Morgunblaðið - 24.05.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 21
Fjölmargar einbreið-
ar brýr breikkaðar
VEGAGERÐIN hefur gert áætlun um aukið umferð-
aröryggi til ársloka árið 2000.1 henni felst meðal annars að
fjölmargar brýr, sem nú eru einbreiðar, verða breikkaðar.
Verkefni Vegagerðarinnar til bætts umferðaröryggis eru
margþætt. Þegar er lokið við að teikna slysakort af Vestur-
lands- og Reykjanesumdæmi og hafin er teiknun slysakorta af
Suðurlandsumdæmi. Upplýsingarnar getur lögregla á viðkom-
andi stöðum nýtt til greiningar á hættulegum vegaköflum, svo
úrbætur verði markvissar. Teikningu slysakorta af höfuðborg-
arsvæðinu er lokið og mun Vegagerðin leita samstarfs við sveit-
arfélögin á svæðinu um áætlun til að fækka slysum. Vegagerðin
mun jafnframt funda reglulega með embætti ríkislögreglu-
stjóra, þar sem ákveðið verður hvernig staðið verður að sam-
starfi Vegagerðar og lögi’eglu í umdæmum landsins.
Hraðinn og rauðu Ijósin
Vegagerðin stóð einnig að kaupum á tveimur hraðamyndavél-
um í samvinnu við Umferðarráð og notar lögreglan þær til eftir-
lits. Einnig gekk Vegagerðin til samstarfs við Reykjavíkurborg,
Umferðan'áð og Iögregluna um kaup á nýrri rauðljósamynda-
vél, sem notuð verður á höfuðborgarsvæðinu. Þá lét Vegagerðin
gera úttekt á því hvernig hraðamerkingar á þjóðvegum eru út-
færðar í öðrum löndum og hefur til hliðsjónar við útfærslu sína.
Á hverju ári eru nokkrar einbreiðar brýr breikkaðar og í til-
lögu að langtímaáætlun í vegagerð fyrir árin 1998 til 2010 er
stefnt að því að breikka einbreiðar brýr með meiri umferð en
400 bíla á dag. Þetta eru 22 brýr, á hringveginum frá Vík í Mýr-
dal til Akureyrar.
Mjög mörg slys verða við gatnamót og ætlar Vegagerðin að
leggja áherslu á úrbætur við þau hættulegustu, til dæmis í
Hafnarfirði, við Rauðavatn og sett verða upp umferðarljós á
gatnamótum Hörgárbrautai- og Hlíðai’vegar á Akureyri.
Þótt nú sé sumar hugar Vegagerðin að umferðaröryggi að
vetrarlagi. Tíðni vetrarslysa verður skoðuð þegai' gerð slysa-
korta lýkur á þessu ári og haldið verður áfram að vinna að
þróun á hálkuspákerfi, sem Vegagerðin, Veðurstofan og
Reykjavíkurborg hafa unnið að í samvinnu við dönsku veður-
stofuna og prófað var í vetur.
Til að tryggja markvissari úi-vinnslu á upplýsingum um slys
keypti Vegagerðin 70 GPS staðsetningartæki, sem eru í jafn-
mörgum lögreglubílum um allt land. Þá styrkti Vegagerðin
kaup á tveimur öndunarsýnamælum, sem lögreglan notar.
Æfingasvæði
Af nýjum verkum má einnig nefna, að Vegagerðin hyggst
kosta gerð æfingasvæðis fyrir ökumenn, sem áformað er að
byggja á næstu tveimur árum, viðvörunarmerkingar á þjóðveg-
unum verða endurskoðaðar og Vegagerðin kostar, ásamt Um-
ferðarráði, kynningu í fjölmiðlum og gerð og uppsetningu
merkja við þjóðvegina í þeim tilgangi að hafa áhrif á ökumenn
til að virða hraðamörk.
Loks bendir Vegagerðin á, að sé tekið mið af mai'kmiðum í til-
lögu til langtímaáætlunar sem núna liggur fyrir Alþingi þá séu
þar nokkur atriði sem miði beint að þvi að bæta umferðaröryggi
á þjóðvegunum og séu þessi atriði helst:
►Lagning bundist slitlags á umferðarmestu vegi landsins
sem nú eru malarvegir.
►Breikkun vega þar sem umferðaröryggi er vandamál.
►Endurbygging gamalla vega sem reynst hafa hættulegir.
►Breikkun einbreiðra brúa.
Auk alls þessa eru margar aðrar framkvæmdii', sem stuðla að
auknu umferðaröryggi.
Á hraðferð
á slysstað?
OF MIKILL ökuhraði er einn helsti orsakavaldur alvar-
legra umferðar- slysa á íslandi, eins og í flestum öðr-
um löndum. Hámarkshraðareglur þær sem í gildi eru miðast
við að fyllsta öryggis sé gætt. Til að framfylgja þeim skiptir
starf lögreglu mjög miklu máli. Það er mat manna að hraði á
þjóðvegum landsins hafi farið vaxandi á undanförnum árum
og leikur grunur á ökumenn hafi ekki fengið nægt aðhald.
