Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 29
Morgunblaðið/Þórey Gylfadóttir
ÞEGAR vindáttir og fjöldi vindstiga voru hagstæð notaði leiðangurinn svokallaðar fjallhffar til að „sigla“, eins og þau köliuðu það.
Morgunblaðið/Þórey Gylfadóttir
NEYSLA orkuríks og fitumikils fæðis er grundvallaratriði í leiðöngr-
um sem þessum. Anna María, Einar Torfi og Dagný gæða sér á súkku-
laði og súkkulaðikexi í einhverri pásunni.
Morgunblaðið/Dagný Indriðadóttir
GERVIHNATTASÍMI var með í för og gekk hann fyrir sólarrafhlöð-
um. Sem betur fer var með sólríkara móti í ferðinni og rafhlöðurnar
því vel fylltar af geislum sólar.
Morgunblaðið/Þórey Gylfadóttir
ÞRÁTT fyrir allt að þrjátíu stiga næturfrost voru tjöldin nægilegt
skjól að sögn kvennanna. Hér skríður Dagný inn í annað tjaldið.
Fjórði ís-
lenski
leiðang-
urinn
LEIÐANGUR fslensku kvenn-
anna er fjórði íslenski leiðangur-
inn sem farið hefur yfir Græn-
landsjökul. Fyrsti ísiendingur-
inn til að komast yfir jökulinn
var trésmiðurinn Vigfús Sig-
urðsson frá Gilsbakka i Axarf-
irði. Hann fór þangað ásamt
tveimur Dönum og einum
Þjóðverja árið 1912 og lauk
ferðinni ekki fyrr en á vormán-
uðum 1913.
Annar leiðangur fslendinga
yfir Grænlandsjökul var svo
ekki farinn fyrr en sjötíu árum
eftir þann fyrsta. í lok aprfl árið
1993 fóru þremenningarnir
Ólafur Örn Haraldsson, Harald-
ur Örn Ólafsson og Ingþór
Bjarnason yfir jökulinn. Þeir
hófu ferð sína frá þorpinu Isor-
toq sem er skammt vestan við
þorpið Ammassalik, og komu
niður í Syðri Straumfirði.
í þriðja leiðangur íslendinga
eða íslendings yfír Grænlands-
jökul, fór Einar Torfi Finnsson,
leiðangurssljóri kvennanna Ijög-
urra, árið 1996. Þá leiddi hann
ferð eins Frakka og eins Itala
yfir jökulinn og var hún með
svipuðu sniði og ferðin sem
stúlkurnar fóru nú.
Morgunblaðið/Dagný Indriðadóttir
TJÖLDIN tekin niður. Skíði og skíðastafir voru notuð í stað tjaklhaða
og snjó hlaðið upp að tjaldskörinni.
Morgunblaðið/Dagný Indriðadóttir
KOMIN upp á jökulinn meö allar nauðsyiyar. Þá var ekki annað aö
gera en að hlaða þeim ofan á sleðann og halda af stað. Þórey Gylfa-
dóttir gerir sig tilbúna til að ráðast í verkið.
8oo 7000 -svarar spumingumþinum um símann
JHvernig eyk ég
flutningshraðann
á rtetinu?**
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ SÍMANS
□^7000
GIAIDFRJÁLST ÞIÓNUSTUNÚMBR
SÍMINN
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 08-22 OG UM HBT.GAR Kt. 10 17.