Morgunblaðið - 24.05.1998, Side 41

Morgunblaðið - 24.05.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 4 skemmtilega í lífinu. Guð gefi þeim öllum styrk til þess. Við eigum hana áfram innra með okkur. Það getur enginn frá okkur tekið. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Peir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Þín vinkona, Hrafnhildur. Kveðja Jóhanna Einarsdóttir kom ung inn í líf Ólafs, bróður míns. Falleg stúlka og létt í lund, bráðvel gefin og áberandi vel máli farin, enda ljóðelsk, hagmælt og söngelsk; hún söng í kórum og samdi jafnframt sér til hugarhægðar texta og lög við þá, en flíkaði fyrir hæversku sakir hvor- ugu nema í góðra vina hópi. Um skeið bjuggu fjölskyldur okk- ar bræðra í sama húsi og samgangur því mikill. Þegar leiðir skildu í hús- inu var síminn handhægur tengiliður og samtöl okkar Jóhönnu því mörg og stundum löng, en sérlega upplífg- andi, þrátt fyrir, eða kannski fremur vegna þess, að við vorum oftar en ekki hjartanlega ósammála, unga konan enda föst fyrir og mikil kven- réttindakona, en ég ekki sérlega móttækilegur fyrir ýmsum hug- myndum ungra kvenna og stálið í sál okkar úr sömu smiðju: að vestan. Það var sem sé engin lognmolla þar sem þessi fasmikla sporlétta kona lét til sín taka, hvort heldur var í orðræðu eða söng. En allt á sér upp- haf - og endi, stundum með svo óvæntum höggþunga að í fyrstu vefst fyrir manni að trúa og skilja. Jóhanna hafði átt við vanheilsu að stríða um skeið, og það sem virtist meinlítil flensa að kvöldi dags reyndist banvæn sýking sem varð henni að aldurtila á sjúkrahúsi degi síðar. Söngur hennar er því þagnaður fyrir fullt og allt hér í heimi, og svo er einnig um orðræðurnar fjörlegu. Og er þá ekki annað eftir en að við hjónin og synir okkar þökkum ungu konunni samvistirnar, með fyrir- bæn um að almættið taki sál henn- ar í náðarfaðm sinn og að Ólafi og dætrum þeirra Jóhönnu, foreldrum hennar og systkinum, leggist líkn með þraut á þeim þungbæru stund- um sem nú er hlutskipti þeirra um sinn. Blessuð sé minning Jóhönnu Ein- arsdóttur. Jóhannes Helgi. Það var fyrir fjórum árum að stjórn Félagsins Heymarhjálpar stóð frammi fyrir ráðningu nýs framkvæmdastjóra. Heyrnarhjálp er félag heymar- skertra á íslandi og stjómin vissi að þau verkefni, sem framundan vom, gerðu miklar kröfur til þessa starfs. Meðal fjölmargra umsækjenda var Jóhanna S. Einarsdóttir. Ekki duld- ist okkur að þar fór skarpgreind kona með hrífandi fas og lifandi áhuga á því sem félagið stóð fyrir. Ráðning hennar í stöðu fram- kvæmdastjóra var mikið gæfuspor fyrir Félagið Heyrnarhjálp. A þess- um fjórum ámm, sem félagið naut starfskrafta hennar, var það reist úr áralangri deyfð í vaxandi félag með stórhuga framtíðaráform. Að fmm- kvæði Jóhönnu, veitti Heyrnarhjálp, árið 1996, viðurkenningu fyrir „skír- mæltasta fjölmiðlamanninn" og hlutu viðurkenninguna tveir frétta- menn, annar frá útvarpi og hinn frá sjónvarpi. Tilgangurinn var, auk vinsamlegra tilmæla til fjölmiðlafólks að tala skýrt og greinilega, að vekja athygli á stöðu og þörfum heyrnarskertra: textun alls efnis í sjónvarpi, ekki síst ís- lensks efnis, bættri aðstöðu heyrn- arskertra til náms, betri aðgang að nýjustu heymartækjum og hjálpar- búnaði, og svo mætti lengi telja. Félagið gaf út veglegt afmælisrit, undir ritstjórn Jóhönnu, á 60 ára af- mæli sínu í fyrra og hóf útgáfu fræðslubæklinga. Síðastliðið haust stóð hún fyrir glæsilegu málþingi á vegum félagsins, um hávaða, sem reynist miklu meiri