Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 10

Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ þeir beiti svo alvarlegu ofbeldi þurfi að grípa til aðgerða til að beina þeim á réttan veg. Börn eða unglingar sem beiti alvarlegu of- beldi geri það yfirleitt ekki fyrir- varalaust, heldur sé ferill þeirra um hótanir og minniháttar líkams- meiðingar orðinn langur. „Þetta eru yfirleitt börn með 5-10 lög- regluskýrslur. Þeir sem eru komn- ir með 10-15 mál á bakið eru oft farnir að neyta fíkniefna eða mikils áfengis," segir Davíð. Aðspurður hvemig hann vilji sjá tekið á málum segir hann að á veg- um Félagsmálastofnunar, lögreglu, ÍTR, Flugbjörgunarsveitar, Sjó- vár-Almennra, Fangelsismála- stofnunar, Slökkviliðsins í Reykja- vík og Sjúkrahúss Reykjavíkur sé unnið mjög gott forvarnastarf með stráka sem taldir era vera í áhættuhóp. Þar sé verið að kenna þeim hvað er að vera gerandi og þolandi í verknaði og hvað er heil- brigð skynsemi. Hvert námskeið tekur þrjá mánuði. Hann segir árangurinn vera mjög góðan og að þriðjungur allra þeirra, sem tekið hafi þátt í hópunum, sé kominn á græna grein. Þriggja mánaða námskeið eða meðferð segir hann að kosti um 250-300 þúsund krónur fyrir átta stráka fyrir utan launakostnað tveggja leiðbeinenda. Til saman- burðar bendir hann á að einn ung- lingur, kominn nokkuð langt á af- brotaferlinum, kosti samfélagið 250 þúsund krónur upp í eina milljón á mánuði eingöngu vegna þeiiTa skemmda sem hann valdi. „Þessir strákar era með örfá mál á málaskrá. Hins vegar fer þetta forvarnastarf stundum til lítils þegar síbrotaunglingarnir, sem eru með 70-80 mál á skrá fara inn og út úr yfirheyrslu með þau tvöföldu skilaboð til þeirra sem við erum að vinna með og segja: „Þetta er ekk- ert mál. Þú gengur bara út úr yfir- heyrslu og berð ábyrgð á þessu síð- ar.“ Svo þegar mál þessara drengja eru tekin fyrir síðar, kannski 8-10 mál í einum pakka, fá þeir þriggja mánaða fangelsi. Það er engin lausn að taka einhvern pakka af- brotamála og henda drengjunum inn í einhvern tíma í refsiúrræði. Þeir þurfa meðferð. Það sem er svo vont í þessu era þessi tvöfoldu skilaboð. Síbrotadrengurinn kemur til þeirra sem eru að byrja feril sinn. Þeir líta upp tii hans vegna þess að hann kemst í gegnum kerf- ið,“ segir Davíð með þunga. Þolir enga bið Hann segir að mál af þessu tagi þoli enga bið og því verði að grípa til úrræða strax. Ekki þurfi að leggja í mikinn kostnað, þar sem hægt sé að nýta Krýsuvíkurskóla. „Kannski þyrfti 10-15 milljónir til að koma húsinu í stand, fjölga kennuram, bæta við sálfræðiþjón- ustu, bæta við vaktmönnum og tryggja reksturinn. Síðan er hægt að vera með verkþjálfun og skóla í Gunnarsholti sem dæmi. Það þarf ekkert að byggja nýtt heimili. Hins vegar þarf meðferðin að taka sex mánuði upp í tvö ár allt eftir þörf- um og með stigvaxandi frelsi og eftirmeðferð.“ Davíð segir að Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra haldi því fram að vandamálin séu ekki stórvægileg og þeim eigi að mæta með því að byggja meðferðarheimili í Skaga- fírði fyrir unga síbrotamenn. „Mik- ill meirihluti síbrotamanna er af Stór-Reykjavíkursvæðinu og mikil nauðsyn á að koma upp lokuðu heimili á því svæði. Þarna er um mjög langt leidda afbrotamenn að ræða. Þeir era miklir fíklar með langan feril. Foreldrarnir eru líka mjög sýktir af ástandinu. Það kemst enginn hjá því sem hefur gengið í gegnum slíkt ferli. Við verðum að hætta þessum einangr- unarhugsunarhætti og gera for- eldrunum kleift að taka þátt í með- ferð og eftirmeðferð. Ég sé ekki að þeir muni keyra norður í Skaga- fjörð á kvöldin. Fá þeir greiddan ferðakostnað eða umönnunarbæt- ur?