Morgunblaðið - 24.05.1998, Síða 33

Morgunblaðið - 24.05.1998, Síða 33
32 SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR EIM fjölgar nú mjög, sem hvetja til þess að afgreiðslu hálendisfrumvarpanna verði frestað. í athyglisverðri grein eftir Svend-Aage Malmberg, haffræðing, einn helzta vís- indamann þjóðarinnar, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, segir m.a.: „Þetta sama land - víðáttan, fjöll og fírnindi, jökl- ar, hraun, sandar, ár og vötn, ásamt strönd og hafí úti fyrir og himni - hefur þó einnig sína sál, sinn anda tilfínninga. Öll sár sem landinu eru veitt eru eins og mein í okkar eigin holdi og hjarta. Þannig snúast rökin um varúð í meðferð ekki að mati bréfritara um ferða- mennsku og veraldlegan arð, heldur um þjóðarsálina, það að vera Islendingur í eigin landi ósnortinnar víðáttu, ástina til landsins og meðvitundar um sameiginlega þjóðareign, sem er annað en ríkiseign.“ Og greinarhöfundur segir einnig: „Að lokum, ríkisvaldið ætti að gera sér Ijóst, að þjóðin vill annað en nú er að stefnt eða eins og hún skilur fram- gang mála. Ríkisvaldið ætti að staldra við og fara sér hægar í sakirnar til að gefa okkur hin- um tækifæri, annaðhvort til að skilja málstað ríkisvaldsins eða Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. þá til að leiða ríkisvaldið inn á aðrar brautir. Gefum þjóðinni tíma til nánari umfjöllunar um svo þýðingarmikil málefni, sem um ræðir, eignarvald á auðlindum landsins og stjórnsýslu víðerna landsins. Markmiðið er „að þjóðin lifi í sátt við landið“.“ Þetta sjónarmið hins virta vísindamanns fékk stuðning úr óvæntri átt eins og sjá mátti hér í blaðinu í gær. Á fundi frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins til borgarstjórnar í fyrradag samþykktu þeir svohljóðandi yfírlýsingu, sem birt var í Morgunblaðinu í gær: „Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins til borgarstjórnar í Reykjavík skora á ríkisstjórn- ina að ljúka ekki afgreiðslu frumvarpa um skipan mála á miðhálendinu, þegar þing kem- ur saman að loknum sveitar- stjórnarkosningum, heldur fresta henni til haustsins. Við teljum almenn viðbrögð sýna, að þörf er á auknu ráðrúmi og víðtækari umræðu utan þings- ins um þetta mikla hagsmuna- mál. Við teljum mikilvægt að hagsmunir þeirra landsvæða, sem ekki liggja að hálendinu, þar á meðal Reykjavík, verði vel tryggðir. Við heitum því að beita okkur fyrir því af alefli - náum við meirihluta í borgar- stjórn - að þjóðarsátt verði um þetta mikla hagsmunamál allra landsmanna." Ekki fer á milli mála, að þessi yfirlýsing er gefin vegna þess, að frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins hafa orðið þess varir í kosningabaráttunni, að mikill fjöldi fólks hefur þungar áhyggjur af því að þau frum- vörp, sem nú liggja fyrir Alþingi og þá sérstaklega frumvarp að sveitarstjórnar- lögum verði samþykkt. Það er mikil og djúpstæð andstaða við þær hugmyndir, að sveit- arfélögin, sem land eiga að há- lendinu, hafí skipulagsrétt yfír ákveðnum svæðum. Fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafa bersýnilega fundið að það er varasamt, svo að ekki sé sterkar til orða tekið, að samþykkja þessi ákvæði óbreytt. Þessi yfírlýsing verðandi borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins er mikilvægt framlag til þeirrar baráttu, sem nú er háð um málefni miðhálendisins. Borgarstjórnarflokkur