Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.05.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 BJÖRN MEKKÍNÓSSON + Björn Mekkinós- son fæddist í Reykjavík 23. maí 1926. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 17. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Mekkinó Björnsson, verslun- armaður í Reykja- vík, f. 17. júlí 1900, d. 2. febr. 1963, og kona hans Dagmar Þorláksdóttir, f. 23. júlí 1899, d. 10. júlí 1973. Systkini Björns voru Hólmfríður, Elín, Gunnar og Magnús Þór, og eru þau öll látin. Hinn 14. júlí 1950 kvæntist Björn eftirlifandi eiginkonu sinni, Gunnhildi Jóhannsdóttur, f. 23. október 1929. Þau eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Dagmar, f. 16. febr. 1951, gift Joseph Paul Henry, þau eru búsett í Kanada og eiga þrjú börn. 2) Mekkinó, f. 20. mars 1953, búsettur í Reykja- vík. Hann á tvo syni. 3) Sigríður, f. 12. maí 1955. Hún á tvær dætur með sambýlismanni sinum Roark Clipsham og búa þau í Kanada. 4) Jóhann, f. 11. janúar 1957, kvæntur Grace Björnsson og eiga þau tvær dætur. Þau búa í Bandaríkjun- um. Fyrir hjónaband eignaðist Jóhann dótturina Birnu Ruth. 5) Björn, f. 29. mars 1959, býr einnig í Bandaríkj- unum. 6) Gunnhild- ur, f. 11. apríl 1963. Sambýlismaður hennar er Jón S. Halldórsson og búa þau í Reykja- vík. Björn fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði þar verslunarstörf þar til hann flutt- ist til Kanada með fjölskyldu sína árið 1958. Þau voru búsett þar til 1972 uns þau fluttust aftur heim til íslands, þar sem hann stundaði verslunarstörf sína starfsævi. Útför Björn fer fram frá Dóm- kirkjunni á morgun, mánudaginn 25. maí, og hefst athöfnin klukk- an 13.30. Látinn er kær vinur okkar til margra ára, Björn Mekkinósson. Gunnhildur, eiginkona Bjöms, og eiginkona mín, Björg, hafa verið miklar og góðar vinkonur alla tíð eða allt frá því þær voru saman í Kvennaskólanum og hafa þær hald- ið nánu sambandi hvor við aðra sem væru þær systur og á það einnig við um fjölskyldur okkar. í níu ár háði Björn harða og þögla baráttu við sjúkdóm þann sem í lokin batt enda á lífsferil hans. Það var sorglegt að sjá hversu þessi sjúkdómur gat leikið þennan fallega og stolta mann illa. Eftir fyrsta áfallið skertist sjón hans mikið, en hann lét ekki deigan síga, tók sér staf í hönd og fór í sínar daglegu gönguferðir að hitta vini og kunn- ingja, drakk með þeim kaffi og voru þar rædd hin ýmsu dægurmál sem efst voru á baugi hverju sinni. Bjöm var mikið snyrtimenni, hafði ákveðnar skoðanir og mein- ingar, vildi hafa röð og reglu á hlut- unum. Honum var margt til lista lagt og hin síðari ár tók hann sig til og fór að yrkja og senda vinum og kunningjum vísur við hin ýmsu tækifæri og eigum við hjónin þó nokkrar til í fómm okkar. Mikinn hluta ævi sinnar stundaði Björn verslunarstörf og famaðist vel. A haftatímum þegar hér ríkti hálfgert ráðstjórnarríkis stjómar- far var mörgum manninum bmgðið og fluttust þá margir af landi brott. Björn og Gunnhildur urðu ein af þeim. Þau fluttust til Kanda með fjögur bama sinna en það fímmta og sjötta bættust svo í hópinn vestra. Það segir sig nú sjálft að það hlýtur að hafa þurft mikinn kjark og þrek að sjá öllum þessum hópi farborða og hefur sjálfsagt þar reynt mikið á Gunnhildi konu hans. Og nú sannast hið fornkveðna er segir: „Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til.