Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 27
bæði konum og körlum. Enda er það
algeng sjón erlendis að sjá konur á
öllum aldri á léttum bifhjólum. Þau
henta okkur konum vel vegna þess
hve þau eru létt og síðast en ekki síst
þá getum við verið í pilsi á hjólinu.
Eg verð að játa að mig hefur lengi
langað í svona hjól. Eiginlega alveg
frá því ég var smástelpa og sá karl
sem bjó í nágrenni við mig aka á
Vespu. Það var nú eitthvað annað að
sitja í mjúku sæti og geta hvílt fæt-
urnar á palli en hanga á grjóthörðum
hnakki reiðhjólsins og þurfa að stíga
fótstigið þangað til maður gekk upp
og niður af mæði og svo var vindhlíf-
in á Vespunni svo asskoti flott.
Eiginmaðurinn gaf
henni bifhjól í jólagjöf
Það eru ekki margar konur hér á
landi sem aka á léttum bifhjólum að
staðaldri en þeim fer fjölgandi. Eg
frétti af bóndakonu norður í landi
sem á skutlu. Fer hún á hjólinu milli
heimilis og útihúsa, milli bæja og í
kaupstaðinn.
Svo er það hún Jórunn Kjartans-
dóttir, margra barna móðh- og
amma í Grafarvoginum. Hún hefur
notað hjólið þegar hún fer út í búð
að kaupa í matinn eða þegar hún
skreppur niður í bæ. Stundum
heimsækir hún manninn sinn í vinn-
una í Kópavoginum eða fer í heim-
sókn á Kleppsveginn til barnabarn-
anna.
Það var einmitt eiginmaðurinn
sem gaf Jórunni skutluna í jólagjöf
og kom henni gjöfin mjög á óvart.
„Hann fór með mig á aðfangadags-
kvöldi niður á verkstæði þar sem
hann gerir upp gamla bíla í tóm-
stundum. Þar stóð hjólið pakkað inn
í jólapappír. Hann spilaði meira að
segja jólalög meðan ég tók pappírinn
utan af hjólinu. Mín fyrstu viðbrögð
þegar ég sá hjólið voru þau að ég
sagðist aldrei fara á þetta hjól. Enda
var ég fyrst svolítið smeyk en svo
hef ég haft ofsalega gaman af
þessu,“ segir Jórunn.
Hún segir barnabörnin líka hafa
gaman af að fá að sitja aftan á og
fara nokkra hringi með ömmu. „A
sumrin, í góðu veðri ek ég stundum
bara eitthvert út í bláinn. Það er svo
yndislegt að fínna loftið leika um sig
og svo er maður eitthvað svo frjáls.“
Jórunn segist yfírleitt mæta tillits-
semi í umferðinni. „Menn taka jafn-
vel smásveig þegar þeir sjá mig. Það
Ljósmynd/Hildur Einarsdóttir
ITOLSK stúlka að renna hjóli sínu út úr „vespustæði“í Florence.
hefur aðeins einu sinni gerst að
bíll nánast straukst við mig, það
var mjög óþægilegt. Annars
held ég mig alltaf yst á vegar-
kantinum."
Þegar Jórunn er á vespunni
er hún venjulega í gömlum leð-
urjakka af syni sínum og leður-
buxum af dótturinni. „Maður
verður að vera í leðri ef maður
dettur. Eg hef sem betur fer
sloppið við það hingað til.“
Jórunn segist vekja athygli
þar sem hún fer á hjólinu. „Fólk
kemur til mín til þess að spyrj-
ast fyrir um gripinn. Einn dag-
inn hitti ég tvær konur á sjö-
tugsaldri sem voru svo áhuga-
samar um hjólið mitt að þær
voru að velta því íyrir sér hvort
þær ættu ekki bara að selja bíl-
inn og fá sér svona hjól.“
Eins og fleiri sem eiga skutlur þá
tekur Jórunn hjólið af númerum á
veturna og setur inn í bflskúr en þá
tekur frúarbfllinn við.
Valda sjaldnast slysum
í umferðinni
Það kemm' fram hjá viðmælend-
um mínum að skutlan er afar auð-
veld í akstri. I öllum nýrri gerðum af
léttum bifhjólum er startarinn raf-
knúinn eins og í bfll og það er sjálf-
skipt. Eina sem ökumaðurinn þarf
að gera er að setjast á faratækið,
ræsa og aka af stað - og svo bremsa
auðvitað. Hjólið er með öryggisbún-
aði eins og stefnuljósum og hemla-
ljósum. Og það er meira að segja
rúmgott hólf undir sætinu fyrir
hjálminn eða annað dót. Þeir sem
eiga vespur segja að þær þurfi lítið
viðhald ef farið er vel með þær og
þær séu stöðugar í akstri.
Vespm-nar eiu líka öruggt tæki í
umferðinni ef tekið er mið af því
að þessi ökutæki valda sjaldn-
ast slysum. Ef menn detta og fá
hjólið yfir sig þá er það svo létt
að það veldur litlum skaða. Há-
markshraði vespa hér á landi er
45 km/klst. Þetta er samkvæmt
Evrópskum staðli. Skutlueig-
endur kvarta gjarnan undan því
að þeim fmnist þessi hámarks-
hraði of lágur því það skapi
vissa hættu þegar bflar eru sí-
fellt að taka fram úr. Eigi þetta
sérstaklega við fjölfarnar um-
ferðargötur. Segja þeir að æski-
legt væri að geta farið upp í 60
km/klst. á þessum götum.
