Morgunblaðið - 03.05.1998, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg systir okkar,
SNÆLAUG FANNDAL
ÞORSTEINSDÓTTIR
Bólstaðarhlíð 40,
Reykjavík,
sem lést á heimili sfnu, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 6. maí kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
líknarfélög.
Stefanía Þorsteinsdóttir,
Jóhanna M. Þorsteinsdóttir,
Arnfríður Þorsteinsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
FANNEY HELGADÓTTIR,
Asparfelli 4,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 6. maí kl. 15.00.
Karl Ásgeirsson,
Ásgeir Ásgeirsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
+
Móðir okkar,
HREFNA PJETURSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 5. maí kl. 13.30.
Pjetur Hafstein Lárusson,
Svavar Hrafn Svavarsson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug, við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS HARALDSSONAR
húsasmíðameistara,
Miðvangi 69,
Hafnarfirði,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á gjör-
gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Tyrfingsdóttir,
Eyrún Ólafsdóttir,
Kristján M. Ólafsson, Lydía Ósk Óskarsdóttir,
Haraldur Garðar Ólafsson
Ólöf og Ingi,
Lydía Hrönn og Iðunn Rún.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
málarameistara,
Kópavogsbraut 10.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
Kópavogi, fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Samúel Guðmundsson, Ásta Guðmundsdóttir,
Einar Þór Samúelsson, Ásta Hjördís Valdimarsdóttir,
Tanja Dögg Einarsdóttir,
Guðmundur Jónsson, Sigurður Jónsson,
Kristján Jónsson.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug, við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HALLDÓRU S. JÓNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis í
Dalsgerði 3F, Akureyri,
Rannveig Helga Karlsdóttir, Þormóður Helgason,
Einar Karlsson, Sigurjóna Sigurjónsdóttir,
Heiða Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
YNGVIORN
AXELSSON
+ Yngvi Örn Ax-
elsson fæddist á
Syðri-Bakka í
Kelduhverfi í
Norður-Þingeyjar-
sýslu 15. nóvember
1921. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
hinn 24. apríl síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru Axel
Jónsson kennari og
bóndi, f. í Sultum í
Kelduhverfi 27. júlí
1889, d. á Núpi í
Öxarfirði 9. október 1927, og
kona hans Sigríður Stefanía
Jóhannesdóttir, húsmóðir í Ási
og kvenréttindakona og stofn-
andi kvenféiaga víðsvegar í
sýslunni, f. á Skútustöðum í
Mývatnssveit 17. maí 1882, d.
á Akureyri 20. júní 1970.
Yngvi átti fjögur systkini, þau
Óttar Braga, Auði, Kristínu og
Áslaugu, en hún er látin.
Hinn 9. júlí 1949 kvæntist
Yngvi Margréti Nikulásdóttur,
f. 11. janúar 1925. Þau hafa
alltaf haft búsetu í Ási í Keldu-
hverfi. Börn þeirra eru: 1)
Nikulás Smári Steingrímsson.
Fyrrv. kona hans er Hlíf Geirs-
dóttir, börn þeirra Margrét
Herborg, Arnar Geir og Sig-
Þær minningar sem ég á um
pabba eru mjög góðar. Hann var
ekki maður margra orða en sýndi
urður Sveinn.
Smári er nú kvænt-
ur Clair Crocott og
eru þau búsett í
Englandi. 2) Þor-
valdur Yngvason,
kona hans er Elín-
borg Sigvaldadótt-
ir, börn þeirra
Heiðar Smári og
Hugrún Ásdís, bú-
sett á Húsavík. 3)
Axel Jóhannes
Yngvason, kona
hans er Birna
Snorradóttir, börn
þeirra Ólöf Huld Matthíasdótt-
ir, Sunna Axelsdóttir og Hild-
ur Axelsdóttir, búsett í Eyja-
fírði. 4) Kristinn Sigurður
Yngvason, ókvæntur og barn-
laus, búsettur á Tóvegg í
Kelduhverfi. 5) Auður Guðný
Yngvadóttir, maður hennar er
Helgi Hinrik Schiöth, börn
þeirra Brynjar Gauti, Haf-
steinn Ingi og Þorvaldur
Yngvi, búsett í Eyjafirði. 6) Ás-
geir Yngvason, kona hans er
Hildur Öladóttir, börn þeirra
Dagur, d. 1992, Þula og Yngvi,
búsett á Akureyri.
