Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 17/5-23/5 ►MEÐFERÐ mála vegna brota á umferðarlögum og innheimtu sekta og sakar- kostnaðar hjá embætti lög- reglusijórans í Reyiqavfk hefur verið verulega áfátt á síðustu árum, að því er fram kemur í skýrsiu sem birt var í liðinni viku. Þar segir enn- fremur að grípa verði til raunhæfra aðgerða til að bæta sektarinnheimtu og koma á virkum úrræðum til að innheimta sakarkostnað. ►NYTT heildarsamkomulag um loðnuveiðar tókst á miðvikudag milli samninga- nefnda íslands, Noregs og Grænlands. Samkvæmt því fá íslendingar í sinn hlut 81% í stað 78% áður, Grænlending- ar 11% eins og áður og Norð- menn 8% í stað 11% áður. Jafnhliða heildarsamningn- um voru gerðir tvíhliða samningar um aðgang að lögsögum landanna. ►LYFJA I Lágmúla og Apó- tekið Smiðjuvegi eru langstærstu lyQabúðir lands- ins, hvor um sig með 5,5%-6% markaðshlutdeild, þótt þær hafi ekki verið stofnaðar fyrr en frelsi til lyf- sölu var aukið fyrir rúmum tveimur árum. Apótekin sem stofnuð hafa verið á þessum tima hafa nú náð um 30% Iyfjamarkaðarins en frá því í mars 1996 hefur lyfjabúðum Qölgað úr 44 í 61 eða um 40%. ►YFIR 65% ljósmæðra á kvennadeild Landspftalans hafa sagt upp störfum og taka uppsagnimar gildi 1. ágúst nk. Uppsagnimar stafa af óánægju með launakjör og hafa margar Ijósmæðranna þegar ráðið sig til annarra starfa. Þingi frestað fram yfír kosningar HLÉ var gert á störfum Alþingis á þriðjudag en þráðurinn verður tekinn upp á ný á morgun mánudag, að loknum sveit- arstjðmarkosningum. Þá verða hafnar viðræður um hvaða þingmál, eigi að af- greiða á þessu þingi og hver megi bíða haustsins. Stefnt er að því að Ijúka þingi 5. júní nk. og afgreiða hálendisfrumvörp- in þijú og húsnæðisfrumvörpin um miðja þessa viku. Sverrir krefst endurupptöku LÖGMAÐUR Sverris Hermannssonar hefur krafíst þess að greinargerð Ríkisendurskoðunar frá því í apríl sl. til bankaráðs Landsbanka Islands hf. um kostnað bankans vegna veiðiferða, risnu o.fl. verði endurupptekin. Krafíst er ítar- legri rannsóknar, annaiTa efnistaka og að ákveðnar breytingar verði gerðar á greinargerðinni, en jafnframt að núver- andi ríkisendurskoðandi og starfslið hans allt vfki sæti við meðferð málsins. IJA selur hlut sinn í Mecklenburger ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefúr samþykkt að selja hollenska fyrirtækinu Parlevliet & van der Plas B.V. 68% hlut sinn í þýska útgerðarfélaginu Mecklen- burger Hochseefischerei (MHF). Jafn- framt hefúr náðst samkomulag milli þýska sambandslandsins Mecklenburg- Vorpommem og Parlevliet & van der Plas B.V. um kaup þess síðarnefnda á MHF. Þá hefur stjóm Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna samþykkt að bjóða hollenska fyrirtækinu til sölu 7% hlut sinn í MHF. Tæplega 17 þúsund nýir kjósendur UU 193.700 manns voru á kjörskrá í Bæjar- og sveitarstjómarkosningunum sem fram fóm í gær, laugardag. Kosið var til 124 sveitarstjóma en það er 47 sveitarstjórnum færra en í kosningunum fyrir fjómm ámm síðan. Suharto segir af sér áill * Jusuf Habibie og ný sljórn mynduð SUHARTO sagði af sér embætti for- seta Indónesíu á fimmtudag eftir að hafa verið við völd í 32 ár. Jusuf Hab- ibie varaforseti tók við embættinu