Fór í brúðkaupsferð á
Vespu Piaggio
Hannes Sigurðsson listfræð-
ingur hefur átt ekta Vespu Pi-
aggio síðan hann vai' í París árið
1986. A Vespunni fór hann meðal
annars í brúðkaupsferð um Frakk-
land með eiginkonuna Sesselju Guð-
mundsdóttur aftan á. Kvaðst hann
einnig hafa notað hjólið mikið er
hann var tvö ár við nám í London. Þá
sagðist hann hafa flutt heilu búslóð-
irnar á hjólinu. „Ég fór alltaf varlega
í umferðinni," segir hann en stund-
um gátu ökumenn kraftmeiri farar-
tækja ekki stillt sig um að gefa mér
tóninn og æptu þá gjarnan: „Get out
of the way you bloody worm!
Hannes sagði að erlendis séu starf-
ræktir Vespuklúbbar en Vespumenn-
ingin sé heill heimur út af fyrii' sig.
Sagðist hann einnig hafa orðið var
við hve mótorhjólaeigendur héldu vel
saman. Máli sínu til sönnunar sagði
hann sögu af því þegar hann var að
aka á hraðbraut erlendis og hjólið
bilaði. „Ég var í stökustu vandræðum
því ég kunni ekki að gera við hjólið.
Sé ég þá hvar kemur heilt mótor-
hjólagengi brunandi í áttina til okkar.
Þeir voru ekki árennilegir að sjá með
stálhjálma og keðjur hangandi utan á
sér. Attum við Sesselja helst von á
því að þeir færu að abbast upp á okk-
ur eða eitthvað þaðan af veira. Þess í
stað sögðu þeir blíðum rómi: „Hvað
er að, vinur?“ Fjórir úr hópnum
hófust þegar handa við að gera við
Vespuna. Kortéri seinna gátum við
haldið ferðinni áfí-am.“
Hannes sagðist hafa sett Vespuna
í geymslu þegar hann fór til náms í
Bandaríkjunum. Tók hann hana ekki
í gagnið aftur fyrr en sjö árum
seinna. „Ég dró hana undan drasli
þar sem hún var geymd, dældi lofti í
dekkin, fyllti hana af bensíni og kom
henni í gang, í öðru eða þriðja starti.
Þetta segir mikið til um hvflíkur
listagripur hér er á ferðinni," segir
Hannes stoltur. Næstu tvö sumur á
efth notaði Hannes hjólið fimm til
sex mánuði á ári nema síðastliðið
sumar. Ástæðan er einföld. Það er
allt of dýrt að tryggja hjól eins og
þetta hér á landi eða jafn dýrt og að
tryggja bfl. „Mér finnst þetta fárán-
legt,“ segir hann með áherslu.
„Vespan er góður kostur vegna
vegna þess hve hún eyðir litlu. Ef
það væri hægt að tryggja vespuna
aðeins í þá mánuði sem maður er
með hana í notkun þá væri það
skömminni skárra, en maður verður
að gi-eiða tryggingar fyrir heilt ár.
Þetta finnst mér mikil skammsýni.“
Fyrir þá sem langar til að prófa að
aka léttum bifhjólum má segja frá
því að opnuð hefur verið vélhjóla-
leiga þar sem Mótorsendlar eru til
húsa á Ránargötu í Reykjavík og á
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Að
sögn Jóns Hlíðar Runólfssonar sem
stýrir Mótorsendlum þá hafa útlend-
ingar verið að koma með létt bifhjól
til landsins til að ferðast á þeim hér
en nú geta þeh og svo landinn fengið
hjólin leigð hér á Fróni.
TILBRIGÐI TÍSKUNNAR
ÞÆR sóma sér vel í zebratiskunni stórstjörnurnar Sharon Stone,
Lisa Canning og Lisa Rinna.
Svart-hvít zebratíska
VEGIR tískunnar liggja til allra
átta og jafnvel zebrahestar í Af-
ríku geta orðið tískuhönnuðum
uppspretta hugmynda, eins og
sést á meðfylgjandi myndum.
Víst er að svart-hvítar rendur
hafa löngum þótt fallegar, og
leiðir það óneitanlega hugann
að áferðarfallegum búningum
knattspyrnuliða á borð við Ju-
ventus á Italíu, Newcastle á
Englandi, Knattspyrnufélags
Reykjavíkur og Magna frá
Grenivík, svo að nokkur séu
nefnd. En í Ameríku eru það
þekktar fyrirsætur og sjón-
varpsstjörnur sem tekið hafa
upp merki svart-hvítu zebratísk-
unnar og það fer þeim óneitan-
lega vel eins og sjá má.
UNDIRBUNINGSFUNDUR AÐ STOFNUN
HAGSMUNASAMTAKA FYRIRTÆKJA
í FERÐAÞJÓNUSTU
Undirbúningsstofnfundur hagsmunasamtaka fyrirtækja
í ferðaþjónustu verður haldinn fimmtudaginn 4. júní
kl. 14.00 á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig).
Dagskrá verður sem hér segir:
Fundarmenn boðnir velkomnir
Aslaug Alferðsdóttir, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa.
Kynning
Undirbúningsnefnd kynnir drög að lögum og fjallar um
aðdraganda og framtíðarsýn.
Stutt ávörp:
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða
Helgi Jóhannsson, forstjóri Samvinnuferða/Landsýn
Yilhelm Ágústsson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar
Oskar Finnsson, veitingamaður, Argentínu
Kaffihlé
Umræður
Forskráning stofnfélaga
/ x
Fundarstjóri veður Omar Benediktsson, framkvæmdastjóri Islandsflugs.
Undirbúningsnefndin.