Sjálf- stæðisflokksins er ekki lítið afl innan flokksins, hvort sem hann er í meirihluta eða minni- hluta í borgarstjórn. Vonandi taka þingmenn Sjálfstæðis- flokksins mið af því, sem flokksfélagar þeirra í borgar- stjórn hafa um þetta að segja. Kjarni málsins er þó sá, að andstaðan við afgreiðslu há- lendisfrumvarpanna er svo mikil, að það er ekkert vit í því fyrir stjórnarflokkana að knýja á um, að þau verði samþykkt að óbreyttu. Miðhálendið og varðveizla þess er mikið tilfínn- ingamál fyrir þjóðina, eins og Svend-Aage Malmberg rétti- lega segir. Það er hyggilegt fyrir meirihluta Alþingis að fara sér hægt í þessu máli, enda skiptir engu um framtíð þessa landsvæðis, þótt frekara svigrúm gefíst til umræðna um málið á meðal þjóðarinnar. HALENDIS- FRUMVÖRPUM VERÐI FRESTAÐ Af skrifum Jónasar má sjá að hann setur manninn og guðlegan innblástur hans í hásæti. Þannig eru vísindalegar hug- myndir hans eins nýstárlegar og þær geta verið. Maðurinn sem mikilvægur og óum- deilanlegur þátttakandi í sköpun- arverkinu, það er hugmynd Jónas- ar og afstaða til umhverfisins. Og þannig eru náttúruvísindin nú ekki í neinni andstöðu við kristna trú. I krafti skáldlegrar fegurðar er sköpunarsagan í Genesis sönn, að dómi Jónasar. Slík sköpun er feg- urð, og fegurð er sönn. Slíka af- stöðu má sjá hvarvetna í verkum Jónasar og því hafa ýmsir talið að hann hneigðist til algyðistrúar, en hann var alkristinn eins og ljóð hans bera vott um og sem slíkur fann hann ekkert í vísindum sem stangaðist á við kristindóm eins og íyrr getur. Afleiðingin af skammta- aflsfræði þessarar aldar er sú meðal annars að margir fremstu eðlisfræðingar nútímans telja að vitund mannsins taki virkan þátt í að skapa efnisheiminn. Hún sé sem sagt það sem allt snýst um. Maður- inn, sem var orðinn utangarðs í sköpunarverkinu, er þannig aftur og enn í miðþyngdarstað, þar sem guð hafði sett hann í upphafi. Um það ekki sízt snýst skáldskapur Jónasar Hallgrímssonar og af þeim sökum er hann jafnnútímalegur náttúruvísindamaður og hann er óumdeilanlega nýtízkulegur í skáldskap sínum og viðhorfum. „Því má ekki líta á landslagsmyndina sem tilraun í náttúru- speki?“ spurði breski málarinn Constable. Hann virðist hafa verið þeirrar skoðun- ar að góð myndlist væri vísindi sem beindist að rannsókn á lög- málum náttúrunnar. Pieasso sagðist, sem frægt er orðið, mála það sem hann hugsaði _ ekki það sem hann sæi. „Veruleiki vísind- anna er síbreytilegur og trúlega ekki eins óskyldur þeim veruleika sem birtist í listaverki og margir vilja vera láta,“ sagði Jóhann Ax- elsson. „Er tímarúm Einsteins nær veruleikanum en himinninn í myndum van Gogh?“ sem lýsti til- finningum okkar í litum, frjáls að fyrirmyndinni. Þannig geta hug- myndirnar í ljóðum Jónasar einnig verið vísindi og eitt er víst, þær eiga margar rætur í vísindalegum hugmyndum sem hann kynntist og leituðu á huga hans. Kannski voru þær einnig andsvar við þess- um vísindum. Skammtakenningin gerir ráð fyrir tilviljunum eða orsakalausum atburðum innan efnisins; óskýrð- um stökkbreytingum. Hún gerir því ráð fyrir svigrúmi sem á ekki heima í nauðhyggju. Hugmyndim- ar um vísindalegt frelsi efnis- fræðinnar eru þannig afleiðing af lögumálum skammtaaflsfræðinnar. Listamaður getur þannig verið vísindamaður á sama hátt og vís- indaleg hugsun getur átt rætur í mikilsverðum skáldskap sem til- veran og náttúra hennar yrkir