Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.05.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 21 FRETTIR Frakkar taldir teíja Schengen-viðræður ÓEININGAR hefur gætt að und- anförnu meðal Evrópusambands- ríkjanna í afstöðunni til þess hvernig skuli breyta Schengen- samningnum svo tryggja megi áframhaldandi þátttöku Noregs og Islands í samstai-finu. Fyrst og fremst eru það Frakk- ar sem eiga erfítt með að fallast á kröfu Islendinga og Norðmanna um að áhrif þeirra á ákvarðana- töku í málefnum sem heyra undir Schengen-samninginn um afnám vegabréfaeftirlits minnki ekki við að samningurinn verði sameinaður stofnsáttmála ESB, en ákveðið var að gera það á leiðtogafundi ESB í Amsterdam í fyrrasumar. Islendingar og Norðmenn, sem eru aukaaðilar að samningnum vegna aðildar sinnar að norræna vegabréfasambandinu, hafa lagt áherzlu á að áhrif þeiiTa á ákvarð- anatöku í Schengen-málum minnki ekki við að hann sé færður undir ESB, enda var það samþykkt í Am- sterdam að aukaaðildarsamningar Islands og Noregs héldu gildi sínu, þótt laga þyrfti þá að breyttum að- stæðum. Þetta þýðir að fulltrúar Islands og Noregs haldi setu- og tillögu- rétti á ráðherrafundum, þar sem Schengen-mál eru til umræðu. ESB-ríkin eiga misjafnlega erfítt með að sætta sig við þetta, þar sem reglan er sú í ESB að engir aðrir en fulltrúar fullgildra aðildarríkja fái aðgang að ákvarðanatöku á ráð- herrastigi. Sum eru tilbúin að sýna nægi- legan sveigjanleika til að mögu- legt sé að koma til móts við kröfur íslendinga og Norðmanna og þrýsta Danir, Svíar og Finnar á um að þetta verði gert, en önnur, Frakkar þar fremstir í flokki, halda fast í að engar undanþágur verði veittar frá hefðbundnum vinnureglum ESB í þessu sam- bandi. Auk Frakka munu það einkum vera Belgar, Spánverjar og Italir sem hafa slíka fyrirvara. Óttast fordæmisgildi Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra íslands hjá ESB, sagði í samtali við Morgunblaðið að Frakkar vildu gefa sér tíma til að skoða þetta mál mjög vel, þar sem þeir óttast fordæmisgildi þess að leyfa ríkjum utan ESB svo víðtæk áhrif á ákvarðanatöku á vettvangi ESB-samstarfsins. Sagðist Gunn- ar þó ekki búast við því að and- staða Frakka við kröfur Norð- manna og Islendinga væri slík, að þeir væru tilbúnir að beita neitun- arvaldi gegn því að þær næðu fram að ganga. Gunnar minnti á, að ESB-ríkin gerðu sér grein fyrir, að þau hefðu skuldbundið sig í Amsterdam til að tryggja íslendingum og Norð- mönnum áframhaldandi þátttöku í Schengen-samstarfinu, án þess að fullrar aðildar þeirra að ESB yrði krafizt. Knut Vollebæk, utanríkisráð- herra Noregs, impraði á Schengen- samningunum á nýlegum fundi með hinum franska starfsbróður sínum, Hubert Vedrine. Mun, að sögn Aftenposten, franska stjómin hafa heitið því, að það ætti að vera mögulegt að fínna farveg fyrir þátttöku Norðmanna og íslendinga í Schengen-samstarfínu. Schengen-mál voru einnig á dagskrá fundar Vollebæks með Törju Halonen, utanríkisráðherra Finnlands, í síðustu viku. Lýsti Vollebæk áhyggjum yfír þeim seinkunum sem orðnar eru á við- ræðunum og taki þær ekki kipp sé tvísýnt hvort takist að ganga frá málum þannig að Schengen-samn- ingurinn geti, með nauðsynlegum breytingum, gengið í gildi 1. janú- ar nk., samtímis gildistöku