Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 36

Morgunblaðið - 03.05.1998, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ SS-HUSIÐ í Laugan það fyrir augum að verða iistaháskóli. ÞAÐ votfcar fyrir vax- andi spennu og óþreyju í okkar hópi,“ segir Halldór Eiríks- son, formaður nem- endafélags Myndlista- og handíða- skóla Islands, um fyrirhugaðan listaháskóla. „Við erum farin að finna blóðbragðið því nú er tekið að tala um framvindu málsins í vikum í stað ára. Það liggur í loft- inu að eitthvað fari að gerast." Halldór telur að fyrirsjáanlegur kostnaður við breytingar á gamla SS-húsinu vaxi ráðamönnum í aug- um. Starfsemi MHÍ er að hluta til flutt í húsið en mikið verk er enn fyrir höndum. „Húsið hentar að sumu leyti ekki vel, þarna eru til dæmis mjög breiðir gangar sem voru hannaðir til að keyra í gegn vögnum með kjötskrokkum. Innanstokksbreyt- ingar munu líklega kosta jafnmikið og ef byggt hefði verið sérhannað húsnæði fyrir starfsemi listahá- skóla.“ Að mati Halldórs er þetta visst áhyggjuefni og gæti dregið stofiiun Listaháskóla fslands á langinn. „Eins og ástandið er á sjúkrahúsunum og víðar væri nán- ast pólitískt sjálfsmorð fyrir hvaða þingmann sem er að standa upp og óska eftir 800 milljónum í húsnæði fyrir listaspíruháskóla.“ Hann segir MHÍ, Tónlistarskól- ann og Leiklistarskólann þó fyrst og fremst vilja koma í gegn form- legum breytingum á eigin skipu- lagi, það er færast upp á háskóla- stig. „Skólastjóri MHÍ hefur þegar lagt íram slíka áætlun að sínu leyti. Kennsla þrefaldast við það að breyta skólanum í háskóla en launakostnaður eykst hins vegar ekki nema um 10% því starfsaldur fylgir kennurum ekki á milli skóla- stiga. Þetta ætti þannig ekki að kosta nema nokkrar milljónir og endanleg sameining skólanna yrði síðan að veruleika um leið og hús- næðið hefur verið innréttað," held- ur Halldór áfram. verið olnbogabarn í menntamála- ráðuneytinu. „Við erum sendir frá Heródesi til Pílatusar í ráðuneyt- inu ef við eigum þar erindi fyrir hönd skólans. Fulltrúi framhalds- skólanna sver okkur af sér og deildarstjóri háskóladeildarinnar fer heldur ekki með okkar mál. MHÍ er skilgreindur upp og niður eftir atvikum og það er ótækt bæði fyrir nemendur og starfslið skól- ans.“ Halldór segir frá tilraunum sínum til að útskýra eðli MHÍ fyrir útlendingum og kveður það óðs manns æði. „Þessi staða er ekki einungis skrautleg heldur líka skemmandi. Það má ekki dragast öllu lengur að sinna listaskólunum í landinu af einhverju viti. Þolin- mæði okkar er senn á þrotum.“ Vilja viðurkenningu Þau Friðrik Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir og Agnar Jón Egilsson útskrifast öll frá Leiklist- arskóla íslands í vor. Fyrir þeim snýst Listaháskólinn um tvennt: Annars vegar að sameina list- greinar í einn skóla og hins vegar að fá viðurkenningu fyrir námið sem þau hafa lagt stund á í fjögur ár. „Við fáum framhaldsskólaskír- teini fyrir sams konar nám og er- lendir nemar fá háskólagráðu fyr- ir,“ segja þau og telja möguleika til framhaldsnáms erlendis skerta vegna þessa. Reyndar sé Leiklist- arskólinn virtur víðast hvar í Evr- ópu en oft geti verið erfitt að kom- ast að í Bandaríkjunum. Þótt tál- tölulega fáir leikarar fari í fram- haldsnám á möguleikinn að þeirra mati að vera fyrir hendi. „Margir halda að hlutverk Leiklistarskóla Islands sé einungis að unga út leikurum sem stökkva beint upp á fjalir stóru leikhúsanna en námið snýst um fjölmargt fleira.