sí- felldlega inní umhverfi okkar og hugsun. Ýmsir af helztu eðlis- fræðingum okkar tíma virðast öruggari leiðsögn til guðs en kirkjusókn eða hefðbundin trúar- brögð. Slíkar hugmyndir um til- veruna, slík leiðsögn hefði verið Jónasi meir að skapi en aðrar þær kenningar um efnisheiminn sem við þekkjum. Og raunar boðaði hann slíkar kenningar í verkum sínum, og þá ekki sízt ljóðum. Ekkert ljóðskáld sem ég þekki er þannig nútímalegra en Jónas Hall- grímsson ef miðað er við þær kenningar um efnisheiminn sem nú eru efst á baugi. Jónasi hefði þótt það viðhorf til vísinda gífur- lega mikilvægt að ekkert það sé í nútímakenningum um eðlisfræði sem stangast á við kristna trú. Þessar hugmyndir flutti hann sjálfur fullum fetum í ljóðum sín- um eins og hvern annan sjálfsagð- an hlut og þurfti ekki að færa rök að þeim, svo nátengdar sem þær eru upplagi hans og hugsun allri. Hann var ekki einungis skáld af guðs náð heldur einnig vísinda- maður af guðs náð. Það sjáum við ekki sízt þegar hann gerir ráð fyr- ir því, að kenningai- breytist og hann muni segja önnur tíðindi úr vísindum en þau sem eru honum efst í huga á skrifandi stund. Og hann gerir einnig ráð fyrir „viðburðum" innan fastra lögmála náttúrunnar. Það er sem sagt skáldskapur og ævintýri í efninu. Innan reglunnar er frelsi þar sem vænta má óvæntra atburða. HELGI spjall SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 33 ÞEGAR ÞETTA REYKJA- víkurbréf er skrifað er verið að opna kjör- ■ staði í sveitarfélögum 0 um allt land og þegar ^ fyrstu eintök af sunnudagsblaði Morgunblaðsins koma úr prentvélinni stendur kosning enn yfir. Kosningabaráttunni er hins vegar lokið og kjósendur taka sínar ákvarðanir. Engu að síður gefur kosningabaráttan tilefni til margvíslegra hugleiðinga. Að því var lítillega vikið á þessum vett- vangi fyrir viku en tímabært að gera það í ítarlegra máli. Það fer ekki á milli mála, að það er grundvallaratriði í lýðræðislegum kosningum, hvort sem er til sveitarstjóma eða Alþingis, að frambjóðendur hafi mögu- leika á að koma skoðunum sínum og baráttumálum á framfæri við kjósendur. Fyrr á árum, þegar hér voru gefin út fjög- ur og stundum fimm dagblöð var þetta til- tölulega einfalt. Dagblöðin voru tengd stjórnmálaflokkum eða í eigu þeirra og hvert blað sá um að koma baráttumálum síns flokks á framfæri. Fyrir þremur ára- tugum stóð kosningabaráttan yfir í allt að tvo mánuði og dagblöðin voru lögð undir kosningaáróður. Það var orðið að venju að fólk sagði, að blöðin væru ólesandi nokkrum vikum fyrir kjördag. Þessi aðferð dugði hins vegar til þess að koma baráttu- málum flokkanna til skila. Auk þess voru haldnir fundir, bæði stórir og smáir, sem fyrst og fremst voru þó sóttir af flokksmönnum en þjónuðu þeim tilgangi að efla með þeim baráttuhug. Sjónvarpið breytti baráttuaðferðum flokkanna mjög í kosningum. Mesta breyt- ingin varð sú, að blöðin gátu ekki lengur dregið upp ófagra mynd af helztu and- stæðingum sínum. I mörgum tilvikum gjör- breyttist ímynd stjómmálamanna, þegar sjónvarpið kom til sögunnar. Einn af um- deildustu stjómmálamönnum þess tíma var Magnús heitinn Kjartansson, þáverandi rit- stjóri Þjóðviljans og síðar alþingismaður og ráðherra. Eftir að sjónvarpið kom til sög- unnar birtist hann kjósendum, sem skemmtilegur og ljúfur persónuleiki, þótt andstæðingablöðin hefðu lagt sig iram um að koma annarri mynd til skila. Nú