Morgunblaðið - 30.05.1998, Page 1
120 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
120. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vestræn ríki ítreka mótmæli gegn kjarnorkutilraunum
Pakistanar stóryrtir
en segjast vilja frið
Islamabad, Nýju Delhi, Washington. Reuters.
Reuters
Umdeilt listasafn opnað
PAKISTANSKA stjórnin lýsti í gær
þeirri ósk sinni að heimsbyggðin
ynni í sameiningu að friði í Suður-
Asíu, eftir að bæði Indland og
Pakistan létu verða af því að fram-
kvæma kjarnorkusprengingar í til-
raunaskyni, sem íbúar landanna hafa
fagnað gífurlega en aðrar þjóðn-
heims hafa keppzt við að fordæma.
Gohar Ayub Khan, utanríkisráð-
herra Pakistans, hét því í gær að
Pakistanar myndu af alefli svara
hvers konar árás frá Indlandi, en ná-
gi’annaríkin tvö hafa lengi eldað
grátt silfur saman. „Við ráðum yfu-
kjarnorkuvopnum; við erum kjarn-
orkuveldi,“ lýsti ráðherrann yfii-.
I yfirlýsingu sem dreift var til er-
indreka erlendra ríkja í Islamabad
segir, að Pakistanar mundu aldrei
grípa til kjarnavopna nema í varnar-
skyni. Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði Pakistana hafa sprengt
fimm tilraunasprengjur á fimmtu-
daginn með „mikilli ábyrgðartilfinn-
ingu“, í því skyni að koma aftur á
Tafír í
flugi á
Spáni
Madríd. Reuters.
SPÆNSKIR flugumferðar-
stjórar ollu í gær og fyrradag
miklum töfum á flugsamgöng-
um á Spáni vegna deilu um yf-
irvinnuskyldu við yfirvöld flug-
vallarmála (AENA). Aflýsa
þurfti fjölda flugferða og þús-
undir farþega urðu að leita
skjóls á spænskum gistihúsum
vegna aðgerðanna en flugum-
ferðarstjórarnir „fóru sér
hægt við vinnu“. Talið er að-
gerðirnar hafi valdið um
80.000 manns erfíðleikum.
Mörgum ferðum
aflýst
Illa gekk að leysa deiluna og
versnaði ástand því á spænsk-
um flugvöllum er leið á daginn
í gær. Þá hafði 120 flugferðum
frá Madrídarflugvelli verið af-
lýst, en annað flug tafðist um
l-lVá tíma að meðaltali.
Spænska ríkisflugfélagið Iber-
ia hafði aflýst samtals 160 flug-
ferðum, en flestar þeirra voru
á stuttum innanlandsleiðum.
I samtali við Morgunblaðið
gerðu fulltrúar Flugleiða ráð
fyrir einhverri seinkun á brott-
för vélar frá Barcelona sem
upphaflega var áætluð til
brottfarar klukkan 23 í gær-
kvöld. Aðgerðir flugumferðar-
stjóra áttu hins vegar aðeins
að vara í tvo daga og var því
gert ráð fyrir að starfsemi
spænskra flugvalla yrði á nýj-
an leik með eðlilegum hætti í
dag.
hernaðarlegu jafnvægi eftir tilrauna-
sprengingar Indverja fyrr í mánuð-
inum.
Indversk stjómvöld lýstu í gær fyr-
ir sitt leyti því yfir að Indland áhti að
engin ný ógn steðjaði að öryggi lands-
ins og hefði ekki í hyggju að taka þátt
í vígbúnaðarkapphlaupi við „erki-
fjandann“ vestan við landamærin.
Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands, lét þessi orð falla
í efri deild indverska þingsins, þar
sem æsingafull umræða um afleið-
ingar kjarnorkutilrauna Pakistana
fór fram.
Bandaríkjamenn kalla
til leiðtogafundar
Bandaríska stjórnin mótmælti í
gær á ný kjarnorkuvopnabrölti
beggja ríkja og kallaði til sérstaks
leiðtogafundar voldugustu ríkja
heims, þai- sem rætt skyldi hvernig
tryggja megi stöðugleika og frið í
þessum heimshluta með varanlegum
hætti.
BRESKA barnfóstran Louise Wood-
ward var gagnrýnd harðlega í
breskum fjölmiðlum í gær og var
fullyrt að einn lögfræðinga hennar
hefði farið hörðum orðum um hana
og varpað henni á dyr.
Blaðið Express greinir frá því að
lögfræðingur Woodward, Elaine
Sem teikn um að Bandaríkjamenn,
sem ákváðu að beita bæði lönd efna-
hagslegum refsiaðgerðum, vildu láta
refsingar fara saman við uppbyggi-
legri viðbrögð, greindi stjómin í
Washington jafnframt frá því að
bandaríski sendiherrann í Indlandi
myndi snúa aftur til Nýju Delhí, en
hann hafði verið kallaður heim í mót-
mælaskyni við sprengingarnar.
Sendiherrann í Pakistan sæti líka
kyrr í Islamabad.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í gær einróma ályktun,
þar sem kjarnorkusprengingar
Pakistana og Indverja em fordæmd-
ar, og bæði ríki vöruð við því að
halda slíkum tilraunum áfram.
