Morgunblaðið - 03.05.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.05.1998, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Greipar Ægis á Jómfrúnni LISTAMAÐURINN Greipar Ægis opnar sýningu á alíslensku listformi mánudaginn 4. maí á veitingastaðn- um Jómfrúnni, Lækjargötu 4. Þessi sýning er haldin í framhaldi af því að forseta- og varaforsetahjón Bandaríkjanna þáðu að gjöf átta listaverk eftir að hafa séð heimasíðu listamannsins. I kynningu segir: „Listamaðurinn sem tekið hefur sér nafnið Greipar Ægis fæddist í raun fyrir sjö árum, þrátt fyrir að hafa lifað í hálfa öld. Þá uppgötvaði hann algjörlega nýtt alíslenskt listform þar sem íslenskur sandur er notaður sem hráefni. Vissulega hafa menn notað sand til þess að gera listaverk en þau hafa verið þeim annmörkum háð að vera bara tímabundin. Tár tímans, sam- heiti yfír sandskúlptúra listamanns- ins, eru einstök vegna þess að það eru ekki notuð neins konar mót eða nokkur sérstök tæki eða tól við sköp- un þeirra og hvert verk er einstakt, enginn skúlptúr er eins.“ ------+++----- Norræn leiklistarverk- efni styrkt NORRÆNA leiklistar- og dans- nefndin hefur úthlutað styrkjum til verkefna á Norðurlöndum. Skemmtihúsið fékk styrk að upp- hæð 10.000 danskar kr. til að sýna leikverkið Ormstungu í Stofnun Árna Magnússonar í Kaupmanna- höfn. Hilmar Jónsson leikstjóri fær 21.800 danskar kr. til sýningarinnar Himnaríki í Sænska leikhúsinu í Ábo. Finnur Amar Ámason leik- myndahönnuður fær 21.800 danskar kr. til sömu sýningar á sama stað. Sömuleiðis hlýtur Kristian Vang Rasmussen leikmyndahönnuður 21.800 danskar kr. til sama verkefnis í Hálogaland-leikhúsinu norska. ----------+++----- Karlakór Keflavíkur í Ytri-Njarð- víkurkirkju KARLAKÓR Keflavíkur heldur sína árlegu vortónleika þriðjudaginn 5. maí og fimmtudaginn 7. maí í Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er Vilberg Viggósson. Undirleikari Ágota Joó á píanó. Annan undirleik annast Ás- geir Gunnarsson harmoníku og Þórólfur Þórsson á bassa. LISTIR Dóttir skáldsins íslenskur leikhópur sem er starfræktur í London, The Icelandic Take Away Theatre, sýnir um þessar mundir nýtt leik- rit eftir Svein Einarsson, The Daughter of the Poet, en Sveinn er líka leikstjóri þess- arar sýningar. Dagur Gunnarsson ræddi við Svein um uppsetninguna á verkinu. DAUGHTER of the Poet sækir efnivið sinn bæði i Egils sögu og Laxdælu og fjallar um ævi og örlög Þorgerðar Egilsdóttur. Þetta er stór og viðamildl sýn- ing sem mikið hefur verið lagt í og að henni standa margir lista- menn, í ^ aðalhlutverk- inu er Ásta Sighvats Ólafsdóttir sem leikur Þorgerði, fjölmörg önnur hlutverk em í höndum Ágústu Skúla- dóttur, Áma Péturs- sonar, Glódísar Gunn- arsdóttur og Neils Haigh. Katrin Þor- valdsdóttir hannaði búninga, Jón T. Bjamason leikmynd og Orri Pét- ursson sá um lýsingu. Tónlistin er fiutt og að miklu leyti frumsamin af Amgeiri Haukssyni, sem einnig bregður sér í mörg hlutverk til að miðla sögunni um dóttur skáldsins. - Hvert var upphafið að þessu framtaki? „Ég kom hingað til London með leikhóp sem sýndi Bandamanna- sögu á Northern Lights-hátíðinni 1992. Þá kom Anna Hildur Hildi- brandsdóttir, sem síðar varð fram- kvæmdastjóri The Icelandic Take Away Theatre, til mín með þá hug- mynd að setja upp sýningu hér og kynna betur þetta efni sem við ís- lendingar höldum fram að sé