Morgunblaðið - 24.05.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 3^j-
Nám í kennslu-
fræði til kennsl-
uréttinda við HÍ
NÝLOKIÐ ei- heildarmati á kenn-
aramenntun á Islandi sem gert var
að tilhlutan menntamálsráðuneyt-
isins. Aður hafði farið fram sjálfs-
mat í öllum kennaramenntunar-
stofnunum, Háskóla Islands,
Kennaraháskóla íslands og
Háskólanum á Akureyri. Mats-
nefnd, skipuð tveimur erlendum
sérfræðingum og þremur Islend-
ingum, vann hið ytra mat fyrir
hönd menntamálaráðuneytisins.
Við Háskóla Islands, félagsvís-
indadeild, voru tekið viðtöl við nær
alla kennara sem standa að
kennslufræðináminu. Einnig var
rætt við fulltrúa núverandi nem-
enda og nemendur frá fyrra ári. Þá
byggðist matið á ýmsum skrifleg-
um gögnum sem lögð voru fram að
beiðni matsnefndarinnar.
Jón Torfi Jónasson deildarfor-
seti, Hafdís Ingvarsdóttir for-
stöðumaður náms í kennslufræðum
og Sigrún Aðalbjarnardóttir skor-
arformaður sögðu niðurstöður
matsins mjög hvetjandi fyrir það
þróunarstarf sem kennarar og
nemendur í __ kennslufræðináminu
við Háskóla Islands hafa verið að
vinna á undanfórnum árum. Mats-
nefndin tekur enda sérstaklega
fram hversu mikill kraftur virðist
vera í náminu, kennarar hrein-
skiptir og leggi sig fram. Náminu
er talið til tekna að stundakennar-
ar kenni jafnframt við framhalds-
skóla þar sem það efLi tengsl
kennslufræðinámsins við skóla-
starf.
Markmið
Matsnefndin segir skýr tengsl
vera á milli markmiða námsins og
framkvæmdar í daglegu starfi og
að markmiðin móti starfið. Enn-
fremur segir nefndin að glöggt sé
að samræmi ríki á milli kennslu-
fræði einstakra faggreina og æf-
ingakennslunnar.
Kennslan
Nemendur eru ánægðir með
kennsluaðferðir og telja að flestir
kennaranna séu góðar fyrirmyndir
í starfi. Ennfremur telja nemendur
að komið sé fram við þá sem jafn-
ingja og að þeir taki þátt í að móta
námið. Hins vegar bendir matið til
þess að nemendur þurfi að hafa
miklu betri aðgang að tölvum og
auka þurfi tölvukennslu í náminu.
Menntun raungreinakennara
í skýrslunni lætur matsnefndin í
ljósi sérstakar áhyggjur af mennt-
un raungreinakennara og bendh' á
hversu léleg skilvirkni sé í braut-
skráningu stærðfræðinga. A und-
anfömum 25 árum hafi einungis
101 nemandi útskrifast með BS-
gráðu úr stærðfræðiskor og þar af
séu aðeins 15 starfandi við kennslu
í íslenskum grunn- og framhalds-
skólum. Ur þessu verði Háskóli ís-
lands, raunvísindadeild, að bæta.
Endurmenntun kennara
Matsnefndin leggur mikla
áherslu á að endurmenntun kenn-
ara verði sinnt betur og telur það
forsendur framfara í skólastarfi.
Framboð á endurmenntun hefur
verið háð því fé sem til hennar er
veitt. Það eru því skýr skilaboð til
menntamálaráðuneytisins að auka
þurfi verulega fé til endurmennt-
unar.
Efling kennaranáms
Nefndin ítrekar margoft í mats-
skýrslunni að ekki megi skerða
grunnmenntun kennara og bendir
í því sambandi á að kennaranám
við Háskóla Islands þurfi stuðn-
ingsyfirlýsingu æðstu yfirstjórnar
skólans við að efla samskipti við
aðrar deildir og skorir. Bjóða eigi
m.a. fram kennslufræði greina
innan BA/BS-námsins til viðbótar
kennsluréttindanáminu. I matinu
kemur jafnframt fram stuðningur
við þá ósk kennslufræðinnar að
auka æfingakennslu og bent er á
að einn möguleiki sé að lengja
skólaárið í kennslufræðináminu
þannig að það yrði meira en 26
vikur alls, en slíkt tíðkist víða er-
lendis. Niðurstöður matsnefndar
ei-u því að auka og styrkja þurfi
kennarar.ám við Háskóla Islands.