og myndaði „umbóta- stjóm“ á föstudag. Dóttir Suhartos og tveir vinir hans misstu ráðherra- embætti sín, en ekki var hróflað við mörgum af gömlum bandamönnum Su- hartos og herinn styrkti stöðu sína í stjóminni. Amien Rais, leiðtogi samtaka indó- nesískra múslima, sem hafði hótað fjöldamótmælum til að koma Suharto frá völdum, kvaðst vera hlutlaus í garð nýju stjómarinnar. Indónesískir námsmenn, sem höfðu krafist tafar- lausrar afsagnar Suhartos, sögðust ætla að halda mótmælum sínum áfram þar til Habibie léti af forsetaembætt- inu og „raunverulegum“ umbótum yrði komið á. Leiðtogar námsmannanna virtust þó vera klofnir í afstöðunni til nýja forsetans og nokkrir þeirra vildu gefa honum tækifæri til að koma á um- bótum. Reynt að koma Jeltsín frá völdum RÚSSNESKIR kommúnistar sögðust á miðvikudag hafa fengið nægilegan stuðning í Dúmunni við beiðni um að höfðað yrði mál á hendur Borís Jeltsín forseta til embættismissis. Daginn eft- ir sögðust þeir ætla að fresta því að leggja beiðnina fyrir þingið. Jeltsín gagnrýndi mótmælaaðgerðir rússneskra kolanámamanna harkalega á fijstudag eftir að þeir höfðu valdið neyðarástandi í hluta Síberíu með því að hindra lestasamgöngur til að krefj- ast þess að fá vangoldin laun sín greidd. ► AÐ MINNSTA kosti 47 fúrust og um 100 er saknað eftir að öflugur landskjálfti reið yfir Mið-Bólivfu á föstu- dag. Óttast var að tugir manna væru grafnir í rústum heimila sinna eftir skjálft- ann, sem mældist 6,6 stig á Richter. ► FIMMTÁN ára bandarísk- ur drengur hóf skothríð I mötuneyti f skóla sfnum í Springfield I Oregon á fimmtudag og varð tveimur nemendum að bana. 22 til viðbótar særðust í árásinni, þar af þrír lifshættulega. Skömmu fyrir árásina myrti drengurinn foreldra sína, að sögn lögreglunnar. ► BANDARÍKIN og Evrópu- sambandið náðu á mánudag samkomulagi sem kemur í veg fyrir bandarfskar refsi- aðgerðir vegna viðskipta við fran, Líbýu og Kúbu. Evr- ópusambandið féllst á að vinna að því að íranar kæmu sér ekki upp gereyðingar- vopnum og reyna að hindra að evrópsk fyrirtæki fjár- festu í eignum eða fyrirtækj- um sem Kúbustjóm hefði á sfnum tfma tekið af Band- arfkjamönnum bótalaust. ► BANDARÍSKA dómsmál- aráðuneytið og 20 ríki í Bandaríkjunum hafa höfðað mál á hendur hugbúnaðarris- anum Microsoft og er fyrir- tækinu gefið að sök að hafa brotið lög um einokun og hringamyndun. ►PAKISTANSKA stjórnin er undir miklum þrýstingi frá stjórnmálamönnum og leiðtogum múslima f Pakist- an, sem vilja að hún fari að dæmi Indveija og hefji kjarnorkutilraunir sem fyrst. Á kjör- stað KJÖRSTAÐIR voru víða opnaðir kl. 9 í gærmorgun og nýttu margir morgunstund- ina til að kjósa. Kosið er til 124 sveitar- stjórna og alls eru kjósendur á landinu 193.698. Kjalnesingar kusu í fyrsta sinn í sameinuðu sveit- arfélagi Reykjavíkur og Kjalarness. Sigurð- ur Kjartansson frá Móabergi nýtti kosn- ingarétt sinn fyrir hádegi og það gerði einnig unga fólkið á myndinni að ofan sem mætti snemma á kjör- stað í Oddeyrarskóla í blíðviðrinu á Akureyri. Umboðsmaður um úthlutun úr verkfallssjóði MFÍ Y fir skattanefnd taki málið upp á nýjan leik UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur beint því til yfirskattanefndar að úr- skurður hennar