Morgunblaðið - 07.03.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 7. MARZ 1998 55
meðal okkar muntu alltaf lifa í
hjarta okkar.
Það sem kom helst upp í hugann
þegar við hugsuðum til baka var at-
orkusemin í þér og þitt eilífa bros.
Þú varst opin fyrir öllum og manni
leið alltaf vel í návist þinni. Þú hafð-
ir alltaf eitthvað gott og uppörvandi
að segja þegar eitthvað bjátaði á hjá
okkur, og þegar við stelpurnar
minntumst þíns eilífa bross kom í
ljós að enginn mundi nokkurn tíma
eftir þér með skeifu á andlitinu. Það
var einnig eitt af þínum aðalein-
kennum að þú tvínónaðir aldrei við
hlutina og gerðir það sem þú vildir,
sama hvað það var og sama hvað
hver sagði. Þú lifðir fyrir hvern dag,
en ekki framtíðina. Kannski sá guð
til þess, því hann vissi að hann
mundi brátt þurfa á þér að halda,
hver veit? En við erum aftur á móti
vissar um að með þessu hafi verið
tilgangur og að þú gegnir nú öðru
hlutverki annars staðar.
Við viljum þakka fyrir að hafa
kynnst þér, Gunnhildur, og vottum
fjölskyldu þinni og öðrum aðstand-
endum okkar dýpstu samúð. Megi
guð blessa ykkur öll á þessum erf-
iðu tímum.
Guð blessi þig og geymi, Gunn-
hildur. Þínar vinkonur og körfu-
boltafélagar,
Hjördís Birna, Bára Erna,
María Anna, Ingibjörg R.,
Rósa María, Guðrún K.,
Bonnie, Theodóra og Lára.
Drottinn gaf og drottinn tók. Það
er sárt að þurfa að horfa upp á að
ung stúlka í blóma lífsins sé tekin
frá okkur. Þann tíma sem við feng-
um að njóta nærveru Gunnhildar
Líndal var ávallt skemmtilegt. Hún
var ein af þeim stúlkum sem voru
jafnan kátar og hressar, bæði í
vinnu og leik. Það er erfitt að trúa
því að Gunnhildur skuli vera farin
frá okkur, en við trúum því að hún
sé komin til betri heima þar sem
hennar er gætt af hennar nánustu
sem voru komnir þangað á undan
henni. Við sem unnum með Gunn-
hildi í hreinsunardeild Flugleiða
viljum votta foreldrum hennar og
systkinum, svo og öllum ættingjum
og vinum, dýpstu samúð okkar og
biðjum góðan Guð að gefa ykkur
styrk til að takast á við þá sorg og
þann missi sem þið hafið orðið fyrir.
Að lokum viljum við kveðja Gunn-
hildi Líndal Ai-nbjörnsdóttur með
stuttri ferðabæn eftir Hallgrím Pét-
ursson.
í voða, vanda og þraut
vel ég þig fórunaut,
yfirmérvirztuvaka
og vara á mér taka,
Jesús mér fylgi í friði
með fögru englaliði.
Megi drottinn halda sinni vernd-
arhendi yfir þér og taka vel á móti
þér í ríki sínu.
Guð varðveiti þig að eilífu Gunn-
hildur Líndal Arnbjörnsdóttir.
Vinnufélagar hreinsunardeild
Flugleiða.
R A
AUBLVSINGA
TILKYNNINGAR
Bessastaðahreppur
Aðalskipulag Bessastaða-
hrepps — breyting
Tværtillögurað breytingu á aðalskipulagi Bessa-
staðahrepps 1993—2013 auglýsast hér með
samkvæmt 18. gr. skipulagslaga nr. 73/1997.
í annarri tillögunni er gert ráð fyrir breytingu
á svæði suðvestur af Sjávargötu, þar sem
tveimur íbúðasvæðum er breytt í eitt og stiga-
tengslum er breytt. í hinni tillögunni er fellt
burtframtíðaríþróttasvæði suðvesturaf íbúða-
hverfi við Blikastíg og framtíðaríbúðasvæði
suður af Blikastíg er minnkað. Þá er gert ráð
fyrir litlum tjörnum austur af Kasthúsatjörn
og stígatengslum á svæðinu er breytt.
