Morgunblaðið - 30.05.1998, Blaðsíða 32
GOO, MtNN & Mí INV/ETTtl
32 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Opid 10:00-16:00
laugardaga.
Mættu snemma
og fáðu frían bol!
__________________MARGMIÐLUN____________________
Ýmislegt má gera til að stytta sér biðina eftir Windows 98
Upp-
færslublús
Tölvunotendur um allan heim bíða með
öndina í hálsinum eftir Windows 98.
Árni Matthíasson bendir á leiðir til að
stytta sér biðina o^ jafnvel sleppa því
jafnvel alveg að uppfæra.
LÍKLEGA vita flestir tölvu-
notendur að væntanleg er
uppfærsla af Windows 95
sem kallast Windows 98.
Mikið uppistand hefur verið í
kringum þá útgáfu, ekki síst í ljósi
þess að Microsoft hyggst sam-
þætta Intemet Explorervafra sinn
stýi'ikerfínu en yfirvöld vestan hafs
halda því fram að með því sé fyrir-
tækið að nýta sér yfirburðastöðu á
stýrkikerfasviði til að halda öðrum
hugbúnaði sínum að kaupendum.
Ekki verður farið nánar út í þá
sálma, en Windows 98 er væntan-
legt á næstu vikum og eðlilegt að
menn velti því fyrir sér hvort rétt
sé að uppfæra.
Windows 95 leysti af hólmi
Windows 3.x og kallast í raun
Windows 4.0. Reyndar hét fyrsta
útgáfa Windows 95 Windows
4.00.950 og síðan hafa fjórar upp-
færslur komið út. Þær uppfærslur
eru sumar fáanlegar á netinu og
kærkomnar þeim sem eru að ör-
magnast í biðinni eftir Windows 98
aukinheldur sem þær geta leyst
vanda ýmissa sem þurfa þá ekki að
punga út fyrir uppfærslunni.
Veigameiri uppfærslumar era aft-
ur á móti ekki fáanlegar á löglegan
hátt nema með því að kaupa nýja
tölvu.
Eins og nafn hugbúnaðarins ber
með sér eru þrjú ár síðan hann
kom út og því era flestir líklega
þegar með uppfærslu á sinni tölvu.
Einfalt er að kanna það með því að
smella á My Computer, velja þar
Control Panel og loks System. Tal-
an sem þar sést segir til um útgáf-
una. Eins og áður er getið er
4.00.950 númerið á fyrstu útgáfu,
Windows 95 A, og reyndar líka á
íyi-stu uppfærslu, svonefndri OSR
1. Standi 4.00.950 B er upp sett á
tölvunni útgáfa Windows 95 OSR2
eða OSR 2.1.
Ýmsar við- og endurbætur
Skömmu eftir að Windows 95
kom út sendi Microsoft frá sér
ýmsar við- og endurbætur á stýri-
kerfínu, svonefndan þjónustu-
pakka, en í honum vora meðal ann-
ars uppfærsla á póstforritinu sem
fylgdi Windows 95, rekill fyrir inn-
rauð tengi, stuðningur við
SLIPtengingu og upphringisam-
band og endurbættar gerðir ým-
issa íhluta stýrikerfisins. Þeir sem
enn sitja uppi með elstu gerð
Windows 95 geta sótt pakkann á
slóðinni
http://www.microsoft.com/windows
/software/servpakl/sphome.htm.
Næstu viðbætur á eftir OSRl,
OSR2 og OSR2.1 vora heldur
veigameiri og fólu meðal annars í
sér stuðning við nýjan vélbúnað, 32
bita skráarkerfi, bætta PPP teng-
ingu, stuðning við USB, DirectX
2.0, ActiveMovie og ýmislegan net-
hugbúnað. Sá hængur var á að
OSR 1, 2 og 2.1 hefur aldrei verið
selt sérstaklega og reyndar alls
ekki ætlað til að uppfæra eldri gerð
af Windows 95, heldur til upp-
setnigar á nýjar tölvur. Þannig
fylgir það á flestum nýrri gerðum
tölva í dag og hefur um hríð, en
telst brot á reglum Microsoft að
setja það inn á tölvu sem er með
Windows 95 fyrir. Þessar viðbætur
og lagfæringar era vitanlega inn-
byggðar í Windows 98, en ýmsar
leiðir eru færar til að nálgast þær á
löglegan hátt.
Viðbætur á |
vefsetri Microsoft
Getið er þjónustupakkans sem
hver og einn getur sótt, en fleiri
viðbætur má fá hjá Microsoft. Það
er fyrsta að nefna uppfærslu á
upphringipakkanum sem fylgdi
með Windows 95. í uppfærslunni
er ISDN-stuðningur og einnig við
PPTP tengingu. Einnig er endur-
bót á biðvistun á aðgangsorðum, en
sú vitleysa fylgi með þjónustu- |
pakkanum.