TENA Palmer og félagar.
Tena Palmer og
félagar á Gauknum
SÖNGKONAN Tena Palmer og
flokkur hennar leika á
skemmtistaðnum Gauki á Stöng
í Tryggvagötu þriðjudagskvöld-
ið 26. maí.
Hljómsveitina skipa auk
hennar Hilmar Jensson, gítar-
leikari, Jóhann Asmundsson,
bassaleikari og Matthias Hem-
stock, trommuleikari. Þau
munu leika popplög í nýstár-
legum útsetningum þar sem
lögin eru notuð sem stoðir und-
ir snarstefjun, segir í fréttatil-
kynningu. Höfundar laga eru
m.a. Stevie Wonder, John Hi-
att, James Brown og Portis-
head.
+ Guðfinna Jóna
Steindórsdóttir
Wíum var fædd í
Götuhúsum á
Stokkseyri 27. febrú-
ar 1909. Hún lést 14.
maí siðastliðinn á
Hjúkrunarheimilinu
Skjóli. Foreldrar
hennar voru hjónin
Guðbjörg Jónsdóttir,
f. 25. október 1883,
d. 13. september
1980 og Steindór
Sæmundsscn, f. 26.
janúar 1881, d. 9. ágúst 1948.
Guðfinna átti tvo bræður,
Sófónías Sæmund, f. 21. október
1905, d. 6. des. 1907, og Óskar, f.
28. maí 1920, maki Margrét
Eiríksdóttir, f. 24. febrúar 1921.
Guðfinna giftist 10. maí 1930
Gísla Wíum kaupmanni frá
Mjóafirði eystra, f. 22. maí 1901,
d. 27. júní 1972. Foreldrar hans
voru Sigrún Þórunn Sveinbjörns-
dóttir, f. 10. janúar 1860, d. 28.
janúar 1937, og Guðmundur
Hansson Wíum, f. 18. ágúst 1857,
d. 28. nóvember 1910.
Börn Guðfinnu og Gísla eru: 1)
Elísa Björg Wíum, f. 12. febrúar
1931, maki Gunnar Jónsson og
eiga þau tvö börn, Guðfinnu
Nönnu Gunnarsdóttur, maki
Jóhann Ingi Gunnarsson, þeirra
börn eru: Gunnar Ingi, Steindór
Björn og Indiana Nanna; Guð-
mund Ragnar Gunnarsson, maki
Margrét Káradóttir, þeirra börn
Elsku langamma. Ég er svo
heppinn að hafa átt þig, bestu
langömmu í heimi. Við fengum 10
góð ár saman og þó ég sakni þín
ólýsanlega, veit ég að þér líður vel,
komin til hans langafa sem ég hitti
þó aldrei en allir elskuðu svo mikið.
Ég veit að þú fylgist með okkur
mömmu og veist að við gleymum
þér aldrei.
Elsku amma mín. Nú ert þú farin
til hans afa. Þú hefur alltaf verið svo
fin. Ég væri eigingjöm, ef ég alltaf
vildi þig hafa.
Hvíl þú í friði, elsku langamma,
og við hittumst einhvem tíma aftur.
Þín,
Dóra Sif.
Elsku amma, okkur systkinin
langar að senda þér nokkur kveðju-
orð. Nú þegar þú ert horfin frá okk-
ur er okkur söknuður í huga þar
sem þú hefur verið svo lengi með
okkur. Við vitum þó að þú varst til-
eru Agatha Sif og
Elísa Björg. 2) Dóra
Sif Wíum, f. 20. mars
1934, maki Hilmar
Ilálfdánarson, þau
skildu. Þeirra dóttir
er Drífa Hilmars-
dóttir og dóttir
hennar er Dóra Sif.
3) Kristinn Wíum var
sonur Gísla, liann
ólst upp hjá Guð-
finnu. Hann var
fæddur 17. júní 1926,
d. 13. janúar 1994.
Maki Marta Sveinsdóttir, þau
skildu. Þeirra börn eru: Gísli Wí-
um, maki Kolbrún Aradóttir.