Okuhraði er einn af aðal verkþáttum í umferðaröryggis-
áætlun íslenskra stjórnvalda til ársins 2001. Þar eru til-
greind nokkur atriði til að draga úr hraðakstri. Hraða-
myndavélar hafa reynst mjög áhrifaríkar í ýmsum löndum,
sem tæki til að draga úr ökuhraða og jafnframt til að fækka
alvarlegum slysum í umferðinni. Má þar nefna reynslu
Ástrala, þar sem beitt hefur verið markvissu eftirliti með
hjálp myndavéla, skilvirkri innheimtu sekta, samhliða
áhrifaríku fræðslu- og upplýsingastarfi. Árangur af því var
mjög mikill og alvarlegum slysum og banaslysum fækkaði
umtalsvert.
Hér á landi hafa verið keyptar hraðamyndavélar og er
þeim ætlað að styrkja eftirlit lögreglu með ökuhraða. Jafn-
framt hafa átt sér stað miklar breytingar á sektarinn
heimtu lögreglu með það að markmiði að sem mestur árang-
m- náist. Okumenn sem ekki virða hámarkshraðareglur geta
átt von á að teknar séu myndir af bílum þeirra og að fá
sendan gíróseðil heim með upphæð í samræmi við hversu
miklu hraðar þeir aka en leyft er.
Það er kenning margra sérfræðinga að þeir ökumenn sem
eru lengst frá meðalhraða séu hættulegastir. Þess vegna er
jafn ökuhraði eitt af lykilatriðunum til að auka umferð-
aröryggi og koma í veg fyrir slys.
EKKI er hægt að flýta
fyrir niðurbroti áfengis
í likamanum og því ekk-
ert hæft í því að svefn,
þjálfun eða sturta flýti
niðurbrotinu.
Alkóhól hverfur úr
Iikamanum á jöftmm
hraða óháð þvf hve mik-
ið hefur verið drukkið.
Alkóhól er aðskotaeftii,
sem Iíkaminn reynir
strax að losa sig við.
Áfengi sljóvgar dóm-
greind og dregur úr
viðbragðsflýti. Að vera
undir álirifum áfengis,
annarra vímuefna eða
lyfja við akstur hefur
lífshættu í för með sér,
ekki aðeins fyrir öku-
inanninn heldur einnig
aðra vegfarendur.
Morgunblaðið/Geir
Tölva mælir áfengi
í andardrætti
LÖGREGLAN tekur á næstunni í notkun nýjan
tækjabúnað til að mæia áfengismagn í útönd-
unarlofti ökumanna. Mælingin getur að vissu
leyti komið í stað mælingar á áfengismagni í
blóði og sýnir áfengismagn í hverjum lítra
lofts.
Þegar áfengi er drukkið berst það um líka-
mann með blóðrásinni og skilst m.a. í útöndun-
arlofti. Því er hægt að mæla áfengismagn í
líkamanum jöfnum höndum í blóði eða útönd-
unarlofti.
Tækin, sem nú hafa verið keypt til landsins,
hafa rutt sér til rúms í nágrannalöndunum,
Bandarikjunum, Ástraliu og víðar. Þau eru
þróuð í Bandaríkjunum. Tækjabúnaðurinn
samanstendur af greiningartæki, hermi til að
greina staðlaða áfengisblöndu, tölvu og lykla-
borði. Allar niðurstöður geymast í minni tæk-
isins en flytjast um mótald og símkei'fí til
rikislögreglustjórans. Þannig verður á einum
stað fylgst með mælinákvæmni og stöðugleika
tækjanna.
Fyrst um sinn verða tvö tæki í notkun til að
mæla áfengismagn með þessum hætti. Aimað
verður lijá Lögreglunni í Reykjavík en hitt í
sérbúinni bifreið. Ókumaður, sem grunaður er
um ölvun við akstur, verður færður á lög-
reglustöð eða í sérbúna bíliim.
Með því að nota öndunarsýni sem sönnunar-
gögn í ölvunarakstursináluin er komið í veg
fyrir óréttmæta sviptingu ökuleyfis meðan
beðið er eftir niðurstöðu mælingar á áfengis-
magni í blóði, hinn grunaði fær strax vitneskju
um niðurstöður, aðferðin er mun þægilegri en
blóðsýnistaka, ekki þarf að flylja hiim grunaða
í fylgd lögreglu til læknis, læknar fá tíma til
að sinna öðrum mikilvægum störfum og tími
lögreglumanna nýtist að sama skapi betur. Þá
styttist tími málsmeðferðar.
Nokkur ráð
►Sýnum öðrum vegfarendum fulla tillitssemi.
►Miðum ökuhraða ávallt við aðstæður.
►Höfum ferðaáfanga á langferðum ekki mjög langa.
►Verum viss um að bfllinn okkar sé alltaf í góðu
lagi.