Með Windows 98 fylgir það sem
Mierosoft-menn kalla Active
Desktop, eða lifandi skjáborð, og
byggist á því að skjáborðið verður
líkast vefsíðu. Vilji menn kynnast
því er nóg að sækja sér nýjustu út-
gáfu af Internet Explorer 4.x á vef-
setri Microsoft, því Active Desktop
fylgir í pakkanum. Á vefsetrinu er
einnig að finna ýmsa hluta OSR2,
endurbætur á Exchange póst-
forritinu, sem breytir meðal annars
nafni þess í Windows Messaging,
uppfærsla á netpósti fyrir
Exchange og allskyns aukalegt til
að auka mönnum leti f Power Toys
og Kernel Toys syrpunum svo eitt-
hvað sé talið. Slóðin er hálfgerð
stafrófssúpa, http://www.micro-
soft.com/windows/downloads/-
default.asp?product=Windows-
+95sit e=95&custarea=pers-
&OpenMenu=Do\\'nloads, en
einnig geta menn rakið sig áfram
með því að fara á http:-
//www.microsft.com/, velja þar
Free Downloads og síðan Support
Drivers, Patches and Service
Packs.
Full ástæða til að kíkja á slóðina,
ef ekki til að leggja líkn með þraut
er beðið er gralsins Windows 98.
Vísast eiga allmargir sem þangað
rata eftir að bíða með frekari upp-
færslu um hríð og jafnvel allt þar
til Windows NT 5.0 kemur út á
næsta ári eða þar um bil.
Ormar með
byssur?
LEIKUR
Worms 2, leikur frá Microprose.
Worms 2 gerir kröfur um 75 MHz
pentium tölvu hið minnsta með 16
MB minni, SVGA 1 MB skjákorti og
tveggja hraða geisladrifi. DirectX 5.0
er nauðsyn og fylgir með á disknum.
Eftir ótrúlega velgengni Worms
ákvað Microprose að gera fram-
hald af leiknum og nefndi það ein-
faldlega Worms 2. Worms 2 er
svokallaður umferðarleikur þar
sem aðeins einn getur gert í einu
og hefur til þess visst langan tíma.
Snillingurinn sem fyrst fékk
hugmyndina að Worms leikjunum
á mikið hrós skilið; hvern langar
ekki í leik þar sem litlir sætir orm-
ar berjast í hörðu stríði og nota
dýnamít, eldflaugar og jafnvel
springandi gamlar konur til að
koma sínu fram?
Grafíkin í Worms 2 hefur batnað
til muna og umhverfið sem Team
17 og Microprcse hafa skapað er
ótrúlega flott.
Eru ormarnir að berjast á allt frá
öðram plánetum til lítilla eyja í
Karíbahafinu. Öll myndbönd leiks-
ins era mjög flott og fyndin og
breytist byrjunarmyndbandið í
hvert skipti sem þú ferð í leikinn.
Þegar ormarnir fá skot á sig
öskra þeir oft hátt og hrópa svo
ókvæðisorð að þeim sem skaut þá,
en nú birtist skemmtileg nýjung í
leikjabransanum og er vonandi að
aðrir leikjaframleiðendur taki
þetta upp eftir Microprose; þú get-
ur nú sett eigin hljóð inn í leikinn:
segjum að ormurinn kalli alltaf
hátt OUCH! þegar hann er skot-
inn, og líki þér það ekki þá getur
þú farið og fundið hvaða hljóð sem
er og látið það hljóma þegar hann
er skotinn.
Hafir þú Netið getur þú tengst
inn á sérstaka Worms 2 netþjóna
og spilað við fólk útí heimi eða
tengst beint til vina þinna.
Leiknum fylgir skemmtilegur
borðahönnuður þannig að þú getur
alltaf farið og búið til borð og
ákveðið hvaða vopn fást þar, og
fyrst minnst er á vopn þá era þau
ekki af verri endanum: ormarnir
geta fengið allt frá litlum skamm-
byssum til loftárása og svo eru það
alltaf þessi skrýtnu en skemmti-
legu vopn sem einkenna Worms
leikina eins og bananasprengjan
sem er einn stór banani sem skipt-
ist í marga litla sem sprengja allt í
kringum sig. Worms 2 er leikur Quake 2 áðdáendurnir eitthvað
sem höfðar til allra og fá bæði þeir fyrir sig.
sem hafa bara fílað Toy Story leik- Ingvi M. Árnason
inn til þessa og svo allra hörðustu