Morgunblaðið - 24.05.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1998 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
Stöðumælar í
Kerling’arfj öllum?
Frá Pétrí Eiríkssym:
í MEIRA en ellefu aldir var hálend-
ið almenningur íslendinga. Alllangt
fram á þessa öld var það nær óþekkt
nema einstöku mönnum. I huga
flestra landsmanna var það heimur
trölla og útilegumanna. Á þessari öld
hefur það smám saman opnast
landsmönnum, fyrst einstaka frum-
kvöðlum en síðan flestum sem hafa
verið tilbúnir að leggja á sig
smáræðis erfiði. Þar er ekki ferðast
milli fimmstjörnu hótela á fullum
dagpeningum, heldur er þar ferðast í
óendanlegri víðáttu í síðustu svo til
ósnortinni náttúru Evrópu. Að vísu
hafa vegagerð og virkjanir sett mark
sitt á hálendið síðustu áratugina, en
megnið er þó enn nánast ósnortin
náttúra.
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp
um skipulag hálendisins. Þar er ekki
gert ráð fyrir einungis einu skipulagi
heldur ekki færri en fjörutíuog-
tveimur! Sjá menn fyrir sér skipu-
lagsskrifstofu hálendisins í hveijum
hinna fjörutíuogtveggja hreppa sem
fá úthlutað sneið af hálendinu!? Gerð
verða svæðisskipulögð, deilda-
skipulög og óteljandi önnur skipulög
fyrir hverja sneið. Hætt er við að út-
koman verði skipulegur óskapnaðui’.
Skipulagðar áningastöðvar, upplýs-
ingamiðstöðvar, bensínstöðvar,
pylsustandar, skyndibitastaðir, ne-
onskilti, flettiskilti, kókauglýsingar
og kannski stöðumælar á vinsælustu
staðina!
Almáttugur bjargi hálendinu frá
skipulagsfræðingunum. Fátt er öm-
urlegra en skipulögð náttúra fyrir
þann sem hefur kynnst „the real
thing“ (biðst forláts á slettunni).
Er virkilega svona bráðnauðsyn-
legt að hespa þessi lög af núna í vor í
andstöðu við meirihluta lands-
manna? Hálendið hefur verið lög-
laust og skipulagslaust í yfir ellefu
aldir. Mætti ekki bíða með þessi lög í
ellefu mánuði og ræða málin ítarlega
og frá öllum hliðum? Ég skora á
þingmenn að sýna þann manndóm í
sér að fresta þessu máli til hausts.
Síðan væri mjög æskilegt að þeir
fórnuðu viku til tíu dögum af sumar-
leyfi sínu til þess að ferðast um há-
lendið. Ekki á þann hátt að aka
viðstöðulaust yfir Kjöl á einum degi,
heldur á þann hátt að þeir nái að
njóta þess. Heyra vindinn gnauða í
auðninni, leggjast í mosann við lækj-
arsprænu og láta sig dreyma. Hlusta
á þögnina, sofna síðan í tjaldi eða
sæluhúsi. Vakna í morgunkuldanum
og finna með hverri taug, að þeir lifa.
Stjómarþingmenn Reykvíkinga,
Reyknesinga og Vestfirðinga, er
virkilega einungis einn af ykkur sem
hefur sjálfstæða skoðun? Við getum
litið fram hjá þessum tveim
guðsvoluðu aumingjum sem var
þaggað niður í með lítilli dúsu. Ég
hygg að Ólafur Örn Haraldsson hafi
áttað sig á verðmæti víðáttunnar við
göngur sínar yfir Grænlandsjökul og
á Suðurpólinn. Betur væri að fleiri
þingmenn legðu það á sig. En þó að
þeir geri það ekki, geta þeir samt
ekki gefið þjóðinni tíma til að ræða
málið í þaula? Þessi lög geta beðið á
meðan. Ekkert kallar á að þau verði
samþykkt á þessu vori. Þingmenn
eru kosnir til þess að setja lug í sam-
ræmi við vilju þjóðarinnar, ekki til
þess að neyða lög inn í þjóðina!