“ spyr Davíð og bætir við að hér sé frumraun í því að vinna með unga afbrotamenn. Morgunblaðið/Kristinn HVERJIR bera ábyrgðina? spyr Davíð Bergmann unglingaráðgjafi. „Það eru að sjálfsögðu þeir sem veita fé til málaflokksins." Tvöföld skilaboð gera forvarnastarf að engu Þess er dæmi að 17 ára síbrotamanni hafí verið birtur dómur í fyrsta sinn þegar hann var kominn með 70-80 mál á ferilsskrá. Da- víð Bergmann unglingaráðgjafí segir í sam- tali við Hildi Friðriksdóttur að ástandið sé óþolandi og ógjörningur sé að vera með forvarnastarf fyrir unga afbrotamenn þeg- ar síbrotamennirnir, fyrirmyndir þeirra sem eru að hefja feril sinn, gangi inn og út úr yfírheyrslum á milli þess sem þeir halda áfram að fremja afbrot. Þessi tvöföldu skilaboð geri forvarnastarfið að engu. MUNURINN á 15 ára af- brotamanni og 15 ára síbrotamanni er sá, að hinn síðamefndi skilur ekki afleiðingar afbrota sinna. Það þýðir ekkert að birta slíkum manni skilorðsbundinn dóm. Hann þarf meðferðarúrræði og það strax í kjölfar brotsins til þess að hann tengi afleiðingu verknaðarins við dóminn.“ Þetta segir Davíð Berg- mann, sem fann sig knúinn til að senda alþingismönnum dreifibréf um málefni ungra afbrotamanna nú fyrir skömmu. Honum ofbýður að íslendingar skuli búa við þann veruleika að horfa upp á aðra eða þriðju kynslóð afbrotamanna án þess að bragðist sé nægjanlega við. Davíð hefur í nokkur ár unnið með unglinga, fyrst hjá Mótor- smiðjunni, síðan útideild Félags- málastofnunar og nú síðast sem unglingaráðgjafi hjá sömu stofnun. Hann bendir á að úrræði séu til fyrir unga afbrotamenn, eins og meðferð hjá SÁA, dvöl á sérhæfðu sveitarheimili og skammtímavistun að Stuðlum, en þar sé biðlistinn mjög langur. Um þarsíðustu helgi hafi til dæmis ekki verið hægt að koma inn bami, sem þurfti á 24 tíma vist að halda. Engin úrræði séu til fyrir unga síbrotamenn, sem þurfi annars konar meðferð en op- in meðferðarúrræði. Þurfa ekki að taka afleiðingunum Davíð segir að vandinn við unga afbrotamenn og síbrotamenn sé, að þeir beri aldrei ábyrgð gerða sinna. Þeir brjóti af sér, séu teknir í yfír- heyrslu og þeim síðan sleppt. „Við þurfum að mæta þessum hópi á hans þroskastigi. Ég er alfarið á móti langri refsivist, en það er eng- in hemja að bara ég einn skuli vera með sjö stráka á aldrinum 13-16 ára, sem eru með 41-75 mál á mála- skrá. Afbrotaferill þeirra heldur stöðugt áfram af því að engin úr- ræði era til. Jú, Litla-Hraun hefur tekið á móti einum þeirra, sem er 16 ára. Það er hins vegar búið að sleppa honum og síðan hann kom út fyrir nokkram dögum hefur hann brotið af sér tvisvar sinnum. Mér finnst augljóst, að harðar refs- ingar duga ekkert. Sem betur fer er þessi unglingur kominn í lokaða meðferðarvistun núna.“ Með hækkun sjálfræðisaldursins er meira svigrúm til að gn'pa inn í hjá ungum afbrotamönnum, að sögn Davíðs. Aður fyrr var mikið kapphlaup um að ná þeim áður en þeir urðu 16 ára. Hins vegar leggur hann mikla áherslu á að nánast engin úrræði séu fyrir þau ung- menni, sem era fædd 1980 og 1981. Þau séu á gráu svæði þar sem þau séu sjálfráða. „Þau era einhvern veginn afskipt vegna þess að þau fá leyfi til að hranna upp afbrotum. Um innra starf Barnavemdarstofu get ég ekki tjáð mig en ég veit að úrræðaleysi er í þessum mála- flokki. Sem betur fer er töluvert verið að gera en það er ekki nóg,“ segir Davíð. Alvarleg ofbeldismál Hann talar einnig um alvarleg ofbeldismál sem verða af völdum unglinga og segir að löngu áður en

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.