Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Bandaríkin
Offítan
orðin að
faraldri
OFFITA er orðin að faraldri í
Bandaríkjunum og eru 54%
allra fullorðinna þar í landi of
feit, að því er vísindamenn
segja í nýju hefti vísindarits-
ins Science.
Varað er við því að ekki
muni taka nema nokkrar kyn-
slóðir uns allir fullorðnir
Bandaríkjamenn geti talist of
feitir. Á undanfómum tuttugu
árum hafi hlutfall þeirra sem
eru of feitir stækkað um
þriðjung og ekki sé útlit fyrir
að þróunin muni breytast, því
eitt af hverjum fjórum böm-
um er of feitt.
Of mikið af mat og
aðstæður ýta undir át
Haft er eftir einum þeirra,
er stóðu að rannsókninni, að
ástandið virðist vera að
versna. James 0. Hill, yfir-
maður rannsókna í matvæla-
fræði við Háskólann í
Colorado, segir að bandarísk
samfélagsgerð sé orsök
vandans. Of mikið sé til af
mat og félagslegar aðstæður
ýti oft undir ofát. „Að verða
of feitur er eðlileg viðbrögð
við bandarísku samfélagi,"
segir Hill.
Ortega neitar
ásökunum um
kynferðisglæpi
Ortega
Managua. Reuters.
DANIEL Ortega, leiðtogi Sand-
ínistaflokksins í Nicaragua og fyrr-
um forseti landsins, neitar staðfast-
lega ásökunum
þess efnis að
hann hafi til langs
tíma misnotað
stjúpdóttur sína
kynferðislega. Á
fimmtudag kröfð-
ust lögfræðingar
hans þess fyrir
rétti í Managua,
höfuðborg
Nicaragua, að ákærum Zoilamerica
Narvaez, stjúpdóttur Ortegas, yrði
vísað frá og í yfirlýsingu sinni sagð-
ist Ortega aldrei hafa tekið þátt í
„lostafullu athæfi með Narvaez".
Ásakanimar á hendur Ortega,
sem stýrði ríkisstjórn Sandínista
1979-1990, hafa valdið skjálfta í
stjórnmálum í Nicaragua en Ortega
var samt sem áður endurkjörinn
leiðtogi flokksins með yfirburðum
um síðustu helgi er flokksfélagar
hans leituðust við að mynda skjald-
borg um leiðtoga sinn.
Zoilamerica Narvaez, sem er þrjá-
tíu ára, birti ásakanir sínar á hendur
stjúpfóður sínum fyrst opinberlega
3. mars síðastliðinn en lagði síðan
fram formlega ákæru fyrir rétti í
Managua á miðvikudag. í ákærunni
segir hún að Ortega hafi ítrekað
nauðgað sér og misnotað kynferðis-
lega á árunum 1978-1998.
„Hann saurgaði líkama minn og
notaði eins og hann lysti án þess að
láta sig nokkru varða hvemig mér
leið,“ sagði í yfirlýsingu Narvaez. í
yfirlýsingunni er rakið hvemig lík-
amleg og sálræn misnotkun Ortegas
olli versnandi heilsufari Narvaez og
einangrun frá vinum og vandamönn-
um en jafnframt ákærunni á hendur
stjúpfóður sínum fer Narvaez fram á
að ættleiðing Ortega á henni verði
gerð ógild.
Narvaez handbendi geimveru?
Stuðningsmenn Ortegas saka Nar-
vaez um að standa í ófrægingarher-
ferð gegn stjúpfóður sínum í pólitísk-
um tilgangi. Rafael Ortega, bróðir
Narvaez, hélt tvo blaðamannafundi í
vikunni þar sem hann hafnaði algjör-
lega ásökunum systur sinnar og taldi
auk þess vafa leika á um að hún væri
fullkomlega heil á geði. Á þriðjudag
hafði Rafael Ortega gefið í skyn að
faðir sinn væri bitbein I metingi sem
Narvaez ætti í við móður sína en á
fimmtudag sakaði hann Narvaez hins
vegar um að vera handbendi Henry
Petries, uppreisnarmanns innan
Sandínistaflokksins, sem að sögn Or-
tegas teldi sig vera „geimveru með
sérstakt verkefni hér á jörðu“. Að-
spurður taldi Petrie, sem gefið hefur
út ljóðabækur, að menn hefðu ef til
vill misskilið skáldskap sinn.
Narvaez sagðist ekki undrandi á
ummælum bróður síns, enda nyti hún
ekki stuðnings fjölskyldu sinnar.
Hún sagðist vonast til að ákæra sín
yrði til þess að aðrar konur, sem sætt
hafa misnotkun, krefðust réttar síns.
/'TIGFk
SLÁTTUVÉLAR, ORP,
LIMOIROISKLIPPUR OO
MUSATJSTAfflAR í ÚRVALI
Stiga Bio-Chip
kurlari 1400W
Stiga Turbo
sléttuvél
með grashirðipoka
I Góð fyrir heimili
Stiga
rafmagnsorf 450W
Stiga Tornado i
sláttuvól meö drifi
Fyrir sumarbústaða-
eigendur, bæjarfélög
og stofnanir
Stiga
rafmagns-
llmgerðiskiippur
360W
Stiga EL33
rafmagns-
sláttuvél 1000W
Fyrir litla garða
Stlga Garden
aksturssláttuvél
Einstök fyrir
sumarbústaðaeigendur
og stofnanir.
Stiga
mosatætari
325W
Sölustaðir um allt land
HAMRABORG 1-3, NORÐANMEGIN • KÓPAVOGI • SÍMI 564 1864 • FAX 564 1894
Reuters
SIPHIWE Nyanda tekur við embættinu sem yfirmaður s-afríska hers-
ins frá Georg Meiring hershöfðingja.