Þeirra börn em Nanna og Krist-
inn. Hildur Wíum, maki Hermann
Kjartansson, látinn. Þau skildu.
Þeirra börn eru: Marta, Sara og
Rut. Þór Wíum, maki Hjördís
Þóra Hermannsdóttir. Þeirra
böra eru: Jóhanna Herdís og Ingi
Þór. Sveinn Wíum. Kristinn K.
Wíum yngri er sonur Kristins og
Ljótunnar Indriðadóttur.
Guðfinna fluttist með foreldr-
um sínum frá Stokkseyri til Vest-
mannaeyja 1913 og bjó þar til
ársins 1957 að undanskildu einu
ári sem hún og maður hennar
Gísli Wfum bjuggu á Norðfirði.
Frá árinu 1957 hefur hún búið í
Reykjavík.
títför Guðfinnu fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 25.
maí og hefst athöfnin klukkan
15.
búin að kveðja vegna þess að sl. ár
hefur verið þér erfitt, en fram að
þeim tíma gast þú búið á þínu fal-
lega heimili og það var þér söknuð-
ur að þurfa að yfirgefa það. En á
Skjóli fékkst þú frábæra umönnun
og þú kunnir að meta það hve
starfsfólkið var þér einstaklega gott
og hugsaði vel um þig.
Amma Nanna var mikil fjöl-
skyldumanneskja, hún var vakin og
sofin yfir velferð okkar allra og vildi
alltaf fylgjast með öllu frá degi til
dags og hafði daglegt samband við
okkur. Mamma okkar og Dóra Sif
frænka hugsuðu alltaf einstaklega
vel um ömmu og samband þeirra
var mjög gott, Dóra Sif bjó í
nágrenninu og kom hún til ömmu
hvern dag.
Amma missti mikið þegar afi dó
og ekki leið sá dagur að hún minntist
ekki á hann, hún saknaði hans alltaf.
Hún lifði hamingjusömu hjónabandi
og við munum eftir elskulegu sam-
bandi þeirra afa og ömmu. Hún
sagði okkur frá því þegar hún var
ung stúlka um tvítugt og hitti afa,
hann nýkominn frá útlöndum þar
sem hann hafði dvalið síðan hann var
ungur drengur, en var nú alkominn
heim. Þetta var haustið 1929, þau-
giftu sig um vorið á lokadaginn og
fluttu til Norðfjarðar þar sem afi
hafði nýlokið við að byggja hús. Síð-
an var giftingardagurinn alltaf hátíð-
ardagurinn þeirra. Undanfarið var
hún farin að tala um að hún hlakkaði
til samfundanna við hann.
Amma unni Vestmannaeyjum þar
sem hún átti sín æskuár og síðan
bjuggu þau afi og amma í Vest-
mannaeyjum og ráku þar m.a.
verslun þar til þau fiuttu til Reykja-
víkur 1957. Við systkinin munum
bara eftir afa og ömmu í Eski-^
hlíðinni, þau höfðu alltaf tíma fyrir
okkur, þau voi'u þá hætt að vinna og
fóru í bíltúra með okkur og fóru
með okkur í gönguferðir upp í
Öskjuhlíð að hitta Grýlu sem bjó
þar í kofa sem þar var. Þau sögðu
okkur frá siglingum sínum til Nor-
egs, en áður fyrr fóru þau þangað
árlega til að hitta vini og kunningja,
afi sagði sögur frá Afríku, og ekki
má gleyma veiðisögunum en þau
fóra til laxveiða saman um árabil.
Öll okkar bemskuár bjó amma Lill,
mamma hennar ömmu, hjá afa og
ömmu, hún var líka óskaplega góð
við okkur, hún var alltaf svo létt í
skapi og skemmtileg. Það var gam-
an að spila við hana, og ósköp sáum
við eftir henni þegar hún kvaddi,
svo það er ekkert skrítið að okkur
krökkunum þótti eftirsóknarvert að
gista í Eskihlíðinni.
Það er þannig að þegar maður er
að tala um þig, amma, þá fer maður
alltaf að tala um afa líka. Við mun-
um líka eftir því hvað allt var fallegt
í kringum ykkur afa, því bæði vildu
að allt væri fínt og fágað. Þú, amma,
varst svo listfeng, falleg málverk
eftir þig prýða heimili okkar. Þetta
eru myndir málaðar á þínum yngri
áram. En umfram allt var það fjöl-J
skyldan sem þú varst alltaf að
hugsa um.