eru dagblöðin aðeins þrjú og ekkert þeirra tengt stjómmálaflokki. Barátta blaðanna til þess að losa um tengslin við stjómmálaflokkana var erfið og sársauka- full en henni er lokið. I þeirri baráttu hafa þau sjálfsagt í sumum tilvikum gengið lengra en nauðsynlegt var til að þurrka út af síðum blaðanna margvíslegt efni tengt stjómmálaflokkum og baráttumálum þeirra. Niðurstaðan hefur orðið sú, að stjómmálabaráttan að svo miklu leyti, sem hún er háð á síðum blaðanna, hefur beinzt í dálítið sérstakan farveg. Frambjóðendur í prófkjörum og kosningum og stuðnings- menn þeima skrifa ótrúlegan fjölda gi-eina til birtingar í blöðunum. Ef menn setja sig í spor flokka og fram- bjóðenda er þessi baráttuaðferð skiljanleg. Hvemig eiga þeir að ná til fólks? Sjón- varps- og útvarpsstöðvar tala í fréttatím- um fyrst og fremst við forystumenn flokka og framboðslista. Að vísu er það til fyrir- myndar, hvernig Ríkisútvarpið rækir skyldur sínar í því að koma á framfæri við fólk um allt land því, sem er að gerast á hverjum stað, og opna frambjóðendum leið að kjósendum. Dagblöðin byggja í fréttum sínum fyrst og fremst á því, sem fréttnæmt getur talizt í kosningabaráttunni og oft er það mjög takmarkað. Annars er fréttamat teygjanlegt hugtak og hægt að misnota á margan hátt. Það þýðir ekki lengur fyrir flokkana að efna til fjöldafunda. Kjósendur sækja þá ekki sjálfviljugir og það er óhemju álag á flokksskrifstofurnar að smala sínum stuðningsmönnum á fundi til þess eins að sýna styrkleika með fjölmenni á slíkum samkomum. Morgunblaðið hefur orðið aðal vettvang- ur frambjóðenda og stuðningsmanna þeirra í prófkjörum, almennum kosning- um og forsetakosningum fyrir greinaskrif. Blaðið hefur tekið þá stefnu að vera alger- lega opið fyrir slíkum greinum frá fólki, hvar í flokld, sem það stendur, og hvaða skoðanir, sem það kann að hafa. Einu tak- mörkin eru þau að velsæmis sé gætt að lögum. Fjöldi greinanna er hins vegar fyrir löngu kominn út í öfgar. Hvort sem um er að ræða prófkjör eða kosningar dembist slíkur fjöldi greina yfir ritstjórn blaðsins að það er satt að segja með ólíkindum. Viðbrögð ritstjórnar blaðsins hafa ekki verið þau að neita að birta greinar á þeim forsendum, að ekkert rými sé í blaðinu fyr- ir þessi ósköp og ekki heldur að takmarka fjölda þeirra greina, sem höfundar geta skrifað heldur einungis að setja á þær ákveðin lengdannörk. I prófkjörum er al- veg ljóst, að markmiðið með greinaskrifun- um er að fá nafn frambjóðandans birt í fyr- irsögn og mynd af honum. Efnislega eru greinarnar ótrúlega rýrar og höfundar hafa lítið að segja. Fyrir nokkrum árum var svo komið, að lesendur blaðsins gerðu nánast uppreisn gegn því gífurlega magni greina, sem birt- ist dag hvern í 2-3 vikur fyrir prófkjör og kjördag í almennum kosningum. Þá var brugðið á það ráð að setja greinamar í sér- stök fylgiblöð, þannig að þær ryddu ekki öllu öðru efni út af síðum blaðsins og þeir, sem ekki hefðu áhuga á að kynna sér sjón- armið frambjóðenda, gætu lagt þau blöð til hliðar, ef þeim sýndist svo. Nú má hins vegar spyrja, hvort þessi að- ferð frambjóðenda, hvort sem er í próf- kjörum eða kosningum, sé ekki að ganga sér til húðar. Það er auðvitað hægt að ganga úr skugga um það með könnun meðal lesenda hversu mikið þetta efni er lesið. En jafnframt hefur fjölmiðlun breytzt mikið á undanförnum árum, ekki sízt með tilkomu netsins. Netið