Skipulagsuppdrættir verða til sýnis á skrifstofu
Bessastaðahreppsfrá kl. 10.00—15.00 alla virka
daga frá 9. mars til 8. apríl 1998. Athugasemd-
um skal skilað skriflega til sveitarstjóra Bessa-
staðahrepps í síðasta lagi föstudaginn 24. apríl
1998 kl. 15.00.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
Bessastaðahreppur
Nýtt íbúðahverfi
— deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi nýs íbúðahverfis suð-
vestur af Sjávargötu í Bessastaðahreppi, á
landspildu úrTröð, Deild og Landakoti auglýs-
ist hér með samkvæmt skipulagslögum
nr. 73/1997.
í hverfinu er gert ráð fyrir átján íbúðum í par-
húsum, níu íbúðum í raðhúsum, átta keðjuhús-
um og 23 einbýlishúsum.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá
kl. 10.00—15.00 alla virka dagafrá 9. marstil
8. apríl 1998. Athugasemdum skal skilað skrif-
lega til sveitarstjóra Bessastaðahrepps í síð-
asta lagi föstudaginn 24. apríl 1998 kl. 15.00.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
Bessastaðahreppur
Deiliskipulag
Kasthúsatjörn
Tillaga að deiliskipulagi svæðisins umhverfis
Kasthúsatjörn og að Bessastaðatjörn, á land-
spildu úr Akrakoti, Landakoti, N-Eyvindarstöð-
um og Breiðabólsstöðum auglýsist hér með
samkvæmt skipulagslögum nr. 73/1997.
Svæðið er skipulagt með sérstöku tilliti til nátt-
úrufars, lífríkis og endurheimt votlendis.
Skipulagsuppdráttur og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Bessastaðahrepps frá kl.
10.00—15.00 alla virka daga frá 9. mars til
8. apríl 1998.
Athugasemdum skal skilað skriflega til sveitar-
stjóra Bessastaðahrepps í síðasta lagi föstu-
daginn 24. apríl 1998 kl. 15.00.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
TIL 5ÖLU
FÉLAG5STARF
Síldarvinnslan hf
Aðalfundur
Síldarvinnslunnar h/f
Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður hald-
inn laugardaginn 14. mars 1998 kl.14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um breytingu á samþykktum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegartillögurog reikningarfé-
lagsins munu liggja frammi á skrifstofu þess,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Stjórn Síldarvinnslunnar hf.
Fundarboð
Félagsfundur í Byggingasamvinnufélaginu
Skjól, bygginga- og starfsmannadeild, verður
haldinn þriðjudaginn 17. mars nk. í Garða-
skóla, Garðabæ og hefst hann kl. 20.30.
Áfundinum verður borin upp tillaga um slit
á félaginu (síðari fundur).
Stjórnin.
Þessi glæsilegi Grand-Cherokee Laredo árg.
1994, er nú til sölu á útsöluverði. Glæsilegur
flöskugrænn jeppi með öllu, m.a. „air bag",
fjarst. samlæsingum, rafmagni, álfelgum, 30"
nagladekkjum, dráttarkúlu o.fl. Bifreiðin er ekki
tjónabifreið og er í topp standi. Verð aðeins
kr. 2.390.000 stgr. (listaverð 2,7 m). Áhvíl-
andi bílalán. Gotttækifæri til að eignast
vandaðan jeppa á hagstæðu verði.
Upplýsingum í síma 587 6051 og 895 8905.
VKjördæmisþing
Norðurlands eystra
Kjördæmisþing verður haldið laugardaginn 14. mars '98 i Fiðlaranum
á Akureyri, 4. hæð, og hefst kl. 10.00. Gesturfundarins verður Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
Frummælendur: Halldór Blöndal, samgönguráðherra og Tómas
Ingi Olrich, alþingismaður.
Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn kjördæmisráðs.
HÚSNÆÐI ÓSKAST
íbúð óskast strax
Flugfélagið Atlanta óskar eftir 2ja til 4ra
herbergja íbúðtil leigu norðan Elliðaáa sem
fyrst.
Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„I — 3696", fyrir 12. mars.