Að endingu þökkum við þér,
elsku amma, fyrir alla elsku þína til
okkar, maka okkar og bama.
Hnígur sól
sofnar blóm
sorgin gistir minn rann
Drýpurregn
titratár
tregar hjarta mitt hann
sem var angan míns vors
semvarylurmínslífs
Hnígursól
sofnar blóm
sorgin gistír minn rann
(Sr. Siguráur H. Guðmundsson.)'
Guðfinna Nanna Gunnarsdótt-
ir og Guðmundur Ragnar
Gunnarsson.
GUÐFINNA J.
WÍUM
RAGNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Ragnhildur Guðmundsdóttir
fæddist á Húsavík 14. desem-
ber 1905. Hún lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 15. maí síðastliðinn
og fór útför hennar fram frá
Fossvogskapellu 21. maí.
Nú þegar Ragnhildur Guð-
mundsdóttir, frænka okkar, er lát-
in, vil ég fyrir hönd okkar systra
þakka ævilanga vináttu og góðvild.
Ragnhildm- ólst upp ásamt
systkinum sínum, Jóhönnu og
Baldri, hjá foreldram sínum, þeim
Guðbjörgu Guðmundsdóttur og
Guðmundi Bjarnasyni. Faðir
þeirra var verslunarstjóri bæði á
Breiðdalsvík og á Húsavík og síðan
kaupfélagsstjóri á Seyðisfirði og
seinna bóksali. Á Húsavík man ég
að hún sagðist hafa kynnst aldavin-
konu sinni, Sigríði dóttur Unnar
(Huldu skáldkonu) og Sigurðar
Bjarklind, sem vora í miklu vin-
fengi við foreldra hennar. Til
Seyðisfjarðar fluttust þau þegar
Ragnhildur var tólf ára gömul.
Hún hlaut góða menntun á þeirra
tíma mælikvarða; dvaldist á unga
aldri í Danmörku við nám og störf.
Eftir að hún kom heim vann hún
hjá Landsímanum á Seyðisfirði uns
hún giftist og stofnaði heimili.
Maður hennai- var Benedikt Þórar-
insson bankagjaldkeri og eign-
uðust þau tvö mannvænleg börn,
Önnu Þóru og Guðmund. Benedikt
veiktist á besta aldri af illkynjuð-
um sjúkdómi og varð að dveljast
langdvölum erlendis til lækninga.
Þá kom best í ljós hvað í Ragnhildi
bjó. Hún axlaði þá byrði, sem á
hana var lögð, af svo fágætum
dugnaði og æðraleysi að umtalað
var. Þessi erfiði sjúkdómur dró
Benedikt til dauða langt um aldur
fram. Fjölskyldan var þá flutt til
Reykjavíkur og Ragnhildur rak um
skeið vefnðarvöruverslun við
Laugaveginn og eftir að hún hætti
því stundaði hún önnur störf utan
heimilis.
Börnum sínum báðum kom hún
til mennta, og hafa þau reynst af-
bragðsmanneskjur, - enda dáði
Ragnhildur þau mjög.
Ragnhildur - sem við kölluðum
alltaf Hullu - var mjög fríð og
glæsileg kona, skarpgreind og
skemmtileg. Hún var þannig gerð
að hún mátti ekki vamm sitt vita,
en aldrei heyrði ég hana hallmæla
neinum manni. Hreinsldptni var
hennar aðal. Hún hafði mikið
dálæti á góðum bókmenntum enda
víðlesin og fylgdist vel með stefn-
um og straumum á öllum sviðum
lista. Eins hafði hún sjálfstæðar og
heilbrigðar skoðanir í þjóðfélags-
málum, - þótt hún flíkaði þeim lítt.
Henni var það metnaðarmál að
vera sem lengst sjálfbjarga á sínu
fallega heimili, en þá að lokum,
háöldrað, góða umönnun á hjúkr-
unarheimilinu Eir.
Börnum hennar og öðrum
vandamönnum sendum við samúð-
arkveðjur.
Björg Ilermannsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.20^f
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. *