Blökkumaður yfír-
maður S-Afríkuhers
Pretoria. Reuters.
ÞÁTTASKIL urðu í sögu s-afríska
hersins í gær þegar Nelson Mand-
ela, forseti S-AMku, skipaði svartan
mann í embætti yfirmanns herafla
landsins. Siphiwe Nyanda, sem er 48
ára gamall, tekur við af George
Meiring hershöfðingja sem hrökkl-
aðist úr embætti eftir að staðhæfmg-
ar hans um að valdarán væri í vænd-
um reyndust úr lausu lofti gripnar.
Skipun Nyandas vekur athygli því
hann var áður leiðtogi skæruliða-
sveita Mandelas og sem slíkur ein af
hetjum frelsisbaráttu svertingja.
Hún er einnig mikilvægt skref í um-
byltingu s-afríska hersins en ekki
eru nema fjögur ár síðan 30.000 fyrr-
verandi skæruliðar frelsishreyfingar
Mandelas voru innlimaðir í her S-Af-
ríku.
Fréttaskýrendur sögðu í gær að
skipun blökkumanns í embætti yfir-
manns heraflans væri tímabær, skref
sem taka hefði þurft fyrr en seinna. í
kjölfar Meiring-hneykslisins hefði
það hins vegar orðið bráðnauðsyn-
legt en í skýrslunni sem Meiring
sendi Mandela, þar sem hið ímynd-
aða valdarán var rakið, var því m.a.
haldið fram að Nyanda væri einn
þeirra sem hygðist ræna völdum.
Nyanda sagði við hátíðlega athöfn í
gær að hann teldi sættir milli hvítra
og svartra í S-Afríku afar mikilvæg-
ar, kominn væri tími til að fyrirgefa
og segja skilið við fortíðina. Hann gaf
í ræðu sinni til kynna að hann myndi
berjast fyrir auknum fjárútlátum til
hermála, að öðrum kosti væri ekki
hægt að halda úti öflugum her.
Ættingjar Su-
hartos segja af
sér embættum
Jakarta. Reuters.
BAMBANG Trihatmodjo, sonur
Suhartos fyrrum Indónesíuforseta,
og Indra Rukmana, sem kvæntur er
Siti Rukmana dóttur Suhartos,
sögðu sig úr stjóm Biamantara
Citra fyrirtækjasamsteypunnar í
gær, en fyrirtækið er með stærstu
og ríkustu fyrirtækjum Indónesíu.
Jafnframt sagði Trihatmodjo af sér
sem forseti fyrirtækisins en hann
var meðal stofnenda þess árið 1981
og hefur stýrt því síðan. Þeir eru þó
áfram stærstu hluthafar þess, Tri-
hatmodjo á meira en 38% í fyrir-
tækinu og Rukmana á um 14%.
Á sama tíma var kunngerð spá
sem gerir ráð fyrir á milli 70% og
100% verðbólgu á þessu ári i stað
11% prósenta á síðasta ári og greip
nokkur örvænting um sig vegna
efnahagsástandsins. Fulltrúar Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) eiga
nú í viðræðum við Indónesíustjórn
um hvenær hefja eigi á nýjan leik
greiðslur sem tengjast aðstoð sjóðs-
ins við Indónesíu.
Afsagnir ættingja Suhartos koma
í kjölfar krafna þess efnis, að ríkis-
stjóm Jusufs Habibies, nýs forseta
Indónesíu, rannsaki viðskiptasamn-
inga manna sem tengjast stjóm Su-
hartos. Auk afsagna Trihatmodjos
og Rukmanas fór Seðlabanki
Indónesíu einnig fram á það við
stjómvöld í gær að þau létu ábyrga
aðila taka við rekstri Bank Central
Asia sem er í eigu Siti Rukmana,
dóttur Suhartos, og Sigit Hardjoju-
danto, elsta sonar Suhartos, auk
Liem Sioe Liong, nákunningja Su-
hartos. Mörg fyrirtæki hafa lent
undir smásjánni síðan Suharto
sagði af sér embætti forseta og get-
gátur hafa verið uppi um að Biam-
antra Citra hafi grætt ótæpilega á
ríkissamningum á meðan Suharto
réð ríkjum.
Habibie hefur lofað að taka á
slíkri mismunun í viðskiptalífinu og
jafnframt að draga vemlega úr
skriffinnsku í ríkiskerfinu sem mjög
hefti framkvæmdir og fjárfestingar.
Habibie tók við forsetaembættinu í
síðustu viku eftir margra daga
óeirðir í Indónesíu. Allt hefur verið
með kyrram kjöram síðan þá á göt-
um úti en í gær sagði The Jakarta
Post frá því að einn maður hefði
fallið og átján særst í óeirðum á
miðvikudag í bænum Tanjungbalai
á Norður-Súmötra.
-----------------
Stefnir í
verkfall
París. Reuters.
TALSMENN flugmanna hjá Air
France, franska ríkisflugfélaginu,
sökuðu í gær stjórn fyrirtækisins
um að stefna vísvitandi í átök en
enginn árangur varð af samninga-
fundi með deiluaðilum.
Deilan snýst um þá ætlan stjórn-
ar flugfélagsins að lækka laun flug-
manna um 15% en hún telur það
óhjákvæmilegt vegna nýrrar fjár-
festingar. Hefur ríkisstjórnin mikl-
ar áhyggjur af þessu máli en heims-
meistarakeppnin, sem hefst 10. júní,
fer fram á 10 leikvöngum víðs vegar
um landið. Hefur Air France tekið
að sér allt flug í sambandi við hana.