Morgunblaðið - 30.05.1998, Page 45

Morgunblaðið - 30.05.1998, Page 45
í LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 45 C MORGUNBLAÐIÐ ASTHILDUR SIGURRÓS JÓHANNSDÓTTIR + Ásthildur Sigur- rós Jóhannsdótt- ir fæddist á Skjald- fónn við ísafjarðar- djúp hinn 13. júní 1923 og þar ólst hún • upp. Hún lést á Sjúkrahúsi Isafjarð- ar 19. apríl síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Jóna Sigríð- ur Jónsdóttir, ljós- móðir, og Jóhann Ásgeirsson, bóndi á Skjaldfonn, og var Ásthildur þeirra yn- gsta barn. Börn Jó- nu og Jóhanns voru, auk Ásthild- * ar: Aðalsteinn, bóndi á Skjald- fónn, f. 1909, d. 1993, Guðjón, húsasmiður í Reykjavík, f. 1910, Magnús, útvarpsvirkjameistari í Reykjavík, f. 1912, d. 1997, Rósa, húsfreyja á Armúla, f. 1915, d. 1990, Karen, bankaritari í Reykjavík, f. 1918, Kristján, verkamaður í Reykjavík, f. 1919, og Halldór, húsasmiður í Reylga- vík, f. 1921. Maður Ásthildar var Marvin Kjarval bóndi og rafvirki. Mar- vin fæddist á Nauteyri við fsa- íjarðardjúp 16. apríi 1921. For- eldrar hans voru þau Ingibjörg Mig langar til að minnast Ást- hildar frænku minnar með fáeinum orðum. Þegar ég man fyrst eftir mér voru Ásthildur föðursystir mín, sem yfirleitt var kölluð Adda, og fjölskylda hennar, til heimilis á Ár- múla hjá Rósu, systur Öddu. Ár- I múli var næsti bær við Skjaldfónn, þar sem ég ólst upp. Þau Adda og Marvin, maðurinn hennar, eru í hópi allra fyrstu gesta sem ég man eftir að kæmu heim. Þau voru í miklu uppáhaldi hjá mér og bar þar margt til. Adda var alltaf svo hlýleg og notaleg við mig og okkur systk- inin og svo var hún líka frænka mín. Frændsemi var nokkuð sem maður tók alvarlega í þá daga. Mér fannst þær amma og mamma alltaf tala einhvern veginn öðruvísi um frændur og frænkur heldur en ann- að fólk, svona eins og þær ættu að minnsta kosti annað hvert bein í skyldfólki sínu. Mér fannst þá að ég hlyti að eiga það líka, þó auðvitað gerði maður sér svolítinn manna- mun eins og gengur. Elstu börn Öddu og Marvins voru á líku reki og ég og því kærkomnir leikfélagar. Svo var hann Marvin kapítuli útaf fyrir sig. Hann átti nefnilega jeppa sem fjölskyldan kom yfirleitt á frameftir. Það var fylgst vel með veginum ef von var á Marvin, og um að gera að vera nógu fljótur niður að hliði til þess að opna þegar hann kom og fá svo kannske að sitja í jeppanum heim. Ekki stóð heldur á því að bjóðast til að loka hliðinu þegar hann fór, en þá fékk maður líka ævinlega áminningu frá ömmu að koma rakleitt heim, og freistast alls ekki til þess að fara að fikta við hana Bæjará. Og hann Marvin kunni ekki bara á jeppa. Hann kunni líka á enn merkilegri tæki eins og stóra búnaðarfélags- traktorinn með gaddahjólunum, og hann stjórnaði jarðýtunni sem kom, þegar ég var á að giska fjögurra ára, og ýtti öllum stóru þúfunum á Bessavellinum um koll eins og ekk- ert væri og sléttaði yfir allt saman. Og þessar þúfur voru þó svo stórar að ég hafði nærri því trúað sögun- um um að kall sem hét Bessi hefði hengt sig á milli þeirra einhvern tíma í fyrndinni. Þegar ég var sex ára fluttu þau Adda og Marvin út í Skutulsfjörð og bjuggu fyrst á Naustunum, en sá bær stóð handan við Sundin beint á móti ísafjarðarkaupstað. Þá varð heldur betur vík á milli vina því til ísafjarðar var dagsferð með Djúp- bátnum. Hann var á ferðinni tvisvar í viku og varla um aðrar samgöngur að ræða. Til Isafjarðar fór fólk því ekki nema það ætti Guðmundsdóttir Kjarval og Steinn Leósson. Börn Ást- hildar og Marvins eru: 1) Jóna Sigríð- ur, f. 16. mars 1946, maki Kristján A. Helgason, 2) Arn- viður Unnsteinn, f. 17. ágpíst 1947, maki Vilborg S. Birgisdóttir, 3) Þor- steinn Ingi, f. 29. mars 1951, maki Katrín Phumipr- amman, 4) Jóhann Björgvin, f. 3. maí 1955, maki Þórdís M. Sumar- Iiðadóttir, og 