Útför Yngva fer fram frá
Akureyrarkirkju á morgun,
mánudaginn 4. maí, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
hlýju sína frekar í verki og athöfn-
um. Hann var mjög traustur mað-
ur, duglegur og ósérhlífinn til allr-
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Þökkum ykkur af heilum hug, kæru vinir, þann
mikla hlýhug og tryggu vináttu sem þið
sýnduð með margvíslegum hætti við andlát
og útför okkar elskulegu móður, tengdamóður
og ömmu,
GUÐRÚNAR ÁSMUNDSDÓTTUR,
Skagabraut 9,
Akranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Einar Jón Ólafsson, Erna Guðnadóttir,
Einar Gunnar Einarsson, Guðni Kristinn Einarsson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vió andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGIGERÐAR JÓNSDÓTTUR
(Gerðu),
Snorrabraut 50,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heima-
hlynningar Krabbameinsfélagsins fyrir einlægni og góða umönnun.
Gunnhildur Guðmundsdóttir, Jón Gunnar Stefánsson,
Sigríður Guðmundsdóttir, Einar Högnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÖNNU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Snekkjuvogi
v/Kumbaravog,
áður til heimilis
f Auðbrekku 23, Kópavogi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
ar vinnu, en sögur segja að hann
hafi haft gaman af því að gera
vinnufélögum sínum góðlátlega
grikki þegar færi gafst.
Hann var búinn að kljást við
marga sjúkdóma í gegnum tíðina
og sýndi það best hversu sterkur
maður hann var, bæði á sál og lík-
ama, hvað hann náði sér jafnan
fljótt á strik aftur og fékk skjótan
bata. Eg hef ekki oft séð honum
brugðið yfir veikindum en þegar
hann veiktist síðast og ljóst var
hversu alvarleg þau veikindi voru
varð honum greinilega mikið um.
En hann barðist af mikilli hugprýði
við þennan sjúkdóm eins og hans
var von og vísa. Því miður hafði
hann ekki betur í þetta sinn.
Kannski finnst manni þetta ennþá
sorglegra vegna þess að það var
ekki nema tæpt ár síðan hann hafði
gengist undir mikla hjartaaðgerð
sem hann jafnaði sig mjög fljótt á
eins og hann var vanur. Sá maður
fram á að hann gæti átt mörg góð
ár með fjölskyldu sinni og vanda-
mönnum svo ekki sé minnst á
barnabörnin og bamabamabörnin,
sem voru í miklu uppáhaldi hjá
honum. Mér og konunni minni
finnst kannski sárast að börnin
okkar fá aldrei aftur að hitta afa
sinn sem var þeim alltaf svo góður,
og það er alls ekki víst að þau komi
til með að muna vel eftir honum
vegna þess hve ung þau eru í dag.
En það er víst að við munum gera
allt sem við getum til þess að halda
minningu hans á loft svo þau megi
muna hann sem best.
Það er stórt tóm sem við systk-
inin og aðrir vandamenn þurfum að
hjálpa móður okkar að fylla, en
hún er búin að vera óþreytandi í
stuðningi sínum við pabba í gegn-
um tíðina og við megum ekki
gleyma að þótt útfórin og annað
henni tengt sé um garð gengið þá
er kannski erfiðasta tímabilið eftir,
og hún þarf á öllum okkar stuðn-
ingi að halda um ókomna tíð.
Pabbi, þín verður sárt saknað og
ég vona að þið Dagur séuð ánægðir
saman.
Ásgeir Yngvason.
Stefánsblóm
Laugavegí 178
S: 561 0771
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Sverrir Olsen, útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.