býður upp á nýja möguleika fyrir stjórnmálaflokkana, sem þeir af einhverjum ástæðum virðast ekki hafa hagnýtt sér, nema að mjög tak- mörkuðu leyti. En netið opnar einnig tækifæri fyrir dagblöðin, sem hafa komið sér upp netútgáfum til þess að veita nýja þjónustu. I kosningabaráttunni nú gerði Morgun- blaðið tilraun með að færa hluta af því efni, sem verið hefur í blaðinu um langt skeið fyrir borgarstjórnarkosningar yfir á netút- gáfu blaðsins, sem ástæða er til að taka fram að nýtur stöðugt vaxandi vinsælda. Hér var um að ræða, að Morgunblaðið hafði í samvinnu við borgaryfirvöld gefið lesendum sínum kost á að beina fyrir- spumum til borgarstjórans í Reykjavík og síðan voru spurningar og svör birt í blaðinu. Þar sem blaðið hefur hafið starf- rækslu umfangsmikillar netútgáfu og netið hentar vel til þjónustu af þessu tagi var ákveðið að flytja hana yfir á netið og tak- marka hana ekki lengur við spumingar og svör til borgarstjórans í Reykjavík heldur bjóða lesendum Morgunblaðsins um allt land að beina spurningum til frambjóðenda allra flokka og allra lista í öllum sveit- arfélögum, þar sem kosið er í dag, laugar- dag. I stóram dráttum hefur þessi tilraun tekizt vel, þótt sjálfsagt megi betur gera. Jafnframt er auðvitað spurning, hvort ekki sé tilefni til að halda henni áfram allt árið um kring í stað þess að takmarka hana við nokkrar vikur fyrir kjördag. Hið eina, sem segja má, að hafi komið á óvart er sú stað- reynd, að lítið af fréttnæmum upplýsingum hafi verið í spurningum og svörum en ætl- unin var sú að birta í blaðinu sjálfu fréttir, sem fram kæmu í spumingum og svöram á netinu. í LJÓSI ÞESS Kosninga- gífurlega magns . * greina, sem tengj- greinar a ast kosningum og netið? prófkjörum, sem Morgunblaðinu ber- ast til birtingar hlýtur sú spurning að vakna, hvort tímabært sé að beina ein- hverju af þessu eíhi inn á netútgáfu blaðs- ins. Það yrði þá gert á þann veg, að grein- amar yrðu birtar á netinu en mjög stuttur REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 23. maí útdráttur, unninn á ritstjórn blaðsins, yrði birtur í blaðinu sjálfu og jafnframt vísað á lengri útgáfu á netinu. Þessi birtingarað- ferð opnar marga nýja möguleika fyrir höfunda. Þeir geta t.d. í umfjöllun um ákveðin málefni vísað lesendum á netinu á annað efni tengt því, sem þeir era að fjalla um. Þótt það sé að sjálfsögðu einnig hægt að gera í dagblaði er þægilegra og auðveld- ara fyrir þann, sem situr við tölvuna, að fara beint inn á nýja slóð við lestur slíkra greina. Birting á netinu skapar einnig mögu- leika á því að flokka greinar bæði eftir höfundum og efni, þannig að lesendur, sem vilja kynna sér skoðanir ákveðins fram- bjóðanda, eigi greiðan aðgang að fyrri greinum hans á netinu ásamt upplýsingum um höfundinn sjálfan, náms- og starfsferil o.s.frv. Þá er einnig auðvelt fyrir þá, sem vilja kynna sér greinaskrif um ákveðin málefni, eins og t.d. hálendismálin, sem mjög hafa verið til umræðu að undanfömu, að kynna sér þau í einum pakka, ef svo má að orði komast. Enn má nefna þann kost við þá aðferð að birta greinar um prófkjör og kosningar á netinu og stuttan útdrátt í blaðinu að hvort tveggja gerist nánast umsvifalaust en vegna þess gífurlega magns greina, sem Morgunblaðinu berast til birtingar þurfa greinahöfundar að bíða dögum saman og stundum vikum saman eftii- birtingu. Þessi þjónusta mundi því stórbatna að