Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 11
Ungfrú Svíþjóð 1996 beitir öllum sínum kröftum gegn reykingum unglinga
Skylda að nota
athygli fjölmiðla
fyrir góðan málstað
ANNIKA Duckmark hefði átt að
vera í Rio de Janeiro í Brasilíu til
að taka við viðurkenningu frá AI-
þjóðaheilbrigðisstofnun Samein-
uðu þjóðanna (WHO) fyrir bar-
áttu sína gegn reykingum ung-
linga í gær, en hún ákvað að
koma frekar til Islands til að
leggja sitt af mörkum í keppn-
inni um titilinn ungfrú ísland, en
reykleysi er nú fyrsta sinni skil-
yrði fyrir þátttöku í henni.
Duckmark er frá Borás og var
kjörin ungfrú Svíþjóð árið 1996.
Hún hefur barist ötullega gegn
reykingum unglinga frá því hún
vann titilinn. Hún sagði að allir
28 þátttakendur í keppninni
tækju þátt í átakinu gegn reyk-
ingum, hvort sem þær sigruðu
eða ekki.
„Eg er þeirrar hyggju að sért
þú þekktur í þínu heimalandi eig-
ir þú að nota þá atliygli fjölmiðla,
sem þú færð, fyrir góðan mál-
stað,“ sagði hún. „Þú þarft ekki
að vera goðsögn til þess.“
Hún sagði að átakið, sem fram
fer í grunnskólum í Svíþjóð,
hefði gengið brösulega í upphafi
og ijölmiðlar hefðu verið mjög
vantrúaðir en það hefði nú ger-
breyst.
Reyklausar fyrirmyndir
„Við kynnum okkur hveijar
hætturnar af tóbaki eru, en við
komum ekki fram sem sérfræð-
ingar,“ sagði hún. „Það er ann-
arra að gera það. Okkar mark-
mið er að vera krökkunum
reyklausar fyrirmyndir. I Svíþjóð
eru reykingar ungra stúlkna
stórt vandamál. Strákarnir hafa
íshokkí og fótbolta, en stúlkurn-
ar hafa ekkert og vantar fyrir-
myndir. Við viljum að þegar þær
sjái ungfrú Svíþjóð hugsi þær um
reykleysi."
Hún gefur lítið út á það að það
geti freistað að reykja á tímum
útlitsdýrkunar vegna þess að tó-
bakið haldi aukakílóunum í skefj-
um. Það sé frekar að þeir, sem
þegar reyki, hafi áhyggjur af því
að þeir fitni við það að hætta.
„Fólk þarf að skilja hvað
nikótin er sterkt," segir hún.
„Það er eins og að nota sterkt
eiturlyf. Auðvitað þarf líkaminn
að eyða mikilli orku í að brjóta
nikótínið niður. Nikótínið drepur
allt, líka matarlystina. En ég vil
ekki að fólk hugsi með sér: þetta
vissi ég ekki, ætti ég að reykja?"
Hún sagði að reykingar lín-
Morgunblaðið/Þorkell
ANNIKA Duckmark, ungfrú Svíþjóð 1996, var heiðursgestur
á keppninni ungfrú Island í gærkvöld.
anna vegna væru tómur hugar-
burður. Málið væri að borða rétt
og stunda líkamsrækt.
Gagnrýnir
stóru tískuhúsin
„Ég er ekki mikil um mig, en
ég hef aldrei farið í megrun og
ég hef aldrei reykt,“ sagði hún.
„En ég borða rétt og æfi mig og
það er það sem þarf til að vera
heilsuhraustur. Ég er ekki hrifin
af þeirri tísku að fyrirsætur séu
horaðar, sviplausar og líti út fyr-
ir að vera veikar. Ég þoli það
ekki, en stóru tískuhúsin í París
og New York búa þetta til og ég
held að það sé ekki gott fyrir
krakkana."
Duckmark sagði að það væri
mjög gefandi að vinna með
krökkum. Hún hefði áður fyrr
verið feimin og aldrei tekið til
máls í bekknum, en hún hefði
komist að því að í þessu máli
gæti hún komið einhverju til leið-
ar. Þá hlustuðu unglingar af
slíkri athygli að kennarar segðu
oft og tíðum að þeim hefði aldrei
tekist að fá slíkt hljóð i bekkinn.
Duckmark var heiðursgestur
og hélt ræðu um störf sín á
keppninni ungfrú ísland á Broad-
way í gærkvöld. Daginn í dag
ætlar hún hins vegar að nota í
eigin þágu. Hún ætlar að trú-
lofast sínum heittelskaða og síð-
an á að gera sér dagamun í
Reykjavík.
NÝBAKAÐIR kerfisfræðingar ásamt kennurum og stjórnendum Viðskiptaháskólans f Reykjavík/Tölvuháskóla Verzlunarskólans.
213 braut-
skráðir frá
Verzlunar-
skóla Is-
lands
„ÞEKKING byggir manninn upp
og skapar honum tækifæri sem
leitt geta til enn meiri menntun-
ar og enn meiri styrks." Þannig
komst Þorvarður Elíasson að
orði í ræðu sinni við brautskrán-
ingu stúdenta og verslunar-
menntafólks frá Verzlunarskóla
Islands í gær.
Alls voru 213 nemendur braut-
skráðir í þetta sinn. Þar af voru
154 stúdentar úr dagskóla VI, 26
stúdentar úr öldungadeild, 2 ut-
anskólastúdentar og 31 útskrif-
aðist með verlunarmenntapróf,
þar af 10 með stúdentspróf út
öldungadeild.