Upplýsingar eru ekki gefnar í síma.
ATVINNUHÚ5NÆÐI
Skrifstofuhúsnæði óskast
Traust fyrirtæki óskar eftir 140—180 fm skrif-
stofuhúsnæði sem fyrst til leigu eða kaups.
Æskileg staðsetning er í austurhluta Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 510 0400 á skrifstofutíma.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
T réskurðarnámskeið
Örfá pláss laus í mars og apríl.
Hannes Flosason,
sími 554 0123.
Barnaleikur
Námskeið í ungbarnakennslu
verða haldin í mars
og apríl þriðjud. og
laugard. kl. 15 í
Norræna húsinu.
Námskeiðin eru
einkum ætluð for-
eldrum barna 2ja
ára og yngri og
verðandi foreldrum og verður
m.a. kennt að útbúa námsgögn.
Leiðbeinandi: Kolbrún Sveins-
dóttir, menntaður kennari og
höfundur bókar um efnið.
Gjald er kr. 3.500 hálft fyrir
maka. Námsgögn innifalin.
Skráning í síma 561 6076 e.h.
Netfang: kolbrun@vortex.is
FÉLAGSLÍF
KR—konur
Fundur þriðjud. 11.
mars kl. 20.15. Páska-
skreytingar og föndur.
Fjölmennið í KR-heimilinu.
Nýja postulakirkjan,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta sunnudag ki. 11.
Veriö hjartanlega velkomin í hús Drotöns.
Frá Sálar-
^ rannsóknar-
félagi
íslands
Spíritistasamkoma verður haldin
sunnudaginn 8. mars kl. 14.00 á
Sogavegi 69 (húsnæði Stjórnun-
arskólans). Söngur, heilun, hug-
leiðsla, fyrirbænir o.fl. Nemi
spreytir sig á skyggnilýsingu.
Aðgangur er ókeypis. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
SRFl.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Kristniboðsvika. Samkoma og
KSS fundur. „ísmael, fyrirheiti
Guðs". Upphafsorð og bæn:
Friðrik J. Karisson. Ræðumaður:
Gisli Friðgeirsson. Söngur: Sig-
urður Bjarni og Jón Þór.
Allir velkomnir.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma i dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferðir sunnud. 8. mars
Kl. 10.30: Gengið á reka. Komið
við á Kópavogshálsi, Bitabæ í
Garðabæ og Sjóminjasafninu í
Hafnarfirði. Fróðleg og skemmti-
leg ganga í fylgd staðfróðra
manna á suðurströnd Reykjanes-
skagans. Verð kr. 1.300/1.500.
Kl. 10.30: Heiðin há, skiða-
ganga. Brottför kl. 10.30.
Verð kr. 1.200/1.400.
Heigarferðir:
13.—15. mars Góuferð í Bása,
Fararstjóri, Vignir Jónsson.
13.—15. mars Tindfjöll, skíða-
ferð á fullu tungli.
13, —15. mars Setrið. Spenn-
andi jeppaferð.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 8. mars
Kl. 10.30 Skíðaganga: Hellis-
heiði — Hverahlíð — Þrengsli
Brottför frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6.
Kl. 13.00 Heiðmörk sem úti-
vistarsvæði að vetri (nýtt).
Fræðsluferð með Skógrækt-
arfélaginu: Létt um 2 klst.
ganga og skógurinn skoðaður
undir leiðsögn sérfróðra manna.
Rjúkandi heitt skógarkakó í lok
göngu. Tilvalin útivera fyrir alla
fjölskylduna. Hægt að hafa j
gönguskiði.
Brottför eingöngu frá Mörk-
inni 6, verð 500 kr., frftt f.
börn með foreldrum.
Munið aðalfundinn kl. 20.00
á miðvikudagskvöldið 11.
mars í Mörkinni 6.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, fjölmennið.
Helgarferð í Tindfjöl á fullu
tungli 13. —15. mras
Kynnið ykkur páskaferðirnar
m.a. 3 dagar f Landmanna-
laugum.
Ferðaáætlun 1998 er komin út en
þar er hægt að kynna sér fjöl-
breytt úrval ferða, hún er einnig
á heimasíðu félagsins:
http://www.fi.is