þessu leyti. Tölvueign er orðin mjög algeng á Islandi og nettengingum fjölgar mjög. I þeim til- vikum, að lesendur Morgunblaðsins hafi ekki aðgang að netinu en óski eftn- að kynna sér sjónarmið greinahöfunda í lengri útgáfu, er auðvelt að veita þeim þá þjónustu að prenta út eintak af grein á net- inu og senda í pósti eða í símbréfi. Raunar er vel hægt að hugsa sér að þessi aðferð við birtingu á greinum nái ekki einungis til þess efnis, sem tengist prófkjörum og kosningum. Vegna mikils magns aðsendra grein hefur Morgunblaðið á seinni árum neyðst til þess að setja lengdarmörk á greinar. Þeim möguleika er haldið opnum fyrst og fremst á sunnudög- um að birta lengri greinar en þó er alveg Ijóst, að mjög langar greinar henta ekki í dagblaði. Ástæðan fyrir því að mjög er leitað eftir birtingu slíkra greina í Morgun- blaðinu er áreiðanlega sú, að hér er lítið um tímarit, sem era vettvangur slíkrar lengri umfjöllunar um menn og málefni. Netið býður hins vegar upp á sama möguleika með almennar aðsendar greinar eins og kosningagreinar að birta þær í lengri útgáfu á netinu en styttri útgáfu í blaðinu sjálfu. Þeir lesendur, sem eftir lest- ur styttri útgáfu, hafa áhuga á að kynna sér hinn lengri texta geta þá gert það á netinu og í þeim tilvikum, sem þeir hafa ekki aðgang að því fengið lengri útgáfuna prentaða út og senda heim til sín í pósti eða með símbréfí. Einhverjir kunna að spyrja, hvort með slíkum breytingum sé ekki verið að draga úr þjónustu við þá, sem vilja taka þátt í op- inberum umræðum með þessum hætti. Þegar betur er að gáð er ekki um það að ræða heldur er verið að gera hvort tveggja í senn að bjóða upp á fjölbreyttari þjónustu um leið og þetta efni verður aðgengilegra fyrir hinn almenna lesanda. Raunar má telja líklegt að með þeim birtingaraðferð- um, sem hér hefur verið lýst mundi kynn- ing á sjónarmiðum almennra greina- höfunda, svo og frambjóðenda í kosningum stóraukast vegna þess, að margfalt fleiri mundu kynna sér þau, ef þau væru sett fi-am á aðgengilegri hátt. Fyrir ritstjóm Morgunblaðsins er birt- ing aðsends efnis á þennan hátt ekki minni vinna heldur meiri vinna, bæði við frágang á slíku efni á netið og einnig við vinnslu á styttri útdráttum úr greinum til birtingar í blaðinu. Þessar hugleiðingar era settar hér fram til umhugsunar fyrir alla þá, sem hlut eiga að máli nú í lok kosningabaráttunnar, þegar þetta efni hefur verið fyrirferðar- mikið á síðum Morgunblaðsins. : _ IGRAFARVOGI Morgunblaðið/Ásdís En jafriframt er ástæða til að benda á að kosningavefur sá, sem Morgunblaðið hefur sett upp og starfrækt síðustu vikur fyrir kosningar, býður upp á mikla möguleika til aukinna samskipta á milli íbúa og sveitar- stjórnarmanna, sem vel má vera að ástæða sé til að kanna, hvort eigi að verða varan- leg en ekki einungis tengd kosningum til sveitarstjórna. Málefna- kynning sljórnmála- flokka EFTIR STENDUR svo sú spuming, hvort stjómmála- flokkarnir geta þróað nýjar aðferðir í samskiptum, bæði við fjölmiðla og al- menning til þess að koma sínum sjónarmið- um á framfæri í kosningabaráttu. Eins og áður var að vikið má vel vera, að barátta blaðanna fyrn- sjálfstæði sínu hafi orðið til þess að fjarlægðin á milli blaða og stjórn- málaflokka sé orðin óþarflega mikil. Þar sem sú barátta hefur verið til lykta leidd á farsælan hátt er hins vegar spurning, hvort þessir aðilar geti nálgast hver