Athöfnin fór fram í hátíðasal
skólans. Árni Siguijónsson, frá-
farandi forseti Nemendafélags
Verzlunarskólans, flutti ávarp
fyrir hönd nýstúdenta og Hilmar
Baldursson fyrir hönd 25 ára út-
skriftarárgangs.
Auk ræðuhalda settu verð-
Morgunblaðið/Þorkell
HLUTI stúdentahóps Verzlunarskóla íslands
við brautskráningu í gær.
launaafhendingar svip sinn á at-
höfnina en fjölmargir nemendur
hlutu viðurkenningar fyrir góðan
námsárangur. Meðal verðlauna
sem voru veitt voru verðlaun fyr-
ir best unnu viðskiptaáætlunina
en þau hlutu þeir Ágúst Brynjar
Daníeisson, Bragi Ragnarson og
Páll Jóhann Ulfarsson.
Dúx skólans var að þessu sinni
rússneska stúlkan Evgenía Igna-
tíeva sem fékk 9,64 í aðalein-
kunn. Semídúx var Svanhildur
Þorvaldsdóttir sem fékk 9,0 í að-
aleinkunn. Þær hlutu báðar fjöl-
mörg verðlaun fyrir góðan ár-
angur á stúdentsprófi í ýmsum
greinum.
61 kerfis-
fræðingur
útskrifaður
BRAUTSKRÁNING nema frá
Viðskiptaháskólanum í Reykja-
vík/Tölvuháskóla Islands fór
fram laugardaginn 23. maí síðast-
liðinn. Alls útskrifaðist 61 kerfis-
fræðingur og eru 98% þeirra
komnir með vinnu eða tilboð um
vinnu. Friðjón Guðjohnsen var
dúx hópsins en Friðrik Þór Reyn-
isson semidúx.
Þetta er í tíunda sinn sem kerf-
isfræðingar útskrifast frá skólan-
um sem hefur útskrifað 302 kerf-
isfræðinga alls. Skólinn stendur
nú á tímamótum þar sem verið er
að breyta Tölvuháskóla Verzlun-
arskólans í tölvufræðideild í hin-
um nýja Viðskiptaháskóla
Reykjavíkur. Meðan breytingarn-
ar standa yfir eru bæði nöfnin
notuð. I hinum nýja skóla verður
auk tveggja ára náms í kerfis-
fræði boðið upp á BS-nám í tölv-
unarfræði. Auk þess verður boðið
upp á nám í viðskiptafræðideild.
Annars vegar verður þar um að
ræða tveggja ára hagnýtt við-
skiptafræðinám og hins vegar
þriggja ára BS-nám í viðskipta-
fræði.
Vigdís
hlýtur
Márbacka
verð-
launin
MÁRBACKASJÓÐURINN
hefur síðan 1972 úthlutað
Márbackaverðlaununum ann-
að hvert ár. Verðlaununum er
úthlutað til Svía eða útlend-
inga fyrir störf í þágu menn-
ingar. Verðlaunahafi þarf að
tengjast ritstörfum Selmu La-
gerlöf eða vera málsvari
áhugamála hennar.
Márbackaverðlaunin 1998
hlýtur Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Islands.
Rökstuðningur dómnefnd-
ar: Störf Vigdísar Finnboga-
dóttur í þágu menningar og
samfélags einkennast af
mannúðarstefnu. Hún hefur
starfað að mörgum áhugamál-
um Selmu Lagerlöf, svo sem
menntun, bókmenntum og
leiklist, í jafnréttismálum og
baráttunni fyrir mannrétt-
indamálum. Hún hefur sem
fyrsta lýðræðislega kosna
konan sem þjóðhöfðingi gegnt
þýðingarmiklu starfi í að við-
halda friði í heiminum.
Vigdís Finnbogadóttir mun
veita verðlaununum viðtöku
við athöfn í Márbacka, laugar-
daginn 27. júní kl. 16.
Þjóðarpúls Gallup
Flestir
töldu rétt
af banka-
stjórum
að segja
af sér
RÚMLEGA 96% þeirra sem
afstöðu tóku þegar Gallup
spurði töldu það hafa verið
rétta ákvörðun hjá banka-
stjórum Landsbankans að
segja af sér vegna „laxveiði-
málsins“ svokallaða. Rösk 2%
töldu að ákvörðunin hefði ver-
ið röng en rúmt 1% taldi að
hún hefði hvorki verið rétt né
röng. Ekki kom fram mark-
tækur munur á svörum eftir
kyni, aldri eða því hvaða
stjómmálaflokk fólk kýs.
Einnig var spurt hvort fleiri
ættu að segja af sér vegna
málsins. Tæplega 76% þeirra
sem afstöðu tóku töldu svo
vera en rúm 24% töldu ekki
ástæðu til að fleiri segðu af
sér. Rúmlega 39% þeirra sem
töldu að fleiri ættu að segja af
sér vegna málsins sögðust
ekki vita hver eða hverjir ættu
að fara.
Hins vegar töldu rúm 46% að
bankaráðið, allt eða að hluta,
ætti að segja af sér. Mun færri
nefndu aðra kosti, t.d. taldi 1%
að Finnur Ingólfsson við-
skiptaráðherra ætti að segja
af sér.
Könnunin var gerð á tíma-
bilinu 19.-30. apríl sl. í úrtak-
inu voru 1143 einstaklingar af
öllu landinu á aldrinum 18-75
ára. Svarhlutfall var 73% og
skekkjumörk svara á bilinu
1-4%.