►Notum öryggisbúnað eins og bflbelti og barnabfl-
stóla.
►ökum aldrei bfl, eða öðru ökutæki, eftir að hafa
neytt áfengis.
►Okum alltaf eins og við viljum að aðrir aki.
20% fækkun
slysa á 6 árum
ALÞINGI samþykkti eftirfarandi þingsályktun I febrúar
1996 um stefnumótun er varðar aukið umferðaröryggi:
„Alþingi ályktar að á næstu sex árum, eða fyrir lok ársins
2000, skuli stefnt að fækkun alvarlegra umferðarslysa um 20%
miðað við meðaltal áranna 1982 - 1992. Þessu takmarki verði
náð með sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga, vátrygginga-
félaga og áhugahópa um umferðaröryggismál í samvinnu við
ökumenn og samtök þeirra. Opinberir aðilar og fyrirtæki sem
starfa að umferðaröryggismálum og sveitarfélög með fleiri
íbúa en 1.000 skili til dómsmálaráðuneytisins fram-
kvæmdaáætlun eða tillögum er leiði til aukins umferðarörygg-
is. Dómsmálaráðherra kynni Alþingi í byrjun hvers árs stöðu
umferðaröryggismála og hvernig áætluninni miðar í átt að
settu marki. Starfs- og framkvæmdaáætlun verði endurskoðuð
árlega.“
Til að vinna að framvindu umferðaröryggisáætlunarinnar
skipaði dómsmálaráðheri'a sérstakan vinnuhóp. í honum eru
Þórhallur Ólafsson, formaður Umferðarráðs og aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra formaður, Georg Kr. Lárusson, lögreglu-
stjóri í Reykjavík og Rögnvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri
Tæknisviðs hjá Vegagerðinni. Einnig vinnur starfsfólk Um-
ferðarráðs að þessu verkefni.
I mars á síðastliðnu ári gaf vinnuhópurinn út skýrslu sem
ber heitið Umferðaröryggisáætlun 1997-2001. Vinnuhópurinn
setti fram það markmið að fækka alvarlega slösuðum og látn-
um í umferðinni niður fyrir 200 i árslok 2000 miðað við árin
1991-1995 en að meðaltali höfðu slasast eða látist um 250 ár-
lega á þessum árum. Til að gera starfið markvissara þá ákvað
vinnuhópurinn að leggja megináherslu á fjögur megin mark-
mið.
►Ökuhraði
►Ungir ökumenn
►Bflbelti
►Gatnamót
Unnið var markvisst að þessum markmiðum og er gerð
grein fyrir þýðingarmestu verkefnunum í þessari umfjöllun.
Vinnuhópurinn hefur reynt að virkja sem flesta í umferð-
aröi-yggisstarfinu og fá aðila til að vinna saman að sameigin-
legum markmiðum. Vinnuhópnum hafa borist margar umferð-
aröryggisáætlanir, sem sýnir það að aðilar í þjóðfélaginu hafa
sýnt þessu starfi mikinn áhuga. Nú nýlega bárust áætlanir frá
Vegagerðinni og Reykjavíkurborg þar sem gerð er grein íýiir
að hvaða verkefnum þessir stærstu veghaldarar landsins ætla
að vinna að á þessu ári.
I byrjun þessa árs gaf vinnuhópurinn út skýrslu til
dómsmálaráðherra um stöðu umferðaröryggismála. í henni
kemur fram að markmiði um fækkun slysa á síðasta ái'i náðist
og vel það. Þrátt fyrir góðan árangur á síðasta ári er þó nauð-
synlegt að halda vöku sinni en það sem af er árinu hafa orðið
mörg mjög alvarlega slys og margir hafa látist. Þetta sýnir
okkur það að hvergi má láta deigan síga í umferðaröryggis-
starfinu.
Hægt er að nálgast skýrsluna Umferðaröryggisáætlun 1997-
2001 hjá Umferðarráði.
Kynning á búnaði
í TILEFNI af því að þrjátíu ár eru liðin frá H-degi
getur almenningur kynnt sér ýmsan búnað, s.s. hraða-
myndavélar og tölvu sem mælir áfengismagn í útönd-
unarlofti ökumaima. Búnaðurinn verður til sýnis við
hús Umferðarráðs í Borgartúni 33 milli kl. 12. og 14
þriðjudaginn 26. maí.
Morgunblaðið/Júlíus
Dæmi um áhrif hraða:
Tveimur bifreiðum með nákvæmlega sömu akst-
urseiginleika, þar sem ökumenn bregð-
ast við á nákvæmlega sama hátt er ekið samsfða eft-
ir götu. Annarri er ekið á 50 km hraða, hinni á 60. Frain
undan er barn, sem hleypur út á götuna. Báðir öku-
mennirnir hentla samstundis. Ökumaður-
inn sem er á 50 nær að nema staðar í tæka tíð. Hinn ek-
ur á barnið á 44 km hraða.
MIÐUM HRAÐA ÁVALLT VIÐ ADSTÆÐUR!