skaðvaldur í samfélagi okkar en við gemm okkur almennt ljóst. Þessi dagur var félag- inu til mikils sóma og við vomm af- skaplega stolt af að eiga þennan framkvæmdastjóra. Öll hennar verk vom unnin af ýtr- ustu natni. Jóhanna var glæsileg kona sem sópaði að. Hún var gædd miklum hæfileikum og smitandi lífsgleði. Fallega brosið hennar og glaðlegan hláturinn, sem alltaf mætti okkur er við hittumst á skrifstofunni, munum við öll geyma í hjörtum okkar. Hún hafði sterkan persónuleika, sem einkenndist af hreinskiptni, ríkri réttlætiskennd og framúrskar- andi vandvirkni og skyldurækni. Hún var einstök og með henni var gott að vera. Við sviplegt og svo ótímabært frá- fall hennar sitjum við agndofa eftir og skiljum ekki almættið. Félagið Heyrnarhjálp þakkar Jóhönnu af alhug hennar mikla og óeigingjarna starf til framdráttar málefnum heyrnarskertra á Islandi. Nafn hennar mun þar lengi lifa. Fjölskyldu hennar allri, eigin- manni, dætmnum ungu, foreldmm og systkinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Jóhönnu S. Einarsdóttur. F.h. Félagsins Heyrnarhjálpar, Bryndís Guðmundsdóttir. Okkur systkinin langar til þess að minnast Hönnu Siggu með örfáum orðum en hún lést svo snögglega föstudaginn 15. maí eftir mjög stutt veikindi. Við kynntumst Hönnu Siggu fyrst fyrir rúmum 20 áram þegar elsta systir okkar, Ólöf, kynntist Bent eldri bróður hennar. Við hittumst oftast í fjölskylduboðum og afmæl- um og allir skynjuðu hennar miklu útgeislun. Hún var ætíð hrókur alls fagnaðar og eitt er vist að þar sem hlátrasköllin og fjörið var mest, þar var Hanna Sigga miðpunkturinn. Fólk sótti í þann hóp sem hún var í enda hafði hún óvenju skemmtiiega frásagnarhæfileika og talaði sérstak- lega fallegt mál. Hún virkaði eins og segull á fólk. Hanna Sigga var óvenju hæfileikarík manneskja. Hún samdi lög, orti ljóð, hafði yndi af söng, hafði fallega söngrödd og hafði m.a. lagt stund á söngnám um skeið. Hún og Ólafur störfuðu á Hvera- völlum í nokkur ár við veðurathug- anir. Þar nutu þau sín sem miklir náttúmunnendur. Eitt okkar systk- inanna var svo heppið að njóta gest- risni þeirra á leið sinni yfir Kjöl sumarið 1983. Þau vom frábærir gestgjafar og ótrúlega víðlesin og fróð um öll kennileiti á Kili. Síðast- liðið sumar hitti þannig á að eitt okkar dvaldi með fjölskyldu sinni í Portúgal á sama tíma og Hanna Sigga og fjölskylda hennar. Mikill samgangur var þar með börnunum. Á þeim tíma átti yngri dóttir þeirra afmæli og var slegið upp veislu sem lengi verður í minnum höfð. Hanna Sigga og Ólafur eignuðust tvær yndislegar dætur, Ulfhildi og Sólkötlu sem nutu einstakrar ástúð- ar, hlýju og umhyggju foreldra sinna. Það gerði líka Elín Jónína dóttir Ólafs, sem hann átti frá fyrra hjónabandi. Við vitum að hún mun verða pabba sínum ómetanleg stoð og stytta í þessari miklu sorg sem og við umönnun systra sinna um ókomin ár. Megi góður Guð veita Ólafi, Úlf- hildi, Sólkötlu og Elínu Jónínu svo og foreldmm Hönnu Siggu, þeim Grétu og Einari, og systkinum hennar styrk til að takast á við þessa miklu sorg við ótímabært frá- fall hennar. Megi minningin um vandaða, skemmtilega, og hjarta- hlýja konu lifa. Guð geymi Hönnu Siggu. Helga, Ásta Jóna, Kristín, Jónas og Inga Margrét. Hanna Sigga mín. Mig langar til að kveðja þig hinsta sinni þótt mér finnist það óraunvemlegt að eiga ekki eftir að hitta þig aftur. Ég vil þakka þér kynnin og samstarfið á s.l. ári í tengslum við félagið Heyrn- arhjálp sem var sérstakt á margan hátt, ekki hvað síst hversu vel að öll- um