Am- sterdam-sáttmálans. BUIÐ OG STARFIÐ í BANDARÍKJUNUM 55.000 innflytjendaáritanir (Green Card) eru í boði í nýju Ríkishappdrætti "U.S. Government Lottery". Möguleiki á bandarískum ríkisborgararétti. Opinbert happdrætti, ókeypis þáttaka. Upplýsingar: Sendið einungis póstkort með eigin nafni og heimilisfangi til: NATIONflL^Sf VISA SERVICE 01997 IMMIQRAnON SERVICES 4200 WISCONSIN AVENUE N.W. WASHINGTON, D.C - 20016 U.S.A. FAX 00 1 202 298-5601 - Sími 00 1 202 298-5600 www.nationalvisacenter.com m jm Jóga gegn kvíða nteð Ásmundi Gunnlaugssyni. Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 5. maí. Jógatímar, tækjasalur og pólunarmeðferð. ■ Y0GA STUDIO ■ Hátúni 6a, sími 511 3100 verslun fyrir líkama og sál wmmmmmmmmmmr Húsafriðunarnefnd út- hlutar nærri 47 milljónum SAMÞYKKTIR hafa verið 175 styrkir hjá Húsafriðunarnefnd rík- isins að upphæð 46,9 milljónir á þessu ári sem aðallega fara til end- urbygginga og viðhalds gamalla húsa um landið allt. Húsafriðunar- nefnd stjómar húsafriðunarsjóði en hlutverk hans er að veita styrki til viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og mannvirkjum. Sú nýbreytni var tekin upp árið 1996 að veita stóra styrki, þá að upp- hæð ein milljóri kr. hver, til verkefna í hverjum landshluta í samræmi við nýja stefnumörkun Húsafriðunar- nefndar. Þessir styrkir hafa nú verið hækkaðir í 1.250 þúsund kr. Sex hús fengu slíkan styrk: Þingholtsstræti 23 í Reykjavík, sem byggt var árið 1914, Stykkis- hólmskirkja en hún var byggð árið 1879, Faktorshús í Hæstakaupstað á ísafírði sem er frá árinu 1778, Syðstabæjarhúsið í Hrísey, byggt 1886, Kaupangur á Vopnafirði en það var reist árið 1882 og Brydebúð í Vík í Mýrdal sem var byggð 1895. Auk styrkja til endurbóta á hús- um eru veittir styrkir til húsa sem hafa menningarsögulegt eða list- rænt gildi og sjóðurinn styrkir enn- fremur gerð húsakannana og rann- sóknir á íslenskum byggingararfi og útgáfu þar að lútandi. Væntanlegt er bráðum ritið „Utveggir, grind og klæðningar" í ritröð Húsafriðunar- nefndar um viðgerðir gamalla timb- urhúsa og síðar á árinu kemur út ritið „íslensk byggingararfleifð“ sem er ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940 sem er eftir Hörð Agústsson. I Húsafriðunarnefnd sitja Þor- steinn Gunnarsson arkitekt sem er formaður nefndarinnar, Guðrún Ki’istinsdóttir, forstöðumaður Minjasafns Akureyrar, Guðmundur Gunnarsson arkitekt, Magnús Kar- el Hannesson, oddviti Eyrarbakka- hrepps, og Þór Magnússon þjóð- minjavörður. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Magnús Skúlason arkitekt. pænSR k, sío’i Skenk ur m/ spegli kr. 41.: Skattkol kr. 69.071 HUSGOGN NNRETTINGAR Síðumúla 13, sími 588 5108 H O N D A 5 d y r a 2.0 i 12 8 h e s t ö f l Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður -íi.n.ila.li.ð..í verði bílsins S 2.01 4 strokka 16 ventla léttmáImsvél s Loftpúöar fyrir ökumann og farþega S Rafdrifnar rúður og speglar V ABS bremsukerfi ■s Veghæð: 20,5 cm s Fjórhjóladrif ■y Samlæsingar s Ryövörn og skráning y Útvarp og kassettutæki ■y Hjólhaf: 2.62 m y Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m samanbur'ð Verð á götuna: 2.285.000.- með abs Sjálfskipting kostar 80.000,- (0 HOIMDA Sími: 520 1100 Umboðsaðilar: Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.