“ Þessu ævin- týri í lífi þeirra vestra lýkur eftir 15 ára fjarveru, þau flytja aftur til gamla landsins þar sem rætur þeirra liggja, en ekki urðu þó fullar Stefánsblóm Laugavcgi 178 S: 561 0771 heimtur, sum barnanna urðu eftir og dvöl annarra hér heima var skammvinn og upp úr þessu gerast þau hálfgerðir heimsborgarar. Dag- mar og Sigríður húsmæður eru bú- settar í Kanada, Jóhann býr með fjölskyldu sinni í Orlando, Björn fatahönnuður er búsettur í San Francisco, Mekkinó flugstjóri hjá Lufthansa Cargo í Þýskalandi og Gunnhildur flugfreyja hjá Flugleið- um. Þegar litið er yfir farinn veg er margs að minnast írá ferðalögum bæði innanlands og utan og var Bjöm ætíð hrókur alls fagnaðar. Það er gott að eiga góðar minningar um þann góða dreng sem Björn var og megi minning hans Iifa. Við kveðjum kæran vin með söknuði. Okkar innilegustu samúðarkveðjur, Gunnhildur mín, til þín og fjöl- skyldu þinnar. Benedikt. Það var á fallegum vordegi í maí að ég kynntist Bjössa vini mínum, en þá fæddist dóttir mín og Jóhanns sonar hans hún Birna. Síðan eru liðin 20 ár. Alla tíð var Bjössi mér góður og tók mér fagnandi. Oft gátum við rætt málin saman yfir kaffiborðinu á Guðrúnargötunni. Eftir að Bjössi veiktist og dvaldi á sjúkrahúsi, bæði Landakoti og svo Skjóli, var hann ekki síður glaður að fá heimsókn og alltaf vildi hann veita, það var hon- um svo sjálfsagt. Birnu var hann svo góður og blíð- ur enda var hún augasteinninn hans. Það var svo gaman að sjá hvað hann ljómaði þegar hún birt- tViðarkrossar á leiði Vönduð smíði, fúavarið og hvítmálað sem endist mjög vel. Varanlegir krossar. Upplýsingar í símum 553 5929 og 553 5735 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Elnarsson, útfararstjðri útfararstjört Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. ÁraLöng MINNINGAR ist. Henni þótti líka svo vænt um Bjössa afa. Það var því erfitt að tilkynna henni andlát hans og hún í miðjum próflestri. Hún hlakkaði til að heimsækja afa með hvíta kollinn á höfðinu. Þá hefði afi verið stoltur. Enn er kominn maí. Eg kveð Bjössa vin minn með virðingu og þökk. Hulda. Nú er komið að kveðjustund, þeg- ar góður vinur okkar og félagi er all- ur. Stóllinn hans við kaffiborðið er tómlegur á að líta, þegar minning- amar hrannast upp. Hann Björn Mekkinósson var stundvísastur félaganna, alltaf búinn að taka frá sama borðið og sestur í sinn stól, þegar aðrir mættu á staðinn. Umræðuefnin við kaffí- borðið okkar voru fjölbreytileg, og reynt var að leysa hin ólíklegustu vandamál líðandi stundar, jafnt er- lend sem innlend. Auðvitað voru all- ir ekki alltaf sammála, og Bjössi gerði sínar athugasemdir, sem stundum féllu í grýttan jarðveg. Hann gat verið stefnufastur og óvæginn í skoðunum og lét hvergi deigan síga. Nú er tómlegt við kaffi- borðið okkar, þegar „fundarstjór- inn“ hefur kvatt, og er að leggja upp í sitt síðasta og lengsta ferðalag. A sínum yngri áram, starfaði Björn hjá föður sínum við verslunar- störf, en rak síðar sina eigin verslun, Lífstykkjabúðina, þar til hann ákvað að söðla um og flytja til Kanada 1958. Björn og fjölskylda hans bjuggu á annan áratug vestra, lengst af í Vancouver, en einnig í Edmonton og Toronto. Hann lagði þar m.a. stund