. Utför Þóru Margrétar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyj- um í dag og hefst athöfnin klukk- an 16. þeir sem dæma mann eftir kjafta- sögum. Vinur í raun er vinur manns, enda veit ég að þú flokkaðir niður í þinni raun. Þeir sem ekki geta talað við mann í raun eða treyst manni, hlusta bara á kjafta- gang, geta bara gleymt manni eins og þeir gera. Elsku vinkona, ég þarf svo að gráta, en eins og þú veist þá bít ég á jaxlinn, ég er sterk eins og mér hefúr alltaf verið sagt, nema með þér, þú leyfðir mér að gráta og við grétum saman. Við eig- um, eða áttum, svo mikið sameigin- legt, sem átti ekki alltaf upp á pall- borðið hjá Pétri. Við vorum svolítið misskildar, en við vildum engum vont, langt í frá. Þóra mín, við hvem á ég að tala þegar þú ert farin? Ég á engan trúnaðarvin lengur. Ég veit að ég á góðan, eða eins og þú sagðir, ein- stakan eiginmann. Hann leyfði okk- ur að hlusta á Hærra minn Guð til þín og í bljúgri bæn. Þóra mín, ég vona að þér hafi verið ætlað annað og meira starf hinum megin og ég vona að góður Guð styrki bömin, foreldra þína og aðra ástvini. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarlmoss þú hjjóta skalL (V. Briem.) Far þú í friði, elsku vinkona, og friður Guðs þig blessi. Kveðja, þín vinkona. Klara og fjölskylda í Eyjum. Ég kynntist Þóm Margréti sum- arið 1972, þá kom hún á heimili mitt á Seyðisfirði með Ágústi syni mín- um, sem síðar varð eiginmaður hennar. Við Þóra urðum góðar vinkonur, maður vissi alveg hvar maður hafði hana, hún sagði umbúðalaust hvað hún meinti. Ætíð var gott að koma á heimill þeiRra, hún var góð hús- móðir, heimilið þeirra bar öll merki um natni, góðan smekk hennar. Þó svo að við værum ekki alltaf sammála um lífið og tilveruna slett- ist nú ekki upp á vinskapinn, fyrr en fyrir svona u.þ.b. 3^1 árum, að ég fór að skipta mér af því sem mér kom í raun ekkert við, en það kom við mig. Þóru líkaði ekki þessi af- skiptasemi mín, þannig að það kólnaði heldur á milli okkar. En ég veit að í dag er hún laus við allar þrautir, því Þóra var mikið þrjáð daginn sem hún lést. Þann dag var hún hjá lækni, án þess að fá bót meina sinna. Þóra Margrét og Ágúst giftu sig og eignuðust fjögur mannvænleg böm. Kæra Þóra, ég vil þakka þér fyrir öll árin Sem við áttum saman, og kærar kveðjur fylgja þessum fá- tæklegu línum frá Lilju og Viktori. „I æsku lærum við, með aldrin- um skiljum við,“ sagði einhver ein- hvers staðar. „Hluti vandans er að ég hef aldrei skilið til fulls að sum ógæfa hleðst upp, að hún kemur ekki öll í einu.“ (Janet Burrow 1937). „Ohöpp eru hluti lífs þíns, og ef þú deilir þeim ekki, þá veitir þú þeim sem elskar þig, ekki nauðsyn- legt svigrúm til að elska þig nóg.“ (Dinah Shore 1917). „Við getum ekki gert neitt mikilsvert, einungis smámuni með miklum kærleik." (Móðir Theresa.) „Tár þoma, en hjartað aldrei." „Ég held að hvert sem leiðin liggur, þá bíði þín nýir guðir í áfangastað, guðdómlega þol- inmóðir og hlæjandi." (Gullkorn úr lífi fólks.) Með sálminum nr. 619 í sálma- bókinni vil ég kveðja þig, Þóra mín. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefúr hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hjjóta skalL (V. Briem.) Góður Guð varðveiti þig og megi hann halda sinni almáttugri vemd- arhendi yfir öllum ástvinum þínum og börnum í þessari erfiðu sorg þeirra. Og Guð almáttugur varð- veiti Ágúst, því þetta em erfiðir tímar hjá honum. Guðrún Andersen, Seyðisfirði. Nú þegar komið er að leiðarlok- um langar mig að kveðja Þóra Mar- gréti með Ijóði eftir langömmu mína, Guðríði S. Þóroddsdóttur. Takk fyrir allt. Oft vonir bregðast vilja oss veitir þungt að sldlja Guðs voldugt vísdómsráð þú Guð, sem gleði vekur, þú gefúr og þú tekur, en öll þín stjóm er einskær náð. Oft falla fljótt að jörðu ífrostiogveðrihörðu hér fingerð, fógur blóm þú forsjón Guðs ert falin ogfegristaðurvalinn vér skiljum ei vom skapadóm. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til fjölskyldu hennar. Þóra Hrönn. Hún kom eins og köld vatnsgusa fregnin um lát þitt, Þóra mín, alltof skjótt og óvænt. Það fyrsta sem kom upp í huga minn var að það var svo margt óuppgert, svo margt sem við áttum eftir að ræða um í góðu tómi. Þegar öldunar hefðu róast bjóst ég við að við myndum saman sigla á lygnum sjónum, og tala um allt sem skiptir máli. En það verður því miður ekki, en ég trúi því að við fá- um tækifæri þegar við hittumst aftur. Upp í hugann hrannast minningabrot frá liðnum samveru- stundum. Ég man þegar ég sá þig fyrst, sætu kærustuna hans Gústa bróður, hérna á Seyðisfirði eftir gosið í Eyjum. Æltaf hlakkaði ég til að hitta ykkur. Ég dvaldi hjá ykkur í Breiðholtinu þegar ég var sextán ára og fór í aðgerð út af vinnuslysi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.