“ Skapandi vettvangur lista Við sameiningu Leiklistarskól- ans, Myndlista- og handíðaskóla fslands, Tónlistarskóla Reykjavík- IMyndlista- og handíðaskóla íslands er hafið evrópskt meistaranám í grafík sem skipulagt er af kennara við skól- ann. Hins vegar hefur skólinn ekki leyfi til að útskrifa nemendur með BA-gráðu en slík gráða er í raun forsenda námsins. Þannig er MHÍ stundum háskóli en stundum ekki. Þessi tilraun til samevrópskrar meistaragráðu hefur vakið verðskuldaða athygli víða erlendis. Náminu er alfarið stjórnað frá MHI og mun útskriftin fara fram í Reykjavík vorið 1999. Á meðal þeirra sem námið stunda er íslenskur nemi sem lokið hefur þriggja ára námi við MHÍ. Hann hefúr ekki BA- próf upp á vas- ann frekar en aðrir útskriftamemar skól- ans, en nám hans er þó metið sem slíkt. Óréttlæti viðgengst „Við lítum svo á að það sé listaháskóli sem komi til með að útskrifa umrædda MA-nemendur og þá gildir einu hvort Listaháskóli Islands verður orðinn að veraleika,“ segir Gunnsteinn Gíslason, skólastjóri MHÍ. „Við eram í raun starf- ár, rétt eins og Tónlistarskólinn í Reykja- vík. „Þetta veldur þó ýmsum örðugleik- um, til að mynda fyrir nemendur okkar sem sækja um framhaldsnám í Banda- ríkjunum. Þar er lítill skilningur á „ígildi“ BA-gráðu;menn vilja sjá alvöru háskólaskírteini. I Evrópu hafa nemend- ur okkar hins vegar mætt meiri skilningi og við eigum gott samstarf við evrópska háskóla." MHÍ tekur virkan þátt í alþjóðlegum stúdentaskiptum og tíu prósent nem- enda við skólann eru útlendingar. Hins vegar bregður svo við að erlendu nem- arnir fá nám sitt i MHÍ metið sem há- skólanám í heimalandi sfnu á meðan ís- lensk bekkjarsystkini þeirra sitja eftir án BA-gráðu að loknu námi. Gunnsteinn telur að þetta óréttlæti verði að leið- rétta, eigi skólinn að halda samkeppnis- stöðu sinni. „MHI er orðinn afar eftir- sóttur í alþjóðlegu samstarfi og okkur berast æ oftar spennandi tilboð frá virt- um listmenntastofnunum. Því miður eig- um við erfitt með að þiggja slík boð á meðan við getum ekki staðfest okkur sem háskóli. Aðstaða okkar í öllum skólastjórnenda sem Sigurbjörg Þrastar- dóttir og Guðrún Norðfjörð ræddu við. Olnbogabam í kerfinu Hann segir skólana hafa reynt ýmsar leiðir til að koma málinu á hreyfingu, meðal annars hafið um- ræður um önnur hús í borginni, en eins og kunnugt er keypti ríkið Laugarnesveg 91 af Sláturfélagi Suðurlands fyrir starfsemi listahá- skóla. „Nemendur hafa hins vegar ekki beitt sér í málinu svo heitið geti. Reynt var að stofna Félag listháskólanema en það rann út í sandinn enda eru skólamir mis- stórir og ekki í mjög nánum tengslum. Samvinna á listasviðinu hefur þó verið nokkur og eykst vonandi þegar sameiginleg menntastofnun verður að veru- leika undir sama þaki.“ Halldór segir að nemendur muni láta að sér kveða um leið og línur fari að skýrast, það sé ekki auðvelt á meðan óljóst sé hverjir fari með ráð væntanlegs listahá- skóla. „Ríki og borg karpa, bráða- birgðastjómin hefur ekkert um fjárráðin að segja og skólastjórar listaskólanna em ekki yfirmenn þess skóla sem er í bígerð. Hver á að tala við hvem og hvenær? Okk- ur vantar raunverulega stjóm til þess að stýra umræðunni og koma á kjölfestu. Annars bíðum við nú eftir viðbrögðum ráðuneytisins við skýrslu bráðabirgðastjórnar og ef framkvæmdaáætlun berst ekki þaðan er eina leiðin að leita stuðn- ings á Alþingi." Halldór segir MHÍ alltaf hafa Listaháskóli T---------- Islands hefur oft vitrastlist áhuga fólki í draumi en nú er orðið tímabært að hann taki á sig mynd í veruleikanum Þannig hljóðar krafa þeirra námsmanna og GUNNSTEINN Gíslason, skólastjóri MHÍ. Virtur erlendis en vanmetinn á Fróni andi háskóli eins og þeir vita sem til þekkja. Evrópusambandið viðurkennir okkur sem háskóla með því að heimila fyrrgreinda meistarabraut og fjármagna undirbúning hennar. Formlega háskóla- viðurkenningu vantar hins vegar frá ís- lenskum yfirvöldum og það er nauðsyn- legt að hún fáist sem fyrst.“ Að sögn Gunnsteins hefur MHÍ verið rekinn líkt og háskólastofnun undanfarin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.