Mörg ríki heims ítrekuðu fordæm-
ingu á tilraununum og frétta-
skýrendur sögðu að hættan á kjarn-
orkuvígbúnaðarkapphlaupi í Suður-
Asíu væri nú mikið áhyggjuefni fyrir
alla heimsbyggðina.
■ Kjarnavopnakapphlaup/22
Whitfield Sharp, sem hefiir hýst
hana frá því hún var látin laus úr
fangelsi í fyrra, hafi sagt vinum sín-
um að Woodward hafi „efnt til sam-
kvæma og verið til stórkostlegra
leiðinda“.
Woodward var fundin sek um að
hafa valdið dauða Matthews Eapp-
NÝJA nýlistasafnið í miðborg
Helsinki var opnað með pompi og
prakt í gær, en hin framúrstefnu-
lega bygging, sem kölluð er Ki-
asma, hefur verið mjög umdeild í
Finnlandi allt frá því ákvörðun
var tekin um að byggja hana.
20.000 manns skrifuðu fyrir
nokkrum árum undir áskorun
um að hætt yrði við bygginguna
sem bandaríski arkitektinn
Steven Holl hannaði og kostaði
nærri 2,9 milljarða króna. Fram-
úrstefnustíll safnbyggingarinnar
er í hrópandi ósamræmi við
íhaldssaman stíl þinghússins, sem
sést í bakgrunni, en deilan um
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
rak í gær yfirmann skattheimtunnar
í landinu og skipaði strax annan
mann í hans stað. Eru þessar að-
gerðir hluti af tilraunum ríkisstjórn-
arinnar til að stoppa upp í fjárlögin
og lægja óróann á fjármálamarkaði.
Fullyrt er, að vestrænar ríkisstjórn-
ir og bankar séu tilbúin til að koma
til hjálpar ef hætta þyki á efnahags-
legu hruni í Rússlandi.
Jeltsín hafði heitið að stokka upp
víða vegna fjármálakreppunnar og í
gær lét hann Alexander Pochínok,
yfirmann skattheimtunnar, fara og
skipaði strax Borís Fjodorov í hans
stað. Gat hann sér gott orð er Rúss-
ar réðust fyrst í umbætur á efna-
hagslífmu og fær hann nú það verk-
efni að koma skattheimtunni í lag.
ens, átta mánaða gamals drengs
sem hún gætti, en getur ekki farið
úr landi fyrr en dómur er fallinn um
áfrýjun niðurstöðunnar. Express
segir að til sé upptaka af samtali
Whitfield Sharp og vina hennar, og
tali lögmaðurinn þar um Woodward
sem „undirförult skrímsli".
hana hófst strax og hönnun Holls
var valin úr þúsundum tillagna
sem bárust. Ýmsum þótti stíllinn
stinga einum of mikið í stúf við
aðrar byggingar finnsku höfuð-
borgarinnar, sem flestar eru
mjög hreinar og beinar útlits. En
háværustu mótmælendurnir voru
uppgjafahermenn, sem reiddust
því að gert var ráð fyrir að minn-
ismerkið um Carl-Gustaf Mann-
erheim, „föður“ sjálfstæðs Finn-
lands og leiðtoga þess í Vetrar-
stríðinu gegn Sovétmönnum, yrði
flutt. Hætt var við að færa stytt-
una, sem stendur við hliðina á
safninu eins og sést á myndinni.
IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn,
tilkynnti í gær, að hraðað yrði nærri
48 milljarða ísl. kr. láni til Rússa en
það er hluti af 653 milljarða kr. lán-
veitingu alls. Markaðssérfræðingar
efast hins vegar um, að það ásamt
þeim aðgerðum, sem gripið hefur
verið til í Rússlandi, dugi og því
þurfi meiri aðstoð að koma til. Er
raunar fullyrt, að vestrænar ríkis-
stjórnir og bankar séu að búa sig
undir að veita Rússum aðstoð í því
skyni að koma í veg fyrir efnahags-
legt hrun.
I gær syrti enn í álinn þegar
bandaríska matsfyrirtækið Moody’s
færði niður lánshæfi rússneska rík-
isins og sagði í tilkynningu frá því,
að matið væri í öllum greinum nei-
kvætt.
Tsjúbaís óvænt til
Washington
Anatolí Tsjúbaís, sem fer með
markaðsumbætur í rússnesku ríkis-
stjórninni, kom óvænt til Washing-
ton í gær þar sem hann átti fundi
með fulltrúum Bandaríkjastjórnar
og alþjóðlegra lánastofnana, Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Talið er víst, að hin alvar-
lega staða í rússnesku efnahagslífi
verði aðalumræðuefnið.
Reutcrs
ÆSTIR áhangendur stjórnarflokks Pakistans, Múslimabandalagsins,
brenna brúðu af Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, í
fagnaðarlátum yfir kjarnorkutilraunum Pakistana í Islamabad í gær.
Ofögur lýsing á barnfóstrunni
London. Reuters.
Efnahagsöngþveitið 1 Rússlandi
Vesturlönd
sögð búast
til hjálpar
Moskvu. Reuters.