heims- bókmenntir. Hún sagði mér að það væri hópur af ungu og efnilegu fólki hér í London sem vildi gjaman kynna Bretum þennan íslenska menningararf. Ég var upptekinn í öðr- um verkefnum, Banda- mannasaga fór víða og þar á eftir vann ég að Amlóðasögu, en kom svo hingað í fyrravor, hitti hópinn og hélt námskeið eða leiksmiðju. Þar var mikið af efnilegu fólki og völdust sex manns í þessa sýningu, þar á meðal einn tónlistar- maður. Það era ekki all- ir tónlistarmenn færir um að falla inn í leikhóp, en ég vil að þeir séu með, taki þátt í leiknum og sitji ekki úti í homi. Ég tók síðan til við að skrifa leik- ritið með þennan hóp í huga og hitti þau síðan aftur um haustið. Þá hafði einn leikari helst úr lestinni og við ákváðum að fá til liðs við okkur Breta, sem reyndist mjög vel, m.a. vegna þess að þá fóru allar æfingar fram á ensku. Hópurinn er mjög samhentur og þau unnu öll að því að þjálfa sig upp sem eina heild; Glódís Gunnarsdóttir sá um líkamsþjálfun- ina, Amgeir Hauksson um söngtím- ana, Neil Haigh var með framsögn og ég er með æfingaprógramm sem ég hef þróað frá því ég vann með Bandamannahópnum." - Ertu kominn með formúluna að góðum leikhóp? „Ég segi kannski ekki að ég hafi uppgötvað formúluna, en þetta er ákveðin tækni eða aðferðir til að gera fólkið í hópnum samstemmt, til Sveinn Einarsson, leikstjóri. Burtfararpróf í Gerðubergi TÓNLEIKAR verða haldnir á veg- um Tónlistarskólans í Reykjavík í Gerðubergi þriðjudaginn 5. maí kl. 20.30. Tónleikarnir eru burtfarar- próf Hrannar Þráinsdóttur píanó- leikara frá skólanum. Á efnisskrá eru Frönsk svíta nr. 5 í G-dúr BWV 816 eftir J.S. Baeh, Sónata í D-dúr op. 10 nr. 3 eftir L.v. Beethoven, Islenskur dans eftir Hallgiím Helga- son, Sónatína íyrir Yvette eftir Xavier Montsalvatge, Et- þýða í As-dúr op. posth., Etþýða í f- moll op. 25 nr 2 og Ballaða nr. 3 í As- dúr op. 47 eftir Fr. Þráinsdóttir Chopin. Söngskólinn í Reykjavík SKOLAVIST 1997-98 Almenn deild Umsækjendur hafi einhverja undirstödumenntun í tónlist [nám eöa súngreynsluj og geti stundad námid ad nokkru leyti í dagskóla. Framhaldsdeild: Einsöngvara og söngkennaranám Umsækjendur hafi lokið 8. stigi í söng með framhaldseinkunn, ásamt hliðargreinum er því fylgja og geti stundað fulltnám í dagskóla. Unglingadeild: Aldurstakmark 14 ár Einsöngur og samsöngur, tónfræði og nótnalestur IMámskeið: Kennsla utan venjulegs vinnutíma Fyrir söngáhugafólk á Ollum aldri. Einsöngur.samsöngur og tónmennt Umsóknarfrestur um skólavist veturinn 1998-99 ertil 22. maí. Inntökupróf fara fram þriðjudaginn 26. maí frá kL. 13.00. Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu skólans að Hverfisgötu 45, simi 552-7366, þar sem allar upplýsingar eru veittar daglega frá kl. 10-17. Skólastjóri ÚR sýningunni „The Daughter of the Poet“. Ásta Sighvats Ólafsdóttir í aðalhlutverkinu. að fá það til að opna sig hvert gagn- vart öðra, þjálfa upp ímyndunarafi og framkvæði og jafnframt þróa með því næmleika hvert fyrir öðra. Þetta er nú ekkert sem ég hef fund- ið upp sjálfur, en ég hef tínt til og tileinkað mér hugmyndir sem koma víða að, sumt af þessu er komið frá Japan. T.d. þjálfa ég hópinn í því að vera mjög agaður í snöggum skipt- ingum milli öfgakenndra tilfinninga og þessu fylgir líka krafan um agað- ar hreyfingar og ákveðið jafnvægi í líkama. Þetta tengist allt í spuna- vinnu. Þessi hópur er búinn að