á byggingastarfsemi og fasteigna- sölu. Eftir heimkomuna rak hann innflutningsverslun á meðan heilsan leyfði. Fyrir um áratug veiktist Böm al- varlega, og var vart hugað líf um tíma. Hann náði sér samt ótrúlega vel á strik aftur, þótt aldrei gengi hann alveg heill til skógar. I mars í íyrra veiktist Björn svo skyndilega aftur, reiðarslag, sem ekki varð við ráðið. Hann naut góðrar umönnunar þessa síðustu mánuði, fyrst á Land- skotsspítala og síðar á Skjóli. Björn átti því láni að fagna að eignast góða og elskulega eiginkonu, Gunnhildi Jóhannsdóttur, sem ætíð var hans stoð og stytta og stundaði hann og aðstoðaði af mikilli kost- gæfni, þegar mest þurfti á að halda. Þau hjónin eignuðust sex mann- vænleg börn, og fóra þau ófáar ferð- ir í heimsókn til þeirra, sem erlendis hafa búið. Við félagar Bjössa sendum Gunn- hildi og ættingjum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við þökkum Bjössa samfylgdina og óskum honum góðrar ferðar á vit nýrra heimkynna. Það er skarð fyrir skildi í vinahópnum. Njáll Simonarson. Legsteinar í Lundi „ v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík ♦ Símí 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um hclgar. Skrcytingar fyrir öll tilefni. afavörur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN HAFLIÐI JÓNSSON húsasmíðameistari, Árskógum 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 25. maí kl. 13.30. Ingibjörg Eggertsdóttir. Björgvin J. Jóhannsson, Sigríður Þórsdóttir, Eggert Þ. Jóhannsson, Valborg Harðardóttir, Hörður Jóhannsson, Tonje Fossnes, Herdís Jóhannnsdóttir, Frosti Hreiðarsson, Ingvar J. Jóhannsson, Árborg Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, INGÓLFUR KRISTJÁNSSON fyrrv. yfirtollvörður, Grjótaseli 12, Reykjavík, sem lést föstudaginn 15. maí sl., verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 26. maí kl. 13.30. Anna Jóna Ingólfsdóttir, Jón Sveinsson, Sólveig Ólafsdóttir, Jónatan Þórmundsson, Ingólfur Jónsson, Ragna Halldórsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Þórmundur Jónatansson, Sóley Halldórsdóttir, langafabörn og langalangafabörn. t Ástkær og elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, ÞORSTEINN KRISTJÁNSSON frá Löndum, Stöðvarfirði, Háaleitisbraut 113, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 25. maí kl. 13.30. Guðbjörg Jónsdóttir, Bryndís Þorsteinsdóttir, Ólöf Heiður Þorsteinsdóttir, Kristján Þorsteinsson, Þórhildur Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Valur og fris Erla, Margrét Björg, Erla Dröfn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs unnusta míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR JÓNSSONAR, Hringbraut 72, Hafnarfirði. Elínborg Elísabet Magnúsdóttir, Örvar Sigurðsson, Erla K. Gunnarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Valgerður Knútsdóttir, Jón Sigurðsson, Kristín Pétursdóttir, Sig. Ómar Sigurðsson, Ágústa Hreinsdóttir, Davíð Art Sigurðsson, Greta Sverrisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS S. ÞORVALDSSONAR, Smáratúni 8, Keflavík, og heiðruðu minningu hans. wm Erna Gunnarsdóttir, Þorvaldur Ólafsson, Slgríður Kjartansdóttlr, Karl Emll Ólafsson, Þóra Einarsdóttlr, Gunnþóra Ólafsdóttlr, Þórhallur Kaldalóns Jónsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.