annan á for- sendum jafnræðis en með það sameigin- lega markmið að auðvelda lqósendum í lýðræðislegum kosningum að átta sig á um hvað er deilt og hvaða málefni eru helzt á döfinni. Stjórnmálaflokkamir hafa ekki lagt áherzlu á að vinna málefnalegar upplýsing- ar um baráttumál sín á þann veg, að það auðveldi fjölmiðlum að vinna úr þeim. Þeir gefa út bæklinga til þess að kynna kjósend- um sjónarmið sín í einstökum málaflokkum en sú útgáfa hentar ekki endilega til úr- vinnslu á fjölmiðlum. Að þessu leyti gætu stjórnmálaflokkarnir auðveldað fjölmiðlum að koma baráttumálum þeirra fyrrnefndu til skila. Stjórnmálaflokkarnir eru áreiðanlega í erfiðleikum með að finna leiðir til að nálg- ast kjósendur. Á undanfomum vikum hef- ur Morgunblaðið óskað eftir daglegum upplýsingum um dagskrá frambjóðenda bæði Reykjavíkurlistans og D-lista Sjálf- stæðisflokksins í því skyni að vinna úr þeim fréttir og fylgjast með frambjóðend- um. Þessar upplýsingar hafa leitt í ljós, svo að ekki verður um villzt að stundum er þetta efni ótrúlega fátæklegt. Stjórnmála- flokkarnir hafa einnig í mjög takmörkuð- um mæli tileinkað sér þær vinnuaðferðir að laga sig að útsendingartímum útvarps- og sjónvarpsstöðva eða vinnslutíma dagblaða í sambandi við upplýsingamiðlun. Ein aðferð, sem stjórnmálaflokkamir ættu að íhuga í kosningabaráttu, eru dag- legir blaðamannafundii-, þar sem forystu- menn viðkomandi flokks mæta ásamt þeim fulltrúum flokkanna, sem hafa sérþekkingu á málum, sem til umræðu eru þá stundina. Með daglegum blaðamannafundum í kosn- ingabaráttu er fjölmiðlum auðveldaður að- gangur að stjórnmálamönnunum og þar gefst kostur á annars konar skoðanaskipt- um og upplýsingamiðlun en fram fer í þeirri símafréttamennsku, sem nú er stunduð í tengslum við stjórnmálamennina. Með daglegum blaðamannafundum mundu forystumenn og frambjóðendur skapa sjálfum sér vettvang til að vera í daglegum tengslum við fjölmiðlana og opna nýjar leiðir til að koma á framfæri þeim málum, sem viðkomandi flokkur eða framboðslisti leggur mesta áherzlu á þá stundina. Jafnframt yrðu slíkir daglegh’ blaðamannafundir vettvangur umræðna um öll þau málefni, sem efst eru á baugi hverju sinni. Þessi vinnuaðferð mundi áreiðanlega stytta vegalengdina á milli frambjóðenda og kjósenda mjög. Hún mundi líka draga úr því, sem hlýtur að vera orðið mjög hvimleitt fyrir þá, sem gegna forystuhlutverki í stjórnmálum, að margir fjölmiðlar séu að eltast við þá nánast allan sólarhringinn. Málefnaleg úrvinnsla, sem hentar fjölmiðlum, aðlögun að vinnslutíma þeirra og daglegir blaðamannafundir, allt mundi þetta opna frambjóðendum nýja möguleika á að koma baráttumálum sínum til skila um leið og það mundi auðvelda fjölmiðlum að gegna því hlutverki, sem þeim ber, að vera boðberi upplýsinga á milli frambjóðenda í kosningum og almennings í landinu. „í ljósi þess gífur- lega magns greina, sem tengj- ast kosningum og prófkjörum, sem Morgunblaðinu berast til birting- ar hlýtur sú spurning að vakna, hvort tíma- bært sé að beina einhverju af þessu efni inn á netút- gáfu blaðsins. Það yrði þá gert á þann veg, að greinarnar yrðu birtar á netinu en mjög stuttur út- dráttur, unninn á ritstjórn blaðsins, yrði birtur í blaðinu sjálfu og jafnframt vísað á lengri útgáfu á netinu. Þessi birt- ingaraðferð opnar marga nýja mögu- leika fyrir höfunda.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.