vera mjög skemmtilegur að vinna með. Þau era öll starfandi hér og hafa öll fengið eitthvað að gera, sum era meira að segja enn í námi, en tóku þetta verkefni sem hálfgerða fóður- landsskyldu, ekki bara til að koma sjálfum sér á framfæri heldur líka íslenskri menningu." - Hvers vegna varð Þorgerður og hennar saga fyrir valinu? „Það var vinkona mín Bríet Héð- insdóttir heitin sem ýtti þeirri hug- mynd að mér. Þorgerður var kona sem var henni að skapi og þetta verkefni er því tileinkað minningu Bríetar." - Nú hafið þið fengið góða kynn- ingu hér í fjölmiðlum. „Já, við eram svo heppin að hafa fengið til liðs við okkur Magnús Magnússon, sem er náttúrulega stjórstjarna hér á landi, og hann var svo hrifinn af sýningunni að hann er búinn að fara í marga útvarpsþætti og viðtöl og hefur gert mikið til að kynna verkið. Þetta er heilmikil landkynning, hvemig sem á það er litið, og vekur athygli á sögunum, hvort sem gagnrýnendum líkar eða ekki. Það á eftir að koma í ljós.“ - Stendur til að fara leikför? „Það hefur ýmislegt verið nefnt í þeim efnum, bæði för í kringum London og nágrannabyggðirnar, og eins hefur komið til tals að fara á Leiklistarhátíðina í Edinborg og jafnvel heim til íslands. Þetta er jaðarleikhús, leikmyndin er mjög færanleg og þetta er hópur af ungu og ferðaglöðu fólki.“ Skömm í hatt fyrir að eigna sér Egil NORSKA ljóðskáldið Knut Odegárd les löndum sínum pistilinn í bréfi sem birtist í Aítenposten í vikunni. Skammar hann Norðmenn fyrir að eigna sér íslenskar bók- menntir og kallar það bókmennta- legt hernám en bréfið skrifar Odegárd í tilefni nýrrar útgáfu á yf- irlitsverki um norska ljóðlist. „Það er vandræðalegt að sjá hvernig við höldum áfram hernámi íslenska menningararfsins þrátt fyrir harðorð mótmæli Islendinga. Þeir lita á það sem þjófnað þegar við Norðmenn kynnum t.d. Egil Skallagrímsson sem norskt skáld og Mörkinni 3 • simi 588 0640 E-mail: casa@islandia.is •www.cassina.it • www.roset.de • www.zanotta.it • www.artemide.com • www.flos.it • www.ritzenhoff.de •www.alessi.il • www.kartell.it • www.fiam.it • www.fontanaarte.it Ijóð á borð við „Sonatorrek“ sem norskt ljóð,“ segir 0degárd. Hann nefnir Egil, Kormák Ög- mundsson, Sighvat Þórðarson, Ein- ar Skúlason og Eystein Ásgrímsson og minnir á að Norðmenn þurfi að breyta stafsetningu nafnanna svo að þau verði norskari útlits, auk þess sem þýða þurfi kveðskapinn þar sem Norðmenn skilji ekki leng- ur þessi „norsku“ ljóð. 0degárd segir að ítrekaðar inn- rásir í íslenskar bókmenntir ýti undir andúð gagnvart Norðmönn- um og að íslendingar fari að gruna þá um græsku. Norðmenn eigi vík- ingaskipin og dómkirkjuna í Niðar- ósi en íslendingar bókmenntirnar og að þeir verði að fá að eiga þær í friði. 0degárd kveðst svo sem geta litið fram hjá því að Norðmenn slái eign sinni á nokkur Eddukvæðanna, þótt þau hafi verið skrifuð á íslandi, sé mögulegt að einhver þeirra hafi orðið til í Noregi og flust til fslands. Engin leið sé hins vegar til að rétt- læta að Egill Skallagrímsson, sem barist hafi gegn yfirráðum Noregs- konungs, sé gerður að Norðmanni. „Þá nægir ekki heldur að höfundur eða verk hans sé elskað og virt í Noregi og að það hafi þýðingu fyrir sögu okkar og ímynd (Snorri er dæmi um það), því þá yrðum við einnig að segja Biblíuna norska." www.mbl.is/fasteignir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.