Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 68

Morgunblaðið - 30.05.1998, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 98% nemenda með atvinnu eða atvinnutilboð Á DÖGUNUM útskrifaðist 61 kerfísfræðingur frá Viðskiptahá- skólanum í Reykjavík/Tölvuhá- skóla Verzlunarskóla íslands, Samkvæmt könnun sem gerð var nokkrum mínútum fyrir útskrift höfðu 98% nemenda fengið vinnu eða tilboð um vinnu. Af hópnum voru 67% á leið til starfa í hug- búnaðarfyrirtækjum. í könnuninni var einnig spurt hvaða laun væru í boði og kom í ljós að byrjunarlaun eru að með- altali rúmlega 200 þúsund og enginn aðspurðra var með lægri laun en 150 þúsund. Einungis í 12% tilvika var yfírvinna inni í þessari upphæð. „Við erum auðvitað mjög stolt af þessum árangri," segir Guð- finna Bjamadóttir, nýskipaður rektor Viðskiptaháskólans. „Þessum skóla hefur verið ætlað að vera hagnýtur og það hefur greinilega tekist vel.“ ■ 61 kerfisfræðingur/11 Morgunblaðið/Porkell Fram- kvæmdir við Sultartanga STEFNT er að því að heQa raf- magnsframleiðslu í Sultartanga- virkjun með fyrri vélinni af tveimur í nóvember 1999. Unnið er nótt og dag við að sprengja aðrennslisgöng frá Sultartanga- lóni í gegnum Sandafell og hafa þegar verið sprengdir um 1,3 kílómetrar. Einnig er unnið af fulhim krafti að uppbyggingu stöðvarhússins. Jónas Theódór Lilliendahl, verkstjóri Fossvirkis Sultartanga, sýnir hér kampa- kátur ljósmyndara framkvæmd- irnar úr um 100 metra hæð yfir stöðvarhúsinu. ■ Þjórsá/34-35 Heimsmet í byggingarhraða álvers Norðuráls - full afköst í september Morgunblaðið/RAX UNNIÐ við að hita upp gafla í skautaskála Norðuráls. Rafmagni var í fyrsta sinn hleypt á leiðara í kerskálum álversins í fyrradag og í gær. Vinna við stækkun gæti hafíst að ári ÁLFRAMLEIÐSLA hefst 10. júní næstkomandi í álveri Norðuráls á Grundartanga. Rafmagni var í fyrsta sinn hleypt á leiðara í kerskálum álversins í fyrradag og í gær. Stefnt er að því að opna tíu ker í hverri viku eftir að framleiðslan hefst en alls eru 60 ker í tveimur kerskálum. Full afköst verða í verk- smiðjunni í lok september. Gene Caudill, forstjóri Norðuráls, segir að byggingarhraði álversins á Grundartanga sé heimsmet og hafi framkvæmdirnar vakið mikla at- hygli erlendis. Byggingaframkvæmdir hófust 1. apríl 1997 og tók verkið því um fjórtán mánuði. „Eðlilegt er að það -taki tvö ár að byggja álver af þess- ari stærð jafnvel við bestu aðstæð- ur. Þetta var okkar markmið og ís- lenskir verktakar tóku áskoruninni og gerðu það sem nauðsynlegt var til að skilatímar stæðust. Þessi mikli byggingarhraði hefur verið umfjöllunarefni um allan heim. Öll stærstu fagrit áliðnaðarins hafa sent fulltrúa sína hingað til að fjalla um álverið,“ sagði Caudill. Caudill sagði að vissulega yrði minni fjármagnskostnaður af álver- inu vegna hins mikla byggingar- hraða en á móti hefði komið flýti- kostnaður. „Álverið á eftir að stækka en að sjálfsögðu veltur það á hagstæðum álmarkaði og nægu orkuframboði. Að þessu gefnu má búast við að ál- verið verði 30 þúsund tonnum stærra síðla árs 1999 og framkvæmdir gætu hafíst snemma á næsta ári,“ sagði Caudill. Norðurál hefur leyfí til að starfrækja álver á Grundartanga með 180 þúsund tonna afkastagetu. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra segir að eftirlitsaðilar fyrir er- lenda fjármögnunaraðila álversins hafí lýst því yfir að þeir hafí aldrei áður kynnst jafnmiklum hraða í framkvæmdum og jafn vönduðum vinnubrögðum og hjá íslenskum verktökum við álverið. „Þetta er mjög mikilvægt afspurn- ar, ekki endilega til þess að fá er- lenda fjárfesta til Islands og nota ís- lenskt vinnuafl til framkvæmda hér- lendis, heldur ekki síður til að skapa mikil tækifæri fyrir íslenska verk- taka að hasla sér völl erlendis," sagði Finnur. Ellefu manns hafa látist í umferðinni það sem af er árinu Tölurnar vekja ugg ELLEFU manns hafa látist í umferðarslysum hér á landi á þeim íyrstu tæpu fimm mánuð- um sem liðnir eru af árinu, en ekki hafa svo margir látist í umferðinni á þessu tímabili í tíu ár, að sögn Óla H. Þórðar- sonar, framkvæmdastjóra Um- ferðarráðs. Hann segir þessar tölur vekja ugg, ekki síst í ljósi þess að oft verði mannskæðari slys á sumrin og haustin. Á sið- astliðnu ári létust alls 15 manns í umferðarslysum og 10 árið þar áður. Af þeim 11 sem hafa látist í umferðinni það sem af er þessu ári var einn gangandi vegfar- andi og tíu í bflum. Að sögn Óla eru allar líkur á því að belti hefðu getað bjargað þremur þeirra hefðu þau verið spennt. „í tveimur slysanna er grunur um ölvun við akstur og hraði kemur við sögu í nokkrum til- fellum," segir hann ennfremur. Óli segir lífsnauðsynlegt að all- ir taki sig á, noti tiltækan ör- yggisbúnað og fari að settum reglum. Leyfílegur heildarafli ákveðinn Farið að tillögum sérfræðinga SJAVARUTVEGSRAÐHERRA hefur ákveðið leyfilegan heildar- afla fyrir einstakar fisktegundir á næsta fiskveiðiári sem hefst 1. september og við ákvörðun sína hefur ráðherrann farið eftir tillög- um Hafrannsóknastofnunarinnar, sem kynntar voru síðastliðinn mánudag. I ákvörðuninni felst m.a. að leyfi- legur heildarafli af þorski hækkar frá yfirstandandi fiskveiðiári um 32 þúsund lestir og verður 250 þúsund lestir. Leyfilegur ýsuafli lækkar hins vegar um 10 þúsund lestir, út- hafsrækjuaflinn lækkar um 15 þús- und lestir og skarkolaafli lækkar um tvö þúsund lestir. Akvörðun um heildarafla á loðnu verður tekin síðar, en útlit er fyrir að loðnuaflinn verði tæpum 200 þúsund lestum meiri en á síð- ustu vertíð. Sjávarútvegsráðuneytið mun í næsta mánuði gefa út reglugerð um veiðar í atvinnuskyni á kom- andi fískveiðiári. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið að í samræmi við gildandi lög myndi aflaviðbótin dreifast á skip í samræmi við hlutdeild þeirra í einstökum fiskistofnum. „Það væri af mörgum ástæðum afskaplega óviturlegt að fara að breyta þessu,“ sagði Þorsteinn. ■ Farið eftir/19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.