En meðal annarra orða. Hafa
sveitastjórnir ekkert álit á málinu?
Hvaða skoðun hafa Árni Sigfússon
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og
öll hin sem bjóða sig fram til þjón-
ustu í bæjar- og sveitai’stjórnarkosn-
ingum? Áður en ég set krossinn
minn vil ég vita hvort frambjóðendur
hans hyggjast aðhafast eitthvað í
þessu máli. Ég skora á kjósendur að
krefja frambjóðendur svara um
þeirra afstöðu til málsins og að þeir
svari afdráttarlaust og ekki með
þessu venjulega blaðri.
Ég varð þeirrar hamingju aðnjót-
andi að kynnast hálendinu fyrst und-
ir leiðsögn manna sem báru virðingu
fyrir því og umgengust það með
nærfæmi, t.d. ógleymanlegar ferðir
með Guðmundi Jónassyni,
Ferðafélagi íslands og Útivist. Síðar
fór ég margar ferðir á eigin vegum
eða í góðum félagsskap. Þessar ferð-
ir hafa gefið mér óendanlega mikið.
Ég óska barnabörnum mínum til
handa, að þau geti líka í framtíðinni
leitað á þessar slóðir til að sækja
nýjan kraft og kjark til að takast á
við lífið.
PÉTUR EIRÍKSSON,
Norðurbraut 1, Hafnarfirði.
Fjárfesting til framtíðar
Nám sem leiðir
til starfs
Alhliða
tölvunám
í lok náms eiga nemendtir m.a.
að geta starfað sem öflugir
notendur eða sem fulltrúar við
aðlögun og þjónustu á þeim
hugbúnaði sem námið nærtil.
Fjármála- og
rekstrarnám
í lok náms eiga nemendur m.a.
að geta borið ábyrgð á
bókhaldi smærri fyrirtækja eða
unnið sem fulltrúar i bókhalds-
og fjármáladeildum.
wa
Viðurkenndur
Seinkaskóli
Stutt og hnitmiðað
starfsnám í takt
við þarfir
vinnumarkaðarins
Innritun er
i sima
588 5810
Markaðs- og
sölunám
I lok náms eiga nemendur m.a.
að geta starfað sem markaðs-
og sölufulltrúar
Almennt
skrifstof unám
| íloknámseiganemendurm.a.
að geta unnið sjálfstætt við öll
i almenn skrifstofustörf, sem
ritarar eða í bókhaldi.
Starfsþjálfun
í fyrirtækjum veitir
nemendum mikilvæga
innsýn í þarfir
atvinnulífsins
Innritun hafin
Skóli sem byggir á 23 ára
reynslu og hefð
Allt nám í skólanum
eraðfullu lánshæft
Nám sem leiðir til aukinna Hvergi á íslandi er að
starfsmöguleika finna betri aðstöðu
fyrir nemendur
/VIÁTTln
HEILSURÆKT
Við viljum koma
þér í gott form
Nýtt BodyPump
Hefst um miðjan júní.
Varúð! Þetta gæti breytt líkamsvexti þínum.
Verið frísk og flott í sumar.
Sumarkort
3 mánuðir á kr. 7.900 (með niðurgreiðslu VR
greiðir þú aðeins kr. 4.364).
Árskort á frábæru verfli
Aðeins kr. 23.000 en
kr. 19.464
með niðurgreiðslu VR.
Vertu með í sumar
Munið hlaupahóp
Máttar og Mizuno
Sérstakur byrjendahópur • Fræðsla og stuðningur •
Styrktarþjálfun og teygjur • Ótakmarkaður tíma-
fjöldi og aðgangur að tækjum • Bolur, hlaupa-
sokkar, svitaband og derhúfa fylgja ókeypis með •
Hlaupabúnaður frá Mizuno á góðu verði
AQmnn
Verð kr. 7.900.
Takmarkaður fjöldi.
Skráning og upplýsingar
ísíma 568 9915
HEILSURÆKT
Faxafeni 16 - Sími 568 9915 • Langarima 21-23 - Sími 567 7676 • Skipholti 50a - Sími 581 6522