5) Gunnvör Rósa, f. 11. janúar 1964, maki Guðjón Jóhannes Jónsson. Barnabömin eru orðin tólf og barnabarna- börnin tvö. Ásthildur og Marvin byrjuðu sinn búskap á Isafirði en fluttust að Ármúla 1947. Þau fluttust aft- ur út í Skutulsfjörð 1951 og bjuggu á Naustum til 1958. Þá fluttust þau út í Heimabæ á Am- ardal og bjuggu þar sfðan allan sinn búskap. Marvin Iést 26. júní 1992. Útfor Ásthildar fór fram frá Ísaíjarðarkirkju 25. apríl. brýnt erindi. Ég hitti Öddu frænku og hennar fólk því ekki aftur fyrr en ég var tíu eða ellefu ára og þurfti að fara til ísafjarðar til tann- læknis. Þá fékk ég að fara í heim- sókn yfir að Naustum að hitta Öddu frænku og krakkana. Þar fékk ég að gista og gat leikið mér við krakkana í nærri heilan dag. Þegar Isafjarðarflugvöllur var byggður hvarf túnið á Naustunum og gott ef ekki bæjarstæðið líka undir flugvöllinn. Þau Adda og Marvin fluttu þá að Heimabæ í Arnardal og bjuggu þar síðan allan sinn búskap. Ég vonaðist alltaf til að geta skroppið til þeirra í heim- sókn þegar ég átti leið um Isafjörð til og frá skóla. Það var þó ekki tími til þess nema stundum og þá helst ef ekki gaf að fljúga. Það var alltaf notalegt að koma til Öddu frænku. Þótt húsakynnin, sem hún bjó við um ævina, væru lengst af þröng og þægindi af skornum skammti fór alltaf vel um alla í borðstofunni í Arnardal. Og það var alltaf jafn gaman að sitja þar með fólkinu, gæða sér á mjólk með jólaköku og kleinum og hlusta á sögurnar hans Marvins og malið í kisunum hennar Öddu. Þær voru gjarna nærstaddar því bæði dýr og menn undu sér vel hjá Öddu frænku. Adda frænka var mjög listfeng kona, og þrátt fyrir stórt heimili og erfiðar aðstæður lengi vel fann hún sér alltaf stundir til þess að gera eitthvað fallegt í höndunum. Hún þurfti ekki að fara inn á Isafjörð í búðir til þess að kaupa tækifæris- gjafir handa vinum og vandamönn- um. Hún bjó þær til sjálf og þær voru alltaf jafn fallegar og vel gerð- ar. Á seinni árum þegar hún fór að hafa meiri tíma vann hún mikið með konunum í Slysavarnafélaginu á Isafirði og gerði muni á basarana þeirra. Slysavarnafélagið var „hennar" félagsskapur enda hafði hún oftar en einu sinni kynnst starfi þess af eigin raun. Ai-narnes- ið hefur löngum verið hættulegt skipum og þar urðu bæði skipskað- MINNINGAR ar og mannskaðar á búskaparárum Marvins og Öddu í Arnardal og skipreika menn voru fluttir heim í Heimabæ til að fá aðhlynningu hjá henni. Adda frænka missti mikið þegar Marvin dó sumarið 1992. Hún bjó þó áfram í nýja húsinu þeirra í Árnardal og það var ekki ónýtt fyrir ömmustelpurnar þeirra Jóa og Þórdísar að eiga hana að svo nærri. Á síðast liðnu sumri greindist Adda með krabbamein við auga og þurfti að fjarlægja augað ásamt hluta af kinnbeininu. Sú aðgerð hlýtur að hafa verið mjög erfið en ekki vildi hún sjálf þó gera neitt mikið úr því, enda hafði hún ekki lagt í vana sinn um dagana að fjarg- viðrast yfir hlutunum. Hún nefndi samt að hún vonaðist til þess að fá að halda sjón á hinu auganu og svo voru prjónarnir hennar mættir á náttborðið fljótlega eftir aðgerðina. Um jólin síðustu stakk hún inn í jólakortið til móður minnar smáhlut sem hún hafði þá nýlega saumað. Ég dáðist að handbragðinu ennþá meira en ég var vön, því ég gat varla trúað að manneskja með sjón bara á öðru auganu gæti saumað svona örsmá og fallega hnífjöfn spor. En það hafði Adda frænka samt gert og ekkert slakað á vand- virkninni frekar en fyrri daginn. Adda frænka var stálgreind, minnug og eftirtektarsöm og ótrú- lega fróð um menn og málefni við Djúp fyrr og síðar. Það hefur stundum skotið upp í huga mér á síðustu árum spurningum um eitt og annað frá fyrri tíð sem gaman væri að fræðast um, og ég hef hugs- að með mér að þetta myndi Adda frænka örugglega vita, ég mætti til með að