undirbúningi var staðið með röggsemi, góðu skipulagi og sam- viskusemi frá þinni hendi. Oft hef ég vitnað í þetta ferli okkar þegar hnýta þarf saman marga þætti svo úr verði heild. Þetta er ekki á færi allra. Það var hressilegt og gaman að fá ykkur systur inn á heimilið meðan á öllu stóð. Oft vomm við knöpp á tím- anum en léttum það með ýmsum samræðum frá æskuáram okkar, sem og öðmm málefnum. Þessi persónulegu tengsl við þig, Hanna Sigga, fölskvalaus framkom- an og traustið sem þú sýndir, skilja eftir sig spor og lærdóm og spurn- ingu um hvort í rauninni séu til margir einstaklingar sem gefa þessa hlutdeid með nærvem sinni. Samt skiptir það svo miklu máli í lífi manneskjunnar. Það er sjónarsviptir að svo svip- mikilli persónu sem þú varst og eng- in orð til að lýsa þeirri sorg sem þín- ir nánustu takast nú á við. Ólafur minn, Úlfhildur, Sólkatla sem og aðrir aðstandendur. Ég votta ykkur mina dýpstu samúð á þessum erfiðu tímum með von um að þið náið að sjá ljós út úr myrkr- inu í fyllingu tímans. Heimir Guðmundsson. „Þótt ég sé látin, harmið mig ekki með támm. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þó látna mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp, til móts við ljósið. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykk- ar yfir lífinu.“ (Ök. höf.) Lífsþorsti, söngelska og ham- ingjuþrá fannst mér vera það sem auðkenndi mest mágkonu mín Jóhönnu Sigríði Einarsdóttur, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 15. maí sl. Það er mikill harmur og mikið áfall þegar baktería, á minna en sólarhring, leggur að velli unga konu í blóma lífsins, frá manni og ungum dætram. Það var engu líkara en að mágkona mín skynjaði sitt skapadægur, svo annríkt sem hún átti í glímunnni við andleg og ver- aldleg málefni. Tók meðal annars stuttu fyrir andlátið söngpróf hjá FÍH. Þrátt fyrir heilbrigt líferni og reglusemi, átti hún við heilsubrest að etja síðustu tvö árin, sem læknum Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands SuðurhUð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. veittist erfitt að henda reiður á, nema að hluta til. Hún gat illa sætt sig við þann vegatálma. Hún vildi lifa lífinu til fulls og leitaði allra leiða til lækninga, af metnaði, með opnum huga og einlægni. Mágkonu minni dugðu ekki hálf- kveðnar vísur, hún vildi ræða alla hluti í botn. Um lífið og tilverana, fortíð og nútíð, opið og grímulaust. Er það ekki staðreynd að því mann- legri sem manneskjan er því erfið- ara getur verið að fóta sig í lífinu. Enginn mér vandabundinn hefir jafn oft sagt við mig: „Þú ert hjúkr- unarkona og ég veit að þú skilur mig.“ Vissulega skildi ég, en eitt er að skilja og annað að hafa lausnar- orðið, til að leysa þá mörgu Gordionshnúta sem óhjákvæmilega hnýtast í Mfsvefinn okkar. Hún var baráttukona. Uppgjöf var ekki til í hennar huga. Við mágkonurnar vor- um ekki alltaf með hugann við lífs- gátuna, heldur áttum líka margar hátíðar- og gleðistundir saman. Ég minnist þess er hún kom til mín fyrir ekki svo löngu síðan og hampaði stolt stjúpömmubarninu sínu. Nokkrum dögum fyrir andlát- ið sótti hún mig til að aka með mig suður í Hafnarfjörð til að sýna mér nýfædda systurdóttur og gefa mér hlutdeild í gleði sinni. Sá ég þá bet- ur en áður hversu miklir kærleikar voru með þeim systram. Á leiðinni í bæinn hafði hún á orði, að engum treysti hún betur til að halda vel ut- anum hamingjuna, heldur en systur sinni og mági. Jóhanna var af breiðfirsku bergi brotin, sem á sá í manngerð