hvað varðar úthlut- un úr verkfallssjóði Meinatækna- félags íslands vegna verkfalls á ár- inu 1994 verði endurupptekinn komi fram ósk þar að lútandi, en málið snýst um hvort líta beri á greiðslur úr sjóðnum sem tekjur og skatt- leggja þær sem slíkar eða sem lán úr verkfallssjóðnum eins og Meina- tæknafélagið heldur fram. Málsatvik eru þau að á árinu 1994 var úthlutað úr verkfallssjóði Meina- tæknafélags Islands 50 þúsund krón- um tíl hvers félaga í nokkrum hlut- um og undirrituðu þeir skuldabréf um endurgreiðslu fjárins á árinu 1999 og 2004. Lánið var ekki verð- tryggt og bar ekki vexti. Framlagið var ekki talið fram til tekna heldur til skulda á framtali viðkomandi félaga. Málið kom til kasta skattyfir- valda sem úrskurðuðu að úthlutunin væri skattskyld. og var málið kært til yfirskattanefndar. í úrskurði hennar segir að rétt sé að líta á út- hlutun fjárins til kærenda og útgáfu skuldabréfsins sem tvo aðskilda gerninga „þannig að úthlutunarféð teljist skattskyldur styrkur í hendi kærenda en greiðslur af skuldabréf- inu megi á hinn bóginn skoða sem skuldbindingu útgefanda til aukinna framlaga í kjaradeilusjóð stétt- arfélagsins." Jafnframt kemur fram að skilmálar skuldabréfsins séu svo hagstæðir skuldara að afbrigðilegt megi teljast. Heimilt að meta skattalegt eðli Málinu var vísað tíl umboðsmanns og í álití hans segir að yfirskattanefnd hafi verið heimilt og rétt að meta sjálfstætt hvert skattalegt eðli þeirr- ar greiðslu var sem úthlutað var úr Kjaradeilusjóði Meinatæknafélags íslands. Umboðsmaður telji hins veg- ar að forsendur fyrir því mati nefnd- arinnar að h'ta á þær ráðstafanir sem í málinu greini sem tvo gerninga séu ekki nægilega traustar. Skattyfir- völdum hafi einungis verið stætt á því að líta á útgreiðslu lánsfjárins sem skattskyldan verkfallsstyrk og skuld- bindinguna sem sérstakt tillag í sjóðinn síðar að fyrir hafi legið gild rök til þess. Telur hann að á hafi skort í forsendum yfirskattanefndar að frarn kæmi á hvaða grundvelli eða með hvaða heimild nefndin lagði ekki yfirlýsingar hlutaðeigandi og Meina- tæknafélagsins tíi grundvallar mati nefndarinnar á aðstæðum. Vinnuslys í Þorlákshöfn ÞRETTÁN ára piltur festi hönd í fiskvinnsluvél í Þor- lákshöfn um tvöleytið á föstu- dag þar sem hann var að vinna við harðfiskverkun. Hann var fluttur á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að sögn Hrafnkels Óskars- sonar, læknis á vakt á slysa- deild, sködduðust sinar og taugar nokkuð og gekkst pilt- urinn undir aðgerð hjá handaskurðlækni síðdegis í gær. Stúlka í sjóinn STÚLKA henti sér í sjóinn við Faxagarð í fyrrinótt og synti yfir að Granda, þar sem henni var bjargað í land af lögreglu og flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Atvikið átti sér stað klukkan rúmlega fjögur aðfaranótt laugardags og varð stúlkunni ekki meint af volkinu, en hún mun hafa verið undir áhrifum áfengis. Á stolnum bil í Breiðholti FIMM ungmenni voru hand- tekin í Breiðholti snemma á laugardagsmorgun á stolnum bíl. Farið var með ungmenn- in á lögreglustöð og var fjór- um sleppt að lokinni yfiir- heyrslu. Einn er enn í haldi lögreglu, grunaður um þjófnað og ölvun við akstur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.