hringja í hana við tækifæri og spyrja. En spurningarnar drukknuðu flestar í erli dagsins og komust ekki á framfæri og nú er engin Adda frænka lengur til að svara þeim. Það er dapurlegt til þess að hugsa hve mikið af reynslu og þekkingu, sem eftirsjá er að, fer forgörðum með hverri kynslóð sem kveður. Ein af ástæðunum er kannske sú hve áhuginn fyrir þess- um fróðleik vaknar seint hjá mörg- um. Börn og unglingar eru ekki endilega neitt ginnkeypt fyrir því að hlusta á sögur frá því í gamla daga. Ég man að ég var þannig sjálf og mín börn eru ennþá áhuga- lausari. Það er gjarna ekki fyi-r en seint og síðar meir að maður áttar sig á því hvað „þráðurinn að ofan“ - tengslin við það sem var - getur skipt miklu máli. Og þá er oft farið að fækka kringum mann fólkinu sem myndaði þennan þráð. Adda frænka var einn af þáttunum í þræðinum mínum og hann er veik- ari nú þegar hún er farin. Biblíusögurnar sem ég lærði hér- umbil utanað þegar ég var barn sögðu frá Paradís að loknu þessu jarðlífi. Ég átti alltaf erfitt með að ímynda mér hvernig daglegu lífi þar á bæ myndi vera háttað og hef svosem ekki orðið fróðari um það með árunum. En ef skaparinn gæti úthlutað þeim Öddu og Marvin smá borðstofukríli í sinni Paradís er al- deilis víst að bæði ég og fleiri gætu vel hugsað sér að fá að sitja þar kvöldstund og hlusta á nokkrar sögur hjá Marvin og fá mjólk og jólaköku hjá Öddu frænku. Guð geymi hana og þau bæði. Kristín Aðalsteinsdóttir. r 3l<Jmaböðm > C\aKðsKom k v/ FossvoQskiúkjugapð a V Sími: 554 0500 írjiírjtíýur Upplýsingar í símum 562 7575 & 5050 925 HOTEL LOFTLEIÐIR Wl i t i U N ft I « M Ö T * í 4 Glæsileg kaffihlaðborð FALLEGIR SALIR OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA + GÍSLI SKARPHÉÐINN SIGURÐSSON, Stapa, Hornafirði, lést af slysförum miðvikudaginn 27. mai. Sædís Guðný Hilmarsdóttir, Haukur Smári Gíslason, Valgerður Gunnarsdóttir, Sigurður Sigurbergsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Hjörleifur Einarsson, Sigríður G. Sigurðardóttir, Ingimar B. Björnsson, Hallur Sigurðsson, Elínborg Hallbjörnsdóttir, Sigurlaug J. Sigurðardóttir, Guðni Olgeirsson, Hulda St. Sigurðardóttir, Jón Á. Sigurjónsson. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ömmu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÖNNU PÁLÍNU SCHEVING STEFÁNSDÓTTUR, Öldutúni 12, Hafnarfirði. Sigurjón Scheving Stefánsson, Stefán Scheving, Grétar Scheving, Ragnar Scheving, Anna Scheving, Sigurjóna Scheving, Finnborg Scheving, Aðalbjörn Scheving, Anna Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Margethe Scheving, Ingunn Emilsdóttir, Svala Ólafsdóttir, Baldvin Baldvinsson, Halldór Björnsson, Espen Egeberg, V-- Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug viða andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, INDRIÐA JÓNSSONAR frá Patreksfirði, Háaleitisbraut 16, Reykjavík, og heiðruðu minningu hans. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki við heimahlynningu Krabbameins- félagsins fyrir frábæra hjúkrun. Petrína Jóna Elíasdóttir, Hallveig Elín Indriðadóttir, Ólafur Kristinsson, Steingrímur Guðni Pétursson, Sigríður Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öi’yggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanb- í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. g' ’g ‘g s$' ‘s sí' tíjrj-icfryÁÁjur VEISLUSALURINN SÓLTÚNI 3 AKOGESHÚSIÐ sími 562-4822 Biynjar Eymundsson matreiðslumeistari Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir smurbrauðsjómfrú VEISLAN A VEITINGAELDHÚS Frábærar veitingar Sfmi: 5612031 Fyrirmyndar þjónusta Sérfræöingar í blómaskrevtingum við öll tækifæri Bblómaverkstæði INNA Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sínii 551 9090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.