hennar. Hún ólst upp í Stykkishólmi í skjóli ástríkra for- eldra og þriggja systkina. „Afi seg- ir að það sé gott að gráta, það hreinsi hjartað,“ sagði litla sex ára barnið hennar við dánarbeð móður sinnar. Allt hefir sinn tíma. Þegar harm- inum Mnnir, stendur eftir minningin um góða konu með breiðfirska reisn, sem vildi höndla hamingjuna og bera birtu inn í líf ástvina sinna og samferðafólks. Bæn mín til hans sem öUu ræður er að hann styrki og verndi börn hennar og bróður minn í sorg þeirra og alla þá er hjarta hennar sló til. Hrönn Jónsdóttir. Kæra Hanna Sigga. Þegar hringt var í mig og mér tilkynnt um óvænt andlát þitt var ég á leið í kirkju til þess að hlusta á tvær dætur mínar spila á lokatónleikum Tónlistarskól- ans í Stykkishólmi. Ég dofnaði upps_ fór á tónleikana og reyndi að njótá þess að hlusta á öll börnin spUa. Það reyndist mér sérstaklega erfitt að hlusta á píanónemendurna, því þeg- ar við vomm börn varst þú píanó- nemandi í þessum sama skóla. Minningarnar hrönnuðust upp og hafa gert það síðan ég sat í kirkj- unni. Þú ert órjúfanleg heild af flestum mínum æskuminningum, alveg fram undir tvítugt. Ég man þegar ég átti heima í Kúldshúsi (þangað sem ég er aftur flutt) og þú áttir heima hin- um megin við götuna í húsi við Þing^ húshöfðann. Við lékum okkur mikið í Höfðanum og þar áttir þú vinkonu í klettunum sem þú lékst þér stund- um við, mig minnir að hún hafi heit- ið Agnes. Ég gat aldrei séð hana en dáðist að því að þú gætir talað við huldufólk. Ég man þegar við urðum ungling- ar og þú fluttir í nýtt hús á Silfur- götu hvað ég þurfti að bíða lengi eft- ir þér í ganginum því þú varst alltaf svo lengi að hafa þig til. Ég minnist þess ekki að þetta hafi pirrað mig, það var svo gaman þegar þú loksins komst út. Ég man hvað mamma þín bakaði góða brúntertu og gaf okkur oft með ískaldri mjólk. Mér fannst svo gotlk að eiga svona trausta vinkonu. Við vomm á margan hátt ólíkar. Þú varst með ljóst og gyllt sítt hár. Ég var með dökkt sítt hár. Þú varst svo tilfinningarík, og ég held að það hafi oft gert þér lífið svo erfitt, ég var jarðbundin. Saman vomm við bara mjög góðar. Við höfum alltaf skilið hvor aðra og verið réttlátar og til- litssamar gagnvart hvor annarri. Við fórum saman suður í MT og vorum saman í bekk öll árin, eins og í barnaskólanum. Á þessum ár-_ um fór ástin að festa hendur á þérT Þú varst falleg og vinsæl, trúlofaðir þig ung, svo eðlilega minnkuðu okk- ar samverustundir. Við höfum alltaf haldið okkar góða vinskap síðan en SJÁ NÆSTU SÍÐU + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, afa og langafa, INDRIÐA B. HALLDÓRSSONAR, Hrafnistu Reykjavík, áður Reynimel 82, og heiðruðu minningu hans. Sérstakar þakkir til Karlakórsins Fóstbræðra. Guð blessi ykkur öll. Sigrún Þóra Indriðadóttir, Svavar Indriðason, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát ástkærrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, JÓNU GÍSLÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Bústaðavegi 85. Sigurður Brynjólfsson, Guðborg K. Olgeirsdóttir, Margrét Karlsdóttir, Herbert Svavarsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Ólafía Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað verður vegna jarðarfarar JÓHÖNNU S. EINARSDÓTTUR mánudaginn 25. maí 1998 hjá eftirfarandi aðilum: SÍM - Sambandi íslenskra myndlistarmanna, MYNDSTEF - Myndhöfundasjóði íslands, Myndlistarsjóði íslands, UMM - Upplýsingamiðstöð myndlistar, Hverfigötu 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.